Morgunblaðið - 10.03.1989, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 10.03.1989, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MARZ 1989 Dagvistargjöld hækka um 50% á næstu sjö mánuðum DAGVISTARGJÖLD á Akureyri hækka þann 1. apríl um 20%. ^Næsta hækkun er fyrirhuguð á dagvistargjöldum þann 1. ágúst um 20% og þann 1. nóvember munu dagvistargjöld hækka um 10%. Dagvistargjöld á Akureyri munu því hækka um 50% á næstu sjö mánuðum, eða frá 1. aprO til 1. nóvember 1989. Eftir hækkunina 1. apríl verða taxtar dagvistarstofnana þannig að Qögurra tíma leikskólapláss kostar 4.300 kr., 5 tíma pláss 5.300 kr., hádegispláss með heitum mat 6.500 kr. Dagheimilisrými fyrir böm ein- stæðra foreidra mun kosta eftir 1. apríl 6.800 kr. og fyrir böm giftra eða fólks í sambúð 10.000 krónur. Eftir að hækkanimar þtjár hafa allar gengið eftir, verður gjaldskrá dagvistarstofnana Akureyrarbæjar eftirfarandi: 5.500 kr. fyrir flögurra tíma pláss, 7.000 kr. fímm tíma pláss, 8.600 kr. hádegisplássin, 9.000 kr. dagheimilispláss fyrir böm einstæðra og 13.200 kr. dag- heimilisrými fyrir böm giftra eða sambýlisfólks. Síðast hækkuðu dagvistargjöld hjá Akureyrarbæ þann 1. mars 1988 um 10% vegna launahækkana við fóstmr. Fyrirhugað var að hækka dagvistargjöld þann 1. sept- ember sl. um 20%, en vegna verð- stöðvunar í landinu kom sú hækkun ekki til framkvæmda. 266 á biðlista Sigríður Magnea Jóhannsdóttir, dagvistarfulltrúi, sagði í samtali við Morgunblaðið að 266 böm væm á biðlista dagvistunar. Þetta væm böm fædd á ámnum 1983-1987. „Nokkuð mikil hreyfíng er fyrirsjá- anleg á dagvistunum á þessu ári þar sem stór hópur bama fer í skóla í haust. Böm fædd 1983 er nokkuð stór árgangur og detta um það bil 150 böm á því aldursskeiði út af dagvistunum. Þá má ætla að biðlist- inn minnki eitthvað, en á móti má búast við nýjum bömum inn á bið- listann." Sigríður sagði að fyrir- hugað væri að byggja eina dagvist á árinu á Akureyri, líklega á Holta- velli. Þar væri nú fyrir gæsluvöllur, sem brýnt væri að byggja upp og væri áætlað að samnýta það svæði sem gæsluvöll og tvær leikskóla- deildir. Sú samsetning væri ný á vegum bæjarins. Engar ákvarðanir hafa verið teknar um hvenær hafíst verður handa við framkvæmdir, en á fjárhagsáætlun bæjarins er veitt í bygginguna 15 milljónum kr. á árinu. Miðað er við kaup á eininga- húsi. Á vegum bæjarins em rekin 86 dagheimilisrými og 335 leik- skólapláss. Þá em 30 rými á skóla- dagheimili. Auk þess em í bænum tvær einkareknar dagvistir. Króga- ból er rekið á vegum foreldrasam- taka og Hvítasunnusöfnuðurinn rekur dagvist í húsnæði sínu við Skarðshlíð. Hlutur foreldra í raun- vemlegum rekstrarkostnaði dag- heimilanna á Akureyri nemur um 20%, en hvað varðar leikskólana, þá fer hlutur foreldra í rekstrar- kostnaði upp í 42-44%, að sögn Jóns Bjömssonar, félagsmálastjóra. Ennþá fóstruskortur Að sögn Sigríðar er fóstmskortur enn til staðar á Akureyri. Fóstm- stöður hafa þó verið fylltar með ófaglærðu fólki. Þá hefur annað af tveimur störfum hverfísfóstm í bænum verið laust frá 15. nóvem- ber sl. án þess að nokkur umsókn hafí borist. Starfsmannafélag Ak- ureyrarbæjar hefur sagt upp launa- liðnum frá og með 1. mars sl. Fóstr- ur hjá Akureyrarbæ em hinsvegar búnar að segja sig úr STAK og em gengnar í Fóstmfélag Islands. Þær hafa nú þegar skrifað bæjaryfír- völdum bréf og óskað eftir viðræð- um við forráðamenn bæjarins. Ný ísbúð NÝIR eigendur hafa tekið við rekstri Isbúðarinnar, Kaup- vangsstræti 3. Það em þau Linda Tómasdóttir og Eyþór Jósepsson. Þau hafa gjörbreytt innréttingum og bryddað upp á ýmsum nýjungum, svo sem samlokubar og meiri fjölbreytni í ísréttum en verið hefur til þessa. Þau sögðust í samtali við Morgunblaðið aldrei hafa komið nálægt verslunarrekstri áður. Hann hefði verið á sjón- um og hún unnið í banka. Þeim fannst kærkomið að reyna eitt- hvað nýtt svo þau keyptu versl- un. Morgunblaðið/Rúnar Þór Petromyndir opna ínýju húsnæði Ljósmyndaþjónustan Petromyndir hefúr opnað á nýjum stað. Nýja húsnæðið i Hofsbót 4 var tekið f notkun sl. föstudag, en fyrirtækið verður 25 ára á næsta ári. Eigendur hafa alltaf verið þau Guðrún Hjaltadótdr og Friðrik Vestmann. Þar verða einnig þrír tannlæknar til húsa auk Fata- hreinsunar Vigfúsar og Áma og Verkfræðistofu Norðurlands. Petromyndir munu að minnsta kosti fyrst um sinn reka þjónustu sina á tveimur stöðum, bæði á nýja staðnum og þeim gamla, í Hafnar- stræti 98. Siðan er meiningin að selja í Hafnarstrætinu og flytja alfarið yfir í Hofsbótina, að sögn eigenda. Ýmsar nýjungar verða á boðstólum svo sem stækkanir upp í 15x21 sm og boðið verður upp á svokölluð kveðjukort. Þá verður lögð sérstök áhersla á 10x15 sm stærðir af myndum. Frá vinstri á myndinni eru: Þórhallur Jónsson, Jón Andri Sigurðsson, Lilja Þorvaldsdóttir og Inga Vestmann, sem öU eru starfsmenn hjá Petromyndum. Þá koma eigendumir, þau Guðrún Hjaltadóttir og Frið- rik Vestmann. Nemendur æfa Shakespeare Húsavtk. ÞAÐ ER athyglisvert þegar nemendur framhalds- skóla eyða mildu af tómstundum sfnum til æfinga á leikriti eftir W. Shakespeare. Nemendur framhaldsskólans á Húsavík eru nú að æfa leikntið Draumur á Jónsmessunótt eftir W. Shakespeare og er frumsýning áformuð hinn 16. mars í tengslum við árshátið skólans. Þá má segja að þeir ráðist ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Æfíngar ganga vel og njóta stuðnings þriggja kennara, þeirra Einars Þorbergssonar, Þorgeirs Tryggvasonar og Jo Clayton við þessa viðamiklu upp- færslu. 16 útskrifast með pungapróf Húsavfk. Framhaldsskólinn á Húsavik útskrifaði fyrir nokkru 16 nemendur með réttindi til stjómar á bátum allt að 30 tonnum. En annar jafiistór hópur var útskrifaður fyrr í vetur. Þó ungir sjómenn hafi sett mestan svip á hópinn voru þar á meðal rafvirkjameistari, bifvélavirki, for- sijóri, símaverkstjóri, dekkjaviðgerðarmaður, sérleyfis- hafí, sérleyfisbflstjóri og sundlaugarforsijóri sem kalla má sportveiðimenn er eiga trillur. En þó réttinda sé ekki ennþá krafist til siglinga á minni bátum, er menntun, góð kunnátta og þekking til hins betra, hér sem annarsstaðar. Aðalkennarar voru Morgunblaðið/Silli. Leikstjórarnir Þorgeir og Einar fremst fyrir miðju í hinum glaða leikhóp. Það er því óhætt að segja að þessi unga stofnun, framhaldsskólinn á Húsavík, fari vel af stað og að hún sé líkleg til að efla og styrkja mannlífíð f Þingeyjarsýsl- um. - Fréttaritari Morgunblaðið/Silli Með 30 tonna réttindi ásamt kennurum, Þröstur sitjandi þriðji frá vinstri, Guðmundur Birkir, skólasfjóri, og Vilhjálmur. Vilhjálmur Pálsson og Þröstur Brynjólfsson, en skóla- stjóri er Guðmundur Birkir Þorkelsson. 5ihituWitio::' rrsc tíl' ■ Leikfélag Húsavíkur frumsýnir leikritið „Ærsladraugmn“ GAMANLEIKRITIÐ „Ærsla- draugurinn“ eftir breska háð- fúglinn Noel Coward verður fiTimsýnt þjá Leikfélagi Húsavíkur annað kvöld, laugar- dagskvöld. Leikstjóri er Hávar Siguijónsson, sem einnig var leikstjóri hjá Húsvíkingum i fyrra, þegar sett var upp leik- ritið „Gísl“ þar I bæ. r Leikendur eru sjö talsins, þeir eru; Þorkell Bjömsson, Guðný Þorgeirsdóttir, Sigríður Harðar- dóttir, Svava Viggósdóttir, Öm Ólason, Aldís Friðriksdóttir og Jóhannes Geir Einarsson. Ljósa- meistari er Jón Amkelsson og Ieik- myndasmíðina önnuðust þeir Sig- urður Sigurðsson og Einar Einars- son. y' Frumsýning á Ærsladraugnum hefst kl. 20.30 annað kvöld. Onnur sýning verður mánudaginn 13. mars kl. 20.30 og þriðja sýning miðvikudaginn 15. mars á sama tíma, Frá æfingu á Ærsladraugnum hjá Leikfélagi Húsavíkur. Leik- endur eru Guðný Þorgeirsdóttir, Þorkell Björnsson og Sigríður Harðardóttir. . (S .I íi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.