Morgunblaðið - 18.05.1989, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1989
17
I starfsmenntun fóstra. Gera þarf
skólanum kleift að annast ráðgjöf
vegna þróunar og nýbreytnistarfs á
dagvistarheimilum. Það er mikilvægt
að dagvistarstofnanir geti sótt um
ráðgjöf og stuðning ef fóstrur óska
eftir að sérhæfa sig í ákveðnum
vinnubrögðum.
Semja þyrfti sérstaklega við kenn-
ara Fósturskólans um mögulega
skiptingu starfstíma milli kennslu og
rannsóknar- eða þróunarverkefna.
Setja þarf reglur um forsendur og
skipulagningu þróunarverkefna, t.d.
um kostnaðarskiptingu ríkis og sveit-
arfélaga en einnig hver hlutur Fóst-
urskólans er í þessu samstarfí.
Aukið samstarf Fósturskóla
Islands ogKennaraháskóla
Islands
Eg tel mjög mikilvægt að mennta-
málaráðuneytið skipi starfshóp sem
geri tillögur um aukið samstarf Fóst-
urskólans og Kennaraháskóla ís-
lands, sérstaklega þar sem starfssvið
skarast. Starfshópurinn skyldi einnig
koma með tillögur að auknu sam-
starfi við Rannsóknarstofnun uppeld-
ismála.
Breytt inntökuskilyrði
Inntökuskilyrði eru úrelt en þau
miða m.a. við próf sem ekki er leng-
ur til, t.d. gagnfræðapróf. Stúdents-
próf eða sambærilegt nám og
reynsla, yrði gert að inntökuskilyrði
en jafnframt tel ég mikilvægt að
opna skólann svipað og gert er t.d.
í-Noregi. Svo sem heimild til að veita
nemendum inngöngu hafi þeir lokið
stúdentsprófsáföngum í ákveðnum
greinum, sem tengjast fóstrunámi
sérstaklega.
Nauðsynlegt er að fá heimild til
að veita nemendum undirbúnings-
menntun undir fóstrunám. í þessu
sambandi er rétt að geta þess að
þegar Kennaraskóli íslands varð há-
skóli var sett til bráðabirgða laga-
ákvæði um aðfaranám til þess að
auðvelda breytinguna. Þetta myndi
m.a. auðvelda væntanlegum fóstru-
liðum að hefja fóstrunám (Mennta-
málaráðuneytið undirbýr núna nám
fóstruliða í nokkrum framhaldsskól-
um).
Námstilhögun
Ég tel eðlilegt að námstíminn yrði
þijú ár eins og nú er. Fóstrunám
þarf að meta til eininga í samræmi
við nám í Kennaraháskóla íslands,
Háskóla íslands og Tækniskóla ís-
lands. Þannig yrði námið markvisst
fært á háskólastig. Ég álít einnig
nauðsynlegt að setja á stofn náms-
braut, sem gerir nemendum kleift
að vera í hlutanámi og ljúka grunnn-
ámi á t.d. 4 árum. Þar er átt við þá
sem vilja ljúka námi t.d. samhliða
vinnu.
Æfinga- og tilraunastofnun
fyrir börn
í núgildandi lögum um FÍ er kveð-
ið á um nauðsyn þess að starfrækja
æfinga- og tilraunastofnun fyrir
börn, fram að skólaaldri, undir yfir-
stjórn FÍ. Þessu ákvæði þarf að fylgja
eftir. Nemendum yrði búin sérstök
aðstaða til athugunar á atferli og
leikjum barna og uppeldislegum
starfsháttum.
Fósturskólinn hefði náið samstarf
við Rannsóknastofnun uppeldismála
varðandi rannsóknir. Þannig nýttust
starfskraftar beggja stofnana. Á
þennan hátt tel ég að færa megi
Fósturskóla íslands á háskólastig.
Eitt er víst að endurskoðun laga um
Fósturskóla Islands þolir enga bið
og það jafnvel þó menn séu hlynntir
samruna við Kennaraháskóla ís-
lands. Það er ósköp einfaldlega
vegna þess að ef sá kostur yrði fyrir
valinu þá spái ég því að hann kosti
miklar umræður og vangaveltur,
samninga um fyrrnefnd grundvallar-
atriði.
Ekki má gleyma því að mennta-
málaráðuneytið undirbýr nú nám fós-
truliða. Fóstruliðar munu því vænt-
anlega útskrifast úr nokkrum fram-
haldsskólum innan tíðar.
Ef ráðamenn ætla að tryggja dag-
vistarheimilum starfsfólk með
fóstrumenntun er brýnt að efla
fóstrumenntunina nú þegar þannig
að henni sé ekki gert lægra undir
höfði en annarri starfsmenntun í
landinu.
BORN EIGA BETRA
SKILIÐ!
Fullorðna fólkið mótar umhverfi borgarbarna engu síður en sjálf náttúran.
Með því að láta glerbrot, úðabrúsa, einnota kveikjara
og sígarettustubba liggja á almannafæri egnum við slysagildrur fyrir litla fólkið.
Lítum í kringum okkur - forðum börnum okkar frá óhöppum!
lATTU EKKI ÞITT EFTIR LIGGIA!
Höfundur er skólasljóri Fóstur-
skóla íslands.
ARGUS/SIA