Morgunblaðið - 23.04.1989, Side 15

Morgunblaðið - 23.04.1989, Side 15
MORGUNBLADID SUNNUDAGUR 23. AI’RÍU AðW--- —£ís fjokksins ákveðið eftir samráð við forystumenn í Sjálfstæðisfélögum um land allt að leita eftir auknum fjárstuðningi almennra flokks- manna. Þeir geta gerst styrktar- menn Sjálfstæðisflokksins, greitt reglulega ákveðnar fjárhæðir til hans eftir efnum og ástæðum. Til- raun þessi verður nokkur prófsteinn á það, hvort hægt er að starfrækja stjómmálaflokk með öflugu fé- lagslífl án þess að opinberir styrkir komi til sögunnar. Sem betur fer hafa undirtektir verið mjög góðar. Því virðist vera skilningur á því, a.m.k. í Sjálfstæðisflokknum, að stjómmálaflokkar eigi áfram eins og hingað til að vera fjöldahreyfing- ar byggðar á þátttöku og framlög- um fólks, sem hefur áhugaóg skiin- ing á málefnalegri baráttu í lýðræð- isþjóðfélagi en ekki stofnanir, rekn- ar af ríkinu í því skyni að uppfylla formlegar kröfur um flokkakerfí og leikreglur lýðræðisins. Afinæli Atlantshafsbandalagsins Nýlega var þess minnst að liðin eru 40 ár frá stofnun Atlantshafs- bandalagsins, en frá stofnun þess hefur haldist friður í þessum heims- hluta. Um svipað leyti urðu miklar umræður á Alþingi um heræfingar hér á landi í sumar. Andstæðingum bandalagsins þótti þjóðernisstolti sínu misboðið og töldu að koma ætti í veg fyrir æfmgamar. Sumir nefndu .jafnvel tímaskekkju í þessu sambandi. Umræðurnar snemst reyndar áður en yfir lauk meira um minnisbrest forsætisráðherrans en málefnið sjálft, en það er önnur saga. Við, sem gemm okkur grein fyr- ir nauðsyn vamarsamstarfs vest- rænna lýðræðisríkja og styðjum aðild að Atlantshafsbandalaginu, göngum stundum út frá því að öll- um sé augljóst samhengið milli frið- arins og þess frelsis sem við njót- um. Við gleymum því of oft sjálf, að bandalagið varð til fyrir frum- kvæði stríðshijáðra Evrópubúa, sem báðu um baktryggingu Bandar ríkjamanna vegna útþenslu Sov- étríkjanna eftir síðari heimsstyij- öldina. Við trúum því stundum, að við séum leiksoppar stórveldanna og gleymum því oft að Atlantshafs- bandalagið varð til okkar vegna til að veija hagsmuni okkar og hug- sjónir. ísland liggur ekki á milli austurs og vesturs eins og lús milli nagla. ísland er hluti af vestrinu, nýtur þess og verður að axla byrð- ar í samræmi við það. Við tókum afstöðu með frelsinu í stað þess að bíða þess, sem verða vildi. Reynslan hafði kennt okkur, að einhliða af- vopnun þýddi uppgjöf og frelsis- sviptingu. Við, sem erum svo heppin að njóta ávaxta langvarandi baráttu fyrir frelsi og mannréttindum, gleymum því stundum, að væri andrúmsloftið skammtað með sama hætti og frelsi og mannréttindi myndi mikill meirihluti mannkyns kafna á örfáum mínútum. Frelsið eins og við þekkjum það er því hvorki útbreitt né sjálfsagður hlut- ur, heldur eftirsóknarverð verðmæti sem fáir njóta og okkur ber að varðveita og beijast fyrir. I skjóli þess öryggis, sem vest- rænt varnarsamstarf tryggir, höf- um við íslendingar og aðrir Vestur- Evrópubúar áratugum saman lifað við frið. í skjóli þessa öryggis höfum við verið í hópi mikils minnihluta jarðarbúa sem býr við frelsi og mannréttindi. Én einmitt í skjóli öryggisins getur skeytingarleysið skotið rótum og skilningurinn á þessu samhengi þorrið. Þess vegna er afar nauðsynlegt fyrir okkur öll að láta ekki umræðuna um öryggis- málin falla niður í trausti þess að allir skilji þetta samhengi. Þvert á móti þurfum við sífellt að minna okkur á rökin, orsakir og afleiðing- ar. Meistarar gleði og- grimmdar í sl. viku var minnst aldaraf- mælis tveggja manna, sem hvor með sínum hætti setti óafmáanleg-' an svip á samtíð sína. Þessir menn áttu lítið annað sameiginlegt en að vera jafnaldrar. Annar var tákn- gervingur alls hins versta, sem þrif- ist gat í hinum svokallaða siðmennt- aða heimi. Sú niðurlæging, sem mannkynið varð fyrir af völdum Adólfs Hitlers og pótentáta hans, verður vonandi varanleg aðvörun fyrir alla þá, sem unna frelsi og mannréttindum. Hinn var ókrýndur konungur kvikmyndanna, einkum á tímum þöglu myndanna. Fáar persónur í kvikmyndum munu lifa eins lengi og umrenningurinn með stafinn. Um ókomna framtíð mun Charlie Chaplin fá áhorfendur sína til að veltast um af hlátri með trúðleik sínum ívöfðum hárbeittu háði. Þessir jafnaldrar munu ekki gleymist. Annar var 'meistari gleð- innar, hinn meistari grimmdarinn- ar. „Það er engin þörf að kvarta...“ Sama dag og heimurinn rifjaði upp blóði drifna sögu Adólfs Hitlers fögnuðum við Islendingar fyrsta sumardegi. Eftir snjóþungan vetur, sem enn um sinn neitar að víkja fyrir sumri, finnum við að vor er í lofti. Þótt bjargræðishlutverk sumars- ins hafi breyst í þjóðarbúskap okkar vegna nýrra atvinnuhátta, er vor- koman öllum tilhlökkunarefni. Vor- fiðringinn finnum við öll í bijóstum okkar og bjartsýnin vex, þegar tími gróandinnar og endurnýjunarinnar gengur enn einu sinni í garð. Sá, sem hér hefur hugað upphátt, óskar landsmönnum gleðilegs sumars. Mér finnst við hæfi að Ijúka þessum pistli með erindi úr ljóði skáldsins frá Hvítadal, en síðasta hendingin er að mínum dómi einn fegursti óður til sumarsins í íslenskri ljóðlist: „Nú finn ég vorsins heiði í hjarta. Horfin, dáin nóttin svarta. Ótal drauma blíða, bjarta barstu vorsól, inn til mín. Það er engin þðrf að kvarta þegar blessuð sólin skín.“ BMberar oskast Símar 35408 og 83033 NORÐURBÆR Njörvasund AUSTURBÆR Skeifano.fi. „Opinberir styrkir til stjórnmálaflokka, umfram sérfræðiaðstoð tii þingflokka, gera þá háða ríkisvaldinu og veita þeim forgang fram yfir nýjar stjórnmálahreyfingar. Að mínu viti eiga stjórnmálaflokkar að vera fjöldahreyf ingar fólks með svipuð viðhorf til þjóðmála, fólks, sem er tilbúið að leggja fram vinnu og fjármagn fyrir málstaðinn, en ekki steingeldar stofnanir, sem nærast á opinberu fé.“ Fagmaður eða fúskari? i Lögreglumenn fá fagmenntun í Lögregluskólanum. Árlega eru tugir manna klæddir í lögreglubúning án þeiss að fá hana. Þeir ganga í störf fagmenntaðra lögreglumanna árið um kring og þurfa oft að taka ákvarðanir á hættustundum. Er þetta það öryggi sem þú kýst? Viltu fagmann eða fúskara? ^andóóamband löcjreglumanna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.