Morgunblaðið - 13.05.1989, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1989
ULTRA
GLOSS
Ekkert venjulegt
bílabón, heldur lakk-
brynja sem endist
langt umfram hefö-
bundnar bóntegundir.
Útsölustaðir:
ESSO
stöövarnar.
ÐRADAGURM
HELGINA
UM
ER
Blomaframleiðendnr
Ath
Blómaverslanir
lokaéar
hvítasunnudag
Þessir hringdu . .
Slæm umgengni
Göngnhrólfur hringdi:
„Eg geng oft um í Elliðaár-
hólmanum og varð var við það fyr-
ir nokkrum dögum að það er illa
gengið um. Þarna hafa verið unnin
skemmdarverk á ttjágróðri. Ein-
hver hefur haft mikið fyrir að sarga
niður háa ösp og notað til þess eitt-
hvað veigalítið verkfæri. Sama er
að segja um slatta af grenitijám
sem einnig hafa verið eyðilögð.
Sömuleiðis er ég óhress með hesta-
mennina, þeir eru að ríða þarna
um og skemma göngustíga."
Alúðleg afgreiðslukona
Húsmóðir í Safamýri hringdi:
„Mig langar að koma þakklæti
á framfæri. Þriðjudaginn 9. maí
sendi ég 12 ára son minn út í versl-
unina Starmýri við samnefnda
götu. Hann átti að kaupa fjögur
stór box af hvítu skyri. Hann var
afgreiddur og látinn háfa plastpoka
af allra þynstu gerð, sem ekkert
kosta, án þess að spyija hann hvort
hann vildi sterkari poka. Drengur-
inn tók við varningnum, komst út
á stétt utan við búðina en þar lét
pokinn undan þunganum. Skyrið
fékk hann framan á sig í fötin sín.
Fötin hans varð að setja í hreinsun
og skyrinu sem eftir var í dósunum
varð að sjálfsögðu að henda í rusla-
tunnurnar. Ég, móðirin, var sár.
Ekki vegna þess að ég sé svo blönk
að sex manna fjölskylda mín þurfi
að svelta en mér finnst að ungling-
um sé oft sýnd lítilsvirðing og þeim
sé ekki sinnt sem fullorðnu fólki
þó þau séu kurteis.
Daginn eftir fór ég í verslunina
Starmýri að versla. Kurteis kona
afgreiddi mig fljótt og vel og bauð
mér innkaupapoka til kaups. Ég
sagði þá frá óförum sonar míns frá
deginum áður. Hun brást vel við,
baðst afsökunar og bauð mér að
taka ný skyrbox í stað þeirra sem
illa fóru og var mjög skilningsrík
og þýð í viðmóti. Ég vil þakka þessi
kurteisu afgreiðslukonu fyrir við-
mótið. Svona hlýja er ekki til stað-
ar í öllum verslunum borgarinnar,
því miður. Ég sendi afgreiðslukon-
unni kærar þakkir óg býst við að
versla framvegis í þessari verslun."
Hlaupabraut
Lesandi hringdi:
„Ég var á gangi með börnunum
mínum um daginn við heita lækinn
við Nauthólsvík. Eins og flestum
mun kunnugt er ekki hægt að
ganga þaðan yfir í Skeijaijörð
vegna flugbrautarinnar. Væri ekki
hægt að gera þama hlaupabraut
svo fólk gæti skokkað með strönd-
inni út í Skeijafjörð? Hafa íbúar í
Skeijafirði ekki áhuga á þessu?
Nú er ekið og gengið við flug-
brautarendann hinu megin og ætti
hættan ekki að vera meiri við
Skeijaijörð.“
Stundina okkar á
myndbönd
Jóhanna Gísladóttir hringdi:
„Ég er búsett í Bandaríkjunum
og vil auðvitað að börnin mín læri
íslensku. Vinafólk okkar sendir
stundum Stundina okkar á mynd-
böndum og það kunnar bömin vel
að meta enda er gott efni í þessum
þætti. Það vill hins vegar gleymast
að taka þetta upp og fáum við
þessi myndbönd ekki oft. Gæti
sjónvarpið ekki haft myndbönd með
Stundinni okkar til sölu svo við
getum fengið hana reglulega? Ég
þykist vita að fleiri hafi áhuga á
þessu.“
Sein póstþjónusta
Guðrún hringdi:
„ Sonur minn fékk boðskort í
pósti og var umslagið stimplað 21.
apríl í Reykjavík. Við fengum þetta
bréf inn um bréfalúguna hér í
Mosfellsbæ 27. apríl. Þetta væri
v'arla í frásögu færandi nema af
því að boðsdagurinn var 25. apríl.
Nú er þetta ekki í fyrsta skipti sem
bréf berast seint hérna, bréf hafa
verið viku á leiðinni innanbæjar hér
í Mosfellsbæ. Getur póstþjónustan
ekki gert betur?“
Saumakona
Kona hringdi:
„Ég þarf að láta sauma fyrir
mig og er að leita að saumakonu
sem takur að sér saumaskap á
samgjömu verði. Ef einhver hefur
áhuga er hægt að ná í mig í síma
84758. '
Óréttlæti
í síðasta mánuði heimsóttu okkur í
Fossvogsskóla starfsmenn frá
Þroskahjálp og Öryrkjabandalaginu
og fræddu okkur krakkana um fatl-
aða og aðstæður þeirra.
Núna nýlega heyrði ég frétt í út-
varpinu um að nú ætti að stefna að
því að talsetja allar teiknimyndir.
Þetta finnst mér mjög óréttlátt gagn-
vart heyrnarlausum börnum. Er ekki
hægt að talsetja teiknimyndir og
hafa samt texta neðst á skjánum?
Það sama á við um allt íslenskt efni,
þeir heymarlausu hafa alveg jafn-
mikinn rétt og við að horfa á sjón-
varpsefni og fylgjast með. Aðstæðu
fatlaðra hér á landi em mjög slæmar
og því erfítt fyrir þá að lifa, án þess
að lenda í erfiðleikum vegna tillits-
leysis okkar. K.B.G.
Týnd kisa
Til Velvakanda.
Þessi kisa týndist frá Lindargötu
56 föstudaginn 5. maí. Hún er grá,
háfætt og grannvaxin með hvítan
blett framan á hálsi. Hún var með
rauða hálsól með bjöllu. Hún er
mjög stygg og ekki víst að hún Ieyfi
ókunnugum að komast að merking-
unni á ólinni. Ef einhver hefur orð-
ið var við kisu vinsamlegast hafið
samband í síma 19363.
(2
<
að sjálfsögðu!