Morgunblaðið - 01.11.1989, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NOVEMBER 1989
13
Heiðið blátt og
grjótið grátt
Bókmenntir
Jóhann Hjálmarsson
Erlendur Jónsson:
BORGARMÚR. Bókaútgáfan
Smáragil 1989.
Borgarmúr er fimmta ljóðabók
Erlends Jónssonar, hin fyrsta2
Skugggir á torgi, kom út 1967. I
Fyrir stríð, 1978, og Heitu árin,
1982, yrkir Erlendur í anda heim-
ildaskáldskapar, ljóðin eru opin og
fijálsleg í formi og það að segja frá
veigamikill þáttur þeirra.
Erlendi er lagið að laða fram
andrúmsloft hins liðna, ekki síst
stríðsáranna. En í nýju bókinni
beinir hann oft sjónum að samtíma
sínum og samtímamönnum, stund-
um fullur af eftirsjá, stundum
háðskur. Hluttekning er skýr mynd
úr nútímanum:
Lokað frá eitt til þijú
vegna jarðarfarar
því hann er horfinn
yfir móðuna miklu
eftir hálfrar aldar
óeigingjarnt starf.
Hann sem var svo
vinsæll og virtur
og trúr yfir litlu
og alveg einstaklega
samviskusamur
og það sem meira var:
hann skildi svo vel
að ekki geta allir
orðið fremstir.
Erlendur getur verið kald-
hæðinn þegar hann yrkir um sam-
borgarana og ekki síður um sjálfan
sig. En hann gerir líka skil ilmi
hinna liðnu daga og vegsamar nátt-
úruna. „Horfðu til skýjanna/ og
leitaðu að mynd þinni,“ stendur í
Skýjamyndum.
Náttúran er andstæða borgar-
múranna sem umlykja skáldið.
Borgin er fyrst og fremst vitni um
tilgangslitla lífsbaráttu og von-
brigði. Fætur skjóta rótum „í
líflausu malbiki". Þegar lýsa skal
prýði borgarinnar, Esjunni, er
myndin sem dregin er upp síður en
svo skáldleg. Fjallið rómaða sem
við blasir er „níu hundruð og átján
metrar/ á hæð“. Annað þarf ekki
að segja um það. En horfi maður
á dýrð sveitarinnar verður maður
skáld, að minnsta kosti „eina dag-
stund“.
FASTEIGIMASALA
Suðurlandsbraut 10
símar: 21870-687808-687828
Ábyrgð - Reynsla - Öryggi
ESKIHLÍÐ
Vorum að fá í sölu vandaða
sérh. á 1. hæð. Ný Alno eld-
hinnr. 3 svefnherb. Tvær stof-
ur. Góð staðsetning. Einnig í
sama húsi 3ja herb. kjíb. með
sérinng.
SKÁLAHEIÐI - KÓP.
Falleg 72 fm 2ja-3ja herb. ib. á
jarðh. í fjórb. Sérinng. Nálægt
skóla. Góð staðsetning. Áhv.
ca 800 þús veðd.
FROSTAFOLD
Vorum að fá í sölu fallega 105
fm 4ra herb. íb. á 2. hæð. Fullb.
eign. Sérþvottah. í íb. Áhv. 3,9
millj. veðd. Verð 7,5 millj.
Ármann H. Benediktsson hs. 681992,
Geir Sigurðsson hs. 641657,
Hilmar Valdimarsson,
Sigmundur Böðvarsson hdl. ■■
Erlendur Jónsson
Borgarmúr er bók um hverful-
leik. En verðmæti lífsins eru ekki
sniðgengin. Þau birtast einkum í
tign og fegurð landsins og í ástinni
sem er skáldinu sól:
Þú ert sólin
og sérð mig ekki.
Ég er máninn
og þetta Ijóð er
draumur minn.
Málfar ljóðanna er vandað og
í þeim mýkt, að mínum dómi meiri
en í öðrum bókum Erlends Jónsson-
ar. í lengri ljóðunum eru víða ljóð-
rænir kostir. í þeim styttri ræður
hnitmiðun ferð, það að segja ekki
of mikið heldur leyfa lesandanum
að geta í eyður. Meðal slíkra ljóða
sem athygli vekja eru Bláar hilling-
ar, Litaskil og On the Roeks. Það
er erfitt að gera upp á milli þessara
ljóða, þau eru öll vel ort, en líklega
tjá Bláar hillingar helst erindi
skáldsins, boðskap þess:
Heiðið er blátt
þlómið er blátt
vonin er blá.
En fjarlægðin
villir:
á leiðarenda
blasir við
gijótið
grátt.
51500
Hafnarfjörður
Hringbraut
Höfum fengið til sölu góða 3ja
herb. íb. á 2. hæð ásamt herb.
íkj.
Hraunbrún
Höfum fengið til sölu stór-
glæsil. ca 280 fm einbýlishús á
tveimur hæðum auk tvöf. bílsk.
ca 43 fm.
Hraunbrún
Höfum fengið til sölu gott ein-
býlishús ca 170 fm á tveimur
hæðum auk 33 fm bílsk.
Álfaskeið - einbýli
Höfum fengið til sölu einbýlis-
hús ca 270 fm auk bílsk. Húsið
skiptist þannig: íb. ca 190 fm
(efri og neðri hæð) auk kj. ca
80 fm (óinnr. að mestu). Vand-
aðar innréttingar. Allar nánari
upplýsingar á skrifst.
Álfaskeið - 3ja herb.
Til sölu góð 90 fm íb. á 1. hæð.
Austurgata
Til sölu 2ja herb. 55 fm íb. for-
sköluðu timburhúsi.
Blikastígur - Álftanesi
Til sölu tvær sjávarlóðir.
Stórholt - Rvk.
Höfum fengið til sölu góða 3ja
herb. íb. með manngengu risi.
Árni Grétar Finnsson hrl.,
Stefán Bj. Gunnlaugsson hdl.,
Linnetsstíg 3,2. hæð, Hafn.,
símar 51500 og 51501.
Þegar við tökum höndum saman...
... náum við eyrum fleiri
Viðskiptavinur! Okkar hlustendur eru þínir viðskiptavinir
og í gegnum okkur nærðu athygli fleiri, á betri tíma og á ákjós-
anlegri hátt.
í glænýrri útvarpskönnun Gallups* sannast svo ekki verður
um villst að fleiri hlusta á Bylgjuna og Stjörnuna en aðrar
útvarpsstöðvar frá kl. 9 á morgnana og þar til vinnutíma lýkur,
að hádeginu einu undanskildu. Þegar þú auglýsir bæði á Bylgj-
unni og Stjörnunni — fýrir verð einnar birtingar — nærðu til
fleiri hlustenda á morgnana og um hábjartan daginn en ef þú
auglýsir á öðrum útvarpsstöðvum.
Og tíminn getur ekki verið betri. Yfirleitt gerir fólk innkaup-
in í hádeginu, eftir að hafa hlustað á auglýsinguna þína fýrr um
morguninn eða að loknum vinnudegi eftir að hafa hlustað á
auglýsinguna þína fyrr um daginn.
Auk þess birtist auglýsingin ekki samtímis á báðum stöðvum
heldur á sitthvorum tímanum. Með þessu fýrirkomulagi eru
meiri líkur á því að auglýsingin berist eyrum hvers hlustanda
a.m.k. einu sinni eða oftar.
Þegar þú auglýsir á Bylgjunni og Stjörnunni nærðu til fleiri
hlustenda á áhrifaríkan hátt.
Pantaðu birtingar strax í dag í síma 62 52 52 eða sendu
texta og birtingaáætlun í gegnum telefax 62 24 06.
* IJnnin fyrir íslenska útvarpsfélagið 20. og 21. októbcr.
Úrtak valið úr hópi 15 — 70 ára af suövesturhorni landsins og á Akureyri.
989