Morgunblaðið - 31.10.1989, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 31.10.1989, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1989 Lánsflárlögum 1989 breytt: Lántökuheimildir aukn- ar um 7.000 m.kr. I október gjaldfalla spariskírteini að verðmæti 2.500 m.kr. með vöxtum Fram hefur verið lagt á Al- þingi stj órnarfrumvarp til breytinga á lánsfjárlogum fyrir Stækkun álversins í Straumsvík: Undirbúningur vegna starfsleyfis hafinn UNDIRBÚNINGUR er hafínn að ýrnsum rannsóknum og athugun- um af hálfu heilbrigðisyfírvalda, sem fram þurfa að fara áður en starfsleyfi er veitt fyrir nýja álbræðslu í Straumsvík. Þetta kemur fram í svari Guðmundar Bjarnasonar heilbrigðisráðherra við fyrir- spurn Kristínar Einarsdóttur (SK/Rv). Telur ráðherra unnt að veita starfsleyfi samkvæmt lögum og reglum um mengun og holl- ustuhætti, hvort sem fyrir liggi sérstök löggjöf um heimild til rekstrar eða ekki. Fram hafa farið óformlegar við- ræður milli heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytis og Hollustu- verndar ríkisins annars vegar og iðnaðarráðuneytisins hins vegar. Hefur þar verið rætt um þær kröf- ur sem heilbrigðisyfirvöld telja eðlilegt að verði uppfylltar. Kemur fram í svari ráðherra að norsku fyrirtæki hafi verið falið að gera dreifingarspá vegna hugsanlegrar dreifingar mengunarefna frá nýju álveri. Enn fremur hafa verið gerð- ar ráðstafanir til að meta áhrif á gróðurfar og hefur verið haft sam- band við Líffræðistofnun Háskóla íslands vegna þess. Um kröfur til mengunai’varna segir í svari ráðherra að gera beri sömu kröfur og almennt séu gerð- ar vegna rekstrar nýrra álvera í heiminum. Enn fremur kemur þar fram að það hafi engin áhrif á starfsleyfi og þar með kröfu til mengunarvarna, hvort um verði að ræða stækkun núverandi verk- smiðju eða sjálfstæða verksmiðju. Sýslumaðurinn í Húnavatnssýslu: Beitir ólögmætum innheimtuaðferðum > __ - segir Olafur Ragnar Grímsson, íjármálaráðherra VIÐ utandagskrárumræðu í Sameinuðu þingi í gær kom fram hörð gagnrýni á inn- heimtumenn ríkissjóðs og þá helst sýslumanninn í Húna- vatnssýslu fyrir að halda eftir hluta ríkistekna og ráðstafa án heimilda. Fjármálaráðlierra tel- ur þessar aðferðir vera brot á lögum. Ólafúr Þ. Þórðarson (F/Vf) hóf utandagskrárumræðuna með Stuttar þingfréttir Birgir ísl. Gunnarsson (S-Rv) og fleiri þingmenn Sjálfstæðis- flokks hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar, þess efnis, að „fram fari athugun á því hvernig bezt verði staðið að skipulegri varðveizlu ljósvakaefnis sem hafi menningarsögulegt gildi eða geti verið mikilvægt fyrir rannsóknir næstu kynslóða á sögu lands og þjóðar. Jón Sigurðsson, iðnaðarráð- herra, sagði á Alþingi sl. fimmtu- dag, að nú færu fram viðræður allra viðkomandi aðila um jöfnun heildsöluverðs á raforku í landinu og bætt skipulag raf- orkukerfisins. Ráðherra sagði og að hann hefði falið hagfræði- stofnun Háskóla íslands að gera athugun á orkuverði, orkuskött- um og niðurgreiðslum og reynd- ar að meta áhrif allra aðgerða stjórnvalda undanfarið og um þessar mundir til að jafna orku- verð í smásölu. Stefnan í skatt- lagningu og niðurgreiðslu á orku verði síðan endurmetin að þeirri athugun lokinni. Hart var deilt á forsætisráð- hen’a og ráðherra Hagstofu í umræðu á Alþingi sl. fimmtudag vegna þess að í tveimur ráð- herraskipuðum nefndum, sem vinna að mótum atvinnustefnu og telja 17 nefndarmenn, er eng- in kona. Ráðherra Hagstofu sagðist hafa bætt um betur og fengið eina konu til samstarfs við þá nefnd er hann hafi skip- að. Guðmundur H. Garðarsson (S-Rv) skoraði á forsætisráð- herra að skipa konu úr verzlun- arstétt í viðkomandi nefnd, en atvinnuleysi í landinu bitnaði nú harðast á verzlunarfólki. Steingrímur J. Sigfússon samgönguráðherra sagði í um- ræðu á Alþingi um varaflugvöll fyrir millilandaflug að allur bún- aður Akureyrarflugvallar hafi verið stórbættur og til stæði að lengja Egilsstaðaflugvöll í 2.700 m. Egill Jónsson og Guðmundur H. Garðarsson, sem stóðu að til- lögu á síðasta þingi um varaflug- völl á Egilsstöðum, þökkuðu ráð- herra fyrir að hafa fylgt fram tillögu þeirra að hluta. Halldór Blöndal (S-Ne) krafðist þess í fyrirspurnatíma á Alþingi að landbúnaðarráðherra legði þegar fyrir Alþingi tillögur um viðbrögð við vanda loðdýra- bænda. Óverjandi væri að láta þá bíða lengur í óvissu um, hvernig á málum þeirra yrði tek- ið. árið 1989. Það heimilar ríkis- stjórninni, verði það samþykkt, að auka erlendar lántökur á árinu um 900 m.kr. og innlendar lántökur um 6.000 m.kr. I greinargerð segir að útiit sé fyrir 4.700 m.kr. fjárlagaha'lla 1989 í stað 636 m.kr. rekstraraf- gangs, sem lögin gerðu ráð fyir. Að auki sé útlit fyrir að innlausn spariskírteina á árinu verði 400 m.kr. umfram það sem fjárlög gerðu ráð fyrir. Þetta auki láns- fjárþörf ríkissjóðs um 6 milljarða króna. „Aætlað er að 11,3 milljarða króna innlend lánsfjárþörf á árinu verði uppfyllt þannig,“ segir og í greinargerð, „að spariskírteini verði seld fyrir 6 milljarða króna, að ríkisvíxlar verði seldir fyrir 3,8 Leiðrétting I frétt sem birtist af þingsálykt- unartillögu nokkurra þingmanna um skipulag til verndunar vatns- bóla láðist að geta eins flutnings- manna, Kristínar Einarsdóttur (SK/Rv). Mistök þessi urðu vegna misprentunar þingskjals og er þetta hér með leiðrétt. milljarða umfram innlausn og að önnur innlend lántaka nemi 1.500 m.kr.“ I byijun október komu til loka- innlausnar spariskírteini sem með vöxtuní og verðbótum nema um 2.500 m.kr. „Brýnt er,“ segir í greinargerð, „að ríkissjóði takizt að selja ný spariskírteini í ríkum mæli á móti þessari innlausn.“ Launa- skattsskil mánaðarlega Hálfur milljarður aukalega á verzlun- arhúsnæði Nýframlagt stjórnarfrum- varp gerir ráð fyrir þvi að sér- stakur skattur á verzlunar- húsnæði verði framlengdur 1990. Álagning hans á komandi ári nemur 500 m.kr. samkvæmt fjárlagafrumvarpi. Annað frumvarp fjármálaráð- herra gerir ráð fyrir því að launa- skattur verði framvegis innheimt- ur í hveijum mánuði. Samkvæmt gildandi lögum hefur hann verið innheimtur á tveggja mánaða fresti og þá fyrir tvo mánuði í sann. því að vitna til athugasemda skoð- unarmanna ríkisreikninga, þar sem fram kemur að ítrekaðar at- hugasemdir hafi verið gerðar við slæleg skil innheimtumanna ríkis- sjóðs á ríkistekjum og sérstaklega bent á sýslumannsembættið í Húnavatnssýslu. Ólafur beindi þeirri fyrirspurn til íjármálaráð- herra hvort þess hefði verið óskað að sýslumaðurinn yrði settur af eða hvort ráðherra teldi eðlilegt að látið væri við það sitja að gera einungis skýrslu um það hvernig þessum Ijármunum væri varið. „Mér er heitt _ í hamsi vegna þessa,“ sagði Ólafur og spurði hvort ekki væri ástæða til þess að innsigla hjá þeim stofnunum sem ekki stæðu í skilum. Ólafiir Ragnar Grímsson fjár- málaráðherra kvaðst vildu taka undir þær athugasemdir sem fram kæmu hjá Ólafi; mikilvægt væri að innheimtumenn ríkissjóðs fylgdu þeim reglum sem fara ætti eftir. Sagði Ólafur að sér væri það ljúft og skylt að greina frá því að góð samvinna hefði tekist með ráðuneytinu og innheimtumönnum , ríkissjóðs um virkari innheimtuað- gerðir. „En það eru undantekning- ar,“ sagði Ölafur og áréttaði að venja sýslumannsins í Húnavatns- sýslu að taka sér vald til að ráð- stafa hluta þessara tekna, væri andstæð lögum. Sagði hann að embættismenn ijármálaráðuneyt- isins hefðu í viðræðum við emb- ættismenn dómsmálaráðuneytis- ins gert það ljóst að það væri á ábyrgð hinna síðarnefndu að breyting yrði hér á. Ef engin breyt- ing yrði væri það ljóst að mati fjármálaráðuneytisins að viðkom- andi sýslumaður væri ekki starfi sínu vaxinn. _Dale . Carneaie þjálfun Ræðumennska og mannleg samskipti. Kynningarfundur Kynningarfundur verður haldinn fimmtu- daginn 2. nóvember kl. 20.30 á Soga- vegi 69, gengið inn að norðanverðu. ★ Námskeiðið getur hjálpað þér að: ★ Öðlast HUGREKKI og meira SJÁLFSTRAUST. ★ Láta í Ijósi SKOÐANIR þínar af meiri sann- færingarkrafti í samræðum og á fundum. ★ Stækka VINAHÓP þinn, ávinna þér VIRÐINGU og VIÐURKENNINGU. ★ Talið er að 85% af VELGENGNI þinni séu komin undir því, hvernig þér tekst að um- gangast aðra. ★ Starfa af meiri LÍFSKRAFTI — heima og á vinnustað. ★ Halda ÁHYGGJUM í skefjum og draga úr kvíða. rw~] Fjárfesting í menntun Wmm | EUROCARD gefur þér arð ævilangt. Innritun og upplýsingar í síma: 82411 0 STJÓRIMUIMARSKÓLIIMN Konráð Adolphsson. Einkaumboð fyrir Daie Carnegie námskeiðin"
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.