Morgunblaðið - 11.04.1989, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1989
39
hversu við skyldi bregðast því, sem
að höndum bar. Hún var fróð og
vel lesin í bókmenntum, íslenzkum
sem erlendum. Hún var einkar tón-
elsk og kunnug verkum hinna miklu
meistara, einkum hinna þýzku, sem
sköruðu fram úr öðrum á heims-
mælikvarða. Sjálf spilaði hún á org-
el og gítar og iðkaði þá list, eftir
því sem ástæður leyfðu, sér til hug-
arhægðar og upplyftingar. Hún var
m.a. organisti í Flateyjarkirkju um
30 ára skeið. Mér er kunnugt um,
að tengdamóðir mín var vel að sér
til margra hluta. Hannyrðir léku í
höndum hennar. Ég vissi til þess,
að hún tók ofan af ull og valdi úr
fínt þel, sem hún svo spann sjálf á
rokk, sem hún átti, tvinnaði síðan
bandið og pijónaði svo langsjöl og
hymur, sem voru hreint listaverk.
Ekki veit ég önnur dæmi slíks.
Húsmóðir var tengdamóðir mín
ýmsum öðrum fremri, enda þurfti
hún lengi að stjórna stóru heimili
af mikilli reisn. Ég kynntist því, að
hún bjó til góðan mat, svo að af
bar. Hún gat allt. Enginn var henni
fremri.
Kynni mín af tengdamóður minni
eru mér minnisstæð. Ég mun alla
tíð minnast hennar sem gáfaðrar
konu, sem skaraði fram úr mörgum
öðmm og var gædd höfðingslund
og góðgirni, sem spruttu af göfugu
og þroskuðu ættemi.
Eftir að tengdamóðir mín missti
maka sinn, Guðmund Bergsteins-
son, sem var mikill hæfileikamaður
og hélt uppi atvinnu og byggð í
Breiðafjarðareyjum, fluttist hún til
Reykjavíkur og hélt hús fyrir sig
og tvo syni sína.
Ég þakka tengdamóður minni
fyrir góð kynni og ógleymanleg og
allt gott á liðnum ámm.
Sesselía Helga Jónsdóttir
Þegar ég kynntist þeirri konu
sem kvödd er í dag, Guðrúnu Jónínu
Eyjólfsdóttur frá Flatey, hefur hún
verið komin nokkuð á áttræðisald-
ur. Þá gekk hún enn reist til sinna
verka og lengi eftir það og allt fram
um nírætt. Þegar hún lést hafði hún
fyllt 102 árin. Þau síðustu var hún
í Hátúni í góðri umönnun starfs-
fólksins þar. Því em nú að lokum
færðar sérstakar þakkir. Mætti það
verða okkur öllum oftar þakkarefni
hvemig þrátt fýrir allt er unnt að
búa að öldruðu fólki hér á landi.
Jónína Eyjólfsdóttir fæddist á
Flatey á Breiðafirði 17. febrúar
1887. Hún var dóttir Eyjólfs Jó-
hannssonar kaupmanns á eynni og
konu hans, Sigurborgar Ólafsdótt-
ur. Faðir Jónínu lést er hún var 13
ára og fór hún þá með móður sinni
til Akureyrar. Þar dvöldu þær
mæðgur um skeið í skjóli Ólafs
Eyjólfssonar, bróður Jónínu, sem
þá þegar stundaði verslunarstörf á
Akureyri. Hann varð seinna skóla-
stjóri verslunarskólans. Á Akureyri
gekk Jónína í kvennaskóla í tvo
vetur og stundaði auk þess nám í
orgelleik hjá Magnúsi Einarssyni
organista. 18 ára fór hún aftur
vestur og varð nú kennari í tvo
vetur í Svefneyjum og Hvallátrum.
Eftir fyrsta veturinn í kennslu
keypti hún sér orgel og dugði kenn-
arakaupið nákvæmlega fýrir einu
orgeli. Hún sagði mér frá þessu
einu sinni og var létt yfir henni
Blómastofa
Friöfinns
Suðuriandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið ölt kvöld
tii kl. 22,-einnig um helgar.
þegar hún sagði þessa sögu. Seint
á ápinu 1907 gekk hún að eiga
Guðmund Bergsteinsson, lengi
kaupmann og útgerðarmann í Flat-
ey. Þar bjuggu þau allan sinn bú-
skap í Ásgarði, stóm húsi sem var
þá og áratugum saman eins konar
hjarta eyjarinnar, miðstöð allra
umsvifa á eyjunni. Þar stýrði hún
húsi af skömngsskap. Er til þess
tekið af öllum þeim sem hana
þekktu hvílíkur höfðingi hún var í
sjón og raun ekki aðeins meðan
efnin vom mest heldur alltaf síðan.
Einnig þegar hún bjó síðustu æviár-
in á Vesturgötu 55 og seinna
Grjótagötu. Þar sá á að fór höfð-
ingskona sem Jónína Eyjólfsdóttir
var.
Guðmundur Bergsteinsson Iést
1941._ Eftir það stóð Jónína fyrir
búi í Ásgarði í Flatey á annan ára-
tug, er hún fór suður í vetrarvist,
en sumram eyddi hún ásamt elsta
syni sínum, Eyjólfi, og þeim yngsta,
Guðmundi, vestur í Flatey meðan
kraftar leyfðu. Hún hélt heimili í
Reykjavík með þessum tveimur son-
um sínum fram á tíræðisaldur.
Tíu böm áttu þau Guðmundur
og Jónína, eitt fæddist andvana og
Bergsteinn náði aðeins að lifa fá-
eina mánuði. Átta komust á legg
og til fullorðinsára. Fá ár em síðan
þeir dóu Eyjólfur og Guðmundur,
en eftir lifa þau Kristín, Ólafur,
Jóhann Salberg, Sigurborg, Regína
og Erla.
Jónína Eyjólfsdóttir kom mér
ekki aðeins fyrir sjónir sem skör-
ungskona; hún átti listamannseðli
og listamannsnæmi. Hún var dálít-
ill bóhem í aðra röndina. í ævisögu
Árelíusar segir hann frá því að
Jónína Eyjólfsdóttir hafi verið eins
konar listráðunautur eyjarskeggja
sem vildu fylgjast með því sem var
að gerast í bókmenntum og listum.
Bókakostur heimilisins var ótrúlega
góður og framúrstefnulegur miðað
við ísland þess tíma. Og tónlistin
var partur af hinu daglega lífí; það
kemur líka fram í bömum þeirra
öllum og reyndar niðjum þeirra.
Meðan tíminn rennur hratt fram
gefa of fáir sér stundir til þess að
spyija fullorðið fólk um fortíðina
til að læra. Ég gerði það ekki held-
ur og sé nú eftir því sáran að hafa
ekki gefíð mér betri tíma til þess
að spyija þessa konu og til þess
að hlusta á hana. En hún var ein-
mitt þeirrar gerðar að líf hennar
vakti spurningar og forvitni. í fáein
skipti fékk ég þó tækifæri til þess
að inna hana fregna af liðnum tíma.
Þær stundir eru góðar í endurminn-
ingu minni. Ég var reyndar svein-
stauli, 19 ára, þegar ég kom fyrst
á heimili hennar sem fylgimaður
dótturdóttur hennar og nöfnu. Ekki
varð ég þess var að hún kæmi fram
við dreng þennan öðmvísi en annað
fólk; hún gerði sér áreiðanlega aldr-
ei mannamun og lét sig einu gilda
hvort til dyranna koma heldur hor-
aður strákur að vestan eða stór-
höfðingjar. Viðmót hennar var heil-
steypt og það var gott að vera ná-
lægt henni.
Til er Ijósmynd tekin við Flatey
af fólki mörgu um borð í bátnum
Gusti. Myndin er tekin fyrir nærri
100 ámm. Framarlega í bátnum
situr telpukorn, 5 ára eða svo. Það
er Jónína dóttir kaupmannshjón-
anna Eyjólfs og Sigurborgar.
Nú er síðasti farþeginn í þessum
báti farinn frá landi. Við sem enn
emm í landi kveðjum þessa stúlku
sem náði því að lifa í meira en eina
öld, mestu sviptingatíma íslands-
sögunnar.
Svavar Gestsson
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON
frá Bjargi,
Sandgerði,
andaðist í Landspítalanum 29. mars. Jarðarförin hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hins látna.
Aðalsteinn Guðmundsson, ingibjörg Hjörleifsdóttir,
Ársæll Guðmundsson, ísabella Jónsdóttir
og barnabörn.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
JÓNMUNDUR ÓLAFSSON
fyrrv. kjötmatsformaður,
lést á heimili sínu föstudaginn 7. apríl.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 14. apríl kl. 1 5.00.
Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hins látna,
er bent á Bústaðakirkju.
Einar Hilmar Jónmundsson, Sigurður Rúnar Jónmundsson,
Björk Sigurðardóttir, Harpa Sigurðardóttir,
Sigurður Einarsson,
Eyrún Einarsdóttir.
t
Faðir minn, afi og bróðir okkar,
KARL GUNNLAUGSSON,
Lynghaga 28,
Reykjavík,
andaðist á heimili sínu mánudaginn 10. apríl.
Börkur Karlsson,
Karl Trausti Barkarson,
Jón Gunnlaugsson,
Ottó Gunnlaugsson,
Þórhalla Gunnlaugsdóttir.
- ' ’ t
Ástkær eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóðir og amma,
HULDA KARLOTTA KRISTJÁNSDÓTTIR,
• Hrauntungu 58,
Kópavogi,
sem andaðist í Borgarspítalanum að morgni 29. mars, verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, þriðjudaginn 11. apríl kl.
15.00.
Karl Einarsson,
Kristján Á. Bjarnason, Kristín Svelnbjörnsdóttir,
Einar Karlsson,
Sverrir Karlsson,
Birgir Karlsson, Agnes Reymondsdóttir,
Hrafnhildur Karlsdóttir, Tómas Tómasson
og bamabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
FINNBOGA RÚTS VALDEMARSSONAR.
Sveinn Haukur Valdemarsson,
Hulda Jakobsdóttir,
Auður Rútsdóttir,
Elín Finnbogadóttir,
Gunnar Finnbogason,
Guðrún Finnbogadóttir,
Sigrún Finnbogadóttir, Styrmir Gunnarsson,
Hulda Finnbogadóttir, Smári Sigurðsson
og barnabörn.
t
Eiginkona mín, móðir okkar og fósturmóðir,
ÞÓRHILDUR VIGFÚSDÓTTIR,
Sölvholti,
Hraungerðishreppi,
verður jarðsungin frá Selfosskirkju fimmtudaginn 13. april kl.
13.30. Jarðsett verður í Laugardælum.
Þórður Jónsson,
Vilborg Guðrún Þórðardóttir,
Sólveig Vigdis Þórðardóttir,
Bergur Ketilsson,
Jón Þórðarson,
Hjörleif ur T ryggvason,
Sigfús Kristinsson,
Gunnur Gunnarsdóttir.
t
Eiginkona mín, móðir og tengdamóðir,
VALDÍS ÞORGRÍMSDÓTTIR,
til heimilis að Kleppsvegi 18,
sem lést í Landspítalanum 2. apríl, verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju miðvikudaginn 12. apríl kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim, sem vildu minn-
ast hennar, er bent á Krabbameinsfélagið.
Gísli Jónsson,
Jón Mýrdal Jónsson,
Heiðbjört Dr. Jóhannsdóttir.
Bróðir okkar, t DANÍEL STEFÁNSSON,
múrari, Reykjahlið 14,
Reykjavik,
verður jarðsettur frá Fríkirkjunni í Reykjavík kl. 14.00 miðvikudag-
inn 12. apríl. Gunnar Stefánsson, Jón Hjörtur Stefánsson.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
BORGHILD ALBERTSSON.
Dagný G. Albertsson,
Birgir G. Albertsson,
Borghildur Birgisdóttir,
Gunnar F. Birgisson,
Oddrún Jónasdóttir,
Evlalía K. Guðmundsdóttir,
Guðmundur A. Birgisson,
Guðbjörg H. Birgisdóttir.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför
eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og dóttur,
HELGU ÓSKARSDÓTTUR,
Hvannalundi 17,
Garðabæ.
Ari Guðmundsson,
Guðfinna Dröfn Aradóttir,
Guðmundur Arason,
Óskar Steinþórsson,
Sævar Örn Arason
Hörður Már Harðarson,
Magnea Snorradóttir,
Guðfinna Sigurðardóttir.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
RAGNARS SCHEVING JÓNSSONAR
bifvélavirkja,
elli- og hjúkrunarheimiiinu Grund.
Kristjana Ragnarsdóttir,
Tómas Sigurðsson,
Kristin Svafa Tómasdóttir,
Dísa Lind Tómasdóttir.
t
Þökkum innilega öllum er auösýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför
VALDIMARS EYBERGS INGtMARSSONAR,
Hverfisgötu 26,
Hafnarfirði.
Valný M. Benediktsdóttir,
Kristján Valdimarsson, Kristfn Óskarsdóttir,
Andri Kristjánsson, Ástheiður Guðmundsdóttir,
Friðgeir Guðmundsson, Bragi Guðmundsson.