Morgunblaðið - 02.11.1989, Blaðsíða 50
^50
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
yiM^TU^AftUg-^. NÓVEMBER 1989
SKIÐI / LANDSLIÐIÐ IALPAGREINUM
„Island gæti átt keppend-
ur í heimsbikarnum eftir
þijú til fjögur ár“
- segir Kajsa Nyberg nýráðin landsliðsþjálfari í alpagreinum
„ISLAND gæti átt keppendur í
heimsbikarkeppninni í alpa-
greinum eftir þrjú til fjögur ár
ef rétt verður haldið á spilun-
um,“ sagði sænski þjálfarinn
Kajsa IMyberg, nýráðin lands-
liðsþjálfari í aipagreinum, í
samtali við Morgunblaðið.
Kajsa hefur fengist við þjálfun
í tíu ár og var á síðasta ári þjálf-
ari ísfirðinga.
Kajsa byrjaði ung að stunda
íþróttir 'í heimabæ sínum,
Gállivare, sem er í Norður-Svíþjóð.
„Fyrstu árin æfði ég sund og skíði
og var einhig i
ballet. Tíu ára göm-
ul snéri ég mér al-
farið að skíðunum.
Ég fór á mitt fyrsta
þjálfaranámskeið 18 ára gömul og
hef farið síðan í gegnum öll þjálf-
arastig sem völ er á í alpagreinum."
Aðstöðumunur
Kajsa segir að það geti verið
erfitt að stunda skíðaíþróttina hér
á landi. „Munurinn á aðstöðunni á
Islandi og í Svíþjóð er sá að keppn-
istímabilið er mun lengra í Svíþjóð
og svo er það veðrið sem setur strik
í reikninginn hér. Þó það sé oft kalt
í Svíþjóð þá er yfirleitt enginn vind-
ur eins og svo oft hér,“ sagði Kajsa.
„Það er staðreynd að ef íslenskir
skíðamenn ætla sér að ná langt
verða þeir að leggja hart að sér og
æfa allt árið. Það er ekki nóg að
vera í öðrum íþróttum á sumrin
eins og knattspyrnu, heldur þarf
að huga að öðrum þáttum skíða-
þjálfunnar. Aðstaðan i Kerlingar-
fjöllum til sumaræfinga er ágæt að
mínu mati og kemur að góðum
notum við ýmsar tækniæfingar. Ég
var í þijár vikur við þjálfun í Kerl-
ingarfjöllum í sumar og það rigndi
FRUMSYNIR
ÍPFJÖGUR DANSVERK«
í IÐNÓ
Höfundar: LÁRA STEFÁNSDÓTTIR • INGÓLFUR BJÖRN SIGURÐSSON
HANY HADAYA • SYLVIA VON KOSPOTH gestahöfundur.
Frumsýning:
Föstudaginn 3. nóvember kl. 20:30. Uppselt.
2. sýning:
Laugardaginn 4. nóvember kl. 20:30.
3. sýning:
Miðvikudaginn 8. nóvember kl. 20:30.
4. sýning:
Föstudaginn 10. nóvember kl. 20:30.
5. sýning:
Laugardaginn 11. nóvember kl. 20:30.
Athugið! Sýningum lýkur 25. nóvember.
Miðapantanir í síma 13191 allan sólarhringinn.
Miðasalan opin í Iðnó frá kl. 5-7.
aðeins í þijá daga! Það eina sem
hægt er að setja út á aðstöðuna
þar er að lyfturnar eru ekki nógu
góðar.
Dýrt að reka landsliðið
Það er dýrt að reka skíðalandslið
á íslandi því það þarf að sækja mót
og æfingar mikið yfir hafið og það
er jú dýrt að fljúga. Við erum til
dæmis að fara í ijögurra vikna
æfingaferð til Hinterdux í Aust-
urríki og svo verður farið til Svíþjóð-
ar í nóvember. Skíðasambandið
borgar allar ferðir en keppendurnir
þurfa sjálfir að sjá um uppihald."
-Hvernig kom það til að þú
réðir þig sem þjálfari á Islandi?
„Ég vildi breyta til eftir að hafa
verið við þjálfun í Svíþjóð í tíu ár.
ísfirðingar leituðu til sænska skíða-
sambandsins um þjálfara í fyrra og
ég sótti um og fékk starfið. Ég
kunni mjög vel við mig á ísafirði
og þar var auðvelt að kynnast fólki.
Það var síðan ákveðið í vor að ég
tæki að mér þjálfun hjá Skíðasam-
bandi íslands. Ég mun skipuleggja
æfingar og velja í landslið. Einnig
mun ég ferðast um landið í vetur
og hjálpa til við grunnþjálfun og
leggja línurnar.“
íslenskunám
Kajsa stundar nú nám í íslensku
fyrir útlendinga í Háskóla íslands
og þótti það góð tíðinda að komast
í annan bekk. „Þetta sannar að ég
er ekki algjör græningi í íslens-
kunnþ þó svo að ég hafi haldið það
sjálf. íslenskan er erfið en ég ætla
að reyna að ná tökum á henni svo
auðveldara verður fyrir mig ná sam-
bandi við yngstu krakkana. Það eru
margir efnilegir krakkar hér á landi
og ég hlakka til að starfa með þeim
í vetur."
Morgunblaðið/Júlíus
Kajsa Nyberg, landsliðsþjálfari í
alpagreinum.
I kvöld
Körfuknattleikur:
Urvalsdeild
Þór — Valur...........kl. 19:30
Haukar — UMFG...kl. 20:00
ÍBK-KR................kl. 20:00
Handknattleikur:
1. deild kvenna
Fram — Stjaman..kl. 19:00
Fær í flestan
sjó í hlýrri
angóruull
í nærfatnaði úr angóruull ertu fyrst
almennilega sjóhæfur. Angóruullin gefur átta
sinnum meiri einangrun en aðrar ullartegundir
og hún hrindir vel frá sér vatni.
Auk þess getur angóruullin tekið í sig allt að
fjórfalda þyngd sína af raka án þess að
einangrunargildið skerðist.
í nærfatnaði úr angóruull þarftu ekki að leggja
árar í bát þótt veðrið sé vont.
Fáanleg í hvítu, grænu og bláu.
UTSÖLUSTAÐIR:
REYKJAVÍK:
AJafossbúditi
Á rbœjarapótek
Borgarapótek
Breidboltsapótek
Ellingsetj
Garösapótek
Holtsapóitek
Ingólfsapótek
Laugavegsapótek
Lyfjabúöin löunn
liammageröin
Skátabuöin
Sbortval
Ull og gjafavörur
Utilíf
Veiöihúsiö
Veiöivoti
SELTJARNARNES:
Sportlíf
KÓPAVOGUR:
Kópa vogsapótek
GARÐABÆR:
Apótek Garðabcej&r
HAFNARFJÖRÐUR:
Apótek Noröurbœjar
KEFLAVÍK:
Samkaup
KEFLAVÍKURFLUG-
yÓLLUR:
ísletiskur tnarkaður
MOSFELLSBÆR:
Mosfellsapótek
Verslunin Fell
Verksmiöjuútsala Álafoss
AKRANES:
Sjúkrahúsbúöin
BORGARNES:
Kf. Borgfiröinga
OLAFSVÍK:
Söluskáli Einars
Kristjánssonar
STYKKISHÓLMUR:
Hólmkjör
BÚÐARDALUR:
Dalakjör
PATREKSFJÖRÐUR:
Versl. Ara Jónssonar
TÁLKNAFJÖRÐUR:
Bjarnabúo
FLATEYRI:
Brauðgeröin
BOLUNGARVÍK:
Einar Guöfinnsson
ÍSAFJÖRÐUR:
Sporthlaöan
HÓLMAVÍK:
Kf. Steingrímsfjaröar
HVAMMSTANGI:
Vöruhúsió Hvamms-
tanga
BLONDUÓS:
Apótek Blönduóss
SAUÐÁRKRÓKUR:
Skagfirdingabúð
VARMAHLÍÐ:
Kf Skagfirðinga
SIGLUFJÖRÐUR:
Versl. Sig. Fannáal
ÓLAFSFJÖRÐUR:
Valberg
DALVIK:
Dalvíkurapótek
Versl. Kotra
AKUREYRI:
Versl. París
HÚSAVÍK:
Bókav. Þórarins ■
Stefánssonar
REYKJAHLÍÐ:
Verslunin Sel
RAUFARHÖFN:
Snarlið
sími 666006
SEYÐISFJORÐUR:
Versl. E.J. Waage
NESKAUPSTAÐUR:
S.U.N.
EGILSSTAÐIR:
Kf. Héraösbúa
ESKIFJÖRÐUR:
Sportv. Hákons Söfussonar
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR:
Kf. Fáskrúösfjaröar
BREIÐDALSVÍK:
Kf. Stöðfiröinga
HÖFN:
Kf. A-Skaftfellinga
HELLA:
Kangárapótek
SELFOSS:
Vöruhús K.Á.
HVERAGERÐI:
Ölfusapótek
il «s 11 il istt & m m a fl m M a ú m tt 4 ■ A m é i * m mm. É a ci S ú Ú ■ ii é m ÉI