Morgunblaðið - 02.11.1989, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER ,1989
2<1
Fleiri sóttir til saka
í stóra kókaínmálinu
GEFNAR hafa verið út fimm ákærur vegna kókaínsmáls, sem kom
upp hér á landi í apríl, til viðbótar við ákærur á hendur þremur
mönnum sem stóðu að innflutningi efnisins. Þá hefur dómari einnig
fengið heimildir til sátta í málum fimm manna, sem tengjast innflutn-
ingnum.
Við rannsókn málsins, sem kallað
hefur verið stóra kókaínmálið, kom
fram, að í nóvember á síðasta ári
var smyglað hingað til lands frá
Bandaríkjunum um einu kílói af
kókaíni, falið í bifreið. Rumlega
helmingur efnisins var komið í
dreifingu, en lögreglan lagði hald á
tæp 434 grömm, auk bifreiðar, sem
var talin keypt fyrir ágóða af sölu
efnisins. Þrír menri voru úrskurðað-
ir í gæsluvarðhald vegna málsins
og situr einn þeirra inni enn. Ákær-
ur á hendur þeim voru gefnar út
fyrir nokkru.
Lögreglan kærði alls 23 menn
vegna aðildar að málinu. Á þriðju-
dag gaf ríkissaksóknari út ákærur
á hendur fimm mönnum, sem eru
taldir hlutdeildarmenn í brotum inn-
flytjendanna þriggja, auk þess að
veita dómara sáttaheimildir í mál-
Steinar hf:
Atta íslenskar
plötur fyrir jólin
STEINAR hf gefur út átta íslenskar hljómplötur fyrir jólin. Sálin
hans Jóns míns, Todmobile, Valgeir Guðjónsson, Örvar Kristjánson,
Ný dönsk, Ríó, Eiríkur Hauksson og Bítlavinafélagið senda frá sér
plötur undir merkjum Steina og koma þær allar út í nóvember.
Þijár plötur koma út í dag,
fimmtudag. Río sendir frá sér fyrstu
plötu sína með frumsömdum lögum
og textum, Ekki vill það batna.
Lögin eru eftir Gunnar Þórðarson
og textarnir eftir* hirðskáld tríósins
Jónas Friðrik, Ný dönsk sendir frá
sér sína fyrstu plötu og Örvar
Kristjánsson snýr aftur eftir langt
hlé með plötu sem nefnist Frjálsir
fuglar.
Fyrsta sóloplata Eiríks Hauks-
sonar, Skot í myrkri, kemur út 9.
nóvember.
Tvær plötur koma út 16. nóvem-
ber, Hvar er draumurinn með Sáí-
inni hans Jóns míns og Betra en
nokkuð annað með Todmobile.
Síðustu plöturnar frá Steinum
koma svo út 23. nóvember. Það er
plata Valgeirs Guðjónssonar, Góðir
áheyrendur og plata frá Bítlavinafé-
laginu sem hefur enn ekki hlotið
nafn.
í frétt frá Steinum hf segir að
sala hljómplatna hafi verið óvenju
góð og stefni í „plötujól,“ enda
mikið úrval af ódýrum hljómplötum.
Río er líklega stærsta tríó lands-
ins, með fimm meðlimi. Frá
vinstri: Gunnar Þórðarson,
Ágúst Atlason, Helgi Pétursson,
Magnús Einarsson og Ólafur
Þórðarson. Nýja platan þeirra
kemur út í dag.
um fimm manna. Ásgeir Friðjóns-
son, sakadómari í ávana- og fíkni-
efnamálum, sagði líklegt að honum
bærust fleiri sáttaheimildir, en hann
gæti ekki fullyrt hvort fleiri ákærur
yrðu gefnar út. Ásgeir hefur farið
fram á að sakadómur verði fjölskip-
aður í máli þremenninganna, sem
eru taldir aðalmenn í brotinu, og
óskað eftir að Guðjón Marteinsson,
sakadómari og Þórður Þórðarson,
bæjarlögmaður, sitji einnig í dómn-
um. Bæði Guðjón og Þórður hafa
starfað við fíkniefnadómstólinn. Ef
dómurinn verður íjölskipaður er það
í fyrsta sinn í sögu ávana- og fíkni-
efnadómstólsins.
Ásgeir Friðjónsson sagði ljóst,'
að nokkuð langt væri í að niður-
staða fengist í máli þessu fyrir dóm-
stólum, þar sem það væri flókið og
málskjöl viðamikil.
Sýnir í Galleríi Borg1
ÞÓRÐUR Hall opnar sýningu á
verkum sínum í Galleríi Borg,
Pósthússtræti 9 í dag fimmtudag-
inn 2. nóvember klukkan 17.
Þórður er fæddur í Reykjavík
árið 1949. Hann nam við Myndlista-
skólann í Reykjavík og Myndlista-
og handíðaskóla Islands, einnig var
hann við nám í Konunglega listahá-
skólanum í Stokkhólmi. Hann hefur
verið kennari við Myndlista- og
handíðaskóla Islands frá árinu
1974.
Þetta er fjórða einkasýning Þórð-
ar en síðast sýndi hann í Norræna
húsinu 1983. Hann hefur tekið þátt
í ljölda samsýninga, bæði hér heima
og erlendis, m.a. í sýningum félags-
ins íslensk grafík í Reykjavík, á
Norðurlöndum, í Kraká, Varsjá,
San Francisco, New York og víðar
á árunum 1975-1986.
Verk í eigu opinberra stofnana
og safna eru mörg m.a. á Lista-
safni íslands, Listasafni Reykjavík-
urborgar Kjarvalsstöðum, Lista-
safni Háskóla íslands, Seðlabanka
íslands, Norræna hússins í
Reykjavík og Færeyjum. Einnig í
Finnlandi og Svíþjóð. Þórður Hall
hlaut starfslaun listamanna í ár
1989. Hann dvaldi þijá mánuði sl.
sumar í norrænu gestavinnustofun-
unyí Sveaborg í Finnlandi.
Á sýningu Þórðar nú er u nýjar
teikningar bæði í lit og svart hvítar.
Sýningin er opin virka daga frá
klukkan 10-18 og um helgar frá
klukkan 14-18. Henni lýkur þriðju-
daginn 14. nóvember.
Höfundur í hópi kátra kunningja í Salíma í Malawi.
Dulmál dódófiiglsins
Bók eftir Jó-
hönnu Kristjóns-
dóttur væntanleg
„Dulmál dódófuglsins,“ með und-
irtitlinum „á ferð með augnablik-
inu um fjarlæg lönd“ heitir bók
eftir Jóhönnu Kristjónsdóttur,
blaðamann, sem er væntanleg
innan skamms. í bókinni lýsir
Jóhanna ferðum sínum til tíu Qar-
lægra landa og eru frásagnirnar
mjög persónulegar lýsingar höf-
undar samtímis því sem varpað
er ljósi á framandi mannlíf og
Qarlæg lönd, að því er segir í
fréttatilkynningu þar sem boðuð
er útgáfa bókarinnar. I bókinni
eltist Jóhanna við Saddam Hus-
sein íraksforseta, ræðir við Tak-
ako Doi, forystukonu í japanskri
pólitík, og hittir Mario Soares í
Portúgal. Hún skrafar við hirð-
ingja í Saharaeyðimörkinni og
hjákonur í Malawi, svo að nokkuð
sé nefnt.
Jóhanna Kristjónsdóttir sendi í
fyrra frá sér bókiná „Fíladans og
framandi fólk.“ í „Dulmáli dódó-
fuglsins" leggur hún áfram leið sína
til landa sem eru flest utan alfara-
leiða ferðamanna og sækir heim
staði eins og Rúanda, Mauritíus,
Kuwait, írak, Malawi, Túnis, Ma-
rokkó, Japan og ísrael og Portúg-
al. í bókinni er íjöldi mynda. Hún
kemur út hjá Vöku/Helgafelli.
Líffi*æðifélag
íslands:
Ráðstefna
um fiskeldi
LÍFFRÆÐIFÉLAG íslands
gengst fyrir ráðstefinu um
fiskeldi í Norræna húsinu
dagana 3.-4. nóvember næst-
komandi.
Á ráðstefnunni verður fjallað
um líffræði mismunandi eldis,
fisksjúkdóma, erfðafræði lax-
fiska, mengun og nýja eldis-
möguleika. Fjölmörg erindi
verða flutt um hvern málaflokk,
og verða umræður að þeim
loknum.
Ráðstefnan hefst kl. 13
föstudaginn 3. nóvember, og
er ráðstefnugjald 300 krónur.
GEISLAHITARAR
fyrir svalir, blómastofur o.fl.
Kringlunni - sími 685440.
V2
svtrv
435,-
V2
Í\ÍAUT
ffrá 498j"
Tilbúið í kistuna
SVÍNALÆRI
OG BÓGAR
HEILDSÖLUVERÐ
NÝ LAMBA-
LIFUR
OG HJÖRTU
359,-
KJÚKLINGAR
569,-
PÓSTSENDUM
GREIÐSLU-
KORTAÞJÓNUSTA
1KJÖT ER
\OKKAR
SÉRGREIN
Bananar........99,
Smjörlíki .....99,
Ritz kex.......66,
Bravo ávaxtasafi ...69,
Ora gr. baunir.52,
Kellogg's kornfleks
500 gr......96,-
í
í
68 5168