Morgunblaðið - 02.11.1989, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. NOVEMBER 1989
23
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir RUNE TIMBERLID
Fólksflótti og félags-
leg vandamál ógna
framtíð Finnmerkur
SÍÐUSTU tíu dagana hafa 15 norskir togarar og tvö hafrann-
sóknaskip farið fram og aftur um Barentshafið til að kanna ástand
þorskstofnsins og ganga jaftiframt úr skugga um, að rétt sé með
farið í mánaðargamalli svartri skýrslu. Niðurstöður rannsóknanna
verða ekki kynntar fyrr en eftir nokkra daga en leiðangursstjór-
inn, Arvid Hyien, hefur þegar sagt, að ástandið í Barentshafi sé
eins og í eyðimörk. „Við höfúm fúndið svo lítinn fisk, að það
munu líða mörg ár áður en við náum aftur kvótanum á þessu
ári, 300.000 tonnum. 100.000 tonn eru hámarkið eitthvað fram
eftir næsta áratug.“
A
Astand fiskstofnanna í Bar-
entshafi kemur eins og reið-
arslag yfir íbúa Norður-Noregs
og sérstaklega Finnmerkur. Á
stríðsárunum lögðu Þjóðveijar
þennan landshluta að mestu í eyði
en uppbyggingin síðan og allt
mannlífið þar hefur hvílt á þorsk-
inum, veiðunum og vinnslunni í
landi. Heita má, að kreppan í
Finnmörku sé algjör. Á fáum
árum hafa 10.000 manns flust
þaðan og þeim, sem eftir eru, um
70.000 manns, fækkar dag frá
degi. Margir hafa sest að í bæjun-
um sunnar í Norður-Noregi en
langflestir fara til Suður-Noregs,
2.000 km sunnar. Þá er einnig
nokkuð um, að fólk hafi freistað
gæfunnar í Norður-Svíþjóð og
Norður-Finnlandi.
Gjaldþrot og félagslegir
erfiðleikar
Um alla Finnmörku standa
fiskvinnslustöðvarnar auðar og
yfirgefnar og víða er næstum
átakanlegt að sjá hvernig allt
drabbast niður. ■ Afleiðingarnar
láta heldur ekki á sér standa fyr-
ir þá, sem enn búa á þessu stöðum
og hafa ekkert fyrir stafni, og
birtast í stórauknum, félagslegum
vandamálum. Um 20% bátseig-
enda horfast í augu við gjaldþrot
og lánastofnanir hafa að sjálf-
sögðu ekki farið varhluta af erfið-
leikunum. Fyrir skömmu var
stærsti bankinn í landshlutanum,
Sparebanken Nord-Norge, í raun
gjaldþrota en var bjargað með
opinberum fjárframlögum upp á
tvo milljarða nkr. eða sem svarar
til 18 milljarða ísl. kr.
Grundvöllurinn er
brostinn
Ríkisstjórnin gerir sér fulla
grein fyrir ástandinu í Norður-
Noregi en virðist samt ekki fá
neitt að gert. Að vísu hefur verið
reynt að grípa til ýmissa aðgerða
en þær eiga það allar sameigin-
legt, að þær breyta engu um, að
það er sjálfur grundvöllur byggð-
arinnar, sem er brostinn - þors-
kveiðarnar eru að mestu liðin tíð
um ófyrirsjáanlegan tíma. Jan P.
Syse forsætisráðherra þykir þó
hafa brugðist rétt við með því að
skipa sérstakan mann til að fást
við vandamálin í Norður-Noregi.
Heitir hann Odd Richard Olsen,
42 ára gamall ritstjóri frá Kirke-
nes, og er settur undir Petter
Thommassen atvinnumálaráð-
herra, sem er einnig Norðlending-
ur.
Sjálfstætt efiiahagssvæði
og skattalækkanir
„Það verður ekki auðvelt verk
að bjarga Norður-Noregi. Við
ætlum að gera Finnmörk, Troms
og Norðland að sjálfstæðu efna-
hagssvæði og lækka almenna
skatta þar verulega í von um, að
fólk vilji þá heldur vera um kyrrt.
Hugsanlega verður það líka til,
að einhvetjir flytjist aftur norð-
ur,“ segir Odd Richard.
Á morgun ætla fylkisþingin
þtjú í Norður-Noregi að halda
sameiginlegan fund í fyrsta sinn.
Verður hann í Tromsö og ein-
göngu rætt um hvað er til ráða.
Er helst búist við kröfum um, að
Norðlendingar fái aðgang að
fiskimiðum úti fyrir öðrum lands-
hlutum og einnig, að þeim verði
leyft að flytja inn fisk til að halda
vinnslunni gangandi að einhvetju
leyti.
Rányrkjan hefiiir sín
Norskir fiskifræðingar segja,
að mikil ofveiði á þorski og loðnu
og meðfylgjandi fæðuskortur hafi
valdið hruninu í Barentshafi og
deila um leið hart á norska sjó-
menn. Segja þeir, að aðeins á
árinu 1987 hafi sjómennirnir kast-
að útbyrðis smáþorski, sem hefði
gefið 80.000 tonna afla hefði hann
fengið að vaxa upp. Norsku sjó-
mennirnir vilja aftur á móti kenna
rányrkju Sovétmanna um og virð-
ast hafa margt til síns máls í því
ef marka má yfirlýsingar sovéska
vísindamannsins Gúennadíjs
Matísjovs fyrir nokkrum dögum.
Hann sagði á ráðstefnu í Björgvin
um fiskveiðar og olíuvinnslu á
hafi úti, að veiðar Sovétmanna í
Barentshafi hefðu verið miklu
meiri en opinberlega væri gefið
upp.
Þegar atvinnan hverfur tekur
sinnuleysið við en nýlega lifnaði
þó heldur betur yfir sjómönnunum
á Finnmörku. Firðirnir fylltust
skyndilega af síld og sáu þá marg-
ir fyrir sér skjóttekinn pening.
Það kom hins vegar í ljós, að í
landi voru engar stöðvar,_sem
gátu eða vildu taka við aflanum,
og eina úrræðið var að sigla með
hann alla leið suður til Vestur-
landsins. Þá voru líka veiðarnar
löngu hættar að borga sig.
Koma aðrar þjóðir til
hjálpar?
Ástandið í Finnmörku hefur
vakið athygli langt út fyrir Noreg.
Nýlega voru þar á ferð starfsmenn
vestur-þýsku sjónvarpsstöðvar-
innar ADN og í þætti, sem þeir
gerðu um kreppuna, segja þeir,
að það ætti að vera samevrópskt
verkefni að bjarga Finnmörku frá
því að fara í eyði.
Það er alls ekki ólíklegt, að
Norðmenn þurfi á utanaðkomandi
hjálp að halda við að leysa þennan
vanda. Sem stendur bendir ekkert
til, að þróuninni verði snúið við á
næstu árum, jafnvel ekki þótt
nefnd, sem skipuð var af ríkis-
stjórn Gro Harlem Brundtland,
eigi að skila af sér tillögum til
lausnar kreppunni í 'Norður-
Noregi eftir hálfan mánuð.
Höfundur er fréttaritari
Morgunblaðsins í Noregi
Náttúran er víða stórbrotin í Norður-Noregi en mannfólkið lif-
ir ekki bara á fagurri íjallasýn.
Ármúla 29 símar 38640 - 686100
k Þ0BGRÍMSS0N & C0
Armstrong LDFTAPLDTUR
KQRKDPLAST GÓLFFLÍSAR
Warmaplast einangrun
GLERULL STEINULL
LAUSBLAÐA-
MÖPPUR
írá Múlalundi...
... þær duga sem besta bók.
Múlalundur
Sl E M E NS -<jaeð/
STÓRGLÆSILEG
NÝ ÞVOTTAVÉL
FRÁ SIEMENS!
Enn á ný rydur Siemens brautina í þróun
og hönnun heimilistækja.
( þetta skiptið með nýrri þvottavél, sem slegið hefur í
gegn og mun vafalaust verða öðrum þvottavélaframleið-
endum fyrirmynd, því að hér er á ferðinni sannkölluð
tímamótavél í hönnun og notkun tölvustýribúnaðar, sem
býður upp á nýja og betri þvottaaðferð en áður hefur
þekkst.
Mikil fjölbreytni í þvottakerfum, þeytivinding í áföngum og
þrír mismunandi vinduhraðar skapa nánast óendanlegt
svigrúm fyrir allan þvott, sérhvert óhreinindastig hans og
þann hámarkshita sem hann þolir.
Sjálfvirkur magnskynjari skammtar vatn inn á véiina
í samræmi við magn og gerð þvottar og það kerfi sem er
í gangi og aðlagar þannig vatnsnotkunina sjálfkrafa því
sem þvegið er.
Sérþróuð þvottatromla með þremur áfösturrf vatns-
hripum heldur vatninu á stöðugri
hreyfingu og tryggir þannig jafnt
gegnumstreymi á vatni um
þvottinn. Þessi nýjung sér til
þess að þvotturinn fær bestu
hugsanlegu meðhöndlun.
SIWAMAT PLUS 4200 uppfyllir allar ítrustu kröfur og
óskir sem gerðar eru til þvottavéla nú á dögum. Hún er
mjög þægileg í notkun með aðgengilegt, upplýst
stjórnborð. ítarlegur leiðarvísir á íslensku og greinargóð
tafla yfir öll möguleg þvottakerfi vélarinnar fylgja með.
Þær miklu gæðakröfur sem gerðar voru við þróun hennar
og framleiðslu tryggja auk þess auðvelt viðhald og langa
endingu.
Gæði á gæði ofan frá SIEMENS
SMITH&
NORLAND