Morgunblaðið - 11.04.1989, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPn/JflVINNUIÍF ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1989
Hlutabréfamarkaður
HlutabréfEimskips
hækkuðu eftír aðaMmd
SÖLUGENGI hlutabréfa í Eim-
skip lyá Hlutabréfamarkaðnum
hf. var fyrst eftir aðalfund félags-
ins skráð 3,35. Fyrir fundinn var
gengið skráð 4,00 en þar sam-
þykktu hluthafar 25% útgáfu jöfii-
unarhlutabréfa og 10% arð-
greiðslu. Verðmæti hlutabréfanna
hefur samkvæmt því aukist um
rúm 7% ef reiknað er með áhrifum
af arðgreiðslunni.
Hækkun á hlutabréfum Eimskips
er ekki síst athyglisverð þegar litið
er til afkomu Eimskips á síðastliðnu
ári. Hagnaður af rekstrinum varð
aðeins 9,3 m.kr. og óviðunandi sam-
kvæmt ummælum forráðamanna fé-
lagsins. Að öllu óbreyttu hefði mátt
reikna með að gengið lækkaði í 3,12
þegar tekið er tillit til útgáfu jöfnun-
arbréfanna og arðgreiðslunnar.
Hækkun á genginu virðist hins vegar
endurspegla trú manna á miklum og
góðum eignum Eimskips og að góð
framtíðarafkoma sé í vændum þótt
hagnaður hafi ekki verið mikill 1988.
Miðað við innra virði eru Eimskips-
bréfin jafnframt skráð hærra en
nokkur önnur samkvæmt auglýsingu
Hlutabréfamarkaðarins.
Til að reikna gengi hlutabréfanna
eftir útgáfu jöfnunarhlutabréfa og
arðgreiðslu er fyrst dregin frá arð-
greiðslan sem er 10% af nafnverði,
4,00-0,10 = 3,90. Við 25% jöfnun-
bréfaútgáfu verður gengið síðan
3,90/1,25 = 3,12.
ICEF©©D89
Sýningar
Islenska matvæla-
sýningin 5,-12. maí
MATVÆLASÝNINGIN Icefood I drykkjavöruframleiðenda verða
’89 verður haldin í Laugardals- meðal sýnenda, þar á meðal sölu-
höllinni dagana 5.-12. maí nk. samtökin stóru, svo sem Samband-
Tugir íslenskra matvæla- og | ið, Sölumiðstöðin og SÍF — Sölu-
Innifalinn í verðinu er m.a. eftirtalinn búnaður: Vökvastýri/veltistýri — Rafdrifnar
rúöuvindur — Rafstýrðir útispeglar — Dagljósabúnaður — Samlæsing á hurðum
I IC.f3?•>
f
•W rthkkt 4
RSIC
r )
Bíllinn, sem sæmdur var GULLNA STÝRINU í ár
VERÐ FRÁ KR. 798.000
samband ísl. fiskframleiðenda.
Endanleg þátttaka liggur þó enn
ekki fyrir og því ekki Jjóst hver
fjöldi sýnenda verður.
Aðstandendur sýningarinnar eru
Alþjóðlegar vörusýningar sf. og
breska sýningarfyrirtækið Industrial
and Trade Fairs International Ltd.
sem er stærsta fyrirtæki sinnar teg-
undar í Evrópu og hefur m.a. staðið
fyrir íslensku Sjávarútvegssýning-
unni ’84 og ’87 auk World Fishing
sýningarinnar í Kaupmannahöfn og
Intemational Fisheries and Seafood
í Boulonge. Alþjóðlegar vörusýningar
eru umboðsaðili ITFI á íslandi.
Aðstandendur sýningarinnar segja
að á henni gefist innlendum framleið-
endum matvæla og drykkjarvara ein-
stakt tækifæri til að koma vörum
sýnum á framfæri jafnt við erlenda
kaupendur sem innlenda. Fyrirkomu-
lag sýningarinnar verður með þeim
hætti að að hún er lokuð almenningi
frá kl. 10 til 13 og er þá ætlunin
að viðskipti milli fyrirtækja eigi sér
stað. Síðan er húsið opnað til kynn-
ingar og sölu til almennings allt til
kl. 18. Samhliða sýningunni verður
efnt til sérstakrar kynningar á sjáv-
arréttum á hótelum og veitingastöð-
um í Reykjavík.
Saudi-Arabía
Kannaði
möguleika
á viðskiptum
við Islendinga
FORSTJÓRI Saudi Fisheries,
sem er stærsta fyrirtæki í út-
gerð, fiskvinnslu og fisksölu í
Mið-Austurlöndum, dr. Nasser
O. Alsaleh, dvaldist nýlega hér á
landi í boði sjávarútvegsráðu-
neytisins. Tilgangurinn með
heimsókn hans var fyrst og
fremst að kanna möguleika á
viðskiptum við Islendinga með
þekkingu, tækjakost og verk-
efhastjórnun í útgerð og físk-
vinnslu, auk beinna kaupa á freð-
fiski.
Auk viðræðna við sjávarútvegs-
ríðherra og forstöðumenn opin-
berra stofnanna sjávarútvegsins
átti dr. Nasser viðræður við for-
svarsmenn helstu samtaka útgerðar
og fiskvinnslu og stoðfyrirtæki í
þjónustu sjávarútvegsins. í fréttati-
kynningu frá sjávarútvegsráðu-
neytinu segir að viðræður dr. Nass-
ers og framangreindra aðila hafi
verið mjög jákvæðar, og verði þeim
fylgt eftir með heimsókn nokkurra
aðila úr viðskiptalífinu til Saudi-
Arabíu í maí næstkomandi, en all-
góðar líkur virðist á að þessi kynni
leiði til nokkurra viðskipta milli
þjóðanna.
IMámstefna
Námstefiia
um fjármagns-
markaðinn
G.STEVEN Burrill, annar höf-
unda bókarinnar The Arthur Yo-
ung Guide to Raising Venture
Capital, mun halda námstefnu um
markmiðsáætlanir fyrir §ár-
magnseigendur og þróun þeirra
mála í Bandaríkjunum. Efiii bók-
arinnar verður kynnt og skýrt og
fyrirspumum svarað. Námstefhan
verður haldin 17. apríl kl. 14—18
að Ánanaustum 15.
í kynningu frá Bókaklúbbi Stjórn-
unarfélagsins segir, að bókin fjalli
um gerð sannfærandi markmiðsáætl-
ana. Hvernig gera eigi einfalda,
sannfærandi og aðgengilega áætlun.
Og vegna áhættunnar geri fjár-
magnseigendur miklar kröfur um
arðsemi.
G. Steven Burill er meðeigandi í
endurskoðunarfyrirtækinu Arthur
Young International og stjórnar-
formaður fyrirtækisins High Tec-
hnology Group. Það var fyrir milli-
göngu Ernu Bryndísar Halldórsdótt-
ur hjá Endurskoðun og reikningsskil
hf., sem er aðili að Athur Young
Intemational, að höfundurinn kemur
hingað til lands.
Þátttaka tilkynnist til Stjórnunar-
félagsins í síma 621066.