Morgunblaðið - 10.03.1989, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 10.03.1989, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐE) IÞROTT1R PÖSTUDAGUR 10. MARZ 1989 43 HANDKNATTLEIKUR Alfreð aftur til Essen? „Ég fer fljótlega til V-Þýskalands til að ræða við forráðamenn Essen," segir Alfreð Gíslason ESSEN gerir nú allt til að fá Alfreð Gíslason, landsliðs- manninn sterka úr KR, aftur til liðs við sig. Einn af forráða- mönnum Essen ræddi við Alfreð í Frakklandi á dögun- um og sfðan hafa þeir þrýst á Aifreð. Eitt blað í V-Þýska- landi sagði frá þvf að Aifreð sé búinn að gera munnlegt samkomulag við Essen, að hann komi aftur til félagsins og leikl með þvf næsta keppn- istfmabil. Það er ekki rétt að ég sé búinn að gera munnlegt samkomu- lag við Essen. Ég fer fljótlega út til V-Þýskalands og þá verður ferðinni heitið til Essen. Ég mun þá ræða við forráðamenn félags- ins og sjá hvað þeir hafa upp á að bjóða," sagði Alfreð Gíslason f viðtali við Morgunblaðið í gær. „Já, ég get vel hugsað mér að ieika aftur með Essen. Ég kunni mjög vel við mig hjá félaginu. Ef svo fer að ég gangi til liðs við Essen - mun ég gera þriggja ára samning við félagið. Eftir þann tíma myndi ég ieggja skóna á hiiluna," sagði Alfreð. Alfreð er geysilega vinsæll í Essen, enda vann hann mörg frækileg afrek með félaginu - og var vel liðinn hjá forráðamönnum félagsins, leikmönnum og áhang- endum. Þegar hann fór frá Essen fyrir tæpu ári var hann sérstak- lega kvaddur á ráðhússtorgi borg- arinnar. Bjarki meiddur Bjarki Sigurðsson meiddist í leik Víkings og Gróttu í gærkvöldi. Hann fékk slæmt högg á hægra hné og var fluttur slysavarðstofuna. Ekki er ljóst hve alvarleg meiðslin en hann missir líklega af næstu leikjum Víkings. „Ég var á leiðini inn úr hominu og við skullum saman. Ég fór í myndatöku á slysavarðstofunni en þar kom ekkert fram,“ sagði Bjarki. „Ég geri ráð fyrir því að það hafi blætt inn á vöðva og geri mér von- ir um að fara að æfa fljótlega," sagði Bjarki. Þess má geta að Bjarki er einnig með slitin liðbönd í ökkla! Ámi sá um gömlu félagana Siguröur Svelnsson Sigurður sneri sig illaá ökkla „ÉG ætla mér aö leika Evrópu- leikinn gegn Magdeburg - verð teipaður vel fyrir leikinn,“ sagði Sigurður Sveinsson, stórskytta' úr Val, sem sneri sig illa á ökkla hægri fótar í leik Vals og Stjörnunnar. m Utlitið er ekki gott, en maður verður að bíta á jaxlinn," sagði Sigurður, sem lenti illa í leiknum. „Það teigðist á liðbandi og blæddi inn á.“ Sigurður fór tvisvar í geislameð- ferð í gær og hann á að fara tvisvar í meðferð í dag. Hann mun ekki æfa með Valsliðinu fram að Evrópuleiknum, sem verður í Laug- ardalshöllinni á sunnudagskvöld. Valsliðið lék æfíngaleik gegn KR í gærkvöldi. Það verður mikil blóðtaka fyrir Valsliðið ef Sigurður getur ekki leikið með gegn Magdeburg, þar sem Sigurður hefur verið óstöíðv- andi að undanfömu. „Ég ætla mér að leika Evrópuleikinn - hvað sem það kostar,“ sagði Sigurður, sem hefur ekki verið þekktur fyrir að gefast upp þó á móti blási. ■ TREVOR Francis, fram- kvæmdastjóri QPR, hefur verið ið- inn við að snara peningabuddunni á borðið að undanfömu - til að kaupa leikmenn. Hann keypti Colin Clarke frá Southampton í gær á 800 þús. sterlingspund, sem er metupphæð hjá félaginu. Clarke, sem er landsliðsmaður Norður- írlands, mun ieika með QPR gegn Newcastle á morgun. ■ TURUT Ozal, forsætisráð-_ herra Tyrklands, hefur ákveðið að fara til Kölnar til að sjá tyrkneska liðið Galatasaray leika seinni leik sinn gegn Mónakó í Evrópukeppni meistaraliða á miðvikudaginn kem- ur. „Þetta er í fyrsta skipti sem lið frá Tyrklandi nær svo langt í Evrópukeppninni. Ég hef því ákveð- ið að mæta til að styðja við bakið á leikmönnum liðsins,“ sagði Ozal, sem mun nota tækifærið og ræða við Helmut Kohl, kanslara V- Þýskalands. Þar sem Galatasary er í heimaleikjabanni, verður félag- ið að leika í Köln. Galatasary vann rleikinn — 1:0, í Mónakó. TVEIR sovéskir landsliðs- menn leikg. með SKIF Krasnodar, sem leikur gegn FH f Evrópu- keppninni á sunnudaginn í Hafn- arfírði kl. 17. Það em markverðim- ir Andrej Lavrow og Igor Tschumak. ■ FORSALA leiks FH og Krasnodar hefst í þróttahúsinu í Hafriarfirði á surinúdaginn kl. 15. Alfrað Gíslason hefur fagnað mörgum sætum sigrum í búningi Essen. Árni Friðlslfsson lék vel f gær og gerði mikilvæg mörk fyrir Vfkinga. þó ekki mjög sannfærandi. Liðið sýndi þó nokkum „karakter" er Bjarki og Karl fóru útaf og lék skynsamlega í lokin. Ámi Friðleifs- son var besti maður Víkinga og Bjarki Sigurðsson átti einnig góðan leik. Þá varði Sigurður Jensson vel er líða tók á leikinn og stóð sig sérstaklega vel í lokin. Halldór Ingólfsson var allt í öllu hjá Gróttu og virtist geta skorað þegar hann vildi. Páll Bjömsson átti ágætan leik, einkum í vöm og Sigtryggur Albertsson varði vel framan af. Essen Essen Víkingar eru enn í 5. sæti deildar- innar með 13 stig en Grótta er í 6. sæti með 11 stig og á leik til góða. Víkingur—Grótta 26 : 25 Laugardalshöllin, íslandsmótið ( hand- knattleik, 1. deild, fimmtudaginn 9. mars 1989. Gangur leiksins: 0:2, 1:3, 3:4, 6:6, 7:9, 8:10, 12:10, 12:11, 16:12, 16:14, 17:15, 18:17, 20:17, 21:19, 23:19, 23:23, 26:23, 26:24, 26:24, 26:25. Víkingur: Ámi Friðleifsson 8/1, Bjarki Sigurðsson 6/4, Sigurður Ragnarsson 4, Guðmundur Guðmundsson 4, Sig- geir Magnússon 2, Karl Þráinsson 2/1. Jóhann Samúelsson, Brynjar Stefáns- son, Stefán Pálsson og Eirfkur Ben- ónýsson. Varin skot: Sigurður Jensson 16. Heiðar Gunnlaugsson. Utan vallar: 16 mínútur og eitt rautt spjald. Grótta: Halldór Ingólfsson 11/4, Davfð B. Gíslason 3, Willum Þór Þórsson 3, Sverrir Sverrisson 3, Páll Bjömsson 3, Stefán Amarson 2. Svafar Magnús- son, Priðleifur Friðleifsson, Olafur Sveinsson og Öm Amarson. Varin skot: Sigtryggur Albertsson 11. Stefán Stefánsson. Utan vallar: 12 mínútur. Dómarar: Rögnvaldur Erlingsson og Einar Sveinsson. Vom langt frá sfnu besta. Áhorfendur: 150. Ikvöld í kvöld er einn leikur f 1. deild karla 1 handknattleik. KR og KA leika f Laugardalshöll. 11. deild kvenna eru tveir leikir: Stjaman og Þór leika f Digranesi og í Vestmannaeyjum mætast ÍBV og Fram. Leikimir hefl- ast kl. 20. Úrslitakeppni fslandsmótsins f körfuknattleik hefst f kvöld með leik Njarðvfkur og KR f Njarðvfk kl. 20. ÁRNI Friðleifsson átti stærstan þátt í sigri Víkings á Gróttu í Laugardalshöllinni í gær. Árni, sem lék áöur með Gróttu, gerði þrjú síðustu mörk Vikinga og tryggði þeim sigur, 26:25, í spennandi leik. Grótta byrjaði vel og hafði 1-2 marka forskoti framan af leiknum. Víkingar náðu sér svo á strik er líða tók á leikinn og voru IBmi yfír í leihléi, 15:12. LogiB. Þeir héldu forys- Eiðsson tunni þrátt fyrir að skrifar munurinn hafi ekki verið mikill. Þegar síðari hálfleikur var hálfnaður virt- ust Vfkingar hafa gert út um leik- inn og höfðu fjögurra marka for- skot. Þá missti liðið tvo leikmenn útaf: Bjarka Sigurðsson, sem meiddist, og Karl Þráinsson, sem fékk rautt spjald fyrir þriðju brott- vísun. Grótta gerði þá fjögur mörk í röð ogjafnaði 23:23 þegar fjórar mínút- ur voru eftir. Þá var komið að þætti Áma Friðleifssonar. Hann gerði þijú síðustu mörk Víkinga, það síðasta þegar rúm mínúta var til leiksloka. Það var svo ekki fyrr en á síðustu sekúndum leiksins að Grótta náði að minnka muninn í eitt mark, eftir mikinn baming. Víkingsliðið lék ágætlega en var MM Halldór Ingólfsson Gróttu. Ámi Friðleifsson Víklngi. M Bjarki Sigurðsson og Sigurð- ur Jensson Víkingi. Páll Bjömsson Gróttu. HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD ÍMÚmR FOLK ® VALSMENN standa fyrir fírma- og félagshópakeppni í körfu- bolta sunnudaginn 19. mars. Nán- ari upplýsingar fást í síma 11134 en tilkynna verður þátttöku fyrir 14. mars. H VALSMENN sigruðu Grindvíkinga í íslandsmótinu í körfuknattleik um helgina í leik sem réði úrslitum um hvort liðið færi í úrslitakeppnina. Leikurinn fór fram í íþróttahúsinu í Grindavík að við- stöddum rúmlega 550 áhorfendum og hávaðinn var að sjálfsögðu gífur- legur. Til þess að undirbúa sig fyr- ir leikinn æfðu Valsmenn með út- varpið á fullu og mættu því til leiks vel undirbúnir. ■ VALSMENN hafa fengið grænt ljós á að Ólafiir Benedikts- son leiki með þeim gegn Magde- burg í Evrópukeppni meistara- liða í Laugardalshöllinni kl. 20.30 á sunnudaginn. Valsmenn fengu skeyti frá Alþjóða handknattleiks- sambandinu í gær, þar sem þeim var sagt að senda 100 svissneska franka (3.300 ísl. kr.) til IHF og síðan að sýna dómurum leiksins kvittunina fyrir sendingunni. Vals- menn urðu að fá sérstakt leyfí fyr- ir Ólaf, þar sem hann kemur svo snöggt inn í hópinn vegna meiðsla Einars Þorvarðarsonar. ■ ÞAD eru ekki miklar líkur á að Einar Þorvarðarson leiki meira með Valsliðinu í vetur. Hann hefur fengið sérsmíðaðar spelkur — og getur hlaupið, en aftur á móti á hann erfitt með allar hliðarhreyf- ingar. H FORSALA aðgöngumiða á leik Vals og Magdeburg verður í Miklagarði á morgun kl. 14 til 16. Landsliðsmenn sjá um sölu að- göngumiðanna. HANDBOLTI Víkingur áfram Víkingsstúlkur tryggðu sér sæti í undanúrslitum bikarkeppni HSÍ í gær er þær sigruðu stöllur sínar úr Val, 20:15. Leikurinn var harður og mikil baratta í-báðum liðum. í leikhléi hafði Víkingur fimm marka for- skot, 9:4 og hélt þeim mun til leiks- loka. Guðrún Kristjánsdóttir fékk rautt spjald fyrir að mótmæla dómi og þá var fátt um fína drætti í Valsliðinu, enda vantaði þrjá lykil- menn í liðið. Markahæst Víkinga var Halla Helgadóttir með 7 mörk en Katrín Friðriksen og Guðný Guðjónsdóttir gerðu 4 mörk hvor fyrir Val.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.