Morgunblaðið - 18.05.1989, Page 7

Morgunblaðið - 18.05.1989, Page 7
COTT FÓLK'SlA MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1989 7 Hefur þú komið auga á gengistryggð spariskírteini ? Lánstími gengistryggðra spariskírteina, sem eru bundin traustum erlendum gjaldmiðlum, er ekki nema 18 mánuðir frá því að sölu þeirra lýkur nú í lok júní. Það er ótrúlega stuttur lánstími. Gengis- tryggð spariskírteini eru því afar hagstæð fjárfesting fyrir þá sem vilja ávaxta skammtímafjármuni á traustan hátt. Auk þess bera þau 8,3% ársvexti. Dæmi um ávöxtun á gengistryggðum spariskírteinum miðað við ECU með 8,2% vöxtum frá 11.1.1988 til 11.1.1989. ECU Gengisbreytingar 22,3% Heildarávöxtun 32,4% Hækkun lánskjaravísitölu 19,1% Raunávöxtun 11,2% Á 6 mánaða tímabili eftir gjalddaga, sem er í janú' ar 1991, getur þú valið um innlausnardag hvenær sem er og færðu þá greiddan höfuðstól miðað við gengi þess dags auk vaxtanna. Ríkissjóður býður tvenns konar gengistryggð spariskírteini, ECU og SDR. ECU samanstendur af 10 evrópskum gjald- miðlum: Bresku sterlingspundi, vestur- þýsku marki, frönskum franka, hollensku gyllini, ítalskri líru, belgískum franka, lúxemborgarfranka, danskri krónu, írsku pundi og grískri drakma. SDR samanstendur af 5 algengustu gjaldmiðlun- um í alþjóðaviðskiptum: Bresku sterlingspundi, bandarískum dollar, japönsku yeni, vestur-þýsku marki og frönskum franka. Samsetning ECU Samsetning SDR DEM 34,6% USD 34,7% NLG 10,9% GBP 13,5% JPY 19,4% Gengistryggð spariskírteini eru eitt öruggasta sparnaðarformið sem völ er á því að baki þeim stendur ríkissjóður. Kynntu þér auk þess ákvæði tekju- og eignarskattslaga, sem gilda um þetta hag- stæða sparnaðarform. Þú getur fengið gengistryggð spariskírteini í Seðlabanka Islands, hjá flestum bönkum og sparisjóðum og hjá helstu verðbréfamiðÞ urum. Einnig getur þú hringt í síma 91-699600 og pantað þau þar. RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.