Morgunblaðið - 13.05.1989, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1989
35
um að hnýta töskur. Það gerði hann
í mörg ár og seldi víða um land og
sumar fóru til útlanda. En svo komu
„helvítis plastpokarnir“ og töskurn-
ar hættu að seljast. Eins og hann
sagði sjálfur í blaðaviðtali, sem tek-
ið var við hann á hundrað ára af-
mælinu hans í vetur. Það var hald-
ið í Sóknarsalnum og var þar sam-
an komið mikið fjölmenni eða um
160 manns og flest af því afkom-
endur hans sem eru um 130 talsins.
Pabbi var mikill spilamaður og
spilaði mikið bæði heima og heiman
og man ég eftir að hann spilaði við
okkur krakkana vist, þegar tími
gafst til á veturnar og þá stundum
langt fram á nótt. Seinna kom
Lomberinn og þá voru það eldri
bræður mínir sem fengu það hnoss
að spila við hann.
Eftir að hann fluttist til
Reykjavíkur og hætti að vinna, fór
hann að spila brids og stundaði
lengi spilamennsku með eldri borg-
urum eða alveg meðan hann gat
séð á spilin. Ég naut þeirra forétt-
inda 'nokkur ár að hafa tækifæri
til að aka pabba í og úr spila-
mennsku og sá ég alltaf á svipnum
á honum hvernig hafði gengið
hvetju sinni; ef hann hafði tapað
var brúnin aðeins þyngri. Það skildi
ég vel því ég er spilasár. Þessar
stundir sem ég átti með pabba,
þegar ég ók honum, eru mér mjög
dýrmætar núna. Þá var margt rifjað
upp bæði gamalt og nýtt og spjallað
um alla heima og geima því pabbi
fylgdist vel með og var stálminning-
ur fram á síðustu daga. Hann fylgd-
ist með öllum fréttum og því sem
var að gerast hér heima og erlendis.
Hér áður fyrr var hann eldheitur
sjálfstæðismaður, en var búinn að
missa alla trú á þeim. Hans skoðun
var að þeir hefðu brugðist hugsjón
þeirri sem flokkurinn var stofnaður
á, en það var sú hugsjón sem Jón
Sigurðsson forseti barðist fyrir. Eða
frelsi og lýðræði öllum til handa á
þessu hjartkæra landi okkar, ís-
landi.
Afi minn, Ólafur, var á heimili
hjá pabba í Króki og lést sama
sumarið og mamma, þá orðinn aldr-
aður. Þó börnin væru mörg og hús-
rúm lítið, var samt pláss fyrir afa.
Þar sem hjartarúm er, þar er hús-
rúm. Á seinni árum búskapar hans,
voru bamabömin komin til sögunn-
ar og dvöldu þar yfir sumarið og
sum allt árið. Tvö em fædd í gömlu
baðstofunni og annað þeirra er eldri
dóttir mín, Guðrún Marta. Þá vant-
aði mig skjól og var það fúslega
veitt. Það er svo margt að þakka
að það yrði efni í margar blaðsíður.
En á þessari kveðjustund er hugur
minn svo fullur af þakklæti til föð-
ur míns, sem svo oft á lífsleiðinni
hefur aðstoðað mig, þegar illa hefur
staðið á, að mig skortir orð til að
tjá allar þær þakkir, sem ég vildi
fram færa. Ég er viss um að pabbi
á góða heimkomu, því hann safnaði
því sem hvorki mölur né ryð fá
eytt. Ég sakna hans sárt. Fari hann
í friði og friður Guðs blessi hann.
Fagra dýra móðir mín
minnar vöggu griðastaður.
Þegar lífsins dagur dvín
dýra kæra fóstra mín.
Búðu um mig við bijóstin þín.
Bý ég þar um eilíft glaður.
Fagra dýra móðir mín
minnar vöggu griðastaður. (S.J.)
Ragnheiður Guðmundsdóttir
í minningarorðum Rúnars Guð-
jónssonar um Jóhannes Árnason
sýslumann í blaðinu á miðvikudag
hafa fallið niður nokkrar línur í
einni málsgrein og hún brenglast.
Þannig átti hún að hljóða: „Að námi
loknu varð Jóhannes sveitarstjóri á
Patreksfirði til ársins 1968 og jafi)-
framt fulltrúi sýslumannsins í
Barðastrandarsýslu, fyrst um sinn,
en stundaði síðan málflutningsstörf
og útgerð samhliða sveitarstjóra-
starfinu. Jóhannes var skipaður
sýslumaður Barðastrandarsýslu á
árinu 1968 og gegndi því embætti
til ársins 1982 er hann var skipaður
sýslumaður Snæfellsnes- og
Hnappadalssýslu, en því embætti
gegndi hann til æviloka.
UPPSELT ! BIÐLISTI ! NOKKUR SÆTI LAUS ! UPPSELT
flQ
Leiðrétting
IRETTU FIRDINA
Eftir fremur tregar bókanir í byrjun hefur eftirspurnin tekið mikinn kipp og bókanir streyma
inn. Lausum sœtum fœkkar því óðfluga.
Við ráðleggjum ykkur að tryggja ykkur réttu Úrvalsferðina í tíma. Hafið samband við sölufólk
okkar.
MAJORKA,
brottför:
27.maí, 23dagar: Örfásœti 3.júlí,
laus v/forfalla. 17. júlí,
I9.júní, 2vikur: Laussœti. 7.dgúst,
2 vikur: Laus sœti.
3vikur: Nokkur sæti laus. 2.okt.,
3 vikur: Uppselt. 2. okt.,
28. ágúst, 2 vikur: Laus sœti.
ll.sept., 3vikur: Laussœti.
4 vikur: Laus sæti, almenn ferð.
4 vikur: Laus sœti, ferð eldri borgara.
SUMARHUS
Júní Júlí Ágúst Júní Júlí Ágúst
Þýskaland:
Daun Eifel Laust Laust Sumar vikur Zell am See Laust Laust Laust
fullbókaðar Frakkland:
Biersdorf Laust Laust Sumar vikur Antibes Laust Laust Laust
fullbókaðar Cap Coudalére Laust Laust Laust
Lahnstein Laust Laust Laust Cap d’Agde Laust Laust Laust
Austurríki: París Laust Laust Laust
Walchsee Laust Laust Sumar vikur Danmörk:
fuUbókaðar ÖerFerieby Laust Laust Laust
KIPUR/ brottför: 14. sept.: Laus sœti.
l.júní: Nokkursœti laus. 6.júlí: Laus sœti. 10. ágúst: Nokkursæti laus. 21. sept.: Laus sæti.
8.júní: Biðlisti. 13.júlí: Laus sæti. 17. ágúst: Biðlisti. 28. sept.: Örfá sœti laus.
15. júní: Nokkur sœti laus. 20. júlí: Laus sœti. 24. ágúst: Nokkursœti laus. 5. okt.: Laus sœti.
22. júní: Nokkursœti laus. 27. júlí: Laus sœti. 31. ágúst: Laus sœti. 12. okt.: Laus sæti.
29.júní: r Laus sœti. * 3. ágúst: Nokkur sœti laus. 7. sept.: Biðlisti. 19. okt.: Laus sœti.
- SERFERÐIR URVAIS:
0
CQ
h <
UJ *
vn
fiL
CL
Golfí Skotlandi, 20. maí: Biðlisti.
Frakkland/Sviss 25. júní: Laus sœti.
Sovétríkin/Rússland, 14JÚIÍ: Laus sœti.
Austurríki/Þýskaland, 23.júlí: Laus sæti.
Mið-Evrópa, 8. ágúst: Sex sœti laus.
Róm/Sorrento, 16. ágúst: Laus sœti.
Sovétríkin/Úkraína, 18. ágúst: Laus sœti.
Tyrkland,
Róm/Sorrento,
Mið-Evrópa, eldri borgarar,
Majorka, eldri borgarar,
Vínhátíð, Mósel og Rín,
Egiptaland,
Thailand,
FERÐASKRIFSTOFAN
- fólk sem kann sitt fag!
Pósthússtrœti 13 - Sími 26900.
1. sept.: Laus sœti.
1. sept.: Laus sœti.
5. sept.: Örfá sœti laus.
2. okt.: Laus sœti.
2. okt.: Örfá sœti laus.
7. okt.: Laus sœti.
28. okt.: Laus sæti.
BBBB
vrsA
w
5
3 UPPSELT ! BIÐLISTI ! NOKKUR SÆTI LAUS ! UPPSELT “