Morgunblaðið - 18.05.1989, Page 47
/
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1989
47
Afhverju þetta kæruleysi?
Til Velvakanda.
Alltaf þegar ég kem í Bláfjöll þá
sámar mér að sjá það kæruleysi sem
viðgengst þar við skíðalyfturnar, því
miðun Þó að við séu m þessir merki-
legu íslendingar af víkingakyninu
þá erum við eins og margsannað er
ekki yfir það hafin að hér verða slys.
Fyrir nokkrum árum síðan varð ég
vitni að því í Bláfjöllum að kona féll
úr lyftustól sem hún var að fara í
og hún kallaði á hjálp en ungi maður-
inn, vörðurinn, heyrði ekki - hann
var nefninlega með svokallað vasa-
diskó í eyrunum. Mér ofbauð svo að
ég hringdi nokkru seinna á borgar-
skrifstofuna og sagði frá þessu og
hef sem betur fer ekki séð slíkt aftur
en kæruleysið virðist alltaf vera.
Eins og margir íslendingar hef ég
verið á skíðum erlendis, hef verið á
nokkrum skíðastöðum í Austurríki,
og þess vegna sér maður muninn.
Við stóllyftumar úti em víðast tveir
menn og þeir em svo vakandi að
þeir sjá strax ef manneskja er óör-
ugg og ef um lítil böm er að ræða
þá bókstaflega er þeim lyft upp í
stólana og alltaf er maður uppi tilbú-
inn að taka á móti fólki úr stólunum.
Þar er alltaf maður til aðstoðar við
toglyftur eða t-lyftur. Hér er enginn
Rauða ljón-
inu verði lok-
aðkl. 11.30
Til Velvakanda.
Ég er einn þeirra sem búa í ná-
grenni við Rauða ljónið. Eins og
málum er komið er alveg ljóst að það
fyrirkomulag sem nú er við rekstur
Rauða Ijónsins getur ekki staðist til
lengdar.
Mitt mat er það að flestir íbúar á
Seltjamamnesi séu hlynntir bjórkrá
á Eiðistorgi, en með því skilyrði þó
að rekstur hennar leiði ekki af sér
endalausan umgang og ónæði fyrir
nágrannana. Eina leiðin til að koma
í veg fyrir almennt fyllerí og „hallæ-
risplansstemmningu" er að loka
Rauða ljóninu fyrr, annaðhvort kl.
11.30 eða í síðasta lagi kl. 1 eftir
miðnætti. Þessi tillaga ætti að vera
ásættanleg fyrir alla hagsmunaaðila
og kemur í veg fyrir að upp úr sjóði
sem virðist alveg óhjákvæmilegt.
Hundavaktin
Til Velvakanda.
Ríkisfjölmiðlamir stóðu á öndinni
af virðingu og spennu er nær dró
úrslitum í kjarasamningum atvinnu-
rekenda og verkalýðs: „Ríkisstjómin
er í viðbragðsstöðu," sögðu þeir lotn-
ingarfullir. „Ríkisstjórnin ætlar að
standa vakt í nótt, viðbúin að beita
sér fyrir lausn vinnudeilunnar,“
stundu þeir, agndofa af virðingu fyr-
ir fómfýsi landsfeðra. Og sjá: Ríkis-
stjóminni bárust 12 víxlar frá Ás-
mundi í ASÍ og 8 frá Þórami í Vinnu-
veitendasambandinu. Og ríkisstjóm-
in skrifaði viðstöðulaust upp á þá
alla 20. Að vísu eru þessir víxlar að
því leyti frábrugðnir venjulegum
víxlum, að upphæðir em óljósar og
það sem meira er: Engar dagsetning-
ar. Enda hafa ábyrgðarmennirnir
ekki hugsað sér að láta þessa víxla
falla fyrr en eftir daga ríkisstjórnar-
innar. Alþýðubandalagið mun síðan
framlengja flest loforðin í næstu al-
þingiskosningum, nema til helv. þjóf-
anna sem eiga skrifstofu- og verslun-
arhúsnæði, og kenna svo næstu ríkis-
stjóm um að hafa svikist um fram-
kvæmdir.
Á hinn bóginn þarf Framsókn
gamla engar áhyggjur að hafa. Þetta
em alltof margir víxlar til að nokkur
vegur sé að muna stundinni lengur
hvað á þeim stendur. Það verða stór
augu sem Steingrímur rekur upp á
morgun eða hinn ef einhver fer að
riQa upp loforðalistann. Hann mun
ná enn einu metinu í betinu.
Melamaður
við toglyftumar og stólalyftuvörður-
inn í skúmum uppi, já það er hrein
undantekning ef hann er tilbúinn til
aðstoðar ef með þarf. Ég held að
hann eigi alltaf að standa tilbúinn
við stólana. Og meira að segja strák-
amir, sem em til þesss að taka við
miðum og gá hvort fólk er með dags-
kort, þeir nenna varla að líta upp.
Og þess vegna freistast krakkar
kannski til þess að svindla sér og
það er mjög slæmt, nóg er um aga-
leysi hjá okkur í þessu landi.
Heilmikið af hjólum hefur slitnað
af toglyftunum og ætti auðvitað að
gera við þetta jafn óðum, nóg er nú
biðin samt og ekki getur það verið
svo kostnaðarsamt. En það em smá-
munir miðað við hitt málið sem varð-
ar öryggið sem við eigum heimtingu
á að fá að njóta.
Pálína Hermannsdóttir
SIEMENS-sæð/
TRAUSTUR OG AFKASTAMIKILL
ÞURRKARIFRÁ SIEMENS
íslenskar fjölskyldur í þúsundatali telja SIEMENS
þvottavélar og þurrkara ómissandi þægindi. Þú getur
alltaf reitt þig á SIEMENS.
WT
33001
Hægt að leiða loft út frá
öllum hliðum.
Þurrkar mjög hljóðlega.
Tímaval upp í 140
mínútur.
Hlífðarhnappur fyrir
viðkvæman þvott.
Tekur mest 5 kg af
þvotti.
Verð kr. 39.500,-
& !|
111
j. ,.3má
Munið umboðsmenn okkar víðs vegar um landið.
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300
Spennandi sumardvöl í júní og júlí
TÖLVUSUMARBÚDIR
FYRIR ÆSKUNA
Tölvufræðslan býður í júní og júlí upp á fimm daga
ógleymanlega sumardvöl fyrir börn og unglinga á aldrin-
um 9-14 ára.
Dvalið er á Kleppjárnsreykjum í hinu búsældarlega
Borgarfjarðarhéraði, skammt frá Reykholti, bæ Snorra
Sturlusonar.
Á daginn er blandað saman skemmtilegri tölvukennslu
þar sem veitt er grundvallarþekking á tölvur og hollri
útiveru í íslenskri náttúru. Þarna er hægt að gera sér
margt til skemmtunar, stunda boltaíþróttir, frjálsar
íþróttir, almenna útileiki og fara í sundlaugina, sem er
á staðnum.
Farið verður í gönguferðir, náttúruskoðun og skoðunar-
ferðir til fjölmargra sögustaða í Borgarfirði.
Leiðbeinendur hafa mikla reynslu á sviði tölvu- og íþrót-
takennslu.
Á kvöldin verða haldnar skemmtilegar og fjörugar kvöld-
vökur.
Dagsetning h>þa:
Hópur 1 12/6 til 16/6
Hópur 2 19/6 til 23/6
Hópur 3 23/6 til 28/6
Hópur 4 28/6 til 2/7
Hópur 5 10/7 til 14/7
Innritun og nánari upplýsingar í símum 687590 og 686790.
Hringið og við sendum bækling um hæl.
Hópur 6 14/7 til 18/7
Hópur 7 18/7 til 22/7
Hópur 8 22/7 til 26/7
Hópur 9 26/7 til 30/7
TÖLVUFRÆÐSLAN
Borgartúnl 28.
SIEMENS -gæði
STORGLÆSILEG
NÝ ÞVOTTAVÉL
FRÁ SIEMENS!
Enn á ný ryður Siemens brautina í þróun
og hönnun heimilistækja.
í þetta skiptið meö nýrri þvottavél, sem slegið hefur í
gegn og mun vafalaust verða öðrum þvottavélaframleið-
endum fyrirmynd, því að hér er á ferðinni sannkölluð
tímamótavél í hönnun og notkun tölvustýribúnaðar, sem
býður upp á nýja og betri þvottaaðferð en áður hefur
þekkst.
Mikil fjölbreytni í þvottakerfum, þeytivinding í áföngum og
þrír mismunandi vinduhraðar skapa nánast óendanlegt
svigrúm fyrir allan þvott, sérhvert óhreinindastig hans og
þann hámarkshita sem hann þolir.
Sjálfvirkur magnskynjari skammtar vatn inn á vélina
í samræmi við magn og gerð þvottar og það kerfi sem er
( gangi og aðlagar þannig vatnsnotkunina sjálfkrafa því
sem þvegið er.
Sérþróuð þvottatromla með þremur áföstum vatns-
hripum heldur vatninu á stöðugri
hreyfingu og tryggir þannig jafnt
gegnumstreymi á vatni um
þvottinn. Þessi nýjung sér til
þess að þvotturinn fær bestu
hugsanlegu meðhöndlun.
SIWAMAT PLUS 4200 uppfyllir allar ítrustu kröfur og
óskir sem gerðar eru til þvottavéla nú á dögum. Hún er
mjög þægileg í notkun með aðgengilegt, upplýst
stjórnborð. ítarlegur leiðarvísir á íslensku og greinargóð
tafla yfir öll möguleg þvottakerfi vélarinnar fylgja með.
Þær miklu gæðakröfur sem gerðar voru við þróun hennar
og framleiðslu tryggja auk þess auðvelt viðhald og langa
endingu.
Gæði á gæði ofan frá SIEMENS