Morgunblaðið - 13.05.1989, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1989
Háteigskirkja:
Hátíðar-
messa og
vortónleikar
UM hvítasunnuhclg-ina verða vor-
tónleikar kammersveitar Háteigs-
kirkju haldnir. Þá verður einnig
hátiðarmessa, þar sem flutt verður
kirkjutónlist.
Hátíðarmessan er á hvítasunnu-
dag kl. 11. í messunni verður flutt
kirkjutónverkið „Non sine Quare“
eftir Johann Caspar Kerll. Kór og
kammersveit Háteigskirkju flytja
verkið, einsöngvarar eru Sigríður
Gröndal, Jóhanna V. Þórhallsdóttir,
Sigursveinn Magnússon og Halldór
Vilhelmsson. Violetta Smodova leik-
ur á sembal og orgelleikari og stjórn-
andi er Orthulf Prunner.
Vortónleikar kammersveitarinnar
eru annan hvítasunnudag kl. 17 í
kirkjunni. Flutt verða verk eftir J.S.
Bach, F. Carculi og W.A. Mozart.
Konsertmeistari er Sean Bradley,
einleikari á gítar Símon ívarsson og
semballleikari og stjómandi er Ort-
hulf Prunner.
Kammersveit Háteigskirkju var
stofnuð 1987 í þeim tilgangi að efla
kirlqutónlist við kirkjuna.
, I
LIFOGRJÓRI í
KOLAPORTINU Á
LAUGARDÖGUM
KOL/VPORTIÐ
M<m KaÐStOZ:'
... undir seðlabunkanum.
Hluthafar
óskast unt
Nú er tækifærið.
Við söfnum
hluthöfum um
góðar ferðaskútur.
BENCO
Lágmúla 7,
Sími: 91-84077
11
GÓÐAN DAGINN
HREINSUM BÆINN!
í DAG BYRJAR SÉRSTÖK HREINSUNARVIKA
LÁTTU EKKI ÞITT EFTIR LIGGJA!
Nú stendur yfir allsherjar hreinsunarátak í Reykjavfk. Til
að auðvelda starfið hefur borginni verið skipt í fjóra
hluta. Megin þungi hreinsunarþjónustu á vegum borgar-
innar verður í dag og næstu viku í Vesturbæ og Miðbæ.
ÖFLUGT SAMSTARF ÍBÚA OG BORGAR
Gripið verður til margvíslegra ráða til aðná settu marki
m.a. í samvinnu við einstaklinga, íbúasamtök og félög
sem hafa forystu um hreinsunarstarf í sínu hverfi.
STUTT f NÆSTA RUSLAGÁM.
Fólk getur gengið að ruslagámum vísum á 17 stöðum í
borginni næstu vikur. Á fjórum þessara staða verða
einnig gámar fyrir rafgeyma og rafhlöður eins og sést á
kortinu.
RUSL HIRT DAGLEGA AF GANGSTÉTTUM
Ruslapoka er hægt að fá í hverfabækistöðum gatnamála-
stjóra. Þeir verða hirtir daglega í þeim hluta borgarinnar
þar sem hreinsunarvika stendur yfir.
HVERFABÆKISTÖÐVAR ÞJÓNA BORGARBÚUM
Hafið samband við hverfabækistöðvarnar ef ykkur vantar
upplýsingar eða aðstoð vegna hreinsunarátaksins. Til
þeirra er einnig hægt að koma ábendingum er varða um-
hverfið í borginni: Skemmdir á yfirborði gatna og gang-
stétta, ónýt umferðarmerki eða vöntun á götumerking-
um, holræsastíflur, brottflutning bílgarma og hreinsun
gatna og lóða.
STAÐSETNING OG SÍMANÚMER HVERFABÆKI-
STÖÐVA
Vesturbær: Njarðargata, Skerjafirði, sími 29921.
Miðbær: Miklatún við Flókagötu, sími 20572.
Austurbær: Á horni Sigtúns og Nóatúns, sími 623742.
Breiðholt: Við Jafnasel, simi 74482 & 73578.
Árbær, Selás og Grafarvogur: Við Stórhöfða, sími
685049.
Vikan 13. - 19. mal
Sigtún
Austurbæjarskóli
Meistaravellir
Hamrahlíö
Njarðargata,
Skerjafirði'
Vikan 20. - 26. mal
Sléttuvegur
Sundlaugavegur Vatnagarðar
Bústaðavegur
við Fák
Vikan 3. júní - 9. júnl
Fjallkonuvegur
við Foldaskóla
Stórhöfði *
Rofabær
við Ársel
Selásbraut
,við Suðurás
Vikan 27. maf - 2. júnl
Austurberg
við Hólabrekkuskóla
Arnarbakki
Breiðholtsskóla
Öldusel
við skólann
-Jafnasel *
Kortið sýnir borgarhlutana, dagsetningar sérstakra hreinsunarvikna og staðsetningu rusla-
gáma meðan á hreinsunarvikunum stendur. Laugardagur er upphafsdagur og aðal hreins-
unardagursérstakrarhreinsunarviku í hverjum borgarhluta.
* Gámar fyrir rafgeyma og rafhlöður
HREIN BORG, BETRI BORG!
ARGUS/SIA