Morgunblaðið - 14.04.1989, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
íÞn&mrt
T~rrr t. i ot/t tnfrrv
FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 1989
43
KNATTSPYRNA
Morgunbiaðið/Svorrir
Ellert B. Schram, formaður KSÍ, og Einar S. Einarsson, framkvæmdastjóri Visa, takast í hendur eftir undirritun
samningsins í gær.
Visa styrkir Knatft-
spymusamband íslands
KSÍ fær m.a. 100.000 krónurlyrir hvert stig í HM
og 50.000 krónurfyrir hvert mark
GERÐUR hefur veríö samning-
ur milli Visa íslands og Knatt-
spyrnusambands íslands „um
gagnkvœmt samstarf á sviði
íþrótta- og kynningarstarfsemi
á keppnistímabilinu sem fer í
hönd,“ eins og segir í f réttatil-
kynningu. Samningurinn var
undirritaður í gœr og tók hann
þágHdi.
Samningurinn tekur til undir-
búnings og þjálfunar landsliðs-
ins í knattspyrnu og allra opinberra
landsleikja í sumar og haust,“ segir
í tilkynningunnL Þar er annars veg-
ar um að ræða beinan §árstuðning
af hálfu sljómar Visa og hins vegar
augiýsingasamning. Þá mun Visa
ísland verðlauna árangur landsliðs-
ins, m.a. með því að greiða 100.000
krónur fyrir hvert stig sem liðið fær
í undankeppni heimsmeistara-
keppninnar, og að auki greiðir Visa
KSI 50.000 krónur fyrir hvert mark
sem landsliðið skorað í opinberum
landsleikjum á árinu.
Landslið íslands í knattspymu
tekur í ár þátt í 5 leikjum ( undan-
keppni HM - gegn Austurríkis-
mönnum, Austur-Þjóðveijum og
Tyrkjum í Laugardal og á útivelli
mætir liðið Sovétmönnum og Aust-
urríkismönnum. Einn leikur hefur
verið ákveðinn að auki, eins og
Morgunblaðið hefur greint frá,
gegn Englendingum 19. maí hér á
landi.
„Það er gífurlegur ávinningur
fyrir okkur þegar Visa ákveður að
styrkja starfsemi okkar svona,"
sagði Ellert B. Schram formaður
KSÍ m.a. á blaðamannafundi í gær
er samningurinn var kynntur. Hann
vakti athygli á því að fþróttastarf-
semi í landinu þrifíst ekki nema
atvinnufyrirtæki réttu fram hjálp-
arhönd — „ég vildi ekki sjá þann
dag sem fyTÍrtækin hættu því, þá
legðist allt starf okkar í dróma,“
sagði hann. Ellert og Einar S. Ein-
arsson, framkvæmdastjóri Visa ís-
land, sögðu í gær að um „umtals-
verðar §árhæðir“ væru að ræða f
þessum samningi. Ekki vildu þeir
gefa upp verðmæti samnmgsins, en
Ellert sagði: „Það munar um þenn-
an stuðning." Rekstrartap KSÍ var
9 milljónir króna f fyrra, og sagði
EUert þennan stuðning Visa því
mikilvægan fyrir sambandið, þó
ekki vildi hann svara því hvort þetta
leysti vandaim.
HANDKNATTLEIKUR / BIKARKEPPNI KVENNA
ípRÓm
FOLK
H ÍSLENSKA landsliðið í knatt-
spyrnu mætir ekki Tottenham í
æfíngaleik í Lundúnum síðar í
þessum mánuði eins og forráða-
menn KSÍ voru að vona. Forráða-
menn enska liðsins hafa svarað
beiðni KSÍ um leik neitandi. Ellert
B. Schram, formaður KSÍ, sagði í
gær að áfram væri leitað af fullum
krafti að verðugum andstæðingi —
sterku félagsliði í Elvrópu — sem
landsliðið gæti mætt í æfíngaleik.
B BÖRKUR Ingrarsson knatt-
spymumaður er hættur við að
ganga í Þrótt. Hann æfði með lið-
inu um tfma, en tók síðan að sér
þjálfun meistaraflokks Ungmenna-
félagsins Fjölnis í Grafarvogi, og
hyggst einnig leika með liðinu í 4.
deildinni í sumar. Hann hefur þegar
tilkynnt félagaskipti úr Árvakri í
Fj'ölni.
■ JÓSTENN Einarsson, sem
var fyrirliði KR f fyrra, hugðist
leggja keppnisskóna á hilluna en
hefur nú ákveðið að leika með Ár-
vakri í 4. deildinni í sumar. Hann
hefur þó ekki sagt alveg skilið við
KR, því hann er sjúkraþjálfari 1.
deildarliðs félagsins.
■ SIGURÐÚR Pétursson og
Ragnar Hermannsson, fæddir og
uppaldir KR-ingar, verða í herbúð-
um Árvaknrs í sumar.
■ HILMAR Hjaltason skoraði
tvö mörk fyrir Stjömuna gegn KA
í 1. deild handboltans í fyrra kvöld
og þeir Sigurður Bjamason og
Þóroddur Ottesen eitt mark hvor.
í umflöllun Morgunblaðsins í gær
féllu nöfn þeirra niður og er beðist
velvirðingar á þvL
■ ROK Petrovic, fyrrum heims-
bikarhafí f svigi frá Júgóslavíu,
hefur tilkynnt júgóslavneska skíða-
sambandinu að hann hafi ákveðið
að leggja skiðin á hilluna og hyggst
snúa sér að frekara námi.
■ ANTONIO Maceda, vamar-
maður Real Madrid og spænska
landsliðsins, hefur ákveðið að hætta
knattspymu fyrir fullt og allt vegna
hnémeiðsla. Maceda, sem er 31 árs
og hefur leikið 36 landsleiki, hefur
átt við þrálát meiðsli að stríða í
hnéi síðan f heimsmeistarakeppn-
inni f Mexíkó 1986 og ekki spilað
sfðan.
KNATTSPYRNA
SKÍÐI
Svarre Melby frá Noregi hefur for-
ystu í keppninni um Flugleiðabikarinn
1989.
Sverre
Melby
efstur
Valdimarí3. sæti
Sverre Melby frá Noregi er efst-
' ur að stigum að loknum flórum
af sex FIS mótum um Flugleiðabik-
arinn 1989 sem Skíðasamband fs-
lands stendur fyrir. Michael Lách-
tenegger frá Austurríki er annar
og Valdimar Valdimarsson frá Ak-
ureyri þriðji.
f dag verður keppt f svigi f Blá-
fjöllum og hefst keppni kl. 10.30.
A morgun verður síðasta mótið og
verður keppt f svigi á sama stað
kl. 10.00.
Staðan:
1. Svcrre Melby, Noregi_________....66
2. Michael Lichtenegger, AusturrQd..61
8. Valdimar Valdimarsson, Akureyri__68
4. Daníel Hilmarsson, Dalvfk.......„42
6. Thomas Kaufmann, Austurrfki......36
6. Örnólfur Valdimarsson, Reykjavtk.24
7. Tateru Takehana, Japan...........24
8. Matd Ektvedt, Norevi___________ .24
9. Amór Gunnarsson, fsafirði________22
10. Takuei Fiyuwara, Japan___________22
Ikvökl
Stjarnan og Vfkingur leika f
undanúrslitum f bikarkeppni
kvenna í Digranesi í kvöld
20.00.
r
FH-stúlkur í úrslit
- sigruðu íslandsmeistara Fram í æsispennandi leik
NÝBAKAÐIR íslandsmeistarar
Fram máttu þola tap gegn FH
' undanúrslitum bikarkeppn-
innar í gœrkvöldi. Leikurinn var
jafn og spennandi og þurfti
f ramlengingu til þess að knýja
fram úrslit. Eftir venjulegan
leiktíma hafði hvort lið skorað
13 mörk — FH hafði síðan bet-
ur í framlengingunni og sigraði
17:15.
FH-liðið bytjaði leikinn af mikl-
um krafti og leiddi framan af
þó að munurinn yrði aldrei mikill.
Guðríður Guðjónsdóttir, stórskytta
Fram, var tekin úr
Katnn umferð allan leikinn
Friðríksen og kom það illa nið-
skrífar Ur á sóknarleik liðs-
ins. Bæði liðið léku
sterkan vamarleik og markvarslan
var góð. FH náði mest tveggja
marka forskoti og leiddi í leikhléi
8:7.
Sami kraftur einkenndi leik FH
í byijun síðari hálfleiks, en smám
saman komust Framstúlkumar bet-
ur inn í leikinn. Þær jöfnuðu, og
reyndar gott betur því Björg Berg-
Krlstfn Pétursdóttir, fyrirliði FH,
stýrði liði sfnu til sigurs gegn íslands-
meisturum Fram í undanúrslitum bik-
arkeppninnar í gærkvöldi.
steinsdóttir kom Fram tveimur
mörkum yfír þegar stutt var til
leiksloka. Með mikilli baráttu náði
FH að jafna og framlengingar var
því þörf til að fá fram úrslit. Lítið
var skorað í síðari hálfleik, og mik-
ið álag á lykilmanneskjum beggja
liða, enda varamannabekkimir
þunnskipaðir!
í framlengingunni var FH sterk-
ara liðið og sigraði sanngjamt
17:15. Eva Baldursdóttir lék vel
fyrir FH, en var mistæk undir lok-
in. Berglind Hreinsdóttir átti góða
spretti og Kristín Pétursdóttir hélt
Guðríði vel niðri í vöminni. Björg
Bergsteinsdóttir var atkvæðamest
Framara og Díana Guðjónsdóttir
hafði góð áhrif á leik liðsins þegar
hún kom inn á síðustu mínútumar.
Díana er systir Guðríðar og leikur
enn með 3. flokki — mikið efni þar
á ferð.
Mörk Fram: Björg Beresteinsdóttir 5, Guðrtð-
ur Guójónsdóttir 4/8, Osk Vfðisdóttir og Sigr-
ún Blomsterber 2 hvor, Margrét Blöndal og
Diana Guðjónsdóttir eitt mark.
Mörk FH: Eva Baldursdóttir 8, Bergtind
Hreinsdóttir 3, Rut Baldursdóttir 8/1, Kristln
Pétursdóttir, Amdls Aradóttir og María Sig-
urðardóttir eitt mark hver.
Morgunhteðió/Július
Fram tryggði sér sæti f undanúrslitum Reykj avíkurmótsins f knattspymu
með því að vinna Val, 2:0, á gervigrasinu í Laugardal f gærkvöldi. Pétur
Ormslev og Ragnar Margeirsson gerðu mörkin fyrir Fram f síðari hálfleik.
Á myndinni eru Ómar Torfason, Fram og Halldór Áskelsson, fyrrum Þórs-
ari, sem nú leikur með Val.