Morgunblaðið - 16.07.1989, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 16.07.1989, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 1989 ....g"R"TTflN VIÐ BOLVALDINN Helga Ögmundsdóttir læknirvið sind- urteljara sem mælir geislavirkni í frumum. RANNSÓKNIR SNEMMA árs 1988 var vígð ný rannsóknarstofa til að stunda vísindarannsóknir á krabbameini. Rannsóknarstofan er í byggingu Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð í Reykjavík. Forstöðumaður hennar er Helga Ögmunds- dóttir læknir og er hlutverk rannsóknarstofunnar að stunda tilraunavísindi á sviði sameinda- og frumulíffræði, þ.e. rann- sóknir sem leggja út af kenningum eða spurningum og prófa sannleiksgildi þeirra með tilraunum og mælingum. Igrein sem Helga Ögmunds- dóttir skrifaði í fyrsta tölu- blað tímaritsins Heilbrigðis- mál árið 1988 kemur fram, að eitt þeirra verkefna sem þar er unnið að er rannsóknir á eðli bqostakrabbameins, en þetta verkefni • beinist annars vegar að rannsóknum á afbrigðum í frumu- starfsemi og frumusamskiptum og hins vegar að erfðaþáttum. Athygl- in hefur meðal annars beinst að ákveðnum ættum með hærri tíðni bijóstakrabbameins en almennt gerist. Rannsóknir á þessu sviði voru áður hafnar á Rannsóknastofu Háskólans í frumulíffræði og hefur verið samstarf þar á milli. I þessu rannsóknarverkefni er ein megin- spumingin sú hvort komast megi að því hvers vegna sumu fólki virð- ist hættara við að fá krabbamein en öðm, en aukinn skilningur á þessu sviði ætti að geta leitt til markvissara forvamarstarfs. HER ER TÆKIFÆRIÐ Viltu ferðast um Miðjarðarhafið í sumarleyfinu? TIL SÖLU hlutar íferðaskútum, staðsettum a Miðjarðarhafi. Hafið samband við sölumenn. BEj\CO Lagmula 7, simi 91-84077. MEÐFERÐIN TIL AÐ FRÆÐAST um meðferð við brjóstakrabbameini eftir greiningu var rætt við Þórarin E. Sveinsson, yfirlækni krabbameinsdeildar Landspítalans. egar kona hefur verið greind með bijósta- krabbamein þarf að meta útbreiðslu þess,“ sagði Þórarinn. „Þá er átt við hvort það sé staðbundið í bijóstinu, hafi borist til aðlægra eitla eða náð að dreifa sér til ann- arra líffæra." Tveggjasentimetrareglan „Ef við ímyndum okkur að búið sé að greina krabbameinið og það nú undir aðgerð fara á sex daga fjöllyfjameðferð frá og með aðgerð- ardegi. Þær sem hafa minnstu æxlisbyrðina fá ýmist enga við- bótarmeðferð eða fá geislameðferð í framhaldi af fleygskurði. Hafi hins vegar krabbameinsfrumur greinst í holhandareitlum er yngri konum ráðlögð fjöllyfjameðferð sem er lík að eðli og sex daga lyfja- meðferðin og varir hún í sex til níu mánuði. Eldri konum er hins vegar ráðlögð ákveðin andhorm- ónameðferð. í henni er gefið horm- Fleygskurður. Tekinn er mis- stór fleygur eftir fyrirferð æxlis- ins. virðist staðbundið i bijóstinu er aðgerð næsta skrefið. Hún getur verið tvenns konar. Á undanförnum árum hefur svonefndur fleygskurð- ur að hluta tilkomið í stað brott- náms bijósts. Meginreglan er sú að sé æxlið minna en tveir sentí- metrar er gerður fleygskurður, að öðrum kosti er allt bijóstið tekið. í fleygskurði er skorinn þríhyming- slaga fleygur úr bijóstinu með topp inn að geirvörtu og botnflöt út að yfirborði bijóstsins og þess gætt að æxlið sé allt inni í fleygnum. Jafnframt þessu er lagður sérstak- ur skurður upp í holhönd, eitlar þar fjarlægðir að verulegum hluta og þeir síðan skoðaðir með tilliti til þess hvort æxlisfrumur hafi sáð sér til þeirra. Ef ekkert fínnst í eitlun- um og meinafræðingar úrskurða að ekki sé að sjá neinn æxlisvöxt í brúnum fleygsins telst aðgerðinni lokið. Konan heldur meginhluta bijóstins en í framhaldi kemur hún svo til geislameðferðar en þá er bijóstvefurinn sem eftir er geislað- ur. Ástæðan fyrir geislameðferð er sú að stundum geta æxlin kom- ið upp á fleiri en einum stað og þau geta þá verið svo lítil að þau greinist hvorki við myndatöku né þreifingu. Einnig hindrar geislunin nýmyndun æxlis í sjálfu aðgerðar- svæðinu. Þórarinn sagði að hér á landi hefði verið brugðið út af tveggja- sentimetrareglunni og tækju lækn- ar æxli sem væru allt að fjögurra sentimetra stór með fleygskurði ef stærð sjálfs bijóstsins leyfði. í litl- um bijóstum væri t.d. ekki miklum bijóstvef til að dreifa og því lítill ávinningur fyrir konuna að fá gerð- an fleygskurð. Æxlið mætti ekki heldur hafa vaxið í húðina fyrir ofan eða bijóstvegginn fyrir neðan það. Þórarinn sagði að hvað stærð- ina varðaði hefðu íslenskir læknar fetað í fótspor sérfræðinga í Bandaríkjunum, Kanada, Frakk- landi og víðar og hefði prófessor Hjalti Þórarinsson verið forgöngu- maður fleygskurðar hér á landi. Þar sem rannsóknir bentu til þess að langtímaárangur væri sambæri- legur hvort sem beitt væri við að- gerðina brottnámi bijósts eða fleygskurði með eftirfylgjandi geislameðferð, þá hefðu konur nú í reynd val um það hvorri aðgerðar- tegundinni sé beitt. Geislameðferð og lyf „Flestar þær konur sem gangast Þórarinn E. Sveinsson ón, sem líkist mjög kvenkyns- hormóninu östrogen. Það binst æxlisfrumum sem eru oft mjög háðar östrógeni í umhverfi sínu og hindrar að kvenkynshormónin sem til staðar eru í líkamanum nái að hafa hvetjandi áhrif á frumuna. Konur þola þessa meðferð mjög vel, en fjöllyijameðferð hefur meiri aukaverkanir í för með sér, svo sem á slímhúð, frumur í hársekkjum og blóðmerg, þ.e. frumur sem skipta sér hratt í líkingu við krabbameins- frumurnar. Ástæðan fyrir því að konur sem greinast með krabba- meinsfrumur í holhandareitlum eru settar á framhaldsmeðferð er sú að hættan á því að krabbameins- frumur hafi sáð sér til annarra líffæra í líkamanum er mun meiri en hjá þeim konum þar sem æxlis- vöxtur er bundinn við bijóstið.“ — Það eru því notuð tvenns konar lyf gegn bijóstakrabbameini, ekki satt? „Jú, það er annars vegar þessi hefðbundnu krabbameinslyf sem annað hvort deyða frumur eða gera þær óhæfar til að skipta sér. Þau hafa jafnframt áhrif á aðrar frum- ur sem skipta sér hratt eins og áður hefur verið drepið á og valda oft aukaverkunum. Hins vegar eru notuð svonefnd andhormón sem hindra áhrif östrogens á æxlisvöxt- inn. Þau hafa einkum góð áhrif hjá eldri konum. Hjá yngri konum er æxlið oft ekki eins vel sérhæft og vaxtarhraði þess meiri og því hafa frumudeyðandi og frumuhamlandi lyfin einkum verið notuð hjáþeim.“ Þórarinn sagði að hér væri um að ræða frummeðferð þar sem markmiðið væri áð lækna viðkom- andi. Hins vegar ef æxlisvöxtur greindist annars staðar í líkaman- um sem þýddi að æxlið hefði náð að sá sér, þá væru líkurnar á að sjúklingi batnaði að fullu litlar, en hins vegar væri alltaf unnt að veita meðferð sem gæti dregið úr æxlis- vexti og minnkað einkenni, þannig að sjúklingur gæti lifað góðu lífi í mörg ár. Bætt meðferð í línuriti þar sem borin er saman tíðni bijóstakrabbameins á Ijölda kvenna undanfama áratugi við tíðni dauðsfalla af völdum sjúk- dómsins má sjá að á meðan fyrr- nefnda tíðnin eykst stöðugt hér sem annars staðar helst dánartí- ðnin stöðug. Hver er skýring Þórar- ins á þessu? „Á undanfömum áratugum hef- ur þekking manna á eðli bijósta- krabbameins aukist verulega. Rannsóknir hafa m.a. leitt í Ijós ýmsa þætti sem áhrif hafa á bata- horfur sjúklinga. Með því að nýta þessa þekkingu strax við greiningu sjúkdómsins er beitt mismunandi meðferðarleiðum, allt eftir því hver hættan er á að sjúkdómurinn taki sig upp að nýju eftir aðgerð. Jafn- hliða hefur heildarmeðferðin orðið betri og markvissari og er þar átt við' aðgerðir, geislameðferð og lyfjagjafír. Línuritið sýnir því ein- faldlega bættan árangur meðferðar þar sem dánartíðni af völdum sjúk- dómsins hefur ekki vaxið, þrátt fyrir mikla aukningu á nýgengi sjúkdómsins. Hinsvegar má ekki gleyma þeirri staðreynd að með aukinni fræðslu hafa konur leitað fyrr til lækna þegar þær finna ber í bijósti og hefur því sjúkdómurinn greinst fyrr á ferli sínum og þá um leið oft á viðráðanlegra stigi en áður. Hvað leitina varðar, sem hafin hefur ver- ið hérlendis með röntgenmynda- töku af bijóstum, þá er ljóst að hún á engan þátt í þessari þróun, enda nýhafín. Vafasamt er hvort hóp- skoðun sem slík muni leiða til lækk- unar á dánartíðni af völdum bijós- takrabbameins, en mikil umræða á sér nú stað um þetta efni erlendis í kjölfar niðurstaðna rannsókna frá Malmö er birtust í British Medical Journal í október síðastliðnum og áður hefur verið fjallað um í Morg- unblaðinu," sagði Þórarinn að lok- um.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.