Morgunblaðið - 18.05.1989, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1989
Fyrsta „friðarborg" heims íArmeníu
Reuter
Hópur Hollendinga í byggingariðnaði ætlar að hefja
fláröflunarherferð út um allan heim síðar í mánuðin-
um og verður söfnunarfénu varið til byggingar
fyrstu „friðarborgar" heimsins í Sovétlýðveldinu
Armeníu, þar sem landskjálfti olli mikilli eyðilegg-
ingu í fyrra. Áætlað er að borgin kosti 500 milljón-
ir dala, eða um 26,5 milljarða ísl. kr., og hafa stjóm-
völd í Moskvu og Armeníu lagt blessun sína yflr
hugmyndina. Verður borgin reist mitt á milli Jere-
van og Lenínakan og hefur hún hlotið nafnið Euro-
polis. „Takmark okkar er að sem flestir þeirra Arm-
ena, sem urðu heimilislausir í jarðskjálftanum, geti
búið í borginni," sagði Robert Nieland, sem stjómar
söfnuninni. Á myndinni sést hvemig borgin mun
líta út, en hún er eftir hollenska listamanninn Ru-
dolf Das.
Bandar í kj amenn
ánægðir í Keflavík
- en er illa við „eilífan stormbeljanda“
Washington. Frá tvari Guðmundssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Bandaríkjamenn kunna allvel við sig í Keflavík, segir í ítarlegri
grein um veru bandaríska sjóliðsins á íslandi, er birtist í nýjasta
tölublaði Navy Times, sem er málgagn Bandaríkjaflotans. í fyrirsögn
er minnst á helstu kvartanir Bandaríkjamanna í Keflavík, en þær
eru „drepandi stormar, drepandi verðlag og drepandi innisetur"
vegna útgöngubanns liðsmanna á síðkvöldum.
Höfundur greinarinnar, Thomas
Grose að nafni, segir að liðsmenn
kunni allsæmilega við sig. Þeir eigi
til að kvarta í byijun. Þegar þeir
eru spurðir hvemig þeim líki vistin
á íslandi, hafi þeir oft allt á homum
sér í byijun, en dragi svo fljótt í
land og segi, að það sé margt gott
að segja um dvölina á íslandi. „Það
er ekki ónýtt,“ segir sjóliði, „að
vera hér á íslandi og fá launabót
eins og sjómaður, án þess að vera
til sjós.“ 23 ára sjóliði, Scott A.
Johnson að nafni, hefir verið í
Keflavík síðan 1987 og hefir ákveð-
Fáfuhvamwufy>
Við skellum okkur í eina sæng
og fylkjum liði undir merki Palla hf
á nýjum stað
yrirtækin BRIMRÁS HF Kaplahrauni 7 Hafnarfirði, PALLAR HF Vesturvör
7 Kópavogi og VÉLA- OG PALLALEIGAN HF Tangarhöfða 6 Reykjavík,
hafa sameinast og flutt alla starfsemi sína að Dalvegi 16, Fífuhvammi, Kópavogi.
em áður verðum við með til sölu og leigu úti- og innivinnupalla, stiga, tröppur
og ört stækkandi véla- og verkfæraúrval er við höfum sett í öndvegi á nýja
staðnum.
Verið velkomin að Dalvegi 16, Fífuhvammi, Kópavogi.
Par verður tekið vel á móti ykkur.
Pallar hf.
VINNUPALLAR - STIGAR - VÉLAR - VERKFÆRI
DALVEGI 16, FÍFUHVAMMI, KÓPAVOGI, SÍMI 641020
ið að framlengja þjónustu sína til
1990. „Það er margt, sem maður
getur gert hér til að mennta sig
og styrkja sig Iíkamlega,“ er haft
eftir fleiri en einum viðmælanda
greinarhöfundar. Þeir, sem spurðir
vom virtust sammála um, að til
þess að njóta lífsins í Keflavík væri
um að gera, að fara ekki að væla
með hangandi haus „hve lífið væri
óþolandi á íslandi“.
Veðurfarið og einkum óstöðug-
leiki þess var helst á döfínni, er
rætt var um veruna á íslandi. Það
var og álit flestra, sem höfundur
talaði við, „að þótt íslendingar séu
fálátir og seinir til kynningar, sé
það greinilegt, að íslendingar séu
meðal gagnmenntuðustu þjóða
heims og að lífskjör þeirra séu betri
en menn eigi almennt að venjast í
öðrum löndum.
Dýrtíðin á íslandi er, að dómi
Navy Times, eitt af aðaláhyggju-
efnum Bandaríkjamanna í Keflavík.
Það er oft þrisvar til fjórum sinnum
dýrara að draga fram Iífið á íslandi
borið saman við verðlagið í Banda-
ríkjunum.
Útgöngubannið
mörgum erfitt
Það er regla, að ógift fólk meðal
óbreyttra liðsmanna á Keflavíkur-
flugvelli lýtur útgöngubanni frá
miðnætti. Gift fólk í fylgd með
maka er ekki kyrrsett heima að
næturlagi. Það segir sig sjálft, að
ungt fólk kann þessu illa. Það eru
ströng viðurlög við að bijóta út-
göngubannið. Hegning fyrir brot
getur verið kyrrseta í stuttan tíma,
eða jafnvel lækkun í tign, ef um
ítrekað brot er aði ræða. Sumir
halda því fram, segir Navy Times,
að íslendingar hafi ekki áhyggjur
af að lenda í slagsmálum, frekar
hitt, að þeir vilji forðast „of náin
kynni“ Bandaríkjamanna og íslend-
inga.
Blaðið hefír það eftir Herði
Bjamasyni sendifulltrúa íslenska
sendiráðsins í Washington, að „út-
göngubannið" sé til að forðast
árekstra bandaríska liðsins og ís-
lendinga. Það hafí verið sett á með
samþykki beggja aðila.
Bandaríkln:
Lýsi dregur
úr ristilbólgu
Washington. Reuter.
NEYSLA fisklýsis hefur góð áhrif
á meltingarveginn ekki síður en
starfsemi hjartans, að þvi er
vísindamenn sögðu á ráðstefnu
sérfræðinga í meltingarsjúkdóm-
um á mánudag.
Vísindamennimir sáu þess merki
í rannsóknum sínum á dýmm, að
físklýsi getur veitt vemd gegn tveim-
ur algengum sjúkdómum í meltingar-
veginum, gallsteinamyndun og ristil-
bólgu.
Rannsókn dr. Richards Fedoraks,
sem starfar við háskólann í Alberta
í Edmonton, leiddi í ljós, að við
neyslu á físklýsi dró jír einkennum
ristilbólgu hjá rottum. í annarri rann-
sókn komst hópur vísindamanna við
Johns Hopkins-spítalann í Boltimore,
undir stjóm dr. Thomas Magnuson,
að raun um, að lýsisneysla dró stór-
lega úr gallsteinamyndun hjá full-
orðnum sléttuhundum.
í öðmm rannsóknum hefur komið
fram, að neysla físklýsis dregur úr
hættu á hjartasjúkdómum í mönnum.