Morgunblaðið - 31.10.1989, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1989
. :............ ■ ..................
7
Islenskir
flugmenn
hafa mögu-
leika á starfi
hjá SAS
NORRÆNA flugfélagið SAS hefur
opnað möguleika á að ráða
íslenska og finnska flugménn til
félagsins, en til þessa hefur félagið
eingöngu ráðið danska, norska og
sænska flugmenn í sína þjónustu.
Jóhannes Georgsson, íram-
kvæmdastjóri SAS á Islandi, segir
að hann hafi kannað þessi mál í
framhaldi af beiðnum þar um frá
íslenskum flugmönnum og þessi
ákvörðun hafi verið tekin i fram-
haldi af því.
Jóhannes hélt að það væru á bilinu
10-15 flugmenn sem hefðu sýnt
áhuga á starfi hjá SAS. Það hefði
ekki verið auglýst eftir flugmönnum
og engum boðið starf. Hins vegar
hefði þeim sem hefðu verið búnir að
sækja um starf verið sent bréf, þar
sem spurt var hvort umsóknin stæði
ennþá og þeir fengið umsóknareyðu-
blöð sem spurt hefðu eftir þessu á
skrifstofunni.
Hann sagði að það virtist vera
mikill áhugi meðal íslenskra flug-
manna á þessu. Bæði væri um að
ræða menn sem væru í starfi og einn-
ig menn sem væru atvinnulausir.
Hann hefði ekki orðið var við að flug-
menn frá Flugleiðum sæktu um og
kannaðist ekki við að nein laun hefðu
verið nefnd í þessu sambandi. Ekki
væri Ijóst um hve margar stöður
væri að ræða. Það væri einnig verið
að ráða menn á hinum Norðurlönd-
unum og hann byggist því ekki við
að þær yrðu margar. Það væri skil-
yrði fyrir ráðningu að umsækjendur
væru fullbjarga á einu Norðurlanda-
máli og miðað væri við að þeir væru
ekki eldri en 35 ára.
„Það ganga fullt af íslenskum
flugmönnum atvinnulausir og það
var eingöngu imprað á þessu til þess
að gefa íslenskum flugmönnum
möguleika á atvinnu," sagði Jóhann-
es Georgsson ennfremur.
Holtabúið
bauð hæst
í ísfiigl
HOLTABÚIÐ hf. átti hæsta boð
í alifuglasláturhús ísfúgls í Mos-
fellsbæ, á uppboði sem fram fór
hjá bæjarfógetaembættinu í
Hafúarfirði í síðustu viku.
Að sögn Gissurar Kristjánsson-
ar skiptastjóra þrotabús ísfugls
bauð Holtabúið 17,5 milljónir í
húsið, en næsthæsta boð átti
Stofnlánadeild landbúnaðarins,
sem bauð 17,3 milljónir. Vélar og
tæki sláturhússins voru ekki boðin
upp, en þau eru ekki talin eign
þrotabúsins, heldur eru þau talin
eign fjármögnunarleigunnar Glitn-
is hf.
vs\u?o
Tilkynna þarf
skattskvlda
starfsemi
fyrir 31. október
- mmm: •• . u: . •••
i til að tilkynna starfsemi
sína til skráningar hjá skattstjóra hvílir á öllum
sem stunda virðisaukaskattsskylda starfsemi.
eða koma á framfæri viðbótarupplýsingum er
það gert á eyðublaðinu áður en því er skilað til
skattstjóra. Einnig skal færa á eyðublaðið
aðrar umbeðnar upplýsingar, t.d. hverjir eru
eigendur og stjórnendur fyrirtækja.
Eyðublað fyrir tilkynningu (RSK10.11) á
að hafa borist flestum sem eiga að innheimta
og skila virðisaukaskatti frá 1. janúar nk.
Eyðublaðinu á að skilatil skattstjóra í því
umdæmi sem rekstraraðili á lögheimili.
Þeir sem ekki hafa fengið tilkynningar-
eyðublað þetta sent, en stunda virðisauká- •
skattsskylda starfsemi, geta nálgast
eyðublaðið hjá skattstjóra eða hjá RSK.
Þeir sem hefja virðisaukaskattsskyldan
rekstur eftir 31. október skulu tilkynna
starfsemi sínatil skattstjóra eigi síðar en átta
dögum áðuren starfsemin hefst.
Skráningarnúmer
'Skattstjóri hefurtekið
rekstraraðila á skrá mun hann senda honum
staðfestingu um skráninguna og jafnframt
tilkynna honum um skráningarnúmer hans í
tölvukerfi RSK. Skráningarnúmer þetta á að
koma fram á sölureikningum fyrirtækis
(rekstraraðila).
Áritaöar upplýsingar
um starfsemi
ilaðið er fyrirfram áritað
með þeim upplýsingum sem skattyfirvöld hafa
um rekstraraðila. Ef ástæða ertil að leiðrétta
RSI<
RÍKISSKATTSTJÓRI
Nú gefst tækifærið að komast til hinnar fal-
legu og skemmtilegu Búdapest sem slær í
gegn meðal vestrænna ferðamanna.
Við bjóðum ódýrar vikuferðir þar sem
flogið er með SAS á öllum leiðum og
hinnar rómuðu þjónustu um borð notið.
Brottför: 4. nóv., 25. nóv., 9. des., 20.
jan., 10. febr. og 10. mars.
Verð pr. mann í tvíbýli frá kr.
45.700,-*
Innifalið: Flug, akstur til hótels og frá,
gisting, morgunverður og skoðunarferð
um Búdapest.
NORRÆNA
FERÐASKRIFSTOFAN
Laugavegi 3, 101 Reykjavík, lceland.
S. 626362.
S4S
Laugavegi3
Pr. gengi 10.10. 1989
* bjóðum sérstakt afsláttarverð fyrir hópa.
FERÐASKRIFSTOFAN
Suðurgótu 7
S 624040