Morgunblaðið - 14.04.1989, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 1989
17
Heimasigrir á opna
mótinu í New York
___________Skák_______________
Margeir Pétursson
ÞAÐ VAR ósvikinn heimasigxir á
opna skákmótinu í New York sem
lauk í síðustu viku. Sigurvegari
varð John Federowicz, sem fædd-
ur er og uppalinn í New York-
borg, nánar tiltekið i
Bronx-hverfinu, sem reyndar má
muna sinn fifil fegurri. Þykir
ekki heilsusamlegt nú á dögum
að vera þar á ferli eftir að skyggja
tekur. Sigur Federowicz kom
töluvert á óvart og var þetta bezti
árangur á skákferli hans. I
síðustu umferð sigraði hann hinn
kunna og stigaháa sovézka stór-
meistara Mikhail Gurevich með
svörtu, eftir að Rússinn hafði lagt
of mikið á stöðuna.
Það voru dýr mistök hjá Gurevich,
því fyrir efsta sætið fékk Federowicz
jafnvirði tæprar einnar milljónar ísl.
króna. Ef skákin hefði endað með
jafntefli hefðu sjö skákmenn orðið
efstir og jafnir, þar á meðal Helgi
Ólafsson, og skipt sigurverðlaunun-
um með sér. Misheppnuð vinningstil-
raun Gurevich var því dýr fleiri en
honum.
Eins og á flestum stærstu opnu
skákmótum heims um þessar mund-
ir mættu margir Sovétmenn til leiks,
en að þessu sinni urðu þeir ekki
sérlega sigursælir. Það var aðeins
okkar gamli kunningi, Lev Pol-
ugajévsky, sem náði góðum verð-
launum. Það er nokkuð athyglisvert
að fara yfir þjóðemi þeirra sem
hrepptu fímm og hálfan vinning eða
meira. Af þeim 23 sem það gerðu
voru 11 Sovétmenn, fjórir brottflutt-
ir Sovétmenn (Guljko, Kudrin,
Dzindzindhashvili og Ivanov), þrír
heimaaldir Bandaríkjamenn, tveir
íslendingar, einn V-Þjóðverji, Júgó-
slavi og ungversk stúlka.
Úrslit á mótinu
1. Federowicz (Bandaríkjunum) 7 v.
2. -5. Helgi Ólafsson, Guljko (Banda-
ríkjunum), Polugajevsky (Sovétríkj-
unum) og Lobron (V-Þýzkalandi)
614 v.
6.-15. Margeir Pétursson, Christ-
iansen og deFirmian (báðir Banda-
ríkjunum), M. Gurevich, Dolmatov,
Gufeld, Dreev, Smyslov, Epishin og
Romanishin (allir Sovétríkjunum) 6
v.
16.-23. Judit Polgar (Ungveijal-
andi), Kudrin og Dzindzindhashvili
(Bandaríkjunum), Ivanov (Kanadá),
Kovacevic (Júgóslavíu), Gelfand,
Chernin og Ehlvest (Sovétríkjunum)
514 v.
Þeir Jón L. Árnason og Karl Þor-
steins hlutu báðir fjóra vinninga og
Hannes Hlífar Stefánsson endaði
með þrjá og hálfan vinning.
I B-flokki á mótinu tefldu þeir Jón
Garðar Viðarsson, sem hlaut sex
vinninga af átta mögulegum og vann
til verðlauna, en þeim Sævari
Bjarnasyni og Halldóri G. Einarssyni
vegnaði ekki eins vel, þeir hlutu fjóra
og hálfan vinning.
Það munaði mjög litlu að Helgi
næði að deila efsta sætinu, það hefði
tekist ef Gurevich hefði ekki brugð-
ist trausti hans og fleiri, eins og
áður er lýst. Árangur Helga er auð-
vitað frábær, hann tapaði illa fyrir
ungum Sovétmanni, Boris Gelfand,
í annarri umferð og hljóp kapp í
kinn við það, tefldi t.d. af mun meiri
grimmd en á Fjarkamótinu í febrúar
þegar hann slapp taplaus.
Eg byijaði mjög vel og var efstur
ásamt fleirum eftir fjórar umferðir.
Þá missti ég vinningsstöðu niður í
jafntefli gegn Lobron og í þremur
af fjórum síðustu skákum mínum
þurfti ég að tefla með svörtu gegn
sovézkum stórmeisturum. Eg varð
því á endanum að sætta mig við
jafntefli í fímm síðustu umferðunum.
Jón L. var alveg heillum horfinn og
þrátt fyrir góða spretti inn á milli
eyðilagði hann færi sín hvað eftir
annað með klaufaskap. Þeir Karl og
Hannes tefldu báðir við öfluga and-
stæðinga og mega því sæmilega vel
við una, eru a.m.k. reynslunni ríkari.
Skák var mjög mikið í fréttum í
New York vegna mótsins, bæði í
sjónvarpi og blöðum. Lengst voru
Polgar-systurnar þijár þar í aðal-
hlutverkum, en í lokin tóku þeir
Kamsky-feðgar við, en hinn 14 ára
gamli sovézki skákmaður Gata Kam-
sky baðst hælis í Bandaríkjunum
eftir mótið ásamt föður sínum.
Við skulum líta á skák frá New
York þar sem Vassily Smyslov leyfir
Helga að beita á sig miklu tízkuaf-
brigði. Smyslov fylgist ekki sér-
staklega mikið með í fræðunum en
sópar inn vinningum gegn lítt reynd-
ari andstæðingum með sínu gríðar-
lega innsæi og stöðuskilningi. Hann
sá þó aldrei til sólar í þessari skák
eftir nákvæma taflmennsku Helga í
byijuninni. Þetta mun vera fyrsta
tap heimsmeistarans fyrrverandi í
kappskák gegn íslendingi. Var kom-
inn tími til, þvi daginn fýrir skákina
átti hann 68 ára afmæli.
Hvítt: Helgi Ólafsson
Svart: Vassily Smyslov
Nimzo-indversk vörn
I. d4 - Rf6 2. c4 - e6 3. Rc3 -
Bb4 4. Dc2
Þetta rólega afbrigði er nú orðið
eitt vinsælasta svarið við Nimzo-
indversku vörninni. Karpov hefur
ávallt haldið nokkuð upp á það og
nú hefur Kasparov einnig tekið það
upp í vopnabúr sitt.
4. — 0-0 5. a3 — Bxc3+ 6. Dxc3
- b6 7. Bg5!
Þessi leikur hefur reynst vel í fjöl-
mörgum skákum síðustu mánuði.
Það má segja að Gary Kasparov,
heimsmeistari, hafi gefið tóninn í
skákum sínum við Jóhann Hjartar-
son og Sax á heimsbikarmótinu í
Reykjavík.
7. - Bb7 8. f3 - c5?!
Reynslan af þessum leik upp á
síðkastið er ekki góð. Opnun taflsins
virðist hvíti í hag, því hann hefur
biskupaparið. Betra er e.t.v. 8. —
h6 9. Bh4 - d5 10. e3 - Rbd7 11.
Bd3 - Hc8 12. cxd5 - Rxd5 13.
Bxd8 - Rxc3 14. Be7 - Hfe8 15.
Bh4 Rd5 16. Bf2 og samið var jafn-
tefli sjö leikjum síðar í skák Helga
og Polugajevsky í New York.
9. dxc5 — bxc5 10. e3 — d6
Þetta kemur sízt betur út en fyrri
tilraunir svarts í stöðunni. Svo virð-
ist sem Smyslov hafi ekki mætt
undirbúinn til leiks í skákina, þó svo
Helgi hafí beitt sama afbrigði tveim-
ur umferðum áður gegn Polugajev-
sky.
Áður hefur verið teflt þannig: a)
10. - Rc6 11. Rh3 - h6 12. Bh4
- d6 13. 0-0-0 - Hb8 14. Rf2 og
hvítur stendur eitthvað betur, Kaid-
anov-Vainerman, Lvov 1987, 10. —
De7 11. Rh3 - h6 12. Bh4 - d6
13. 0-0-0 - Rbd7 14. Rf2 - a5 15.
Rg4 — e5 16. e4 — De6 17. Re3
og hvítur hefur mjög þægilega stöðu,
Margeir Pétursson-Brenninkmeijer,
opna mótinu í Lugano í marz.
II. 0-0-0 - De7
Svartur ætlar næst að treysta
stöðu sína með 12. — Rbd7, en
Helgi gefur honum ekki tækifæri á
því.
12. Bxffi! - gxffi 13. Re2 - Rd7
14. Rf4 - Hfd8 15. Rh5 - d5?
Þessi tilraun svarts til að ná mót-
spili misheppnast gersamlega. Staða
hans var þó ekki sérlega góð, en
hann gat valið á milli þess að bíða
átekta með 15. — a5, eða láta sig
hafa það að leika þeim ljóta leik 15.
— e5, sem lokar a.m.k. skálínunni
c3-f6.
16. g4!
Mögulegt vegna síðasta leiks
svarts, sem sleppti valdi á peðinu á
f3. Nú hótar hvítur mjög óþyrmilega
að leika 17. g5, svo svartur grípur
til örþrifaráða:
16. — d4 17. exd4 — cxd4 18.
Hxd4 - e5 19. De3! - Kh8 20. Be2
Peðsfórn svarts í 16. leik hefur
litlum árangri skilað. Nú hótar
hvítur einfaldlega að auka sóknar-
þungann með 21. Hhdl, svo svartur
sér sig nauðbeygðan til að létta á
stöðunni með drottningakaupum.
20. - Dc5 21. Dh6 - Df8 22.
Dxf8+ - Rxf8 23. Hxd8 - Hxd8
24. Hdl!
Bindur enda á allar vonir svarts
um mótspil, því hann verður að
skipta upp á hrókum. Með peði meira
og betri stöðu er endataflið með léttu
mönnunum auðunnið fyrir hvít. 24.
Rxf6? — Re6 var miklu lakara.
24. - Hxdl+ 25. Bxdl - Rd7 26.
Kd2 - Kg8 27. b4 - Kf8 28. Ke3
- Ke7 29. Rg3 - Rf8 30. Rf5+ -
Kd7 31. Ba4+ - Kc7 32. Be8 -
Re6 33. Bxf7 - Rf4 34. Bg8 -
h5 35. gxh5 - Rxh5 36. Bf7 -
Rf4 37. h4 - Bc8 38. Ke4 - Bb7+
39. Bd5 - Bc8 40. Rg3 - Kd6 41.
c5+ og svartur gafst upp.
Lambalæri .kr. 649,- kg
Lambahryggur .kr. 639,- kg
Lambaframpartur.. .kr. 465,- kg
Lambaslög .kr. 125,- kg
Lambaframhryggur ..kr. 765,- kg
Lambakótelettur.... .kr. 655,- kg
Lambasneiðar .kr. 798,- kg
Lamba-sirlonsteik.. .kr. 650,- kg
Lambasaltkjöt .kr. 467,- kg
Lambalæri úrb .kr. 970,- kg
Lambahryggur úrb... ..kr. 1.150,- ■kg
Úrb. kryddað læri... .kr. 970,- kg
Úrb. frampartur..... .kr. 744,- ■ kg
Lambagullasch .kr. 745,- kg
Lambahakk ..kr. 378,- ■ kg
E
ilifi
EURO YISA
aaövifead allfe sem papf
Kjöfcsfcöðirc
Glæstbæ
68 5168.
I aaiaisiaaiiaiBiiiibaiiiiiiiitiiBiHeaiiiiBiiiKcitiiBCiaiSE:
........ 11 i i iii ■ . ■ ■ ,i ■ ■ ,1
Folaldagullasch.......kr. 795,- kg
Folaldafillet.........kr. 980,- kg
Folaldahakk...........kr. 250,- kg
Folaldabógsteik.......kr. 355,- kg
Folaldagrillsteik.....kr. 355,- kg
Folaldasnitchel.......kr. 895,- kg
Folaldasaltkjöt.......kr. 337,- kg
Reyktfolaldakjöt......kr. 362,- kg
Kiöfe ep okkap
SÉRGREIN