Morgunblaðið - 11.04.1989, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1989
nrn
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR l'l. APRÍL 1989
Stlí !
' 25
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
ÁrniJörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 900 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 80 kr. eintakið.
Húsnæði fyrir
aldraða
Islendingar og Japanir státa
af lengstri meðalævi jarð-
arbúa. Sú staðreynd talar sínu
máli um almenna aðbúð fólks,
viðurværi, lífsmáta og heilsu-
gæzlu, þótt enn .standi margt
til bóta í þessum efnum.
Aldursskipting íslendinga
hefur og breytzt mikið sfðustu
áratugi. Hundraðshluti hinna
fullorðnu, sem skilað hafa ævi-
starfi til samfélagsins, í íbúatölu
landsins hefur vaxið ört — og
vex fyrirsjáanlega mikið næstu
ár og áratugi.
Samfélagið verður að bregð-
ast við þeirri miklu breytingu í
aldursskiptingu þjóðarinnar,
sem nú á sér stað. Hún kallar
á margs konar viðbrögð að því
er varðar hvers konar öldrunar-
þjónustu, meðal annars að því
er varðar húsnæði, vinnurétt,
tómstundir, heimilishjálp,
heimahjúkrun, dagvistir og
hjúkrunarstofnanir.
Sitthvað hefur að vísu verið
gert til að mæta þessari fram-
vindu. Máske liggur frumkvæð-
ið, þegar horft er til stærri fram-
kvæmda, hjá aðstandendum
Grundar og Ass. Reykjavíkur-
borg stendur og fyrir fjölþættari
öldrunarþjónustu en nokkurt
annað sveitarfélag. Fleiri
byggðarlög hafa fylgt myndar-
lega í kjölfarið, en önnur halda
að sér höndum, m.a. vegna
smæðar. Fáein stéttarfélög hafa
staðið vel að verki, eins og Dval-
arheimili aldraðra sjómanna og
íbúðir fyrir fullorðið fólk, sem
Verzlunarmannafélag Reykja-
víkur hefur byggt, vitna bezt
um. Félög aldraðra hafa einnig
lyft Grettistökum í húsbygging-
um, ekki sízt hér í Reykjavík.
Fjölmörg önnur dæmi mætti
nefna. Hér skal sérstaklega get-
ið Sunnuhlíðarsamtakanna í
Kópavogi, sem um þessar mund-
ir eiga tíu ára starfsafmæli. Þau
vóru stofnuð að frumkvæði tíu
klúbba og félaga í kaupstaðnum
í aprílmánuði 1978. Samtökin
létu vissulega hendur standa
fram úr ermum. Fjórum árum
síðar — 1982 — var vígt hjúkr-
unarheimili aldraðra í Kópavogi.
Arið 1987 hefst síðan bygging
fjörutíu vemdaðra þjónustu-
íbúða fyrir aldraða, sem nú eru
allar komnar í gagnið. Ásgeir
Jóhannesson, formaður stjÖmar
hjúkrunarheimilis aldraðra í
Kópavogi, segir m.a. í tíu ára
afmælisriti Sunnuhlíðan
„Og ef okkur tekst að loka
þessum hugmyndafræðilega
hring, það er: hjúkrunarheimili,
þjónustuíbúðir, dagvist og
heilsurækt, getum við þá ekki
endurtekið þetta aftur og aftur,
þannig að slíkar einingar gætu
risið sem víðast á landinu ...?“
Sunnuhlíðarsamtökin eru eig-
endur að íbúðum á þeirra veg-
um. íbúar fá hinsvegar í hendur
óuppsegjanlegan íbúðarréttar-
samning sem gildir til æviloka
viðkomandi, ef hann óskar þess,
enda hafi íbúðarréttarhafi greitt
umsamda fjármögnun íbúðar-
innar á 18 mánuðum eða
skemmri tíma. í stað afsals fær
hann í hendur bankatryggingu,
sem felur í sér skuldbindingu
um endurgreiðslu, samkvæmt
sérstökum samningum þar um.
Ef íbúðarréttarhafi segir upp
samningi sínum fer endur-
greiðsla á fjárframlögum, sem
rétthafi hefur reitt af höndum
til að tryggja íbúðarrétt á bygg-
ingartímanum, fram á 18 mán-
aða tímabili. Endurgreiðslur eru
verðtryggðar en án vaxta.
Tvímælalaust er hagkvæmast
fyrir þjóðfélagið að gera öldruð-
um kleift að búa sem lengst í
eigin húsnæði, ef vilji viðkom-
andi stendur til, meðal annars
með heimilishjálp og heima-
hjúkrun, ef með þarf. Eigna-
skattar af eigin húsnæði, sem
aldraðir nýta sjálfír, eiga að
vera í algjöru lágmarki, ef
nokkrir. Þess vegna er „ekkna-
skattur“ núverandi ríkisstjómar
til skammar.
Gera þarf öldruðum, sem það
vilja, kleift að selja eldri íbúðir
og eignast eigið, sérbyggt hús-
næði fyrir aldrað fólk. Jafnhliða
þurfa leiguíbúðir fyrir aldraða
að vera fyrir hendi, m.a. í eigu
sveitarfélaga, stéttarfélaga,
samtaka eða einstaklinga. Sú
leið sem Sunnuhlíðarsamtökin
hafa farið, leið ævilangs íbúðar-
réttar, er og æskilegur valkost-
ur. Nauðsynlegt er að valkostir
séu af fleiri en einum toga.
Menning þjóðar og þroski
þjóðfélags mælist máske bezt á
þann mælikvarða, hvern veg
búið er að hinum öldruðu, ekki
sízt að því er varðar húsnæði,
heilsugæzlu, vinnu við hæfí, ef
vilji fólks stendur til nokkurra
starfa, tómstundir og félagsleg-
ar þarfír. Sitthvað hefur vel ver-
ið gert að þessu leyti. Enn fleira
er þó ógert. Framhaldið er í
höndum samfélagsins, félaga-
samtaka og einstaklinganna
sjálfra.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra ávarpar ráðstefiiu Samtaka um vestræna samvinnu og Varðbergs. Á myndinni eru auk ræðu-
manns frá vinstri: Magnús Þórðarson, Davíð Björnsson, Gylfi Sigurjónsson, Kjartan Gunnarsson, Jón Baldvin Hannibalsson og Þorsteinn Pálsson.
40 ára aftnæli Atlantshafsbandalagsins:
Lágmarksviðbúnaður Islands er
loft-, land- og tundurduflavarnir
ÞESS var minnst á ráðstefiiu Samtaka um vestræna samvinnu og
Varðbergs á laugardaginn, að 40 ár eru liðin frá stofiiun Atlantshafs-
bandalagsins. Formenn þriggja stjórnmálaflokka Alþýðuflokks,
Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks ítrekuðu stuðning sinn við
aðild íslands að bandalaginu og töldu hana gegna mikilvægu hlut-
verki til að tryggja öryggi og varnir þjóðarinnar og frið í okkar
heimshluta. Á ráðstefrmnni var auk þess rætt sérstaklega um varn-
ir íslands og hvort ekki væri eðlilegt, að islensk sljórnvöld yrðu
virkir þátttakendur í sljómkerfisæfingum Atlantshafsbandalagsins.
Arnór Siguijónsson, varnarmála-
fulltrúi sem hefur undanfarið starf-
að í alþjóðlegu starfsliði NATO í
höfuðstöðvum þess í Brussel, flutti
erindi um varnir Islands á ráðstefn-
unni. I lok máls síns dró hann niður-
stöður þess saman á þennan veg:
Viðunandi loftvarnir, landvamir
og tundurduflavarnir má telja lág-
marksviðbúnað hér á landi miðað
við hina hernaðarlegu þróun á
Norður-Atlantshafi. Þá eru æfingar
bandarísks liðsauka sem koma á til
íslands á ófriðar- og hættutímum
forsenda þess, að þessi liðsauki
geti sinnt hlutverki sínu. íslensk
stjómvöld verða að vera undir það
búin að óska eftir komu liðsaukans
snemma á ófriðar og hættutímum.
Hófleg birðgasöfnun varnarliðsins
á vamasvæðum myndi minnka
þörfina fyrir birgðaflutninga til og
frá landinu og létta á flutninga-
kerfi landsins ef til ófriðar kæmi.
Þetta er sérstaklega mikilvægt ef
tundurduflavarnir við innsiglingar
helstu hafna hér á landi eru óvirkar.
Tundurduflavarnir
Um tundurduflavarnir sagði Ar-
nór Sigurjónsson meðal annars: „Ef
veija á fiskimið, siglingaleiðir og
hafnir umhverfis landið gegn tund-
urduflum sem leggja má með flug-
vélum eða kafbátum verður að huga
að tundurduflavörnum. Fram-
kvæmd tundurduflavarna innan
NATO er fyrst og fremst á ábyrgð
einstakra bandalagsríkja. Frum-
kvæðið í þessum mikilvæga mála-
flokki ætti að vera í höndum Land-
helgisgæslu ríkisins sem samkvæmt
íslenskum lögum ber að fjarlægja
tundurdufl. Það er brýnt að Land-
helgisgæslan ráði yfir þekkingu og
tækjum og hafi á hendi þá stjórnun
sem nauðsynlega má telja til að
sinna þessu þýðingarmikla verk-
efni.“
Stjórnvöld æfð
í upphafi pallborðsumræðna
komst Álbert Jónsson, starfsmaður
Öryggismálanefndar, þannig að
orði, að það væri mikils virði að til
staðar væri í íslenska stjórnkerfínu
„þekking á áætlunum er varða ís-
land og einnig og ekki síst þeim
kringumstæðum sem kallað gætu á
ákvarðanir til að hrinda þeim í
framkvæmd. Einnig þarf að vera
sérstakt skipulag innan stjórnkerf-
isins vegna hættutíma. Hjá varnar-
málaskrifstofu hefur á undanförn-
um árum verið hafin vinna að þess-
um málum. Þá er nauðsynlegt að
íslendingar hefji þátttöku í stjórn-
kerfisæfingum Átlantshafsbanda-
lagsins.“
Stjórnmálamennirnirnir sem
tóku þátt í pallborðsumræðunum
þeir Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra, Jón Baldvin Hanni-
balsson utanríkisráðherra og Þor-
steinn Pálsson, formaður Sjálfstæð-
isflokksins, voru þeirrar skoðunar,
að íslendingar ættu ekki að skorast
undan þátttöku í slíkum æfingum.
Á hinn bóginn sagði forsætisráð-
herra, að hann myndi ekki leggja
það til innan núverandi ríkisstjórn-
ar. Þá minnti utanríkisráðherra á
að forræði í þessu máli væri á vald-
sviði sínu.
Ráðstefnuna sóttu nærri 200
manns. Kjartan Gunnarsson, for-
maður Samtaka um vestræna sam-
vinnu, var ráðstefnustjóri en Davíð
Björnsson, formaður Varðbergs,
afhenti þeim Liv Bergþórsdóttur,
Pétri Halldórssyni BÍöndal og
Magnúsi Heimissyni verðlaun í rit-
gerðasamkeppni vegna 40 ára af-
mælis Atlantshafsbandalagsins.
Lögfræðinemi á sjötta ári fær
ekki að halda áfram námi
Háskólaráð tekur ekki gilt sjúkravottorð frá landlækni
Háskólaráð hefúr fellt með níu atkvæðum gegn sex að endurskoða
áframhaldandi skólavist írisar Erlingsdóttur. Hún féll eftir fimm ára
nám í lögfræði við HÍ og lagði fram sjúkravottorð, sem landlæ.knir
tók gilt, en ráðið ekki. Þar sem hún hafði fallið einu sinni áður fáer
hún ekki að halda áfram og hefur því tapað fímm árum í námi. Einn
háskólaráðsmaður sat hjá við atkvæðagreiðslu.
Hlynur Níels Grímsson, vara-
formaður Stúdentaráðs HI, hefur
sent háskólarektor-bréf fyrir hönd
Réttindaskrifstofu stúdenta þar
sem hann lýsir yfir vonbrigðum með
ákvörðun Háskólaráðs. I bréfinu
segir meðal annars: „Fyrir fundi
ráðsins lá umsögn landlæknisemb-
ættisins um læknisvottorð írisar,
en samkvæmt henni var læknisvott-
orðið gott og gilt og taldi landlækn-
ir engan vafa á að íris var veik er
hún þreytti annars hluta próf í lög-
fræði vorið 1988.
Réttindaskrifstofa stúdenta
harmar mjög úrslit þessa máls og
telur þau furðuleg á grundvelli fyr-
irliggjandi gagna í málinu. Að auki
lágu ákveðin sanngirnisrök að baki,
en svo virðist sem Háskólaráð hafi
lítið velt þeim fyrir sér. Umræddur
stúdent sér nú á eftir fimm ára
vinnu við laganám, töluverðum fíár-
munum og framtíðarvonum. Hags-
munir stúdentsins af því að fá tæki-
færi til endurtektar á hlutaprófum
hljóta að vera meiri en hagsmunir
deildar af að taka ákvarðanir í eig-
in málum. Síðargreindu hagsmun-
irnir virðast hafa orðið ofan á í
ákvörðun Háskólaráðs. Engin önn-
ur skýring er næitæk ef litið er á
gögn málsins, þar eð ákvörðun
ráðsins var ekki rökstudd.
Er það von Réttindaskrifstofunn-
ar að ákvarðanir á borð við þessa
verði ekki teknar í framtíðinni, enda
eru mál af þessu tagi ekki til þess
fallin að auka hróður Háskóla Is-
lands.“
Reyklausi dagurinn haldinn á morgun:
Reykingar eru eitt mesta heil-
brigðisvandamál þjóðarinnar
- segir Ólafur Ólafsson landlæknir
Reyklausi dagurinn verður haldinn „hátíðlegur" á morgun, miðviku-
dag, og er þetta þriðja árið í röð sem slíkur dagur er haldinn hérlend-
is. Reyklaus dagur hefur verið haldinn hér fimm sinnum, fyrst árið
1979. Þá hafa ljósvakamiðlarnir sameinast um að gera reyklausa
daginn að sérstökum heilbrigðisdegi hjá sér og munu dagskrár þeirra
bera þess merki allan liðlangann daginn. Reyklausi dagurinn var
kynntur blaðamönnum í gær og kom þá fram í máli Ólafs Ólafsson-
ar, landlæknis, að reykingar væru eitt mesta heilbrigðisvandamál,
sem þjóðin stæði nú frammi fyrir.
Reyklaus dagur er fyrst og
fremst haldinn til þess að gefa
reykingamönnum sameiginlegt til-
efni til að hvíla sig og aðra á tóbaks-
reyk eða að minnsta kosti draga
úr reykingum sínum. Könnun Tó-
baksvarnarnefndar eftir reyklausa
daginn í fyrra gaf til kynna að
nálega tveir af hveijum fimm
reykingamönnum hefðu breytt frá
reykingavenjum sínum þennan dag.
Önnur ástæða fyrir reyklausa deg-
inum er að efla samstöðu á vinnu-
stöðum, en kannanir hafa sýnt að
stór hluti reykingamanna vill hætta
reykingum og þykir mörgum heppi-
legt að miða á einhvern sérstakan
dag í því efni, að sögn Guðmundar
Bjarnasonar, heilbrigðisráðherra.
Tóbaksvarnarnefnd hefur lagt
sérstaka áherslu á að kynna reyk-
lausa daginn & vinnustöðum og
hefur í samvinnu við Vinnueftirlit
ríkisins sent forráðamönnum 7.500
fyrirtækja og stofnana um land allt
bréf og ýmis göng þar að lútandi.
Eitt af hlutverkum Tóbaksvarnar-
nefndar er að fylgjast með breyting-
um á reykingum og annarri tóbaks-
neyslu í landinu. Kannanir, sem
nefndin hefur látið gera reglulega
síðustu fjögur árin benda til þess
að hlutfall reykingamanna í þjóð-
félaginu fari jafnt og þétt minnk-
andi. Þessi þróun er hvað örust hjá
ungu kynslóðinni.
Ráðgjafaþjónusta verður á reyk-
lausa daginn frá kl. 12.00 til 18.00
í húsi Krabbameinsfélagsins við
Skógarhlíð. Aðallega er um að ræða
símaþjónustu, en fólk getur jafn-
framt komið í heimsókn og þegið
holl ráð hjá starfsfólki þar. Þá býð-
ur nær helmingur heilsugæslu-
stöðva landsins upp á námskeið
gegn reykingum sem heita „Hætt-
um að reykja". Námskeiðshaldið
hefur þróast undanfarin fjögur ár
í tengslum við námskeiðshald á
Lungna- og berklavarnadeild
Heilsuvemdarstöðvar Reylqvaíkur.
TJnnið hefur verið að námskeiðsefn-
inu í samvinnu við landlækni. Nám-
skeiðin em nú til á 22 heilsugæslu-
stöðvum og geta reykingamenn
snúið sér þangað á reyklausa dag-
inn með fyrirspurnir eða óskir um
stuðning wið að hætta að reykja.
Heilsugæslustöðvar þessar em á
Akranesi, Borgarnesi, Stykkis-
Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson
Heilbrigðisyfirvöld kynntu
blaðamönnum dagskrá reyklausa
dagsins á fundi í gær. Frá vinstri
eru Egill Heiðar Gíslason form-
aður Tóbaksvarnarnefiidar,
Guðmundur Bjarnason heil-
brigðsráðherra, Elfa Björk
Gunnarsdóttir í undirbúnings-
nefiid heilbrigðisdags hósvaka-
miðlanna, og Ólafur Olafsson
landlæknir.
hólmi, Búðardal, Olafsvík, Bolung-
arvík, ísafirði, Hólmavík, Hvamm-
stanga, Sauðárkróki, Blönduósi,
Ólafsfirði„Akureyri, Húsavík, Seyð-
isfirði, Fáskrúðsfirði, Breiðdalsvík,
Höfn í Hornafirði, Selfossi, Vest-
mannaeyjum, Keflavík og Seltjam-
amesi.
íþrótta- og tómstundaráð
Reykjavíkurborgar sér um sérstaka
dagskrá í tilefni af reyklausum dégi.
Klukkan 8.00 mætir forsætisráð-
herra ásamt ríkisstjórn í Laugar-
Sigmundur Guðbjamason, rektor
HÍ, sagði að málið hefði fengið
mjög langa og ítarlega umfjöllun
bæði í lagadeildinni og eins í Há-
skólaráði. „Mér finnst engin ástæða
til að ég geri grein fyrir mínu at:
kvæði frekar en aðrir ráðsmenn. I
svona erfiðum málum, gengur Há-
skólaráð yfirleitt til skriflegrar at-
kvæðagreiðslu og var sá háttur
hafður á í þessu tiltekna máli.“
Hann sagði að málsmeðferðin hefði
verið ofur eðlileg í alla staði. Hins-
vegar gætu menn greint á um nið-
urstöðuna.
íris Erlingsdóttir sagði að það
væri greinilega mikið metnaðarmál
hjá forráðamönnum lagadeildar að
hún fengi ekki undanþágu. „Ef
vottorð frá landlækni, sem er yfir-
maður allra lækna í landinu, er
ekki nógu fínn pappír fyrir Háskóla
íslands þá skil ég málið engan veg-
inn. Gögn frá landlækni votta það
að ég var veik á þessum tiltekna
próftíma og þó forseti lagadeildar
kunni að hafa á því einhveija allt
aðra skoðun, þá kemur það málinu
hreint ekkert við. Þessi ákvörðun
Háskólaráðs nú hlýtur að þýða það
að hér eftir geta nemendur ekki
sótt um undanþágur frá prófum á
grundvelli veikinda," sagði íris.
Gunnar Jóhann Birgisson, lög-
maður írisar, sagði að þegar íris
hefði fyrst lagt fram læknisvottorð
og sótt um undanþágu vegna veik-
inda sumarið 1988, þá hefði hún
fengið neitun frá lagadeild. Á sama
tíma hefði öðrum nemenda, sem var
í nákvæmlega sömu stöðu, verið
leyft að halda áfram. Sá nemandi
hefði fallið tvisvar á prófum í laga-
deild og fékk að halda áfram á
grundvelli veikinda. „Vottorð Irisar
var ekki talið nógu gott svo að leit-
að var eftir umsögn landlæknis.
Þegar hún lá fyrir, áleit lagadeildin
að veikindin hafi átt sér stað eftir
prófin, en ekki á meðan á þeim
stóð, svo að aftur var leitað liðsinn-
is landlæknis og hann fenginn til
að segja hvað hann hafi meint með
sínum orðum. Þá sendi hann álit
frá sér og öðrum lækni þar sem
skýrt kemur fram að íris hafi verið
veik í prófunum.
Morgunblaðið hafði samband við
Sigurð Líndal, forseta lagadeildar,
og vildi hann ekki tjá sig um málið.
Ungversk menningar- o g
viðskiptavika í Atthagasal
UNGVERSK menningar- og við-
skiptavika var formlega sett í
Átthagasal Hótel Sögu í gær. Þar
kynna 13 ungversk fyrirtæki
vörur sínar og þjónustu en nokk-
ur þeirra eru fúlltrúar fyrir enn
stærri hóp framleiðenda. Á með-
an á viðskiptasýningunni stendur
verður einnig sérstök matar-
kynning á Hótel Sögu og í þeim
tilgangi eru komnir hingað mat-
reiðslumeistarar frá Ungveija-
landi. Auk þess mun ungversk
sigaunahljómsveit leika bæði fyr-
ir matargesti og aðra þá er heim-
sækja vörusýninguna.
Meðal þeirra fyrirtækja sem þátt
taka í sýningunni er ungverska
flugfélagið Malév og ferðaskrifstof-
an Ibusz sem kynna ferðaþjónustu.
Þá verða kynnt ýmis matvæli,
snyrtivörur, vín, fatnaður, álna- og
vefnaðarvörur, bækur, hreinlætis-
vörur, borðbúnaður, garn o.fl. Það
er ungverska sendiráðið í Stokk-
hólmi sem annast samskipti Ung-
veijalands og íslands, og Skála
Marketing Agency í Búdapest sem
hafa skipulagt ungversku vikuna á
íslandi.
Á myndinni eru helstu forsvarsmenn sýningarinnar f.v. János Muller
frá ungverska sendiráðinu í Svíþjóð, dr. Mrs. Ildikó Takács, fram-
kvæmdastjóri Skála markaðsskrifstofiinnar í Ungverjalandi og Sza?
bolcs Fazakai ritari í viðskiptaráðuneytinu í Búdapest.
Á undanförnum árum hafa Ung-
veijar unnið skipulega að því að
koma á fót mun nánari efnahags-
og viðskiptasamböndum við Vest-
urlönd. Viðskipti Ungverja og ís-
lendinga hafa verið lítil til þessa
en þó hafa Ungveijar m.a. keypt
fiskimjöl frá íslandi. í frétt frá að-
standendum sýningarinnar segir að
enda þótt ungverska vikan sé eink-
um sniðin fyrir íslensk fyrirtæki,
sé hún einnig ætluð almenningi sem
hafi áhuga á að kynnast nánar
þessu fallega landi.
dalslaugina auk gesta úr hinum
ýmsu „pottavinafélögum". Þá koma
keppendur úr fegurðarsamkeppni
íslands og Herra Island 1989 sýnir
sig í lauginni. Á Lækjartorgi hefst
dagskrá kl. 17.00 undir stjórn
Ómars Ragnarssonar. Heilbrigðis-
ráðherra flytur ávarp, Valgeir Guð-
jónsson, handknattleikslandsliðið
og „Skíðabrot“ úr Kerlingafjöllum
sjá um söngatriði. Tóbaksvamar-
nefnd stendur fyrir „vindlinga-
brennu“ og í lokin verður íþrótta-
sýning og danssýning.
Sjálfsagt að ganga til við-
ræðna við Samvinnubanka
— sagði Asmundur Stefánsson formaður banka-
ráðs Alþýðubankans á aðalfiindi bankans
ÁSMUNDUR Stefánsson, for-
maður bankaráðs Alþýðubank-
ans, greindi frá því á aðalfundi
bankans sem haldinn var á laug-
ardag að ráðið teldi sjálfsagt að
gengið yrði til viðræðna við Sam-
vinnubanka. Vísaði hann þar til
ályktunar sem samþykkt var á
aðalfúndi Samvinnubankans um
að þegar verði haftiar viðræður
við Alþýðubanka um samstarf
eða sameiningu. Ásmundur sagði
hins vegar að bankaráðið teldi
jafhframt eðlilegt að haldið yrði
áfram að kanna aðrar leiðir.
Hagnaður Alþýðubankans var á
síðastliðnu ári 26 m.kr. Innlán í
árslok voru 2.690,3 m.kr., heild-
areignir 4.133,6 m.kr. og eigið
fé 304,8 m.kr.
í ræðu sinni á aðalfundinum
stillti Ásmundur upp nokkrum
möguleikum um uppstokkun í
bankakerfinu. Benti hann á að ef
svo færi að Landsbankinn keypti
Samvinnubankann yrði hann með
47% innlána. Ef Iðnaðar- og Versl-
unarbanki sameinuðust um kaup á
Útvegsbanka yrðu heildarinnlán
þess banka 25% af innlánum bank-
anna. Búnaðarbankinn væri með
24% af innlánum og eftir stæði
Alþýðubanki með tæplega 4%.
„Auðvitað hljótum við að velta því
fyrir okkur hver staða Alþýðubank-
ans yrði við slíkar aðstæður. Litli
bankinn innan um alla risana hefði
ákveðna möguleika. Dagar hans
þyrftu ekki að vera taldir,“ sagði
hann.
Ásmundur sagði að í bankaráð-
inu hefði m.a. einnig verið litið til
eiginfjárstöðu bankanna. Eigið fé
Alþýðubankans væri 305 milljónir
króna. Eigið fé Verslunarbankans
væri rúmlega tvöfalt meira eða 660
milljónir. Við það bættust 100 millj-
ónir sem áformað væri að selja í
hlutafé. Þá væri eigið fé Samvinnu-
bankans tæplega tvöfalt meira en
Alþýðubankans þ.e.a.s. 580 milljón-
ir.
Ásmundur kvað bankaráð Al-
þýðubankans vera þeirrar skoðunar
að ef til sameiningar kynni að koma
ætti það að að gerast á jafnstöðu-
forsendum þ.e.a.s. að báðir ættu
jafnan hlut. Til þess að ná jafnri
stöðu við Verslunarbankann þyrfti
eigið fé Alþýðubankans að vaxa um
450 milljónir króna. „Fyrsta spum-
ingin sem við veltum fyrir okkur í
þessu samhengi er hvort við værum
þess megnug að ráðast í slíka hluta-
fíáraukningu. Það hefur stundum
verið sagt að það ætti ekki verið
mikið vandamál að sækja eitthvað
annað og oft vísað til erlendra syst-
urstofnana." Ásmundur sagði að
jafnvel þó bæði norski og danSki
bankinn væru mjög fjárhagslega
sterkir hefðu þeir verið reknir með
verulegum halla gíðustu tvö órin.
Það væri því ljóst að það gæti ekkl
verið ^jájfsagt mál á þeim bæjum
að hætta fé í bönkum í öðrum lÖnd-
um. Ekki væri rökrétt að ganga að
því sem vísu að þar mætti fá fé þó
ekki væri unnt að aftaka það á
þessu stigi.
£
%