Morgunblaðið - 23.04.1989, Page 36
MORGVNBLAÐIÐ, AÐALSTRÆTI 6. 101 REYKJAVÍK
TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, POSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
SUNNUDAGUR 23. APRIL 1989
VERÐ I LAUSASOLU 80 KR.
MESTA REYNIR
Aukin þægindi
ofar skýjum ^
FLUGLEIDIR
Prófíim í
HÍ frestað
4il hausts?
'
KOMI til verkfalls Félags háskóla-
kennara er sennilegt að próftíma-
bilinu í Háskóla íslands verði
frestað sem nemur verkfalli á
próftímanum. Ef hins vegar verk-
fall dregst fram yfir byrjun júní
verður prófiim sennilega frestað
til hausts.
Næsta fimmtudag verða lagðar
fyrir háskólaráð tillögur um það
hvernig eigi að mæta hugsanlegu
verkfalli. Þær eru á þá leið, að
próftímabilið færist aftur í heild sinni
í takt við töfina, sem yrði ef til verk-
falls kæmi. Á ákveðnum tímapunkti
— -yrði síðan að taka ákvörðun um að
fresta öllum prófum til hausts, en
það yrði væntanlega um mánaðamót
maí og júní,“ að sögn Sigmundar
Guðbjamason háskólarektors.
Boðað verkfall háskólakennara
hefst á föstudag ef af verður. Kenn-
arar funda hins vegar á mánudag
og síðan aftur í vikunni. „Við vonum
að það komi ekki til verkfalls, en
línumar skýrast þegar líður á vik-
una,“ sagði Sigmundur.
^Sigló til sölu
en leigusamn-
ingur stendur
„Forsvarsmenn þessa nýja fyr-
irtækis hafa ekki haft samband
við mig vegna hugsanlegra kaupa
á þrotabúi Sigló. Þrotabúið er til
sölu en hins vegar stendur leigu-
samningurinn til sjö mánaða,"
sagði Erlingur Óskarsson, bæjar-
fógeti á Siglufírði. Nýtt fyrir-
tæki, Sunna hf., hefúr verið stofii-
að þar í bæ til að kaupa þrotabú
Sigló, sem var lýst gjaldþrota fyrr
mánuðinum.
Eftir gjaldþrot Sigló var þrota-
búið leigt Siglunesi hf. til sjö
mánaða, en eigendur Sigluness eru
fyrrum eigendur Sigló. Tíu aðilar á
Siglufirði hafa stofnað fyrirtækið
Sunnu og í samtali við Morgun-
blaðið í gær sagði Sigurður Fann-
dal, stjórnarformaður Sunnu, að fyr-
irtækið ætlaði að fara fram á að fá
leigusamningi Sigluness rift, þannig
að Sunna geti keypt þrotabúið. Erl-
ingur Óskarsson sagði, að ekki væri
hægt að rifta leigusamningi nema
upp kæmu tilvik sem réttlættu það,
til dæmis ef leigutakar stæðu ekki
við samninginn. Þrotabúið væri til
sölu, en nýir eigendur gætu ekki
fengið það til umráða fyrr en leigu-
samningur væri útrunninn.
Selfossi.
Vorlaukar skjóta upp kollinum
VORIÐ er komið undir Eyjafjöllunum. Þar er snjó-
laust með öllu og vorboðarnir hafa þegar skotið upp
kollinum. Á myndinni virða systurnar á Þorvalds-
eyri, Inga Júlía Ólafsdóttir fjögurra ára og Þuríður
Vala Ólafsdóttir 8 ára, fyrir sér vorlaukana sem
skotið hafa upp kollinum undir húsveggnum hjá
ömmu þeirra og afa.
— Sig. Jóns.
Kaupir hár
af fólki og
selur til
útlanda
Á næstunni
mun Torfí
Geirmundsson
hársnyrtimeist-
ari hcQa út-
flutning á hári
sem hann
hyggst kaupa
af fólki. Segir
hann að mark-
aður fyrir hár
til hárkollu- og
hártoppagerð-
ar fari sífellt
vaxandi, og í Ijós hafi komið að
islenskt hár sé eggjahvíturíkara
og sterkara en hár til dæmis frá
hinum Norðurlöndunum, auk
þess sem Ijóst hár sé um 20%
dýrara en dökkt.
Torfi hefur umboð fyrir fyrir-
tæki í Bandaríkjunum og Bret-
landi sein kaupa hár og nota það
bæði til hárkollu- og hártoppagerð-
ar og eins til lengingar á því hári
sem fyrir er á höfði fólks, en sjálf-
ur mun hann einnig nota eitthvað
af hárinu sem hann hyggst kaupa
til hárlengingar. Hann sagði að
verð á hári hafi hækkað um helm-
ing fyrir fimm árum og síðan farið
sífellt hækkandi, en nokkrar sveifl-
ur væru á markaðinum og þá sér-
staklega í Bandaríkjunum. Hárið
sem keypt er þarf að vera að
minnsta kosti 10 sm. að lengd, en
sem dæmi um verð nefndi hann
að indverskt hár, sem ekki þykir
mjög sterkt, væri selt á um 60
dollara (3.100 kr.) hver 100
grömm.
Tölvuvinnsla á 20 ára jarðfræðigögnum:
Brotalína Suðurlands-
jarðskjálfta leidd í ljós
GREINILEG misgengislína hefúr
komið í ljós þvert yfir Suðurland,
við tölvuvinnslu á jarðfræðigögn-
um, sem safhað hefúr verið á
Sparnaður hjá Iðnaðarbanka:
Yfirvinnustundir úr
3000 í 130 á mánuði
„MARKMIÐ okkar var að spara
100 milljónir í rekstrinum á þessu
ári og ég er bjartsýnn á að það
standist," sagði Sveinn Skúlason
forstöðumaður rekstrarsviðs Iðn-
aðarbankans um aðhaidsaðgerðir,
sem ákveðnar voru í desember
síðastliðnum.
Sveinn segir að nær öll yfirvinna
hafi verið felld niður, í samráði
við starfsfólk. Til dæmis hafi verið
greiddir um 130 yfírvinnutímar í
mars samanborið við um 3.000 tíma
sama mánuð í fyrra.
Aðrar aðgerðir eru meðal annars
að nú er farið strangt eftir öllum
verðskrám um þjónustu, fimmtu-
dagsvaktir voru afnumdar, ferðalög
og þátttaka í ráðstefnum hafa verið
skorin niður, svo og auglýsingar, við-
hald, pappírsnotkun, veisluhöld og
gjafir.
í áætlunum var gert ráð fyrir
ákveðnum vaxtamun til að endar
næðu saman í rekstri bankans.
Sveinn segir að fjarri sé að vaxta-
munurinn hafi verið nægilegur það
sem af er árinu, einkum í janúar,
þannig að þótt spamaðarmarkmiðinu
verði náð, þá sé ljóst að það dugi
ekki til að vega upp á móti tapinu
af of litlum vaxtamun.
undanfornum 20 árum. Freyr Þór-
arinsson jarðeðlisfræðingur, sem
þróað hefúr aðferðir við að tölvu-
vinna mæligögnin, segir að túlka
megi þessa línu sem brotalínu
Suðurlandsjarðslqálftanna. Á
henni megi vænta þess að upptök
stóru sjálftanna verði, sem talið
er að komi á Suðurlandi i náinni
framtíð. Af tölvumyndum virðist
einnig mega ráða, að misgengið
fari frá vinstri til hægri, öfúgt við
það sem hingað til hefúr verið
talið.
F:
1 reyr Þórarinsson
sagði við Morg-
unblaðið, að þessar
niðurstöður ættu að
geta verið drjúgt
framlag til rann-
sókna á upp
tökum stóru_ Suðurlandsskjálftanna.
Veðurstofa íslands er nú að koma
fyrir fullkomnum jarðskjálftamæli-
tækjum á átta stöðum á Suðurlandi,
milli Bjarnastaða í Ölfusi og Eyja-
fjalla. Ragnar Stefánsson jarð-
skjálftafræðingur sagði, að mark-
miðið væri að vinna upp gögn, sem
gætu orðið undirstaða þess, að hægt
verði að spá fyrir um hvar og hvenær
jarðskjálftar verða á þessu svæði.
Ragnar sagði að skemmdarsvæði
fyrri stórskjálfta væru þekkt og út
frá því væri nokkurn veginn vitað
um stærð þeirra og hvar þeir áttu
upptök sín, en misgengissvæðið, sem
skjálftarnir verði á, fylgi nokkurn
veginn 64 breiddarbaugnum frá
Heklu að Hengli, og sé 10-20 kíló-
metrar á breidd.
Mælingar á segulsviði og þyngdar-
sviði íslands hófust fyrir 20 árum,
en Raunvísindastofnun Háskóla ís-
lands, Orkustofnun og Tölvuháskóli
Verslunarskólans sameinuðust um
úrvinnslu þessara gagna fyrir um
ári síðan undir stjórn Freys Þórarins-
sonar. Unnið hefur verið úr gögnum
frá Suð- Vesturlandi.
Sjá grein um tölvuvinnslu jarð-
fræðigagna bls. 1-3C, og tölvu-
myndir bls. 16-17C