Morgunblaðið - 18.05.1989, Síða 51
51
MORGUNBLAÐEÐ IÞROTTIR FTMMTUDAGUR 18. MAÍ 1989
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI FELAGSLIÐA
Reuter
Maradona og félagar hans í Napolí fagna í Stuttgart eftir að hafa tekið við
UEFA-bikamum.
Geysilega mikil-
vægur sigur
þ essi sigur er geysilega mikil
„ÉG vil byrja á því að þakka
leikmönnum Stuttgart fyrir að
leggja höfuðáherslu á að leika
góða knattspyrnu. Fyrir leikinn
var mikið talað um að hér yrði
háð einhvers konar stríð, en
annað kom á daginn. Knatt-
spyrnan var í hávegum höfð
og ég vil, fyrir hönd allra leik-
manna Napólí-liðsins, þakka
mótherjum okkar fyrir það,“
sagði Diego Maradona, á
blaðamannafundi eftir leikinn í
gærkvöldi.
vægur fyrir Napólí - okkur
leikmenn og allt fólkið í borginni.
Eftir að við urðum ítalskir meistar-
ar 1987 vorum við óheppnir í Evr-
ópukeppninni, þegar Real Madrid
sló okkur út. Nú fómm við alla leið
og það er stórkostlegt. Við höfum
enn einu sinni sannað hversu góðu
liði við höfum á að skipa.“
Diego sagðist ánægður með lífið
hjá Napólí. „Það er stórkostlegt að
leika fýrir þetta félag. Þau gerast
ekki sterkari í dag,“ sagði hann.
„Mættum of-
jörium okkar“
„VIÐ erum með gott lið, en f
báðum leikjunum vantaði okk-
ur sterkan leikmann — Klins-
mann í Napólí og Buchwald í
kvöld, og við það minnkuðu
vissulega möguleikar á sigri,"
sagði Arie Haan, þjálfari
Stuttgart, í samtali við Morg-
unblaðið eftir leikinn.
Eg er auðvitað ekki ánægður
með útkomuna. Við lékum ekki
eins og við getum best, en því má
ekki gleyma að við vomm að leika
við eitt besta lið Evrópu. Við áttum
möguleika meðan staðan var 0:0
°g 1:1, en eftir að þeir komust í
2:1 vom þeir orðnir öruggir með
sigur. Við hefðum þurft að skora
þijú mörk til viðbótar. Eftir það
sýndu þeir líka allar sínar bestu
hliðar. Léku eins og þeir vilja helst
leika og gera best — drógu sig til
baka og beittu stórhættulegum
skyndisóknum."
Haan sagði leikmenn Stuttgart
alls ekki þurfa að skammast sín
fyrir að hafa beðið lægri hlut sam-
anlagt gegn Napólí-liðinu. „Það var
stórkostlegt að komast í úrslit í
keppninni. Auðvitað hefði verið
gaman að vinna bikarinn, en við
mættum einfaldlega ofjörlum okk-
ar. Lið Napolí er frábært - sterkara
en okkar og vann bikarinn verð-
skuldað. Leikurinn var skemmtileg-
ur og var góð auglýsing fyrir íþrótt-
ina. Það er í raun ótrúlegt að sex
mörk skuli vera skomð í úrslitaleik
Evrópukeppninnar," sagði Haan.
„Þeir voru betri“
Napolí-liðið var einfaldlega of
sterkt fyrir okkur. Þeir vora
betri og áttu sigurinn skilið," sagði
Maurizio Gaudino, sem skoraði ann-
að mark Stuttgart i leiknum í gær
- en hann skoraði einmitt einnig í
fyrri leiknum.
Gaudino svaraði því neitandi
hvort það hefðu verið mistök hjá
Arie Haan að láta þijá leikmenn
vera í framlínunni hjá Stuttgart,
þegar vitað væri hversu hættuiegar
skyndisóknir Napolí væm. „Við
urðum að vinna leikinn og þetta var
það eina sem við gátum gert. Að
reyna að leika nógu sterkan sóknar-
leik.“
„Draumurínn var úti
þegar við fengum
fyrsta markið á okkur“
sagði Arie Haan, þiálfari Stuttgart
„DRAUMURINN um UEFA-
bikarinn var úti, þegar við feng-
um fyrsta markið á okkur — er
Alemao skoraði. Við sofnuðum
á verðinum og leikmenn Nap-
olí náðu að refas okkur fyrir
það. Þeir skoruðu mark úr sínu
fyrsta tækifæri,“sagði Arie
Haan, þjálfari Stuttgart, eftir
að Napolí hafði tryggt sér
UEFA-bikarinn í Stuttgart, með
því að gera jafntefli, 3:3. Nap-
olí vann fyrri úrslitaíeikinn, 2:1,
í Napólí.
Markið kom á afar slæmum
tíma fyrir okkur - eftir aðeins
nítján mínútur. Það létti aðeins yfír
okkur þegar Klinsmann jafnaði, en
síðan kom rothöggið þegar Ferrara
skoraði, 2:1. Þá urðum við að skora
þrjú mörk til að halda í vonina. Það
var of mikið fyrir okkur," sagði
Haan, sem bætti síðan við: „Það
er engin skömm að falla fyrir köpp-
um eins og Maradona, Cereca,
Camevale og Ferrara, sem em allt
leikmenn á heimsmælikvarða.
Við geraðum okkar besta - skor-
uðum þijú mörk, en það var of
mikið að fá á sigþijú mörk. Sóknar-
leikmenn okkar vom ekki á skot-
skónum. Sérstaklega var það Fritz
Walter sem brást. Hann er miklu
betri leikmaður en hann sýndi í
kvöld," sagði Haan.
Vamarleikmenn Stuttgart sofn-
uðu heldur betur á varðinum þegar
Napólí náði að skora fyrsta markið.
Alemao komst á auðan sjó, eftir
að stór gjá hafði opnast í vamar-
vegg Stuttgart - hann sótti lagi og
skoraði auðveldlega fram hjá Eike
Immel, markverði Stuttgart.
Þetta mark átti síðan eftir að
setja svip á leikinn. Þrátt fyrir að
Jvirgen Klinsmann hafi jafnað - með
skalla eftir hornspymu Ásgeirs Sig-
urvinssonar, vom leikmenn Napólí
einum of sterkir fyrir Stuttgart.
Þeir léku vel skipulagðan vamarleik
og beittu stórhættulegum skyndi-
sóknum. Snillingurinn Maradona
lagði upp tvö mörk fyrir Napólí -
fyrst skallaði hann knöttinn til Ferr-
ara, sem skoraði öragglega og síðan
sendi hann knöttinn til Careca, eft-
ir skyndisókn. Careca þakkaði fyrir
sig með því að skora öragglega,
3:1. Spennan í leiknum var úti og
þrátt fyrir að Maurizio Gaudio og
Olaf Schmaler hafi náð að skora -
skipti það ekki máli. Maradona og
félagar vora búnir að tryggja sér
UEFA-bikarinn.
Stuttgart-liðið, sem var meira
með knöttinn, náði sér ekki á strik
í leiknum. Sóknarlotur liðsins vora
ekki nægilega þungar, þannig að
leikmenn Napólí, sem kunna svo
sannarlega að veijast, vora aldrei
í alvarlegri hættu. Ásgeir Sigur-
vinsson kom vel frá leiknum - var
með góðar krossendingar, en þær
náðu ekki að skapa usla í sterkri
vörn Napólí.
Stuttgart—Napolí 3:3 (4:5)
Neckar-leikvangurinn í Stuttgart, síðari úrslitaleikur UEFA-keppninnar, miðvikudag-
inn 17. maí 1989.
Mörk Stuttgart: Jiirgen Klinsmann (27.), Femando De Napoli sjálfsmark (70.),
Olaf Schmáler (90.).
Mörk Napolí: Alemao (18.), Ciro Ferrara (39.), Careca (62.).
Dómari: Victoraino Arminio frá Spáni.
Gul spjöld: Engin.
Lið Stuttgart: Eike Immel, G'nther Scháfer, Michael Schröder, Srecko Katanec,
Jiirgen Hartmann, Nils Schmáler, Karl Allgöwer, Fritz Walter (Olaf Schmáler 78.),
Jiirgen Klinsmann, Ásgeir Sigurvinsson, Marizio Gaudino.
Lið Napolí: Giuliano Giuliani, Ciro Ferrar, Giovanni Francini, Giancarlo Corradini,
Alemao (Bigliardi 29.), Alessandro Renica, Luca Fusi, Femando De Napolí, Careca
(Caravante 69.), Diego Maradona, Andrea Camevele.
Áhorfendur: 70.000.
Carecameð
40 stiga hita!
Framheijinn Careca var með
fjörutíu stiga hita á þriðjudags-
kvöldið, daginn fyrir leik. Hann lék
þó með í gær, stóð sig vel og skor-
aði þriðja mark Napolí.
Ég verð að viðurkenna að við
lugum hálfpartinn að ykkur blaða-
mönnum á fundinum fyrir leikinn -
ég biðst afsökunar á því en þetta
mátti ekki fréttast," sagði Bianchi,
þjálfari Napolí, í gærkvöldi, er hann
tilkynnti um veikindi Brasilíu-
mannsins. „Careca er það góður
leikmaður að við máttum ekki missa
hann. Það sýndi sig líka hversu
mikils virði hann er okkur,“ sagði
Bianchi. Careca var tekinn út af í
síðari hálfleik, þegar staðan var 3:1.
„Ekki tala um ieikinn"
„Ég bið ykkur um að sleppa mér
við það að tala um leikinn sjálfann.
Ég er svo hamingjusamur nú að
ég get það ekki það — mér er
ómögulegt að fara að kryfja leikinn
til mergjar strax," sagði Bianchi,
þjálfari Napólí, á blaðamannafund-
inum eftir leikinn.
Bianchi var greinilega hrærður
yfir sigri liðs síns. „Það vita allir
hve sterk UEFA-keppnin er. í
keppninni leika mörg mjög öflug
lið, og sú staðreynd að við voram
að hampa bikamum hér áðan er
tilefni til mikillar gleði," sagði hann.
„Lékum velM
Við þurfum alls ekki að skamm-
ast okkar. Við lékum vel í báð-
um leikjunum, en Napólí er með
frábært lið sem er erfítt viðureign-
ar,“ sagði Karl Allgöwer, sem var
fyrirliði Stuttgart í gærkvöldi.
Allgöwer var spurður um hlut
dómarans í leiknum. Sagðist hann
ánægður með frammistöðu hans.
„Það má alltaf nefna einhver vafa
atriði En það er ekki hægt að fara
fram á að dómarar geri ekki mis-
tök. Hefði dómarinn í fyrri leiknum
hins vegar dæmt sanngjamt er aldr-
ei að vita hvað hefði getað gerst...“
sagði Allgöwér.
Reuter
Ferrera skorar annað mark Napolí í leiknum í gær. Þetta mark gerði draum
Stuttgart að engu, því munurinn var þá of mikill.
Verndardýríingnum
þakkaður sigurinn
BORGARBUAR Napólí réðu
sér ekki fyrir kæti í gær-
kvöldi. Flugeldasprengingar
og kampavínsgos var allstað-
ar að sjá og margir báru
styttu af verndardýrlingi
borgarinnar; Janaríusi, sem
var uppi á fjóröu öld, og þökk-
uðu honum ákaft liðveisluna
í leiknum gegn liði mót-
mælendanna í norðri. Búist
var við að fagnaðarlátum
myndi ekki tinna fyrr en um
fótaferðatíma í morgun.
Ibúar borgarinn byrjuðu þegar
. að iþyrpast út á götur borgar-.
innar í þusundatali eftir að Ciro
Ferrera skoraði annað mark Nap-
olí. Þegar svo loks var flautað til
leiksloka var giskað á að um hálf
milljón manna væri dansandi á
götum úti í borginni og látandi
öllum illum látum. Þá var fólk
þegar farið að flyklq'ast á flug-
völl borgarinnar þar sem búist var
við heimkomu hetjanna í nótt.
Opna ítalska tennismótið f Róm
fór ekki varhluta af æsingi og
spenningi ítala meðan á leiknum
stóð, því meðan á viðureign Jimmi
Connors og Massimo Cierra stóð
æptu áhorfendur „MARK“ í hvert
sinn sem-Napólí-skoraði.