Morgunblaðið - 10.03.1989, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MARZ 1989
1
Alþjóðleg sjávarútvegssýning í Boston:
Islenska bleikjan
vekur athygli
Boston, frá Óla Birni Kárasyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
ISLENSKA bleikjan hefiir vakið
mikla athygli á alþjóðlegri sjáv-
arútvegssýningu í Boston, að
sögn Friðriks Sigurðssonar hjá
Landssambandi fiskeldis- og haf-
beitarstöðva, sem er með sýning-
arbás á The International Boston
Seafood Show í samvinnu við
Útflutningsráð íslands og Mark-
aðsnefiid landbúnaðarins. Þetta
er i fyrsta skipti sem islensk físk-
eldisfyrirtæki standa sameigin-
lega að kynningu á framleiðslu
sinni á erlendri sjávarútvegssýn-
ingu.
Friðrik sagði í samtali við frétta-
ritara Morgunblaðsins að borist
hefðu fyrirspumir frá innflytjend-
um í Bandaríkjunum og einnig frá
innflytjendum í Japan. íslendingar
munu vera þeir einu á sýningunni
sem bjóða upp á bleikju og hefur
hún vakið áhuga og athygli. Sýn-
ingargestum er boðið að bragða
bæði bleikju og lax í bás íslensku
fiskeldisfyrirtækjanna. Gert er ráð
fyrir að bleikjuframleiðslan á ís-
landi verði um 70 tonn á þessu ári
og um 300 tonn á næsta ári. Stærsti
hluti útflutnings á bleikju fer til
Bandaríkjanna og hefur verðið ver-
ið sambærilegt við verð á laxi, að
sögn Friðriks.
„Við erum að láta vita að við
séum til,“ sagði Friðrik þegar hann
var spurður um ástæður þess að
ákveðið var að taka þátt í sýning-
unni. Hann sagði að ekki hefði ver-
ið grundvöllur fyrir þátttöku á al-
þjóðlegum sýningum fyrr en nú, þar
sem framleiðsla hefði verið lítil. Á
þessu ári er gert ráð fyrir að fram-
leidd verði um 4.000 tonn af laxi.
íslendingar seldu um 350 tonn til
Bandaríkjanna á síðasta ári, að
verðmæti .100-110 milljóna
íslenskra króna. Samkvæmt upplýs-
ingum Friðriks flytja Bandaríkja-
menn inn um 20.000 tonn af laxi
á ári.
Fleiri íslensk fyrirtæki eru með
sýningarbása á sýningunni, þar á
meðal Coldwater, sölufyrirtæki SH
í Bandaríkjunum, og Iceland Sea-
food, dótturfyrirtæki SÍS. Sýning-
unni lýkur í dag, fimmtudag.
Alþýðubandalagið:
Þjóðviljinn fær 8 millj-
ónir af blaðastyrknum
Framkvæmdastjórn Alþýðu-
bandalagsins samþykkti á mið-
vikudag að greiða Þjóðviljanum
75% þeirrar upphæðar sem Al-
þingi úthlutaði þingflokki Al-
þýðubandalagsins til útgáfii-
starfsemi, eða tæpar 8 milljónir
króna. Sigurjón Pétursson for-
maður framkvæmdastjórnarinn-
ar segir að fyrir liggi ákvörðun
um að Alþýðubandalagið komi
Þjóðviljanum enn frekar til
hjálpar, en ekki sé enn ljóst með
hvaða hætti. Skuldir blaðsins
nema um 80 milljóniim.
Á stjómarfundi Útgáfufélags
Þjóðviljans á miðvikudagskvöld
voru ræddar ýmsar leiðir til að
koma blaðinu úr þeim erfiðleikum
sem það glímir við. Það mun liggja
fyrir, að starfsfólki blaðsins verði
sagt upp um næstu mánaðamót,
vegna endurskipulagningar á
rekstri en ekki hefur enn verið tek-
in ákvörðun um hvaða leið verður
farin.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins voru voru m.a. ræddar
tillögur frá starfsfólki blaðsins til
hagræðingar, svo sem að hætta að
gefa út blað á laugardögum, og ná
þannig fram sama niðurskurði á
blaðsíðufjölda og ef blaðið yrði skor-
ið niður í 8 síður daglega. Þá voru
einnig ræddar tillögur um hagræð-
ingu við vinnslu blaðsins.
ÞórPéturs-
sonlátinn
HúsavíkÞÓR Pétursson útgerðar-
maður á Húsavik lést mánudag-
inn 6. mars í sjúkrahúsinu á
Húsavík, tæpra 85 ára, fæddur
21. 5. 1904.
Hann var vel þekktur athafna-
maður meðal útgerðar og sjó-
manna. Ungur að árum hóf hann
sjósókn með bróður sínum Stefáni
og réru þeir fyrst á þekktum ára-
bát sem hét Klakkur.
Upp úr árunum 1930, keyptu
þeir bræður fyrsta vélbátinn Skal-
lagrím, 8 tonna bát á 4000 krónur.
Síðan óx útgerðin ár frá ári og
þeir bræður hófu söltun fiskjar og
sfldar, fyrst aðeins á Húsavík en
síðar einnig í Sandgerði og Kópa-
vogi.
Bátamir stækkuðu og um tíma
áttur þeir þrjú skip og umsvif þeirra
bræðra voru orðin mikil þá, þegar
þeir létu stjóm fyrirtækjanna í
hendur sona sinna. Samstarf þeirra
var alveg sérstaklega gott, Stefán
sótti sjóinn og var ávallt skipstjóri
á „móðurskipi" þeirra, en Þór sá
um verkun aflans í landi. Eftirlif-
andi kona Þórs er Hólmfríður Sig-
urðardóttir og eiga þau fímm böm
á lífí. Þór verður jarðsettur nk.
laugardag.
Fréttaritari
AÐALFUNDUR
Aðalfundur
Verslunarbanka íslands M.
verður haldinn í Súlnasal Hótel Sögu
laugardaginn 18. mars 1989 og hefstkl. 14:00
Dagskrá:
Aðalfundarstörf skv. ákvæðum
33. greinar samþykktar bankans.
Tillaga bankaráðs um útgáfu
jöfhunarhlutabréfa.
Tillaga bankaráðs um aukningu hluta-
Qár félagsins um 100.000.000 kr.
Önnur mál, löglega fram borin.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til
fundarins verða afhentir hluthöfum eða
umboðsmönnum þeirra í Verslunarbankanum
Bankastræti 5, 2. hæð miðvikudaginn 15. mars,
fimmtudaginn 16. mars og föstudaginn
17. mars 1989 kl. 9:15-16:00
alla dagana.
Bankaráð Verzlunarbanka íslands M.
VeRSLUNRRÐRNKINN
1
2
3
4
HU ER aðeins rúm lika efíit
af hinum eina og sanna
Faxafeni 14, 2. u,» mm
°g eJ.? fefcfcar verdio og nvH
kredilkortafiinabil hefsf i «££
Nýjar vorur
bætast vié
Opnunartími:
Föstudaga..........kl. 13-19
Laugardaga.........kl. 10-16
Aðra daga......... kl. 13-18
Frítt kaffi
Videóhom fyrir bömin
Fjöldi fyrirtækja
STEIHAR HUÓMPLÖTUR - KASSETTUR KARHAB/ER - BOGART - GARBÓ TÍSKUFATNAÐUR HUMMEL SPORTVÖRUR ALLS KONAR SAMBAHDIfi
SKYLDUNA RAfilÖBÆR HUÓMTÆKI O.M.FL. Þ.H. ELFUR FATNAÐUR HERRAHÚSIÐ/ADAM HERRAFATNAÐUR MÍLAHO SKÓFATNAÐUR BLÚM BLÓM OG GJAFAVÖRUR HAFHLAUSA
BfiBIM EFNI ALLS KONAR THEÚDÖRA KVENTÍSKUFATNAÐUR MU SNYRTIVÖRUR - SKARTGRIPIR PIRTY TÍZKUVÖRUR SKÖGLUBBIHK SKÓR Q.M.Fl. FYRIRTÆKI