Morgunblaðið - 02.11.1989, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 02.11.1989, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FIMMÍ'UDAGLR 2. NÖVKMBKR 19S9 ATVINNIBAUGL YSINGAR Heimagæsla/Háaleiti Vantar konu sem fyrst til að gæta 10 mán. drengs og tveggja barna á skólaaldri til kl. 14 alla virka daga. Létt heimilisstörf. Má ekki reykja. Hafið samband við Bryndísi í síma 688310 eftir kl. 14. ST. JÓSEFSSPÍTALI, LANDAKOTI Starfsfólk Okkur á dagheimilinu Öldukoti vantar áhuga- saman starfsmann í fullt starf til að vinna með okkur uppbyggilegt starf. Við erum í gömlu, hlýlegu húsi, sem staðsett er á Öldu- götu. Þeir, sem áhuga hafa, hafi samband við for- stöðumann í síma 604365, milli kl. 10 og 14. Meðferðarheimili einhverfra, Sæbraut 2, Seltjarnarnesi Uppeldis- og meðferðarstörf Meðferðarheimili einhverfra óskar eftir að ráða þroskaþjálfa, fóstrur eða fólk með menntun á sviði uppeldis- eða sálarfræði. Heimilið tók til starfa í síðasta mánuði og verður ekki fullskipað fyrr en eftir áramót, en þar munu dvelja sex einhverfir unglingar á aidrinum 13-17 ára. Störfin fela í sér þátt- töku í meðferð og þjálfun unglinganna og samvinnu við fjölskyldur þeirra og tengsla- stofnanir. Um er að ræða vaktavinnu (þó ekki næturvaktir). Ein staða er laus nú þegar og tvær í byrjun janúar. Möguleiki er á hlutastarfi í janúar. Nánari upplýsingar veita forstöðumaður eða deildarstjóri í síma 611180 kl. 09-17 virka daga. Byggingafulltrúi óskast Ölfushreppur óskar eftir byggingafulltrúa til starfa frá og með 1. janúar 1990. Bygginga- fulltrúi skal vera arkitekt, byggingafræðing- ur, byggingatæknifræðingur eða bygginga- verkfræðingur. Allar frekari upplýsjngar um starfið veitir sveitarstjóri Ölfushrepps í síma 98-33800. Umsóknum skal skilað á skrifstofu Ölfus- hrepps, Selyogsbraut 2, 815 Þorlákshöfn, fyrir 10. nóvember. Sveitarstjóri Öifushrepps. Þú svalar lestrarþörf dagsins < á^íöum Moggans! jQ ÞJONUSTA Lekur? Tökum að okkur alhliða húsaviðgerðir. Erum að safna verkefnum fyrir næsta sumar. Föst tilboð. Upplýsingar í síma 620082 og 25658. A / H. K. innréttingar, »\ Dugguvogi 23 - sími 35609 Eldhúsinnréttingar/baðinnréttingar. Vönduð vinna, hægstætt verð. Leitið tilboða. Nú kaupum við íslenskt, okkar vegna. TIL SÖLU Fjölbýlishúsalóð Til sölu lóð fyrir fjölbýlishús. Góðir greiðslu- skilmálar. Nánari upplýsingar í síma 82312. Kjarvalsmálverk Til sölu vandað Kjarvalsverk. Stærð 140x85 cm. Einnig tvö málverk eftir Sverri Haraldsson. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 6. nóvember merkt: „Málverk - 7152“. Flökunarvél og hausari Til sölu Varlett 89 flökunarvél árgerð 1986 og Baader 421 hausari í mjög góðu lagi. Fiskkaup hf., símar 11747 og 622343. KENNSLA Fiskvinnsluvélanámskeið Fiskvinnsluskólinn og Baader-þjónustan gangast fyrir eftirfarandi námskeiðum: Flatningsvélanámskeiði B-440, 15.-17. nóvember nk. Flökunarvélanámskeiði B-189, 20.-23. nóvember nk. Námskeiðin verða haldin í húsakynnum Fisk- vinnsluskólans á Hvaleyrarbraut 13, Hafnar- firði. Þátttaka tilkynnist skólanum í síma 53547. FUNDIR - MANNFA GNA ÐUR Lionsfélagar - Lionessur Þriðji samfundur starfsársins verður haldinn í Lionsheimilinu, Reykjavík, annað kvöld kl. 19.00. Húsið opnað kl. 18.30. Fjölbreytt dagskrá. - Fjölmennið. Fjölumdæmisráð. Aðalfundur knattspyrnudeildar KR Aðalfundur verður haldinn í dag, fimmtudag- inn 2. nóvember í KR-heimilinu og hefst kl. 20.30. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórn knattspyrnudeildar KR. FLUGVIRKJAFÉLAG ÍSLANDS Aðalfundur F.V.F.Í. verður haldinn í Borgartúni 22, fimmtudaginn 2. nóvember 1989 kl. 16.00. 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Breytingar á lögum F.V.F.Í. 3. Breytingar á reglugerð sjúkrasjóðs F.V.F.Í og málefni hans. 4. Kynning á samningum flugvélstjóra. 5. Önnur mál. Endurskoðaðir reikningar sjóða félagsins liggja frammi, félagsmönnum til sýnis, hjá gjaldkera félagsins, í skýli 4 á Reykjavíkur- flugvelli. _ . Stjornm. W0 21 SJÁLPSTÆDISFLOKKURINN F É I. A G S S T A R F ísrael og umheimurinn Mánudaginn 6. nóv. kl. 20.30 heldur utanríkismálanefnd SUS opinn fund í Valhöll, Háaleitisbraut 1. Ræðumaður verður Yhiel Yativ, sendi- herra ísraels á fslandi, en hann hefur aðsetur i Noregi. Sendiherr- ann mun ræða ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs og samskipti ísra- els við umheiminn. Allir áhugamenn um utanrikismál velkomnir. Utanrikismálanefnd SUS. Sjálfstæðismenn Norðurlandi vestra Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðurlandskjör- dæmi vestra verður haldinn í félagsheimilinu Víðihlíð í Vestur- Húnavatnssýslu, laugardaginn 4. og sunnudaginn 5. nóvember. Dagskrá: Laugardagur: Kl. 14.00 Setning og skipan starfsmanna. Skýrsla stjórnar: Þorgrímur Daníelsson. Umræður. Skoðanakönnun - kynning. Kl. 15.00 Grundvöllur byggðastefnu: Tómas I. Olrich. Umræður. Kl. 16.00 Hlé. Kl. 16.30 Nefndastörf. Kl. 20.00 Hátíðarkvöldverður. Veislustjóri Sigfús Jónsson. Sunnudagur: Kl. 10.00 Afgreiðsla ályktana. Kl. 12.00 Hlé. Kl. 13.00 Stjórnmálaástandið: Pálmi Jónsson. Umræður. Kl. 13.45 Frjálslynd og víðsýn umbótastefna í atvinnumálum: Vilhjálmur Egilsson. Umræður. Kl. 14.30 Umræður um skoðanakönnun og framboðsmál. Kl. 15.30 Hlé. Kl. 16.00 Kosning. Kl. 16.30 Önnur mál. Fundarslit. Athugið, að þeir sem hyggjast gista á hóteli eða óska nánari upplýs- inga, hafi samband við Júlíus í síma 95-12433. Stjórnin. Sjálfstæðismenn Hafnarfirði Skoðanakönnun vegna fyrirhugaðs prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði ferfram laugardaginn 4. nóvember milli kl. 10 og 14 í Sjálfstæðishúsinu við Strandgötu 29. Stuðningsmönnum flokksins gefst þar kostur á að tilnefna skriflega 5 nöfn í prófkjörið skv. 3. gr. reglna um prófkjör, B-lið um hugmynda- banka. Prófkjörið sjálft fer fram 2. og 3. desember og verður auglýst síðar. Kjörnefnd. Akureyri Sjálfstæðiskvennafélagið Vörn Sjálfstæðisfélag Akureyrar Sameiginlegur hádegisverðarfundur verður haldinn á Hótel KEA laugardaginn 4. nóv. kl. 12.00. Frummælandi Sigurður J. Sig- urðsson, bæjarfulltrúi. Hvað hefur áunnist? Hvert stefnir? Komandi kosningar. Almennar umræður. Félagar, mætið vel og stundvíslega. Stjórnirnar. Mosfellingar - Mosfellingar Föstudaginn 3. nóvember verður opið hús fyrir sjálfstæðismenn í Félagsheimilinu okkar i Urðarholti 4, kl. 21.00. Léttar veitingar á boðstólum. Mætum öll og skemmtum okkur. Palli mætir með gitarinn. Skemmtinefndin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.