Morgunblaðið - 18.05.1989, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1989
Morgunblaðið/Sverrir
Heimsókn Carlssons lýkur í dag
Tveir menn í gæzluvarðhaldi:
Umfangsmesta fikni-
efnamál hérlendis
TVEIR ungir menn sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna gruns um aðild
að umfangsmesta kókainsmygli sem komist hefur upp hérlendis. Lög-
reglan hefiir lagt hald á 430 grömm af kókaíni. Alls hafa Qórir setið
í gæsluvarðhaldi vegna málsins sem kom upp í byrjun mánaðarins.
Enginn hinna grunuðu hefur áður komið við sögu fíkniefhamála.
Tveir þeirra voru látnir lausir um menn í fíkniefnadeild lögreglunnar
helgina og hafði annar þá setið í
varðhaldi í viku en hinn í 10 daga.
Þá var framlengdur um 15 daga
varðhaldstími manns sem hafði áður
verið 10 daga í haldi og flórði maður-
inn var handtekinn og úrskurðaður
í gæsluvarðhald í 30 daga.
Efnunum var smyglað hingað til
lands frá Bandaríkjunum. Lögreglu-
segja öruggt að hér sé á ferð um-
fangsmesta fíkniefnamál sem komið
hefur upp hérlendis en veijast að
öðru leyti frétta af gangi þess. Það
sem af er árinu hefur verið lagt hald
á 6-700 grömm af kókaíni, í þremur
allumfangsmiklum málum. Lögregla
hefur ekki fyrr náð í svo mikið magn
kókaíns á einu ári.
Finnst að verið sé að
kasta stríðshanska
Opinberri heimsókn Ingvars Carlssons, forsætisráðherra Svíþjóðar, lýkur síðdegis í dag, en árdegis
fara Carlsson og kona hans til Hafnar í Homafírði. í gær fóru ráðherra og föruneyti m.a. til Þingvalla og
í gærkvöldi sat hann boð íslenzkra jafnaðarmanna. Myndin var tekin af sænska forsætisráðherranum
ásamt ráðherrum Alþýðuflokksins, þeim Jóni Baldvin Hannibalssyni, Jóni Sigurðssyni og Jóhönnu Sig-
urðardóttur.
Sjá nánar um heimsóknina á bls. 21.
Hlutafjársjóður:
Hlutdeildarbréf boðin
til greiðslu á skuldum
Fiskveiðasjóður metur stöðu hvers fyrirtækis fyrir sig
STJÓRN Hlutafjársjóðs hefiir stofiiana, sem eru helztu lánar-
beint því til þeirra sjóða og lána- drottnar fyrirtækja í sjávarút-
Reuter
Guðbjörg Gissurar-
dóttir íMexíkó
Guðbjörg Gissuarardóttir,
sem varð í 2. sæti í Fegurð-
arsamkeppni íslands í fyrra,
tekur þátt í keppninni
Ungfrú alheimur í Mexíkó 23.
maí n.k. Hér má sjá hana til
hægri fylgjast með sýningu
þar í borg í gær ásamt
Ungfrú Möltu.
vegi, að þeir taki svokölluð hlut-
deildarbréf (skuldabréf) sem
greiðslu á skuldum þeirra fyrir-
tækja, sem Hlutafjársjóður tek-
ur til. Ákveðin svör hafa ekki
borizt sjóðsstjórninni, en líklegt
er að lánardrottnarnir meti
stöðu hvers fyrirtækis fyrir sig
og fari fram á viðunandi trygg-
ingu að baki hlutdeildarbréf-
anna.
Hlutafjársjóður hefur enn ekki
tekið ákvörðun um hvort hann
taki þátt í fjárhagslegri endur-
skipulagningu þeirra fyrirtækja,
sem um það hafa sótt, en þau eru
20, flest úr sjávarútvegi.
Sjóðurinn mun starfa þannig,
að hann gefur út svokölluð hlut-
deildarbréf til greiðslu ákveðins
hluta skulda viðkomandi fyrir-
tækja hjá helztu lánardrottnunumr
en fær á móti hlutabréf í fyrirtækj-
unum.
Hlutdeildarbréfín eru með
tvennum hætti, a- og b-bréf og
njóta a-bréfín ríkisábyrgðar.
Sjóðnum er ætlað að taka til þeirra
fyrirtækja, sem verst eru sett og
fengu ekki afgreiðslu hjá Atvinnu-
tryggingasjóði útflutningsgreina.
Már Elísson, forstjóri Fiskveiða-
sjóðs, sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að stjórn sjóðsins hefði
ákveðið að ræða við stjórn Hluta-
fjársjóðs, en án allra skuldbind-
inga.
Stjómin vildi skoða hvert fyrir-
tæki fyrir sig og meta stöðu þess
áður en ákveðið væri hvort hlut-
deildarbréfín yrðu tekin sem
greiðsla á skuldum og yrði það
þannig metið hveiju sinni út frá
hagsmunum Fiskveiðasjóðs.
„Við munum ekki taka við nein-
um skuldabréfum nema þau séu
vandlega tryggð og veð verði ekki
síðri en við höfum að jafnaði,"
sagði Már Elísson.
- segir forseti bæjarsljórnar Kópa-
vogs um ályktun stjórnar SSH
„ÞAÐ eru einkennileg vinnubrögð stjómar Samtaka sveitarfélaga á
höfúðborgarsvæðinu að rjúka til og taka afstöðu í deilumáli sem
þessu í stað þess að vinna að samvinnu sveitarfélaganna, eins og
henni ber skylda til,“ sagði Heimir Pálsson, forseti bæjarstjórnar
Kópavogs, um ályktun stjórnar SSH um deiluna um Fossvogsdal. í
henni segir m.a. að ámælisvert sé að rifta einhliða samningum milli
sveitarfélaga.
Heimir segir ályktunina með öllu bæjarstjómar, Valþór Hlöðversson,
órökstudda og að það geti ekki hafði boðað forföll skömmu áður
verið innan verksviðs stjómar SSH en stjómarfundurinn hófst. Heimir
að gerast dómari í deilu tveggja sagðist búast við að bæjarráð Kópa-
sveitarfélaga á svæði hennar. vogs fjallaði um ályktunina á fundi
Stjómin minnist ekki í ályktun sinni sínum í dag.
á einhliða uppsögn borgarinnar á . ________
samningum um sorphauga heldur
sé beinlínis verið að taka afstöðu
með öðram deiluaðilanum í sam-
starfsnefnd sveitarfélagana og það
þætti meirihluta bæjarstjórnar í
Kópavogi mjög óviðeigandi. „Sam-
tökin eiga ekki að vera einhver
dómstóll, sem hreykir sér í dómara-
sætinu, heldur eiga þau að vera
vettvangur til að stuðla að sam-
vinnu sveitarfélagana. Okkur finnst
að verið sé að kasta stríðshanska
í okkur," sagði Heimir.
Að sögn Heimis, mun mál þetta
ekki hafa verið á auglýstri dagskrá
stjómar SSH, en tveir fulltrúar frá
Kópavogsbæ sitja í stjóm SSH.
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Ric-
hard Björgvinsson, hafi samþykkt
ályktunina, en fulltrúi meirihluta
Nýr forsljóri
Bílaborgar
HARALDUR R. Jónsson við-
skiptafræðingur hefúr verið ráð-
inn forstjóri Mazda-umboðsins
Bílaborgar. Þórir Jensen, fráfar-
andi forstjóri, lætur af störfúm
af heilsufarsástæðum.
Haraldur fæddist 26. maí 1953.
Hann lauk viðskiptafræðiprófí frá
Háskóla íslands 1978. Sama ár
varð hann framkvæmdastjóri Sjóla-
stöðvarinnar hf. í Hafnarfírði. Hann
hefur þegar hafíð störf hjá Bíla-
borg.
Greiðslukortasvikari
úrskurðaður í gæslu
ANNAR piltanna tveggja, sem sviku greiðslukort út með því að falsa
nöfn ábyrgðarmanna, kom til landsins um sfðustu helgi frá Bandarikjun-
um. Hann var handtekinn í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli og hefúr
verið úrskurðaður f gæsluvarðhald til 24. þessa mánaðar.
Félagi hans dvelst enn ytra og
hafði RLR hvorki haft fréttir af dval-
arstað hans né fyrirætlunum. Þá
sagði Helgi Daníelsson yfírlögreglu-
þjónn að enn lægi ekki fyrir hve háa
upphæð mennimir hefðu svikið út,
með kortunum og af ávísanareikn-
ingum sem stofnaðir voru í nokkrum
bönkum hér, en sagði að nefndar
hefðu verið tölur á bilinu 2-3 milljón-
ir króna. Kortin hafa ekki verið not-
uð frá því að upp komst hér heima
hvemig þau hefðu verið fengin.
Stjórn Sambandsins:
Hlutafé í Álafossi aukið
um 90 milljónir króna
Tap SÍS á fyrsta ársfjórðungi minna en í fyrra
STJÓRN Sambands fslenzkra samvinnufélaga ákvað á fúndi sfnum
á þriðjudag að auka hlutafé Sambandsins f Alafossi um 90 mil(jón-
ir króna. Að sögn Ólafs Sverrissonar, stjómarformanns SÍS, vom
stjóraarmenn ekki ánægðir yfir því að þurfa að auka hlutafé á
sama tíma og Sambandið þyrfti að selja eignir, en það hefði ver-
ið gert að skilyrði fyrir lánafyrirgreiðslu við Álafoss að Samband-
ið ætti áfram helming f fyrirtækinu á móti Framkvæmdasjóði.
Sambandið hefði því orðið að auka við hlut sinn, ella hefði fyrir-
tækið lent uppi á skeri. Framkvæmdasjóður leggur til aðrar 90
mil(jónir í hlutafé.
Umfangsmikil endurskipulagn-
ing hefur farið fram að undan-
fömu á Qárhag Álafoss. Fyrirtæk-
ið hefur staðið f samningum við
banka og sjóði um skuldbreyting-
ar og lánafyrirgreiðslu svo nemur
hundraðum milljóna. Sala á eign-
um og hagræðing í rekstri er einn-
ig í gangi, og stefnt hefur verið
að því að minnka skuldir fyrirtæk-
isins í 1.100 milljónir króna. Ála-
foss hefur meðal annars fengið
vilyrði fyrir 200 milljóna skuld-
breytingaláni úr Atvinnutrygg-
ingasjóði og sótt um 100 milljónir
til Hlutafjársjóðs.
„Það er búið að skrapa saman
fjármuni upp á mörg hundruð
milljónir til að bæta hag fyrirtæk-
isins og við eram heldur bjartsýn-
ir um að salan sé á uppleið," sagði
Ólafur Sverrisson í samtali við
Morgunblaðið. „Við höfum von
um viðbótarsarnning við Rússa og
okkur gengur betur á vestrænum
mörkuðum en undanfarna mán-
uði. Með hóflegri bjartsýni vonum
við að þetta hafist."
Ólafur sagði að á stjómarfundi
SÍS hefði Guðjón B. Ólafsson for-
stjóri jagt fram skrifleg svör við
bréfí Ólafs frá fyrra mánuði, þar
sem Guðjón var krafínn ná-
kvæmra svara um það, hvemig
hann hygðist rétta af rekstur
Sambandsins. „Sum svörin voru
góð, og önnur lakari. Stjómar-
menn fengu þau í hendur ásamt
bréfi mínu og hafa þá tímann
fyrir sér að setja sig betur inn I
málin en ella hefði verið," sagði
Ólafur. Hann vildi hins vegar ekki
gefa upp efni svaranna.
Ólafúr sagði að stjómarmenn
hefðu farið ofan I rekstrarreikning
SÍS og rætt um ástand og horf-
ur, en sú umræða héldi áfram á
næsta stjómarfundi um mánaða-
mótin. Hvað afkomu SÍS á fyrsta
fjórðungi þessa árs varðaði sagði
Ölafur að hún væri skárri en á
sama tíma í fyrra. Tap væri enn
á rekstrinum, en væri líklega um
þriðjungur af því, sem verið hefði
I fyira.