Morgunblaðið - 18.05.1989, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAI 1989
37
Sigurbjörg Amunda-
dóttir - Minning
Fædd6. nóvember 1901
Dáinll. maí 1989
Sigurbjörg amma lést í Land-
spítalanum að morgni fimmtudags-
ins 11. maí. Amma fæddist í Kald-
árholti, Holtahreppi, Rangárvalla-
sýslu. Dóttir Ámunda steinsmiðs
Guðmundssonar og Jóhönnu Jó-
hannesdóttur. Hún ólst upp hjá afa
sínum og ömmu, hjónunum Guð-
mundi Ámundasyni og Kristínu
Andrésdóttur. Giftist Gísla Sigurðs-
syni rakara á Selfossi, en þau slitu
samvistir.
Böm þeirra: Reynir f. 1922, d.
1923; Ámundi Reynir f. 1924; Ingi-
gerður Kristín f. 1928 og Hulda f.
1929, d. 1974.
Lengst af bjó amma á Laugavegi
48. Hún ól börn sín úpp af miklum
dugnaði, en oft var þröngt í búi hjá
ungri konu með þijú börn.
Amma var ákveðin og samvisku-
söm. Mikil reisn var yfir henni, og
var hún mikið fyrir að klæða sig
og böm sín fallega. Hún var mikil
saumakona. Handbragð ömmu
sýndi sig í því sem hún lét frá sér
fara, og nutum við bamabörnin
góðs af í ríkum mæli.
Eftir að böm ömmu komust á
legg vann hún við verzlunar- og
saumastörf hjá Feldinum í
Reylq'avík í 12 ár.
Kynni okkar ömmu urðu enn
meiri er hún bjó um nokkurra ára
skeið á æskuheimilum okkar. Þá
var oft á kvöldin spjallað saman,
spilað eða lesnar sögur, jafnvel vom
keyptir ömmu-staurar og kók.
Árið 1975 flutti amma í Hátún
lOb. Þar átti hún lítið en fallegt
heimili. Kynntist hún þar mörgu
góðu fólki sem hún naut samvista
við.
Alltaf átti amma eitthvað gott
handa langömmubömunum. Erfíð-
ast verður fyrir þau að skilja að
langamma er ekki lengur á meðal
okkar.
Blessuð sé minning elsku ömmu.
Því fell ég nú til fóta,
frelsarinn Jesú, þér.
Láttu mig nafns þíns njóta.
Náð og vægð sýndu mér.
Ég skal með hlýðni heiðra þig
nú og um eilífð alla.
Þá huggar þú, herra, mig.
(Hallgrímur Péturss.)
Bamabörn
Sverrir Samúels-
son - Kveðjuorð
Sverrir Samúelsson hefur kvatt
okkar heim. Margar bestu bernsku-
minningar okkar em tengdar
Sverri. Hann var vinur foreldra
okkar alla tíð og hélt tryggð við
okkur þótt þau hyrfu á brott.
Efst í hugum okkar em allar
stóm stundimar svo sem afmæli,
fermingar og aðrar fjölskyldusam-
komur sem Sverrir festi á filmu.
Margur er kunningsskapurinn á
lífsleiðinni en færri sem teljast til
raunvemlegra vina. Slík vomhjónin
Ellen og Sverrir. Stakur prýðismað-
ur var Sverrir og einkenndist hans
fas allt af hæversku, en í augum
hans var alltaf glettni og skop-
skyggni. Það vora ófá skipti sem
Sverrir fékk okkur systkinin til að
hlæja. Þá sérstaklega er pabbi okk-
ar og hann sáu skoplegu hliðamar
á öllum sköpuðum hlutum og var
þá fátt heilagt.
Að leiðarlokum viljum við systk-
inin þakka samfylgdina og vottum
aðstandendum fyllstu samúð okkar.
Elín, Lára og
Hrafnhildur Hansdætur
ORLOFSHUS A SPANI
Viltu tryggja þér sólríka framtíð í hlýju og notalegu umhverfi
við ströndina COSTA BLANCA, þar sem náttúrufegurðin er
hve mest á Spáni? Komið og kannið möguleikana á að eign-
ast ykkar eigið einbýlishús, sem staðsett er í afmörkuðu lúxus-
hverfi LAS MIMOSAS.
VERÐ FRÁ ÍSL. KR. 1.900.000,-
AFBORGUNARKJÖR.
Á og við LAS MIMOSAS er öll hugsanleg þjónusta sem
opin er alla daga: Stórmarkaður, veitingastaðir, barir,
næturklúbbar, diskótek, sundlaugar, tennis- og squas-
hvellir, 18 holu golfvöllur, siglingaklúbbur, köfunarklúbbur
o.m.fl.
Þið eruð velkomin á kynningarfund okkar á Laugavegi
18, laugardaginn 20. maí og sunnudaginn 21. maí, frá
kl. 11.00-16.00. Kynnisferð til Spánar 31. maí-7. júní.
ORLOFSHÚS SF.,
Laugavegi 18, 101 Reykjavík,
símar 91-17045 og 15945.
Viltu skrifa leikþátt?
Menningar- og fræðslusamband alþýðu og Jafnréttisráð
hafa ákveðið að láta vinna Jeikþátt, sem verður sýndur
á vinnustöðum. Markmið íeiksýningarinnar á að vera
að vekja áhorfendur til umhugsunar um stöðu kvenna
og karla. Leikþátturinn skal sérstaklega lýsa hvort og
hvernig staða karla hefur breyst til samræmis við
breytta stöðu kvenna.
Leikþátturinn má taka 25-30 mínútur í flutningi og
æskilegt er að leikendur séu ekki fleiri en þrír.
Þeir, sem áhuga hafa á að taka þátt í þessari sam-
vinnu, skili stuttri lýsingu á efni og umfangi verksins
til auglýsingadeildar Morgunblaðsins merkt: „Leikþáttur
- 7053“ fyrir 6. júní nk.
Menningar- og
fræðslusamband alþýðu.
Jafnréttisráð
Stjórn Ásmundarsafns samþykkti að láta
gera eitt hundrað tölusettar afsteypur af verkinu
Piltur og stúlka
frá árinu 1931 eftir Ásmund Sveinsson. Myndin er nú til
sýnis og sölu í Ásmundarsafni.
Upplýsingar eru veittar
í Ásmundarsafni í síma 32155 frá kl. 13.00-16.00.
ÁSMUNDARSAFN
v. Sigtún - 105 Reykjavík s. 32155.