Morgunblaðið - 19.05.1989, Page 23

Morgunblaðið - 19.05.1989, Page 23
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1989 + 23 Útgefandi iinMnMI* Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri HaraldurSveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aðstoðarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Askriftargjald 900 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 80 kr. eintakið. Svíar, Islendingar og viðræður EFTA við EB Ingvar Carlsson, forsætisráð- herra Svíþjóðar, hefur nú lokið opinberri heimsókn sinni hingað til lands. Aðdragandi komu hans var sérkennilegur að því leyti, að frétt sænskrar fréttastofu um forystu íslend- inga í EFTA á síðari hluta árs- ins var túlkuð á þann veg, að Svíar ætluðu að grípa fram fyr- ir hendurnar á Islendingum vegna þess að þeir treystu því ekki, að við hefðum getu til að gegna hinu mikilvæga forystu- hlutverki með viðunandi hætti. Ingvar Carlsson tók af öll tvímæli um að eitthvað slíkt vekti fyrir Svíum. Þvert á móti bæru þeir fullt traust til íslend- inga í þessu efni. Hefði einhver sænskur embættismaður dregið forystuhæfni íslendinga í efa myndi hann ekki kemba hær- urnar í sænska stjómarráðinu. Fyrir fáeinum áram hefðu hvorki Svíar né íslendingar ver- ið að velta EFTA sérstaklega fyrir sér vegna opinberrar heimsóknar sænsks forsætis- ráðherra hiiigað og hvað þá heldur því, hvemig Islendingum tækist að koma fram fyrir hönd EFTA gagnvart Evrópubanda- laginu (EB). Þá hefði athyglin beinst að norrænu samstarfi og ræður forystumanna þjóðanna snúist um frændsemi norrænna þjóða, sameiginlegan menning- ararf þeirra og samstarfið á vettvangi Norðurlandaráðs. Vissulega ber þetta allt enn á góma, þegar góða norræna gesti ber að garði. Megináhersl- an og áhuginn hvílir hins vegar á öðra og einkum því, hvernig samstarfi Norðurlandanna fjög- urra sem era í EFTA og utan EB skuli háttað og hvaða leiðir skuli farnar til að laga sig að þeim breytingum sem era að verða innan Evrópubandalags- ins% Á blaðamannafundi hér sagði Ingvar Carlsson, að Svíar von- uðust til að EFTA yrði með ýmsum ráðum gert kröftugra og hæfara til að semja við EB, til dæmis kæmi til greina að styrkja skrifstofu ráðherra- nefndar EFTA, fundir forsætis- ráðherra samtakanna yrðu tíðari og sérstakir sendiherrar skipaðir til að fást eingöngu við samskipti EFTA og Evrópu- bandalagsins. Komi þessar til- lögur til framkvæmda myndi sig að þeim hugmyndum sem Jacques Delors, forseti fram- kvæmdastjórnar EB, setti fram í frægri ræðu um miðjan janúar síðastliðinn, þar sem hann velti fyrir sér með hvaða hætti væri unnt að styrkja samband EFTA og EB. Ingvar Carlsson tók það fram, að markmið Svía væri ekki að EFTA-löndin gengju í EB. Og í gær sagði Gro Harlem Brandtland, forsætisráðherra annars norræns EFTA-lands, Noregs, í Brassel, að samband EFTA og EB hlyti að taka mið af því, að annað hvort væru ríki aðilar að EB eða ekki. Ef marka má yfirlýsingar Steingríms Hermannssonar for- sætisráðherra á leiðtogafundi EFTA-landanna í Ósló nú í mars og þá fyrirvara, sem hann kynnti þar fyrir íslands hönd, er hann sammála forsætisráð- herram Noregs og Svíþjóðar um að stjórnir EFTA-landanna ræði við fulltrúa EB, án þess að aðild sé á dagskrá. Á hinn bóginn má ætla, að ágreiningur kunni að vera milli íslenska og sænska forsætisráðherrans um það, hvort styrkja beri innviði EFTA og móta samtökin með einum eða öðram hætti eftir yfirríkjastofnun eins og Evr- ópubandalaginu. Ástæða þess að settur er fyrirvari þegar af- staða íslensku ríkisstjórnarinn- ar er skilgreind er sú, að þeir Jón Baldvin Hannibalsson og Steingrímur Hermannsson vora ekki sammála um hvernig túlka bæri íslen'sku viðhorfin í Ósló. Þróunin í samskiptum EFTA og Evrópubandalagsins er ákaflega ör um þessar mundir. Það reynir því veralega á full- trúa íslands í forystuhlutverk- inu innan EFTA frá 1. júlí til ársloka. Störf þeirra era ekki auðvelduð ef fulltrúar annarra EFTA-ríkja efast um stefnu íslenskra stjórnvalda og vilja. Ingvar Carlsson hefur nú haft tækifæri til að kynnast við- horfum íslenskra ráðherra til þessara mikilvægu mála. Von- andi hefur hann kvatt Island enn sannfærðari en áður um að fulltrúar landins geti axlað mikla ábyrgð innan EFTA, þótt hitt sé auðvitað rétt sem Ingvar Carlsson sagði, að öll EFTA- ríkin hjálpist að í hinum flóknu viðræðum við Evrópubandalag- ið. EFTA Þr-eyta um -svip~Gg íaga— Ólafur Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra, og Páll Halldórsson, formaður BHMR, takast í hendur að lokinni undirskrift kjarasamninganna. Ásamt þeim eru á myndinni Indriði H. Þorláksson, formaður samn- inganefhdar rikisins og Wincie Jóhannsdóttir, formaður HIK. Sjóðurinn greiði m.a. styrki til rannsókna- og þróunarverkefna, námskeiðsgjöld, ferða- og dvalar- styrki, styrki vegna námskeiða, sem félögin standa fyrir, aukaþóknun fyrir óvenju umfangsmikil verkefni og laun á námsleyfistíma. Ríkissjóð- ur greiði mánaðarlega frá gildi- stöku samningsins framlag í sjóð- inn, sem nemi 1,5% af föstum dag- vinnulaunum. Starfsmaður, sem fer í námsleyfi skv. reglum sjóðsins, haldi ráðningu og ráðningartengd- um réttindum. Stéttarfélög geta samið um aðra ráðstöfun þess fjár- magns, sem hér um ræðir, enda leiði það ekki af sér aukinn kostnað fyrir ríkissjóð. 9. grein Rísi ágreiningur milli aðila um framkvæmd kjarasamanburðar eða túlkun á niðurstöðum skv. 2. gr. eða fyrirkomulag breytinga skv. 5. gr., getur hvor aðili um sig óskað eftir, að ágreiningnum verði vísað til úrskurðar þriggja manna nefnd- ar. Skal einn skipaður af fjármála- ráðherra, annar af BHMR, en yfir- borgardómarinn í Reykjavík skipi oddamann. Kjarasamningiir BHMR og ríkisins: Stefiit að sambærilegum kjör- um og á almennum markaði Hér fer á eftir kjarasamningur stjórnvalda og tólf aðildarfélaga Banda- lags háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna í heild sinni, auk bókana og yfirlýsinga sem honum fylgja. Gildandi kjarasamningar neðan- greindra aðildarfélaga framlengjast með þeim breytingum og viðaukum, sem í samningi þessum felast. 1. kafli Um endurskoðun á launakerfi háskólamenntaðra ríkisstarfs- manna. 1. grein Endurskoða skal Iaunakerfi há- skólamenntaðra starfsmanna ríkis- ins með tilliti til ábyrgðar, sérhæfni og menntunar, sem nýtist í starfi. Skal þessi endurskoðun hafa það að markmiði, að háskólamenntaðir ríkisstarfsmenn njóti sambærilegra kjara og menn, sem gegna hliðstæð- um störfum eða hafa sömu eða svipaða menntun, sérhæfni og ábyrgð og ekki taka laun skv. launakerfi ríkisstarfsmanna, enda sé þá tekið tillit til hlunninda og annarra atriða, sem hafa áhrif á starfskjör. Standa skal að umrædd- um breytingum með þeim hætti, að ekki valdi röskun á hinu al- menna launakerfi í landinu. Tíma- bundnar sveiflur og sérstakar að- stæður á vinnumarkaði skulu ekki hafa áhrif á þessa endurskoðun. 2. grein Bera skal saman kjör háskóla- menntaðra manna hjá ríkinu og annars staðar. Skulu þá metin laun fyrir dagvinnu, heildarlaun og hlunnindi fyrir þá, sem taka laun skv. launakerfí ríkisins annars veg- ar, og hins vegar hliðstæð kjör annarra háskólamenntaðra launa- manna. Þrír sérfróðir menn, sem ríkis- sáttasemjari skipar að höfðu sam- ráði við aðila, skulu setja reglur um vinnubrögð, viðmiðanir og aðferðir við mat á starfskjörum. Samnings- aðilar hafa komið sér saman um verkefnalýsingu í fylgiskjali 1. Lok- ið skal við að semja þessar reglur fyrir 1. júlí 1989. " - Sérstakri nefnd, skipaðri þremur mönnum af BHMR og jafnmörgum af ijármálaráðherra, skal falinn sá kjarasamanburður, sem um er rætt í 1. mgr. skv. ofangreindum starfs- reglum og skal meta tilefni til leið- ' réttingar á kjörum. Nefndin skal skila fyrstu áfangaskýrslu eigi síðar en 1. mars 1990, og skal taka mið af niðurstöðum hennar þegar við - L áfanga í endurröðun í launa- flokka skv. 5. gr. Nefndin skal skila lokaáliti eigi síðar en 1. júlí 1990. 3. grein Setja skal á fót nefnd til að end- urskoða námsmat í þeim tilgangi viðteknum reglum háskóla um mat á námi, og setja nýjar reglur um mat á öðru námi í samræmi við framangreint. Nefndin skal skipuð 1 fulltrúa frá fjármálaráðuneyti, 1 fulltrúa frá menntamálaráðuneyti og 2 fulltrúum frá BHMR. Nefnd- inni verði tryggð starfsaðstaða og starfsmaður. Miðað skal við, að endurskoðun- inni ljúki á tímabilinu frá 1. desem- ber 1989 til 28. febrúar 1990. 4. grein Mat á faglegri, fjármálalegri og stjómunarlegri ábyrgð skal fara fram með kerfisbundinni skilgrein- ingu á helstu störfum er háskóla- menn gegna í þjónustu ríkisins og þeim raðað samkvæmt matskerfij sem aðilar koma sér saman um. I því mati skal m.a. tekið mið af umfangi og eðli verkefna, fjárfor- ræði og stjómunarlegum umsvifum. Verk þetta skal unnið af fjórum mönnum. Skal fjármálaráðherra tilnefna 2 menn og BHMR 2. Verk- inu verði lokið fyrir 1. apríl 1990. 5. grein Endurraða skal starfsheitum í launaflokka í samræmi við endur- skoðun launakerfisins skv. 1. og 2. gr. Að því skal stefnt, að endur- röðuninni verði lokið á ekki lengri tíma en þremur árum. Tilfærsla milli launaflokka skal gerast í sem jöfnustum árlegum áföngum er taki gildi 1. júlí ár hvert, sá fyrsti árið 1990. í hveijum áfanga skal þá miða við að hækkun nemi einum launa- flokki hið minnsta að meðaltali, en einstök starfsheiti og einstakir starfsmenn hækki þó ekki meira en nemur 3 launaflokkum. Er hér miðað við launaflokka skv. 10. gr. eðajafngildi þeirra, verði launatöflu breytt. Sé tilefni til endurröðunar tak- markað, er heimilt að ljúka til- færslu á skemmri tíma en þremur árum. Reynist á hinn bóginn ekki unnt að ná endurröðuninni í 3 árleg- um áföngum, er heimilt að fjölga áföngum um 2 og falla þá niður ákvæði 3. mgr. varðandi þá áfanga. Röðun í launaflokka skal taka mið af menntun svo og faglegri, fjármálalegri og stjórnunarlegri ábyrgð, sbr. ákvæði 1., 3. og 4. gr. Hafi nefnd skv. 3. mgr. 2. gr. ekki skilað lokaáliti hinn 1. júlí 1990, skal greitt upp í væntanlega hækkun þannig að tilfærslur milli launaflokka verði að jafnaði launa- flokki meiri en lágmark skv. 3. mgr. hefði verið frá 1. júlí 1990. að-taka upp kerfi, sem byggir ú— Við endanlega ákvörðcm ‘ áfaligans ' skal þó enginn lækka í launaflokki. í stað tilfærslu milli launaflokka skv. þessari grein er aðilum heimilt að semja um önnur kjaraatriði, er jafngildi þeirri launaflokkatilfærslu, sem tilefni gefst til eða hluta henn- ar. 6. grein Samhliða endurskoðun launa- kerfisins- verði kannaðar leiðir til aukinnar hagræðingar í rekstri ríkisstofnana, m.a. í því skyni að Skal fella úrskurð innan tveggja mánaða. 2. kafli Um breytingar á kjarasamning- um aðila sem taka skulu gildi á timabilinu frá 1. maí 1989 til 30. september 1990. 10. grein Frá 1. maí 1989 gildi eftirfar- andi launatafla sbr. grein 1.1.1 í kjarasamningum aðila: Lfl. 1.þr. 2. þr. 3. þr. 4. þr. 5. þr. 6. þr. 7. þr. 8. þr. 137 47.199 49.559 52.037 54.639 56.824 59.097 61.461 63.919 138 48.615 51.046 53.598 56.278 58.529 60.870 63.305 65.837 139 50.073 52.577 55.206 57.966 60.285 62.696 65.204 67.812 140 51.576 54.154 56.862 59.705 62.093 64.577 67.160 69.847 141 53.123 55.779 58.568 61.496 63.956 66.514 69.175 71.942 142 54.716 57.452 60.325 63.341 65.875 68.510 71.250 74.100 143 56.358 59.176 62.135 65.241 67.851 70.565 73.388 76.323 144 58.049 60.951 63.999 67.199 69.887 72.682 75.589 78.613 145 59.790 62.780 65.919 69.215 71.983 74.863 77.857 80.971 146 61.584 64.663 67.896 71.291 74.143 77.108 80.193 83.400 147 63.431 66.603 69.933 73.430 76.367 79.422 82.598 85.902 148 65.334 68.601 72.031 75.633 78.658 81.804 85.076 88.480 149 67.294 70.659 74.192 77.902 81.018 84.258 87.629 91.134 150 69.313 72.779 76.418 80.239 83.448 86.786 90.258 93.868 151 71.393 74.962 78.710 82.646 85.952 89.390 92.965 96.684 152 73.534 77.211 81.072 85.125 88.530 92.071 95.754 99.584 153 75.740 79.527 83.504 87.679 91.186 94.834 98.627 102.572 154 78.013 81.913 86.009 90.309 93.922 97.679 101.586 105.649 155 80.353 84.371 88.589 93.019 96.739 100.609 104.633 108.819 156 82.764 86.902 91.247 95.809 99.642 103.627 107.772 112.083 157 85.246 89.509 93.984 98.683 102.631 106.736 111.005 115.446 158 87.804 92.194 96.804 101.644 105.710 109.938 114.336 118.909 159 90.438 94.960 99.708 104.693 108.881 113.236 117.766 122.476 160 93.151 97.809 102.699 107.834 112.147 116.633 121.299 126.151 bæta kjör starfsmanna, stuðla að bættu rekstrarskipulagi, betri nýt'- ingu rekstrarfjármagns og virkari þátttöku starfsmanna í stefnumót- un og stjórnun. Sérstaklega verði unnið að því að auka hlut kvenna í ábyrgðarstöðum til samræmis við jafnréttisáætlanir. Leitað verði samráðs við starfsfólk um fram- kvæmd þessarar greinar. 7. grein Fyrir lok samningstímans skal nefnd, skv. 3. mgr. 2. gr., meta reynsluna af kerfisbreytingunni, sbr. 1. gr., og þann árangur, sem hún hefur skilað með tilliti til allra framangreindra þátta. Undirbún- ingur að árangursmati á hinu nýja kerfi verði hafinn ári áður en samn- ingstíminn rennur út og niðurstaða skal liggja fyrir 9 mánuðum síðar. Skulu samningsaðilar móta vinnu- brögð og aðferðir við matsgerðina og kynna niðurstöður hennar sam- eiginlega. 8. grein Stofnaður verði nú þegar sér- stakur sjóður til þess að stuðla að auknum rannsóknum, þróunarstarfi og endurmenntun háskólamanna. Úr sjóðnum verði úthlutað til fé- lagsmanna, cinstaklinga eða hópa, skv. reglum, sem aðilar setja í sam- eiTitngQ.---------- 11. grein Prófaldurmörkum skv. grein 1.2.2 verði breytt þannig frá 1. júlí 1989, að tilfærsla milli þrepa verði við 1, 2, 4, 6, 10, 15 og 20 ár og við bætist ákvæði um lágmarks- launaþrep eftir lífaldri, þannig: 1. þrep byijunarlaun 2. þrep eftir 1 árs prófaldur 3. þrep eftir 2 ára prófaldur 4. þrep eftir 4 ára prófaldur 5. þrep eftir 6 ára prófaldur eða 30 ára aldur 6. þrep eftir 10 ára prófaldur eða 40 ára aldur 7. þrep eftir 15 ára prófaldur eða 50 ára aldur 8. þrep eftir 20 ára prófaldur Aldur reiknast frá upphafi næsta mánaðar eftir afmælisdag. 12. grein Laun samkvæmt 10. gr. hækki um 1,5% hvert sinn þann 1. septem- ber 1989, 1. nóvember 1989, 1. janúar 1990 og 1. maí 1990. 13. grein Hinn 1. júní 1989 skal starfsmað- ur fá greidda sérstaka orlofsuppbót að fjárhæð 6.500 kr., er miðist við fullt starf næstliðið orlofsár. Greitt skal hlutfallslega fyrir hluta úr starfi á því orlofsári. 14. gp*ein Grein 1.7.1 orðist svo: Starfsmaður í fullu starfi skal fá greidda persónuuppbót 1. desember 'ár hvert, sem nemi 30% af desem- MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1989 Forseti íslands ásamt fulltrúum Rotaryhreyfingarinnar á Bessa- stöðum. Forseti íslands feer Paul Harris orðuna Rotaryhreyfingin _ á íslandi hefiir afhent forseta íslands, frú Vigdísi Finnbogadóttur, Paul Harris orðuna ásamt heiðurs- skjali undirrituðu af forsetum Rotarysjóðsins og hinnar al- þjóðlegu Rotaryhreyfingar. Þar er forsetanum þakkað starf til eflingar bætts skilnings og vináttu þjóða heimsins. Paul Harris er faðir Rotary- hreyfingarinnar. Hann stofnaði fyrsta Rotaryklúbbinn í Chicago þann 27. febrúar 1905 ásamt þremur vinum sínum. Nú starfar Rotary í 164 löndum og landsvæð- um í nær 24 þúsund klúbbum með yfir eina milljón félaga. Til heiðurs Paul Harris var stofnað til Paul Harris orðunnar, en sú fjáröflun sem henni tengist, hefur orðið drýgsti bakhjarlinn í mann- úðarátaki hreyfingarinnar. Þetta kom fram í máli Jóns Amþórsson- ar, umdæmisstjóra Rotary á ís- landi við afhendingu orðunnar á Bessastöðum fyrir skömmu. Islenska Rotaryhreyfingin heldur umdæmisþing á Akureyri í næsta mánuði og ber það yfir- skriftina „Gætum að gróðri jarð- ar“. Á landinu starfa 24 klúbbar með tæplega 1.000 félagsmenn. Sammngurmn er upp- fullur af þverstæðum - segir Davíð Oddsson, borgarstjóri berlaunum í 143. launaflokki 6. þrepi skv. launatöflu í 10. grein. Með fullu starfi er átt við 100% starf tímabilið 1. janúar til 30. nóv- ember sama ár. Hafi starfsmaður- inn gegnt hlutastarfi eða unnið hluta úr ári, skal hann fá greitt miðað við starfshlutfall á framan- greindu tímabili, enda hafi hann starfað a.m.k. frá 1. september það ár. Starfsmaður, sem fór á eftirlaun á árinu, en hefði ella fengið greidda persónuuppbót í desember, skal fá hana greidda eigi að síður, enda hafi hann skilað starfi, er svari til a.m.k. hálfs starfsárs það ár. 3. kafli Um endurskoðun og gildistíma samnings þessa. 15. grein Verði almennar breytingar á launakjörum annarra launþega eftir 30. nóvember 1989, þannig að þau hækki umfram launabreytingar skv. 12. gr., geta aðilar krafist breytingar á launaliðnum sem því nemur. Náist ekki samkomulag um slíka breytingu innan eins mánaðar frá því að krafa kemur fram, getur hvor aðili um sig óskað eftir, að ágreiningurinn verði úrskurðaður af nefnd, skv. 9. gr., og skal hún þá skila niðurstöðu innan þriggja vikna. 16. grein Breytingar á kjarasamningi HÍK: Frá upphafi skólaársins 1989— 1990 lækki kennsluskylda byijenda 1. árið í starfi um 1 kennslustund á viku. Frá 1. mars 1989 raðist fram- haldsskólakennari, sem jafnframt er meistari iðnnema, 1 launaflokki hærra en ella. Frá 1. mars 1989 hækki kenn- ari, sem bætir við sig eða hefur bætt við sig stigum með viðbótar- námi kennara eða námskeiðum fyr- ir þá, sem hér segir: 5 — 24 stig um 1 launaflokk 25 — 49 stig um 2 launaflokka 50 stig og fleiri um 3 launaflokka Frá gildistöku samningsins bæt- ist við nýr launaflokkur fyrir grunn- skóla- og framhaldsskólakennara og leiðbeinendur með 260 náms- matsstig og þar yfir. 17. grein Samningur þessi gildir til 31. desember 1994, en skal vera upp- segjanlegur eftir 30. september 1990 með eins mánaðar fyrirvara. Bókanir með samningi fiármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og aðildarfélaga BHMR Bókun 1 Samningsaðilar eru sammála um að reglugerð nr. 633/1987 um barnsburðarleyfi verði endurskoðuð að því er eftirtalin efnisatriði varð- ar: Viðmiðunartímabil vegna yfir- vinnu og vaktaálags verði 12 mán- uðir í stað 6 mánaða nú. Vegna starfsloka við lok barns- burðarleyfis verði miðað við venju- legan uppsagnarfrest. Heimilt verði að lengja barns- burðarleyfi í allt að 12 mánuði í stað 9 mánaða nú. Óheimilt er að segja barnshaf- andi konu upp starfi nema gildar ástæður séu fyrir hendi. Skylt er, þar sem því verður við komið, að færa barnshafandi konu til í starfi, ef það er þess eðlis, að heilsu hennar eða fósturs er af því hætta búin, enda verði ekki við komið breytingum á starfsháttum. Slík tilfærsla skal ekki hafa áhrif á launakjör viðkomandi til lækkun- ar. Heimilað verði að skipta barns- burðarleyfi vegna heilsufars barns, þegar sérstaklega stendur á. Bókun 2 Samningsaðilar eru sammála um, að reglugerð nr. 135/1988, um veikindaforföll starfsmanna ríkis- ins, verði breytt þannig, að viðmið- unartímabil vegna meðaltals yfir- vinnu verði 12 mánuðir í stað 6 mánaða nú. Endurgreiðsla vinnu- veitenda á læknisvottorði, skv. 7. mgr. 1. greinar reglugerðarinnar, taki einnig til greiðslu til læknis fyrir viðtal vegna öflunar vottorðs- ins. Bókun 3 Aðilar eru sammála um, að þegar um ráðningu í starf er að ræða, verði ráðning með uppsagnarfresti ríkjandi ráðningarform. Séu verk- efnislok fyrirfram ákveðin eða um afleysingu að ræða, verði slík ráðn- ing þó tímabundin. Þegar tíma- bundin ráðning hefur varað í 2 ár, verði henni breytt í ráðningu með þriggja mánaða uppsagnarfresti. Réttur lausráðinna til launa í veikindum, bamsburðarleyfi o.fl. verði ákveðinn sérstaklega að und- angengnum viðræðum við heildar- samtök ríkisstarfsmanna. Viðkomandi stéttarfélag fer með forsvar fyrir laus- og fastráðna fé- lagsmenn sína í þjónustu ríkisins, sem gegna störfum á samningssviði félagsins, sbr. ákvæði laga nr. 94/1986 og í samræmi við 2. lið yfirlýsingar fjármálaráðherra frá 3. september 1982. Unnið verði að fullnaðarfrágangi ákvæða sbr. ofanritað á samnings- tímanum. Verði þeirri vinnu lokið fyrir 15. september 1989. Bókun 4 Tekin verði til skoðunar hækkun á örorkubótum vegna slysa í starfí. Örorkubætur verði greiddar sem næst verðlagi greiðslumánaðar í stað slysadags. Bókun 5 Undirbúin verður breyting á lög- um um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, er miðist við, að iðgjöld verði greidd af öllum launum. Ið- gjöld af öðrum launum en dag- vinnulaunum myndi sérdeild í sjóð- unum, þar sem réttindi ráðist af greiddum iðgjöldum og ávöxtun þoirra. Miðað verði við, að upptöku iðgjalda verði skipt í tvo jafnstóra áfanga, og taki annar gildi 1. jan- úar 1990 og hinn 1. janúar 1991. Jafnframt verði undirbúnar hlið- stæðar breytingar á lífeyrismálum þeirra, sem samningur þessi tekur til, en ekki eiga aðild að LSR. Bókun 6 Samningsréttarlögin verði end- urskoðuð í samvinnu við öll samtök opinberra starfsmanna. Stefnt verði að því, að breytingar, sem aðilar verða sammála um, verði lagðar fram á haustþingi 1989. Bókun 7 Á samningstímanum fari fram athugun á því með hvaða hætti sé unnt að bregðast við launaskriði á almennum markaði. Bókun 8 Nefnd, skipuð fulltrúum Dýra- læknafélags Islands, fjármála- og landbúnaðarráðuneytis, mun taka embættis- og vaktskyldu héraðs- dýralækna til umfjöllunar. Nefndin hefji störf án tafar og skili niður- stöðum innan þriggja mánaða. Mið- að skal við, að héraðsdýralæknum verði kleift að njóta vikulegra frídaga eins og sambærilegar starfsstéttir. Fylgiskjal 1 með samningi fiármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og aðlidarfélaga BHMR Um verkefhi við setningu reglna um mat á starfskjörum sbr. 2. gr. í 1. kafla samningsins. Meðal þeirra atriða sem um skal fjalla í reglum um vinnubrögð, við- miðanir og aðferðir við mat á starfs- kjörum eru þessi: 1. Laun fyrir dagvinnu og vakta- vinnu og skilgreining þeirra launa. 2. Yfirborganir og ómæld yfir- vinna. 3. Heildarlaun og vinnuframlag sem á móti þeim stendur. 4. Úrtak starfsmanna og fyrir- tækja svo og úrtaksaðferðir. 5. Mat á lífeyrisréttindum og öðr- um hlunnindum. 6. Aðferðir við samanburð milli starfshópa hjá ríkinu og annars staðar. Yfirlýsing 1 með kjarasamningi Qármálaráðherra og aðildarfélaga BHMR Aðilar eru sammála um, að ekk- ert hafi komið upp í verkfalli aðild- arfélaga BHMR frá 6. apríl til 18. maí 1989 milli aðila, sem gefi til- efni til eftirmála af neinu tagi. „Það er fagnaðarefni að lang- varandi verkfalli sé nú Iokið,“ sagði Davíð Oddsson, borgar- stjóri, í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi uni nýgerða samn- inga BHMR-félaga og viðsemj- enda, en Reykjavíkurborg er aðili að samningnum. Davíð benti á að með þessum samningi væri fallið frá hugmynd- um um jafnlaunastefnu. Samning- urinn væri prósentusamningur þar sem þeir fengju mest sem mest höfðu fyrir. í öðru lagi væri flestum átakaatriðum samningaviðræðnana varpað yfir á næstu ár. „Þegar á þessum atriðum verður tekið, sam- HELGI Bergmann sýnir um þess- ar mundir 23 myndir í Innrömm- um Siguijóns, Armúla 22. Mynd- irnar eru allar gamlar, m.a. landslagsmyndir og teikningar af þekktum borgurum. Helgi Bergmann er áttræður, fæddur í Ólafsvík. Hann lærði húsa- málun og vann lengi við iðnina í Reykjavík. Hann fór til listnáms í kvæmt samningi, þá koma menn til með að sjá að samningurinn er uppfullur af þverstæðum. Annars vegar er gert ráð fyrir þvi að á til- teknu árabili nái viðsemjendur hins opinbera í þessum samningum miklu meiri hækkunum en þeir aðil- ar, sem verða með lausa samninga á næsta ári. Á hinn bóginn er sagt um leið að þessar hækkanir, sem samkvæmt orðana hljóðan, geta orðið mjög miklar, megi ekki raska hinum almenna launaramma í þjóð- félaginu. Ég óttast að það verði jafn erfitt að sameina þessi mark- mið og að sameina vatn og olíu,“ sagði Davíð Oddsson borgarstjóri. Kaupmannahöfn og hélt sína fyrstu sýningu eftir heimkomuna með Sig- uijóni Ólafssyni sem þá var einnig að koma heim frá námi. Síðan hef- ur Helgi haldið margar einkasýn- ingar. Einnig teiknaði hann skop- myndir í Spegilinn og fleiri blöð. Sýningin er sölusýning. Hún er opin á almennum verslunartíma alla virka daga og stendur til 31. maí. Nokkur verka Helga Bergmann. Morgunblaðið/Júlíus Helgi Bergmann sýnir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.