Morgunblaðið - 01.11.1989, Síða 35
MORGÚNBLADH) MIDVIKUDAGUR Í. NÓVEMBER 1989
35
veikindi að stríðar. Hann var dyggi-
lega studdur af fjölskyldu sinni.
Segja má að Þura hafi verið sem
hetja við hlið hans.
Elísabet Berta
Kveðja frá Karlakórnum
Fóstbræðrum og Gömlum
Fóstbræðrum
Nokkrum árum fyrir síðustu
heimsstytjöld komu hingað til lands
tónlistarmenn frá landi tónlistarinn-
ar, Austurríki. Þessir tónlistarmenn
voru aufúsugestir. Meðal þeirra má
nefna Fritz Weisshappel og Carl
Billich, sem kom hingað árið 1933
og við kveðjum nú. Síðar urðu þess-
ir menn meiri íslendingar en marg-
ur landinn. Þeirra minning mun lifa
um ókomin ár.
Carl Billich kvæntist eftirlifandi
konu sinni, Þuríði Jónsdóttur, árið
1939. Heimsstyijöldin síðari var að
skella á og hefir skilið eftir sárar
minningar. Svo mun einnig hafa
verið hjá ungu hjónunum Carli og
Þuru. Carl var tekinn á heimili sínu
og fluttur til Englands sem
stríðsfangi. Þau höfðu þá verið gift
aðeins eitt ár. Kjarkur og dugnaður
Þuru á þessu erfiðleikatímabili var
óbilandi. Þegar prísundinni lauk og
Carl komst heim árið 1947 var
þráðurinn tekinn upp að nýju.
Þuríður skapaði þeim yndislegt og
myndarlegt heimili. Heimsóknir til
þeirra voru alltaf gleðistundir. Og
nú varð tónlistin allsráðandi.
Sem píanóleikari var Carl jafn-
vígur á klassíska tónlist sem dægur-
tónlist. Hann var einstaklega lipur
undirleikari. Nú minnist fjöldinn
allur af söngvurum hæfni Carls og
gleðistunda samvinnunnar. Það er
oft þannig að flytja þarf lög milli
tóntegunda eftir því hver söngvar-
inn er. Ef nótur voru fyrir hendi
þá var sama hvaða tóntegund var
valin. Aldrei þurfti að afskrifa
lækkanir eða hækkanir. Og ekki
voru útsetningar Carls af lakara
taginu. Eftir hann liggur fjöldinn
allur af útsetningum fyrir kóra,
kvartetta og ekki eru fáar útsetn-
ingar sem hann gerði fyrir ýmsa
lagahöfunda sem áttu í erfiðleikum
með að útsetja lög sín sjálfir.
Fljótlega eftir heimkomuna fór
Carl að starfa með Karlakórnum
Fóstbræðrum. Það var mikið happ
fyrir kórinn. Hann gerðist félagi
sem borin var virðing fyrir og kór-
inn heiðraði hann með því að sæma
hann gullmerki kórsins. Fjölmargar
upptökur eru til með undirleik Carls
sem sanna hæfni hans. Hann var
sannur listamaður. Hógværð og
lítillæti eru aðal góðs listamanns
og var Carl ríkulega búinn þeim
eiginleikum. Góðmennska og kurt-
eisi var ríkjandi lífsviðhorf. Eitt sinn
var rætt um þýðingu á enska orðinu
„gentleman". Menn voru ekki sam-
mála og töldu erfitt að ná meiningu
orðsins fullkomlega, þar til kveðið
var upp úr um að þýðingin væri
maður eins og Carl Billich.
Og nú kveðjum við Carl með
söknuði. Samúðarkveðjur eru flutt-
ar Þuru og dótturinni Sigurborgu
og fjölskyldu hennar. Guð blessi
minninguna um Carl Billich.
Kristinn Hallsson
Með nokkrum orðum vil ég minn-
ast vinar míns og samstarfsfélaga
Carls Billich hljómlistarmanns sem
iést hér í Reykjavík mánudaginn
23. október sl. Hingað kom hann
fyrst frá föðurlandi sínu, Aust-
urríki, 1933. Erindið var að leika á
Hótel íslandi í svokölluðu Vínar-
tríói. Það var fyrir milligöngu Hans
Stephanek, fiðlukennara við Tón-
listarskólann hér, sem þetta ágæta
Vínar-tríó kom hingað. Þetta voru
þeir féiagar Carl Billich, Jósef
Feltzman og Felix Czerny. Carl og
Jósef kvæntust báðir íslenskum
konum og urðu hér vel þekktir og
dáðir hljómlistarmenn. Czerny
sellóleikari var hér aðeins þijú ár
og sneri þá aftur heim til Vínar. Á
þriðja ári þeirra félaga hér (’36)
var það fyrir atbeina FÍH (Félags
íslenskra hljóðfæraleikara) að með
þeim voru ráðnir tveir íslenskir
hljóðfæraleikarar og átti ég því láni
að fagna að vera annar þeirra en
Sveinn Ólafsson hinn. Þannig atvik-
aðist það að við fórum að leika \
hljómsveitinni á Hótel Islandi. Á
þessum dögum var hún sérlega vel
rómuð fyrir hljómleikana á sunnu-
dagseftirmiðdögum. Þá var nú ekki
til neitt sjónvarp eða Sinfóníuhljóm-
sveit. Allt frá þessum dögum höfum
við Carl haft samband og alltaf
spilað saman öðru hvoru þótt leiðir
okkar hafi legið um ýmsa stigu
þess á milli. Ljúft er mér að minn-
ast nokkurra ára samleiks með hon-
um, en það var þegar við vorum á
eftirmiðdögum í Sjálfstæðishúsinu
við Austurvöll. Þar tókst honum að
endurvekja gömlu sunnudagstón-
leikana og fyrir það fékk hann mik-
ið þakklæti frá fjölda fólks. Um
langan tíma starfaði Carl sem
hljómsveitarstjóri við Þjóðleikhúsið
og einnig þar dáðist ég oft af hæfni
hans og næmleika, enda var hann
í miklum metum hjá öllum leikurum
og öðru starfsfólki. Hann var afar
nákvæmur og shyrtilegur í öllum
sínum hljómlistarflutningi og
fannst mér oft það vera hans aðals-
merki, en þar við bættist svo hans
góða hjartalag. Hann var sérstak-
lega greiðvikinn ög hjálpsamur. Það
voru ekki fáir lagasmiðir sem áttu
Carl sem hauk í horni, þegar andinn
kom yfir þá og erfitt reyndist að
koma tónunum rétt á nótnablaðið.
Hann var alltaf boðinn og búinn
að leiðbeina og laga. Það er satt
að segja með ólíkindum hve mikið
starf hann lagði af mörkum fyrir
aðra á þessu sviði. Það má hiklaust
segja að þjóðin muni njóta þess um
ókomin ár, því margt af þeim
tónsmíðum hefði ef til vill aldrei
komið fram án hans aðstoðar.
Á unglingsárum heima í Vín lauk
hann sveinsprófi í nótnaprentun.
Var hann því allri nótnaútgáfu vel
kunnugur. Fyrsta nótnaútgáfan
sem hann aðstoðaði við hér heima
var árið 1936. Það var valsinn „Þú
ert“ eftir Oliver Guðmundsson. Mér
er í fersku minni hve fallega hann
var prentaður og var hann nýkom-
inn úr þrykkinu þegar við tókum
hann til leiks. Á þessum árum var
ekki auðhlaupið að fá nótur prent-
aðar hér. Einnig man ég eftir að
hann aðstoðaði Sigvalda Kaldalóns
við lög og nótnaútgáfur en hann
kom oft til hans á Hótel ísland. Þá
átti Carl einnig stærstan þátt í að
Söngvasafnið eftir Inga T. Lárus-
son komst á prent. Ekki aðeins átti
hann heiður skilið fyrir útsetningar
og frágang allan, heldur einnig að
koma til skila óljósum handritum
höfundar. Þá vil ég nefna ungan
höfund sem kom til hans á árum
áður með lítið lag, en átti síðar eft-
ir að njóta aðstoðar hans við svo
mörg góð lög síðar. Þetta var okkar
ástsæli höfundur Sigfús Halldórs-
son. Carl átti síðar eftir að aðstoða
fólk út um allt land við sönglaga-
gerðir og útsetningar og allt fram
á síðustu ár var hann ósérhlífinn
við þessa iðju sína.
Ein stærsta gæfa Carls í lífinu
var gott kvonfang. Hann kvæntist
eftirlifandi konu sinni, Þuríði Jóns-
dóttur Billich, 27. maí 1939. Er
rnér minnisstætt hve hamingjusöm
þau voru þegar við vinir komum til
þeirra nýgiftra á fallega heimilið
þeirra á Skarphéðinsgötunni. Sárt
var svo til þess að vita, þegar hús-
bóndinn var rifinn upp úr rúmi sínu
eldsnemma morguns þann 4. júlí
1940.og tekinn sem stríðsfangi. Sjö
urðu árin sem hann var að heiman.
En mikill varð fagnaðarfundur,
þegar hann loks náði aftur heim til
Islands,_með hjálp góðra manna og
eiginkonunnar sem þar vann stór-
virki. Alla tíð hefur hún verið hans
ástríka eiginkona og annast hann
í blíðu og stríðu. Hún á mikið lof
skilið fyrir allt og allt.
Við Jóhanna flytjum henni og
fjölskyldu þeirra okkar innilegustu
samúðarkveðjur. Blessuð sé minn-
ing Carls Billich.
Þorvaldur Steingrímsson
+
MINNINGARKORT
Sérfrædingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
Herdís Björk Þor-
valdsdóttir — Minning
Fædd 10. desember 1955
Dáin 17. október 1989
Ég er þakklát fyrir þá trúföstu
vináttu og allar þær ánægjustundir
sem við Hedda höfum átt saman í
gegn um árin. Endurminningarnar
eru margar og mikil birta og gleði
í kring um þær. Þrátt fyrir veikindi
síðustu árin vildi hún alltaf gefa
það besta sem hún gat gefið í hvert
skipti sem við hittumst. Eg dáist
að dugnaði hennar og hefí sjaldan
séð nokkurn gleyma sínum eigin
þjáningum svo algerlega í gleðinni
yfir að fá að gefa öðrum.
Þó ég sakni Heddu mjög trúi ég
að hún sé núna hamingjusamari og
fijálsari en nokkru sinni, umvafin
kærleika og friði.
Fjölskyldunni sendi ég innilegar
samúðarkveðjur á þessari sorgar-
stundu' Gunna
np blómaverkstæði
®INNA
Skólavörðustíg 12
á horni Bergstaðastrætis
sími 19090
Kransar, krossar
og kisíuskreýtingar.
Sendum um allt land.
GLÆSIBLÓMIÐ
GLÆSIBÆ,
Álflicimum 74. sími 84200
+
Móðir okkar og tengdamóðir,
EULALIA STEINUNN GUÐBRANDSDÓTTIR,
áður til heimilis í Meðalholti 13,
Reykjavik,
sem andaðist laugardaginn 21. október sl., verður jarðsungin
fimmtudaginn 2. nóvember kl. 13.30 frá nýju kapellunni í Foss-
vogi.
Fyrir okkar hönd og annarra vandamanna,
Friðgeir Olgeirsson, Edna Falkvard,
Ólafur Olgeirsson, Helga Jörundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Utför mannsins míns, föður okkar og stjúpföður,
STEFÁNS G. SIGURMUNDSSON AR,
fer fram frá Bústaðakirkju, fimmtudaginn 2. nóvember nk. kl.
13.30.
Halla Steingrímsdóttir,
Gunnar Freyr Stefánsson,
Stefán G. Stefánsson,
Gísli Stefánsson,
Kristjana Stefánsdóttir,
Steingrimur Gautur Pétursson,
Gunnhildur Pétursdóttir,
Brynhildur Pétursdóttir,
Gylfi Gautur Pétursson.
STOFNFUNDUR
SAMTAKA UM
LÍF í FOSSVOGSDAL
verður haldinn í safnaðarheimili Bústaðakirkju
miðvikudaginn l.nóvember kl.20.30.
Dagskrá fundarins:
1 .Tilgangur fundarins / Gunnar Steinn Pálsson
2. Fossvogsdalur,nútíö og framtíö/ Sigmundur Guðbjarnason
3. Rannsóknir í Fossvogsdal /Jónas Elíasson
4. Tillaga að lögum samtakanna
5. Kosning stjórnar
6. Ávarp nýkjörins formanns
Allir áhugamenn um líf í Fossvogsdal eru hvattir til að
sækja fundinn og gerast stofnfélagar.
Undirbúningsnefndin