Morgunblaðið - 14.04.1989, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 1989
USA Today:
25-30% samdráttur í sölu
fiskmetis í Bandaríkjunum
Flórída. Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÚTBREIDDASTA fréttablað Bandaríkjanna USA Today skýrði frá
því á einni af sínum forsiðum á mánudag að samdráttur væri nú i
fisksölu i Bandarikjunum, en á árunum frá 1982—87 jókst hún um
25% að sögn blaðsins. Meginástæðurnar fyrir þessari þróun telur
blaðið vera hræðslu við afleiðingar sjávarmengunar (og er þá nær
undantekningarlaust átt við mengun á fiskimiðum við strendur
Bandaríkjanna) og hækkandi verð.
Blaðið hefur eftir Lee Weddig vegna hins lága gengis dollarans
framkvæmdastjóra National Fish-
eries Institute að í bezta falli megi
vænta þess að neyslan 1988 hafi
verið svipuð og 1987, en hann vildi
engu spá um þetta ár. Hann segir
þessa breytingu megi rekja til hinn-
ar óhagstæðu þróunar fískverðs
og mjög neikvæðrar umræðu um
fiskmeti í fjölmiðlum í norðaustur-
héruðum Bandaríkjanna (New
York-Boston-svæðið). Þar var mikið
skrifað og fjallað um mengun í sjó
af völdum efnaúrgangs, eiturefna
frá landbúnaði sem renna í sjóinn
og úrgangs frá sjúkrahúsum, sem
fyllti allar strendur þar um slóðir í
fyrra.
Suður-Kórea:
Andófsprest-
ur handtekínn
Seoul. Reuter.
Suður-kóreski andófsprestur-
inn, Moon Ik-hwan, var hand-
tekinn í gær þegar hann sneri
heim úr ólöglegri för til Norður-
Kóreu. 40 óeinkennisklæddir lög-
reglumenn handtóku prestinn,
sem er 71 árs gamall, um borð
í flugvél á flugvelli í Seoul. Til
mikilla mótmæla kom á meðal
10.000 róttækra námsmanna víðs
vegar um landið vegna hand-
tökunnar. Moon var sakaður um
að hafa brotið hin ströngu lög
sem meina Suður-Kóreumönnum
að hafa samskipti við kommún-
ista.
Séra Moon, sem starfar innan
öldungakirkjunnar, var 10 daga í
Norður-Kóreu í boði Kim Il-Sungs,
forseta Norður-Kóreu, og átti hann
viðræður við háttsetta embættis-
menn um sameiningu ríkjanna
tveggja.
Talsmaður ríkissaksóknarans í
Seoul sagði að Moon og samfylgd-
armaður hans, iðnhöldurinn Yoo
Won-ho, hefðu verið dæmdir í
gæsluvarðhald, sakaðir um brot á
þjóðaröryggislöggjöf landsins.
Sðngvar Satans:
Prentuð
leynilega
í Noregi
Ósló. Frá Rune Timberiid, fréttarit-
ara Morgunblaðsins.
BÓKAFORLAG Aschehougs f
Noregi hefur látið þýða og
prenta bók Salmans Rushdie,
Söngva Satans, með leynd.
Bókin kom f verslanir f gær
og seldist þegar upp f mörgum
bókabúðum. Upprunalega var
ætlunin að gefa hana út 1.
júlí en framkvæmdastjóri for-
lagsins, William Nygaard, ák-
vað að flýta útgáfimni til að
vera viss um að málsókn gæti
> ekki tafið fyrir henni.
Samtök múslima í Noregi
hafa krafist þess að bókin verði
bönnuð þar sem í henni sé guð-
last. Aðeins örfáir vissu að bókin
var þegar komin í prentun og
nafni prentsmiðjunnar er haldið
leyndu af ótta við hefndarað-
gerðir. Nygaard fékk morðhót-
anir þegar hann á sínum tfma
skýrði frá því að aetlunin væri
að gefa bókina út. Ákveðið hefur
verið að lögregla gæti öryggis
hans um hríð, jafnt á vinnustað
sem á heimili. Margir bóksalar
segjast ekki ætla að hafa bókina
á boðstólum af ótta við aðgerðir
múslima.
Fyrsta upplag bókarinnar var
14.000 eintök og er norska
þriðja tungumálið sem hún er
þýdd á. Áður hafði saga Rush-
die komið út á ensku og ítölsku.
Blaðið segir að fisksala hjá ýms-
um heild- og smásölum í Norðaust-
urríkjunum hafi dregist saman um
25—30% og hefur það eftir stjóm-
anda fiskdreifingarstöðvar í Alaska
að „fréttimar frá austurströndinni
hafi áhrif á neytendur annars stað-
ar“.
Allt þetta er svo farið að hafa
áhrif á sölu fiskrétta í veitingahús-
um, segir blaðið.
Haft er eftir eiganda veitinga-
húss í Santa Monica í Kalifomíu,
að eftirsóknin eftir fiski sem ákjós-
anlegri megrunarfæðu sé dvínandi
og stöðugt sé erfiðara að fá bragð-
góðan gæðafisk.
í grein inni í blaðinu er ítarlega
og á mjög neikvæðan hátt fjallað
um vandræði sem fisksalar og veit-
ingamenn hafa orðið fyrir af mis-
jöfnum gæðum fiskmetis á markaði.
Ég bar þessi blaðaskrif undir
Þóri Gröndal fískheildsala í Fort
Lauderdale í Flórída. Hann taldi þau
nokkuð ýkt, en þau lýstu þó ákveðn-
um staðreyndum sem væru hættu-
leg fiskiðnaði íslendinga. Hugsan-
legt væri að neikvæðri umræðu um
fiskmeti væri hrint af stað af aðilum
sem hefðu hag af því að fiskneysla
minnkaði, en áhrifin væm eigi að
síður alvarleg.
Reuter
Lainz-sjúkrahúsið í Vín. Á innfeildu myndinni eru hjúkrunarkonurnar Qórar: Maria Gruber, Rene Lei-
dolf, Waltraud Wagner og Stefanie Mayen.
Fjöldamorð á austurrísku sjúkrahúsi:
Ottast afleiðingamar fyr-
ir ímynd lands og þjóðar
Vín. Reuter.
„MÉR fannst hún yndisleg manneskja. Hún settist við rúmstokkinn
og hélt um hönd mína þegar mér leið hvað verst. Ég treysti henni
fullkomlega.“ Þannig lýsti fyrrum sjúklingur á Lainz-sjúkrahúsinu
í Vín kynnum sínum af einni hjúkrunarkonunni, sem ásamt þremur
öðrum hefur verið sökuð um að hafa fyrirkomið 48 gamalmennum
og sjúklingum. Fyrir Austurríkismenn er þetta mál að vonum mikið
áfall og þeir óttast, að ímynd lands og þjóðar sé ekki söm og áður.
Franz Vranitzky kanslari segir,
að manndrápin séu „grimmilegasti
glæpur í sögu ríkisins“ og Giinther
Bögl, lögreglustjóri í Vín, lýsti þeim
sem mestu fjöldamorðum, sem
framin hefðu verið á evrópsku
sjúkrahúsi. Þeirri spumingu er hins
vegar ósvarað hvemig ósköp hvers-
dagslegar, ungar konur gátu ýmist
Reuter
Djöfladýrkendur fremja fjöldamorð
Fjórir menn sem grunaðir eru um að hafa myrt 12 manns á
sveitabýli f Mexfkó játuðu við yfirheyrslur f gær að hafa tekið þátt
f galdrakukli og eiturlyQasmygli. Þeir sögðu blaðamönnum að
færðar hefðu veríð mannfómir f þeim tilgangi að tryggja að
smyglstarfsemi þeirra gengi áfallalaust fyrir sig en aðrir hefðu
verið teknir af lífi fyrir að brjóta reglur trúarhópsins. Á mynd-
inni sjást fréttamenn skoða altari djöflatrúarhópsins. Þar fund-
ust ýmsir munir sem tengjast svartagaldrí.
verið hjálpsemin holdi klædd eða
kaldrifjaðir morðingjar.
Hjúkrunarkonumar, sem vom að
vísu ekki fullmenntaðar til starfs-
ins, drápu fólkið ýmist með of stór-
um insúlínskammti eða með því að
kæfa það, þröngva vatni ofan í
lungun. Fyrstu morðin frömdu þær
á árinu 1983 og segja sjálfar, að
þá hafi ástæðan verið meðaumkun
með sjúklingum, sem þjáðust mikið.
Síðar fóru þær svo að stytta því
fólki aldur, sem olli þeim mestri
fyrirhöfn.
„Nasískur þankagangur“
eða kerfiskreppa?
Helmut Zilk, borgarstjóri í Vin,
líkir manndrápunum við mestu
glæpi nasistatímans og segir, að
enginn munur sé á hjúkrunarkon-
unum og fangavörðunum í Ausch-
witz og rithöfundurinn Erwin Ring-
el, sem skrifað hefur nokkrar bæk-
ur um hina „austurrísku þjóðarsál",
tengir málið við það, sem hann
kallar „leifar nasísks þankagangs
meðal Austurríkismanna".
Hildegard Fack, formaður aust-
urríska hjúkrunarkvennafélagsins,
er þó ekki á sama máli. „Ég held,
að vandinn liggi í sjálfu kerfinu.
Hjúkrunarkonur fá enga kennslu í
sálarfræði og eru ekki búnar undir
það andlega álag, sem starfinu fylg-
ir. Vinnuálagið er allt of mikið og
launin lág og þær geta ekki leitað
til neins með áhyggjur sínar og
erfiðleika," segir Fack.
Viðbrögð almennings við mann-
drápunum eru að sjálfsögðu
hneykslun og reiði og þau hafa
einnig birst í hálfgerðum ótta
sumra, einkum aldraðs fólks, við
hjúkrunar- og heilsgæslufólk yfir-
leitt. Eru þess nokkur dæmi, að
gerð hafi verið hróp að hjúkrunar-
konum á götum úti en mjög marg-
ir hafa líka orðið til að tjá hjúkrun-
arkonum almennt hluttekningu sína
vegia þessa óhugnanlega máls.
Akveðið hefur verið að grafa upp
lík sumra fómarlambanna til að
afla frekari sannana en samkvæmt
austurrískum lögum nægir játning-
in ein ekki til sakfellingar. Læknar
segja hins vegar, að líklega verði
erfitt verði að sjá hvort fólkið hafi
verið myrt eða dáið eðlilegum dauð-
daga. Flestir sjúklinganna vom á
reglulegri lyfjagjöf og svo veik-
burða, að ekki þurfti að auka
skammtinn mikið til að hann riði
þeim að fullu.
ERLENT
Sri Lanka:
38 mísstu lifið í
bflsprengingu
Polnmhn Pmitnt*
Colombo. Reuter.
ÞRJÁTÍU og átta manns létu
lífið þegar bflsprengja sprakk í
gærmorgun á markaðstorgi í
borginni Trincomalee á Austur-
Srí Lanka. Er talið víst, að tamf-
Iskir aðskilnaðarsinnar eigi sök
á ódæðinu.
í fyrstu var taiið, að fleiri hefðu
beðið bana en það kom til af því,
að sum líkanna voru talin tvisvar.
56 manns slösuðust í sprenging-
unni. Hinir látnu er næstum allir
af ættbálki singhalesa en tamílar
vilja koma þeim burt frá austur-
hluta eyjarinnar. Var fólkið að
fagna nýju ári samkvæmt sínu
timatali og því óvenjumargt um
manninn á markaðstorginu.
Skömmu síðar voru fimm tamílar,
þar af flórar konur, drepnir í öðrum
borgarhluta og augljóslega í hefnd-
arskyni.
Rúmiega 12.000 manns hafa lát-
ið lífíð í óöldinni á Sri Lanka síðustu
sex árin en auk styijaldarástandins
mílli singhalesa og tamíla eiga
stjómvöld við að stríða kommúníska
byltingarflokka í suðurhluta lands-
ins.