Morgunblaðið - 01.11.1989, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 1989
21
= HÉÐINN =
VELAVERSLUN, SÍMI 624260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER
15% afsláttur í tilefni 150 ára afmælis Ijósmyndarinnar ♦ Opiö á laugardögum
Þú
spaiar
með
Gorbatsjovs Sovétforseta en lítið hef-
ur orðið úr framkvæmdum. Todór
Zhivkov, sém vérið hefur valdamesti
maður landsins um áratuga skeið,
viðurkenndi í yfiriýsingu á sunnudag
að umbætur hefðu ekki náð fram að
ganga, gera yrði grundvallarbreyt-
ingar og dreifa valdi. Erlendur
stjórnarerindreki sagði að vissulega
kvæði við nýjan tón í yfirlýsingunni
en ekki væri víst að breytingarnar
yrðu aðrar en þær að nokkrir menn
í valdastöðum skiptu um embætti.
Umhverfísverndarráðsteftia í Sofíu:
Búlgörsk yfirvöld krafin
fregna af andófsmönnum
Soílu. Reuter.
FULLTRÚAR tuttugu vestrænna ríkja á umhverfisverndarráðstefhu í
Búlgaríu hafa krafið þarlend yfirvöld um upplýsingar vegna meðferðar
á sjö kunnum andófsmönnum. Ráðstefnan hefur staðið í þrjár vikur
og hafa andstæðingar stjórnvalda notað tækifærið til að koma mótmæl-
um á fi-amfæri. Það gerðist svo í síðustu viku að búlgörsk yfirvöld
misttu þolinmæðina.
regluna hafa gengið of langt vegna
misskilnings.
„Við höfum miklar áhyggjur af
frásögnum fólks sem hefur orðið
fyrir átroðslu, verið hótað með
brottvísun frá landinu og getur nú
átt á hættu lögsökn vegna þátttöku
sinnar í ráðstefnurmi," sagði aðalfull-
trúi Bandaríkjanna, Richard Smith.
Búlgarskir umhverfis- og mannrétt-
indasinnar hafa óspart notað tæki-
færið til að vekja athygli á málstað
sínum hjá fulltrúunum og þar til á
fimmtudag létu yfirvöld það að
mestu afskiptalaust. Sendinefndir
vestrænna ríkja á ráðstefnunni hafa
gagnrýnt stefnu búlgarskra yfirvalda
í mannréttindamálum og hafa
Bandaríkjamenn lagt til að samþykkt
verði sérstakt ákvæði þar sem tryggt
verði að sjálfstæðir hópar geti tekið
þátt í umræðum um umhverfismál.
Ákvæðinu verði bætt við samning
RÖSE-ríkjanna 35 um mannréttinda-
mál er gerður var í Vín í janúar
síðastliðnum.
Eko-glasnost fékk leyfi til að halda
útifund í Sofíu um síðustu helgi.
Hópurinn hefur safnað undirskriftum
8.-000 manna sem krefjast ítarlegri
umræðna um starfsemi margra iðn-
fyrirtækja í landinu. Stjórnvöld í
Búlgaríu hafa oft lýst stuðningi
sínum við umbætur í anda Míkhaíls
Yfii'völd í Búlgaríu hafa skipað
einum sjömenninganna, mannrétt-
indafrömuðinum Anton Zapijanov,
að hafa sig á brott frá landinu, að
sögn heimildarmanna meðal andófs-
manna í landinu. Haft var eftir öðr-
um andófsmanni, Ljúbomír Sobajev,
að honum hefði verið hótað með
ákæram um njósnir eftir að hann
ræddi við fulltrúa á umhverfismála-
ráðstefnu Ráðstefnunnar um sam-
vinnu og öryggi í Evrópu (RÖSE) í
höfuðborginni, Sofíu. ■ Sobajev var
handtekinn á fimmtudag en látinn
aftur laus á laugardag.
Lögreglumenn réðust með
barsmíðum á leiðtoga umhverfis-
sinnahópsins Eko-glasnosts á
fimmtudag og handtóku um 30
manns. Stjórnvöld báðust síðar af-
sökunar á framferðinu og sögðu lög-
Ótti við áhrif japanskra
fyrirtækja í Bandaríkjunum
Tókíó. Reuter.
SKÝRT var fi-á því í gær að japanska fasteignafyrirtækið Mitsubishi
Estate myndi kaupa 51% hlutabréfa Rockefeller Group, sem á og rek-
ur Rockefeller Center í New York. Kaupverðið er 846 dalir, eða um
52 milljarðar íslenskra króna. Fréttaskýrendur telja að kaupin ipuni
valda miklum ótta á meðal Bandaríkjainanna um að japanskt fjármagn
sé að ná yfirtökunum í Bandaríkjunum.
I Rockefeller Center era 14 bygg-
ingar, þar sem fjölmörg fyrirtæki,
svo sem fréttastofan Associated
Press og AiBC-sjónvarpskeðjan eru
með höfuðstöðvar sínar. Þar er einn-
ig Radio City Music Hall, þar sem
dansflokkurinn Rockettes sýnir listir
sínar, og á efstu hæð einnar bygging-
arinnar er vinsæll skemmtistaður,
Regnbogaherbergið. Á milli bygging-
anna er hringlaga skautasvell sem
laðað hefur að sér fjölmarga ferða-
menn frá því Rockefeller Center var
reist á kreppuárunum. Rockefeller
Group er einkafyrirtæki og að mestu
í eigu afkomenda auðjöfursins Johns
D. Rockefellers.
Bandarískir fasteignasalar sögðu
að Japanir mættu búast við hörðum
viðbrögðum almennings í Banda-
ríkjunum vegna kaupanna. Japanar
hafa að undanförnu keypt fjölmörg
fyrirtæki í Bandaríkjunum og nýlega
var skýrt frá því að japanska stórfyr-
irtækið Sony hefði keypt kvikmynda-
fyrirtækið Columbia. Nokkrir banda-
rískir þingmenn hafa þegar hvatt til
þess að fjárfestingar útlendinga í
Bandaríkjunum verði takmarkaðar.
Einn fasteignasalanna sagði að
kaupin á Columbia og Rockefeller
Center hlytu að valda miklum
pólitískum vanda í Bandaríkjunum.
Reuter
Jotaro Takagi, sljóriiarformaður japanska fyrirtækisins Mitsubishi
Estate (t.h.), og Raymond Pettit, varastjómarformaður Rockefeller
Group, á blaðamannafúndi í gær.
Mitsubishi Estate kaupir meiríhluta hlutabréfa Rockefeller Group:
Bandaríkj amenn
innan tvítugs:
ll%falla
fyrir byssum
Washington. Reuter.
SAMKVÆMT nýjum upplýs-
ingum frá heilbrigðisyfirvöld-
um í Bandaríkjunum eru
skotsár ein af helsta dánaror-
sökum ungs fólks undir
tvítugu. Árið 1987 dóu 3.392
börn á aldrinum eins til nítján
ára af þessum völdum í Banda-
ríkjunum. Eru það 11% allra
dauðsfalla í þessum aldurs-
flokki.
Hlutfall dauðsfalla af völdum
skotsára hækkar með aldri; það
er 1% hjá börnum á aidrinum
eins til fjögurra ára en 17% hjá
unglingum. Það era einkum
karlkyns þeldökkir unglingar
sem era í hættu en 40% allra
dauðsfalla í þeim aldurshópi era
af völdum skotvopna. Sambæri-
leg tala hjá hvítum unglingspilt-
um er 14%.