Morgunblaðið - 18.05.1989, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 18.05.1989, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1989 ÍÞ/émR FOLX ■ LOTHAR Mattheus, fyrirliði v-þýska landsliðsins verður í banni í næsta landsleik sem verður gegn Wales. Mattheus fékk að sjá gula spjaldið öðru sinni í landsleik gegn Hollandi. Þjóðveijar voru ekki alveg sáttir við að það hefði átt að bóka Mattheus og sögðu að sænskur dómari leiksins hefði bók- að rangan mann. Aganefnd FIFA skoðaði atvikið gaumgæfilega og komst að þeirri niðurstöðu að rétt væri að veita manni í skyrtu númer 10 áminningu og henni klæddist Lothar Mattheus í leiknum. ■ UNGLINGALANDSLIDIÐ í HANDKNATTLEIKUR Erlingur þjálfar KA ERLINGUR Kristjánsson hef- ur verið ráðinn þjálfari 1. deildar liðs KA í handknattleik fyrir næsta keppnistímabil. Erlingur sem var markhæstur KA manna í vetur mun jafn- framt leika með liðinu. Aðalsteinn Jónsson, formaður handknattleiksdeildar KA, sagði við Morgunblaðið í gær- kvöldi að ráðning Erlings væri lausn sem allir væru ánægðir með; hann hefði alist upp hjá fé- laginu og þjálfað yngri flokka þess og væri þar að auki lærður íþróttakennari. „Það kom ekki til greina að fara aftur út í það ævintýri að ráða erlendan þjálfara,“ sagði Aðalsteinn, „slíkt er allt of mikil íjárhagsleg skuldbinding." Erlingur hefur leikið með meistaraflokki KA í áratug og verið einn af burðarásum liðsins. KÖRFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN || KNATTSPYRNA Enn líf í New York Sigraði Chicago ífimmta leik. knattspyrnu, U-15, mun standa í ströngu í sumar því það mun bæði taka þátt í Norðurlandamóti dren- gjalandsliða og í alþjóðlegu móti í Ungverjalandi. Norðurlandamót- ið mun aldrei þessu vant fara fram í Englandi, en Englendingar hafa keppt sem gestir á mótinu undan- farin ár og nú er röðin komin að þeim að halda það. Þátttakendur í mótinu í Ungveijalandi munu koma víða_ að; frá Frakklandi, Portúgal, ísrael, Skotlandi, Sov- étríkjunum og Ungveijalandi. Þá mun úrvalslið frá Bayern í Þýska- landi einnig verða meðal þátttak- enda. HM 1. RIÐILL Fj. leikja u J T Mörk Stig RÚMENlA 4 3 1 0 7: 1 7 DANMÖRK 4 2 2 0 11: 3 6 GRIKKLAND 4 0 2 2 2: 11 2 BÚLGARÍA 4 0 1 3 2:7 1 ARSENAL virðist alveg vera heillum horfið; hefur einungis hlotið eitt stig úr síðustu tveim- ur leikjum, en í gærkveldi gerði liðið jafntefli 2:2 við Wimble- don á heimavelli. Liðið hefur því misst af 5 mikilvægum stig- um þegar mest reið á að afla þeirra. Arsenal er nú jafnt Liverpool að stigum; hvort lið hefur hlot- ið 73 stig. Arsenal á einungis eftir að leika einn leik í deildinni og það gegn Liverpool á Anfíeld Road. Liv- PATRICK Ewing tryggði New York Knicks mikilvægan sigur á Chicago Bulls með frábærum leik ífimmtu viðureign liðanna í undanúrslitum austur-deild- arinnar á þriðjudagskvöld og sýndi að enn er líf í liði New York. Ewing gerði 32 stig, þar af níu á síðustu mínútu leiksins og tryggði New York sigur, 121:114. Staðan er nú 3:2 fyrir Chicago íviðureign liðanna. Leikurinn var jafn lengst af og New York hafði þriggja stiga forskot í leikhléi. Munurinn jókst og varð mestur 19 stig í fjórða leik- ■^■■■1 hluta. Þá tóku leik- Gunnar menn Chicago við Valgeirsson sér og minnkuðu skrífar muninn í þijú stig. En níu stig Ewings erpool á hins vegar einn leik til góða; gegn næst neðsta liðinu sem er West Ham. Vinni Liverpool þann leik er eina von Arsenal að vinna Liverpool með jafnmiklum eða meiri mun í síðasta leiknum, því þrátt fyrir jafna markatölu liðanna tveggja hefur Arsenal skorað fleiri mörk og það getur ráðið úrslitum. Það hlýtur hins vegar að valda aðdáendum liðsins töluverðum áhyggjum að síðustu sjö deildarleik- ir liðanna í Liverpool hafa endað með sigri heimaliðsins Arsenal náði forystu strax á 14 á síðustu mínútunni tryggðu New York sigurinn. Michael Jordan var stigahæstur í liði Chicago að venju með 38 stig. Hið unga lið Phoenix Suns gekk frá Golden State á heimavelli á þriðjudag. Phoenix vann fimmta leik liðanna 116:104 og sigraði 4:1. Golden State spilaði fyrri hálfleik vel og var einungis eitt stig undir í hálfleik, en í síðari hálfleiknum náði Phoenix upp góðri baráttu og sigraði örugglega með 12 stigum. Stigahæstur Phoenix var Dan Maj- erle með 27 stig, en Tom Cham- bers gerði 24 stig. Phoenix mætir Los Angeles Lakers í úrslitum vest- urdeildarinnar og mun eflaust veita meisturunum mun harðari keppni en Portland og Seattle. mín. í leiknum í gærkveldi og var þar að verki bakvörðurinn Nigel Winterburn með hörku skot af 25 metra færi. Wimbledon jafnaði svo með marki Alan Cork á 31. mín og þannig var staðan í hálfleik. Arsenal komst svo aftur yfír með marki Paul Merson en gleðin varði stutt; Wimbledon jafnaði með marki hins nýkeypta Paul McGee, sem kom frá Colchester, sem leikur í íjórðu deild. Þá léku einnig Sheffield Wednes- day og Norwich og lyktaði honum einnig 2:2. Flemming Povlsen gerði eitt mark í stórsigri Dana í gær. Áttamörká Idrætsparken Danir unnu stórsigur á Grikkj- um í gær í undankeppni Heimsmeistarakeppninnar í knatt- spymu, 7:1! Leikurinn var jafn framan af og þegar nokkrar mínút- ur voru eftir af fyrri hálfleik var staðan 1:1. En þá var sem flóðgátt- ir hefðu opnast og sex mörkum rigndi yfir Grikki. Brian Laudrup gerði fyrsta markið á 25. mínútu en Konstantin- os Mavridis jafnaði fyrir Grikki á 39. mínútu. Jan Bartam náði forys- tunni að nýju fýrir Dani á 42. mínútu. í síðari hálfleik stóð ekki steinn yfír steini í liði Grikkja og Kent Nielsen (54.), Flemmings Povlsen (56.), Kim Vilfort (73.), Henrik Andersen (85.) og Michael Laudrup (89.) gerðu mörkin fyrir Dani. Leikurinn fór fram á Idrætspark- en og er stærsti sigur Dana í árar- aðir. Þetta er þó ekki nema helm- ingur af stærsta sigri þeirra, en ástæðulaust er að fjölyrða um það! í sama riðli sigruðu Rúmenar Búlgari 1:0 með marki Gheorghe Popescu. KNATTSPYRNA / ENGLAND Arsenal heillum horfið HANDKNATTLEIKUR Júlíus með til- boð frð Racing „Líst mjög vel á liðið," segir Júlíus. Gummersbach hefureinnig áhuga FRANSKA fyrstu deildarliðið Racing Snayeres hefur gert Valsmanninum Júlíusi Jónas- syni tilboð. Forráðamenn liðsins ræddu við Júlfus í gær og buðu honum samning og vilja reyndar koma sem fyrst til Islandstil ganga frá málun- um. Þess má geta að liðið gerði Alfreð Gíslasyni tilboð en hann hafnaði þvf og fór til Spánar. m Eg ræddi við Frakkana í dag [í gær] og þeir gerðu mér tilboð. Eg setti fram mínar kröfur og þeir munu svo hafa samband við mig aftur. Þetta er mjög freist- andi og mér líst vel á liðið,“ sagði Júlíus í samtali við Morgunblaðið í gær. „Það er er mikii uppbygg- ing í kringum liðið og stefnt af því að fá nokkra nýja leikmenn. Þetta er eina liðið í Parísar-borg og vel stutt af borgaryfírvöldum,“ sagði Júlíus. Gummersbach hefur áhuga Vestur-þýska félagið Gum- mersbach hefur einnig sýnt Júlíusi áhuga og hafði samband við hann fyrir nokkru. „Við ræddumst við en það er mjög skammt á veg komið, en það er einnig freistandi enda sterkt lið með merka sögu,“ sagði Júlíus . Júlíus Jónasson hefur fengið freistandi tilboð frá Racing Snayeres í Frakklandi. [Skapti Hallgrímsson og Sigmundur Ó. Steinarsson skrifa frá Stuttgart. I ■ ARIE Haan, þjálfari Stuttg- art, varð ekki að ósk sinni - að vinna UEFA-bikarinn. Haan, sem er fýrrum leikmaður Ajax, Eind- hoven, Anderlecht og Standard Liege, hefur verið í sigurliði í Evr- ópukeppni meistaraliða og bikar- hafa. ■ „ÞETTA var stórkostlegt - ég mun aldrei gleyma þessum leik,“ sagði Alemao, leikmaður'Napolí, sem skoraði fyrsta mark liðsins. „Þetta er fyrsti bikarinn sem ég vinn.“ ■ DIEGO Maradona, sagði eftir leikinn í Stuttgart, að þungi fargi væri af sér létt. Nú mættu aðrir leikmenn Napolí ræða við blaða- menn. „Ég hef verið sá eini sem hefur mátt ræða við fréttamenn frá því í lok janúar. Þá var bann sett á leikmenn - þeir máttu ekki ræða við blaðamenn. Það hvíldi mikil ábyrgð á mér, en nú er hún úr sög- unni,“ sagði Maradona, sem lék á als oddi eftir leikinn í Stuttgart. ■ MIKLAR deilur hafa verið á milli leikmanna Napolí, stjórnar- formanns og þjálfarans Ottavio Bianchi. Það var mál ítalskra fréttamanna eftir leikinn gegn Stuttgart, að þrátt fyrir UEFA- bikarinn væri kominn til Napolí, væru deilurnar ekki úr sögunni. ■ ÞRA TT fyrir að fréttamanna- banninu væri aflétt hjá leikmönnum Napolí, er það einn leikmaður sem talar ekki við fréttamenn. Það er Brasilíumaðurinn Careca, sem talar ekki ítölsku. ■ MARADONA mætti á blaða- mannafundinn eftir leikinn í Stuttgart-treyju. Hann skipti við Maurizio Gaudino. ■ ROMMEL borgarstjóri Stuttgart, lofaði forráðamönnum Stuttgart-liðsins að vera heima og horfa á leikinn í sjónvarpinu. Þegar hann hefur komið á völlinn hingað til hefur liðið nefnilega alltaf tapað! En bragðið dugði ekki í gærkvöldi. ■ STUTTGART missti af 300.000 v-þýskum mörkum, jafn- virði um 8,4 milljónum ísl. króna, sem stuðningsaðili liðsins, Siid- mílch, átti að greiða ef félagið ynni titil í vetur. ■ MARADONA lék á als oddi fyrir leikinn, gaf öllum sem vildu eiginhandaráritun niðri á vellinum, hló og gerði að gamni sínu. Er hann greinilega í sjöunda himni eftir að unnusta hans eignaðist dóttur suður í Argentínu í fyrra- dag. „Þetta er tvöföld hátíð fyrir mig,“ sagði Maradona á blaða- mannafundinum. „Að eignast aðra dóttur og síðan að vinna bikarinn. Dóttir mín hringdi í mig í dag og bað mig að koma með bikarinn til sín! Ég ætla að gera það,“ sagði goðið. Svo á eftir að koma í ljós hvort hann fær bikarinn lánaðan til að skjótast með hann til Arg- entinu. ■ ELDRI dóttir Maradona fæddist um svipað leyti og Napolí- liðið varð ítalskur meistari vorið 1987. í fyrradag varð hann faðir öðru sinn og annar bikar komst í höfn. Skyldi vera eitthvert sam- hengi á milli bamanna og bikar- anna?! ■ ÁHORFENDUR Stuttgart bauluðu kröftuglega á Maradona þegar hann kom fyrst inn á völlinn til að hita upp. Það gerðu þeir einn- ig í upphafi leiksins er hann fékk knöttinn, en hættu þó fljótlega. ■ NAPOLÍ-LIÐIÐ flaug rak- ieiðis heim til Ítalíu í gærkvöldi. ■ ÍTALIR fjölmenntu í miðbæ Stuttgart í gærkvöldi eftir leikinn. Þeir komu sér fyrir á ráðhústorginu og sungu hátt. Margir óku einnig á bílum um miðborgina, þeyttu flau- tumar og veifuðu Napolífánum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.