Morgunblaðið - 02.11.1989, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1989
Vonlitlir um að Rússar kaupi
meira af freðfiski héðan í ár
- segir Gylfi Þór Magnússon framkvæmdastjóri hjá SH
„VIÐ erum orðnir vonlitlir um hraðfrystihúsanna, í samtali við
að Sovétmenn kaupi meira af Morgnnblaðið. Gylfi Þór sagði
fi-ystum fiski héðan í ár,“ sagði að reiknað væri með að samn-
Gylfi Þór Magnússon, fram- ingaviðræður við Sovétmenn um
kvæmdastjóri hjá Sölumiðstöð freðfiskkaup þeirra héðan á
Kaupmannahöfh:
Málverk Asgríms á 1,5 millj.
Kaupmannahöfn. Frá N.J. Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
MÁLVERK eftir íslenska listmálara voru á meðal þeirra sem seld
voru á uppboði hjá uppboðsfyrirtæki Arne Bruun Rasmussens í
Kaupmannahöfn á þriðjudag
„íslenskt landslag“ eftir Ásgrím
Jónsson var seld á 170.000 krónur
(um 1,5 milljónir ísl. kr.) og var sú
upphæð þrefalt hærri en matsverð
myndarinnar. Tvær myndir eftir
Jóhannes Kjarval voru jafnframt
boðnar upp og fengust 20.000 d.
kr. fyrir „Uppstillingu með skál og
könnu“ og rúmar 70.000 krónur
fyrir landslagsmálverk. Að auki
voru boðnar upp myndir eftir Guð-
mund Einarsson og Svavar Guðna-
son.
Hæsta verð fékkst fyrir mynd
eftir hollenska listmálarann Karel
Appel 200.000 d. kr. (1,7 millj. ísl
kr.). Uppboðinu var fram haldið í
gær en því lýkur í dag, fimmtudag.
Alls verða um 700 málverk boðin
upp að þessu sinni.
næsta ári hæfúst um miðjan
þennan mánuð. „Við stefnum á
að auka magnið verulega frá
þessu ári,“ sagði Gylfi Þór.
Fyrirtækið Sovrybflot, sem sér
um fiskkaup Sovétmanna, óskaði
eftir viðbótarfjárveitingu á þessu
ári til kaupa á 5.500 tonnum af
frystum fiski frá íslandi. Samið var
í nóvember í fyrra um sölu á 9
þúsund tonnum af frystum flökum
og 700 tonnum af heilfrystum fiski
til Sovétríkjanna, aðallega af karfa,
ufsa og grálúðu, fyrir um 20 millj-
ónir Bandaríkjadala (um 1,2 millj-
arða króna) á þessu ári. Viðskipta-
bókun íslands og Sovétríkjanna frá
árinu 1985 gerir hins vegar ráð
fyrir að Sovétmenn kaupi af okkur
20 þúsund tonn af frystum flökum
og 4 þúsund tonn af heilfrystum
fiski á ári.
Árið 1988 keyptu Sovétmenn
svipað magn af frystum fiskafurð-
um héðan og í ár en næstu ár á
undan keyptu þeir 15-20 þúsund
tonn á ári.
VEÐUR
Heimild: Veðurstofa islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær)
IDAGkl. 12.00:
VEÐURHORFUR íDAG, 2. NÓVEMBER:
YFIRLIT í GÆR: Skammt vest-suðvestur af Reykjanesi er 974 mb.
lægð sem þokast austur og grynnist , en yfir Grænlandi'er 1014
mb. hæð. I nótt fer að kólna í veðri, fyrst norðvestanlands.
SPÁ: Fremur hæg norðaustan- og austanátt. Smá skúrir á annesj-
um norðvestan- og noröanlands, en annars staðar úrkomulaust.
Hiti 3-7 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG::Fremur hæg norðan-
og norðaustanátt. Skúrir eða slydduél norðan og vestanlands en
að mestu þurrt í öðrum landshlutum. Hiti 4-5 stig.
TÁKN:
Heiðskírt
a
■Qk
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■j 0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
_|_ Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hltl veður
Akureyri 3 skýjað
Reykjavík 5 skúrlr
Bergen 9 þrumuveður
Helsinkl 4 þokumóða
Kaupmannah. 14 hólfskýjað
Narssarssuaq vantar
Nuuk vantar
Osló 8 skýjað
Stokkhólmur 7 alskýjað
Þórshöfn 8 skýjað
Algarve 23 skýjað
Amsterdam 13 skýjað
Barcelona 22 heiðskírt
Berlín 13 þokumóða
Chicago 0 heiðsklrt
Feneyjar vantar
Frankfurt 13 rigning
Glasgow 11 skýjað
Hamborg 13 hálfskýjað
Las Palmas 27 léttskýjað
London 13 skýjað
Los Angeles 11 léttskýjað
Lúxemborg 12 rigning
Madrid 20 heiðskírt
Malaga 22 léttskýjað
Mallorca 22 þokumóða
Montreal vantar
New York vantar
Orlando 18 þokumóða
París 14 rigning
Róm 20 þokumóða
Vln 17 skýjað
Washington 10 heiðskirt
Winnipeg skýjað
Morgunblaðið/Kari Sigurgeirsson
Gullið íhaugum
Hvammstanga.
Rækjubátar frá Hvammstanga hafa sett í góðan afla, nú á nýhafinni
innfjarðarvertíð og á myndinni er skipstjórinn á mb. Jóni Kjartan,
Dagbjartur M. Jónsson, brosmildur í brúnni enda að koma inn með „
allt fullt af rækju.“ Undanfarið hafa bátar fengið tvisvar um fjögurra
tonna dagsafla af „gulli hafsins“. Miðin eru best í „vesturkanti", sem
er 2-10 sjómílur norður af Heggstaðanesi. Sjómenn segja, að rækjan
sé mjög hrein, þ.e. lítið af loðnu eða smásíld komi með aflanum.
- Kari
Stór loðna suð-
ur af Kolbeinsey
TÖLUVERT virðist vera af stórri
loðnu suður af Kolbeinsey en
erfitt hefur verið að veiða hana,
þar sem hún stendur djúpt. Hilm-
ir SU, Skarðsvík SH, Albert GK
og Kap II. VE fengu samtals
nokkur hundruð tonn af frekar
smárri hrygningarloðnu við Kol-
beinsey í gærmorgun. Hilmir og
Harpa RE lönduðu á Siglufirði á
mánudag samtals 175 tonnum af
blandaðri loðnu sem skipin fengu
suður af Kolbeinsey.
Mikið var um hnúfubak á loðnu-
miðunum á síðustu vertíð og hugs-
anlegt er að vanur hvalatalningar-
maður leiti að hnúfubak á milli ís-
lands og Grænlands úr flugvél
Landhelgisgæslunnar, að sögn Jóns
B. Jónassonar, skrifstofustjóra í
sjávarútvegsráðuneytinu.
Rannsóknaskipið Árni Friðriks-
son fór í loðnuleiðangur síðastliðinn
fimmtudag. Skipið hefur verið við
Vestfirði undanfarna daga og fann
þar ársgamla og ókynþroska loðnu.
„Við þurfum að líta á allan loðnu-
stofninn, ekki einungis veiðanlegu
loðnuna," sagði Sveinn Sveinbjörns-
son leiðangursstjóri í samtali við
Morgunblaðið.
Bjarni Sæmundsson, skip Haf-
rannsóknastofnunar, átti að fara í
loðnuleiðangur í gær, 1. nóvember,
en getur hins vegar ekki farið í
leiðangurinn fyrr en í fyrsta lagi
10. nóvember, að sögn Vignis Thor-
oddsens hjá Hafrannsóknastofnun.
Vignir sagði að Bjami Sæmundsson
hefði verið í slipp að undanförnu
og gat hefði fundist á tank í skip-
inu. Hins vegar væri unnið allan
sólarhringinn við viðgerðjr á skipinu
til að það kæmist sem fyrst í loðnu-
leiðangurinn.
Hvammstangi:
Innbrot í
kaupfélagið
Hvammstanga.
Aðfaranótt miðvikudags
var brotist inn í Kaupfélag
Vestur-Húnvetninga á
Hvammstanga og stolið úr
búðarkössum og varningi fyr-
ir um 150.000 krónur. Málið
er í rannsókn.
Verksummerki sáust er
starfsfólk mætti til vinnu í gær-
morgun, gluggi á kaffistofu
hafði verið spenntur upp og fót-
spor vora á gólfi. Við nánari
skoðun kom í ljós að skiptimynt
í seðlum hafði verið hirt úr köss-
um í kjörbúð ásamt 50 lengjum
af vindlingum. Einnig hafði ver-
ið farið í byggingarvörudeild og
stolið þaðan hljómflutnings-
tækjum og skiptimynt úr kassa.
Einnig hafði verið reynt að
komast í peningaskáp hjá versl-
unarstjóra án árangurs. Ekki
var farið inn í skrifstofur kaup-
félagsins en þær eru á efri hæð
hússins.
Innbrotið er óupplýst en lög-
reglan vinnur að rannsókn
málsins.
Karl
Sex ára fangelsi fyrir
tilraun til manndráps
HÆSTIRÉTTUR hefúr staðfest dóm sakadóms og dæmt 25 ára
Reykvíking, Víði Kristjánsson, í 6 ára fangelsi fyrir tilraun til
manndráps. Víðir stakk mann um fertugt með hníf á heimili þess
síðarneftida að morgni sunnudagsins 13. nóvember í fyrra.
Mennimir tveir hittust seint á
laugardagsnótt í miðbæ Reykjavík-
ur og bauð sá eldri Víði með sér
heim, í íbúð í vesturbæ Reykjavík-
ur. Snemma á sunnudagsmorgun
urðu mennirnir ósáttir og lagði
Víðir til húsráðanda með stórum
hníf og stakk hann í kviðarholið
vinstra megin, neðan við rifbein.
Hlaut hann af mikið sár, enda var
hnífsblaðið um 20 sm langt og 4-5
sm breiCt. Húsráðandi gat gert lög-
reglu viðvart um klukkan 8 um
morguninn, en árásarmaðurinn
hafði horfið á brott eftir verknað-
inn. Lögreglan hafði upp á honum
síðdegis á sunnudag. Hann hefur
sætt gæsluvarðhaldi frá 15. nóvem-
ber á síðasta ári. Hæstiréttur hefur
nú staðfest dóm undirréttar um sex
ára fangelsi og kemur gæsluvarð-
hald mannsins til frádráttar refs-
ingu.
/