Morgunblaðið - 02.11.1989, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2* NOVEMBUR 1989'
7
Verðlækkun á dilkakjöti:
Um 800 tonn af eldra
kjöti á tilboðsverði
GERT er ráð fyrir að um 800 tonn af birgðum dilkakjöts frá haust-
inu 1988 fari á neytendamarkað í þessum mánuði á sérstöku tilboðs-
verði, en alls eru birgðirnar nálægt 2.000 tonnum. Sala á lambakjöti
á lágmarksverði í pokum hefst væntanlega fyrir helgina, en sala á
kjöti í lakari ílokkum hófst til verslana og kjötvinnslna í gær.
Að sögn Þórhalls Arasonar, á sama hátt og kjöt sem selt var á
starfsmanns samstarfshóps um sölu tilboðsverði í sumar. í pokunum
lambakjöts, verður kjöt í úrvals-
flokki eingöngu boðið í pokum með
'A skrokkum, en kjötið verður snyrt
\
Þrýstipróf-
un Nesja-
vallaæðar
lokið
ÞRÝSTIPRÓFUN við Nesjavall-
aræð er nú lokið og hún tilbúin
til notkunar. Hún er 27,2 km að
lengd og um 900 millimetrar að
þvermáli. Þegar Nesjavallar-
virkjun er tilbúin er áætlað að
æðin geti flutt um 1.860 lítra af
85 gráðu heitu vatni á sekúndu.
Heildarkostnaður við æðina er
um 1.700 milljónir króna.
Gunnar Sverrisson, eftirlitsfull-
trúi Hitaveitunar, sagði að fram-
kvæmdum við æðina myndi ljúka
næsta sumar. Eftir er að ganga frá
klæðningu og reisa vatnsgeyma en
fjórir verktakar hafa haft umsjón
með verkinu.
Fyrsta áfanga Nesjavallarvirkj-
unar lýkur á næsta ári og mun hún
þá verða um 100 megavött og
flytja um 570 Íítra á sekúndu. Þeg-
ar henni er að fullu lokið mun afl
hennar verða um 300 megavött,
1.860 lítrar á sekúndu, sem eykur
afl Hitaveitunar um 60%.
Fiskiðjan Freyja:
Vantar 20 millj-
ónir af 55
STJÓRN Fiskiðjunnar Freyju
hefur tekist að safha 35 milljón-
um af þeim 55 milljónum sem
fyrirtækinu ber að safna til móts
við framlag Hlutafjársjóðs. Sjóð-
urinn leggur fram 96,5 milljónir
króna gegn því að Freyja leggi
fram 55 milljónir, en frestur sem
fyrirtækið hefur til þess er til
6. nóvember.
Sveitarfélagið mun ieggja fram
25 milljónir sem felst í því að skuld
er breytt í hlutafé. SÍS mun á sama
hátt leggja fram 10 milljónir.
„Við leggjum það fram sem við
hefðum líklega tapað. Að okkar
mati var þetta skuld sem hefði
verið erfitt að innheimta, og þessi
kostur mun betri en gjaldþrot
verður súpukjöt, 14 hryggur, heill
eftir endilöngu, grillrif og heilt læri.
Hver poki vegur að meðaltali um
Freyju,“ sagði Sveinbjörn Jónsson,
hreppstjóri á Suðureyri.
Rannver Eðvarðsson, skrifstofu-
stjóri Freyju, sagði að unnið væri
að því að afla þeirra 20 milljóna
sem vantaði upp á hjá einstakling-
um á Suðureyri, en hann sagðist
ekki eiga von á því að önnur fyrir-
tæki legðu fram hlutafé.
Mál Magnúsar Thor-
oddsen:
Málflutningur
fyrir Hæstarétti
ákveðinn
ÁKVEÐIÐ hefiir verið að mál-
flutningur fyrir Hæstarétti í
máli dómsmálaráðherra gegn
Magnúsi Thoroddsen, hæstarétt-
ardómara, hefjist að morgni 23.
nóvember nk.
Málið var tekið fyrir í Hæsta-
rétti í gær af þremur dómurum úr
sérskipuðum rétti í málinu, þeim
Gunnari Guðmundssyni, Jóni
Finnssyni og Sigurði Reyni Péturs-
syni. Lagðar voru fram greinar-
gerðir í málinu og að því loknu
veittur frestur, en málflutningur
ákveðinn þann 23. nóvember
klukkan 9.30.
Starfsmannafélag
Búnaðarbankans:
Vill bankastjóra
úr röðum starfs-
• fólks
Starfsmannafélag Búnaðar-
bankans hefiir sent bankaráði
skeyti þar sem það er hvatt til
að ráða bankastjóra úr röðum
starfsfólks. Úlfar Indriðason,
formaður starfsmannafélags
Búnaðarbankans, sagði að það
væri mjög mikilvægt að banka-
maður yrði ráðinn til að sýna
að hægt sé að vinna sig upp inn-
an bankans.
„Ef ráðinn verður maður utan
bankans þá munum við mótmæla.
Okkur finnst það ekki nema eðli-
iegt að bankastjóri komi úr röðum
starfsfólks,“ sagði Úlfar lndriða-
son.
IBM á íslandi:
Greiða 6% til við-
bótar í lífeyrissjóð
IBM á íslandi hefiir ákveðið að greiða starfsmönnum sínum 6% við-
bót við venjulegar lífeyrisgreiðslur. Fyrirtækið hefur gcrt samning
við Frjálsa lífeyrissjóðin hjá Fjárfestingarfélaginu og mun frá árs-
byrjun 1990 greiða öllum starfsmönnum sínum þessa viðbót.
í nýjasta tölublaði Fjármála,
mánaðarrits Fjárfestingafélagsins,
er sagt frá þessum samningi sem
mun vera sá fyrsti sinnar tegundar
hér á landi. Tekið er dæmi um
mann sem vinnur hjá fyrirtækinu í
25 ár og hefur að jafnaði 120.000
kr. í mánaðarlaun. Það þýðir að
hann á um 5 milljónir króna í auka-
líféyrissjóði þegar hann lætur af
störfum, miðað við 6% raunávöxt-
un.
Strætisvagnar Reykjavíkur munu á næstunni fá tengigötu milli Skóg-
arhlíðar og Bústaðavegar og verður fjarstýrt hlið sett upp í götunni
sem hindrar alla aðra umferð.
Ný tenging milli Skógar-
hlíðar og Bústaðavegar
Fjarstýrt hlið sett upp fyrir SVR
6,5 kíló, og verður smásöluverðið
428 kr./kg, en verðlækkunin í smá-
sölu nemur um 16%.
Kjöt úr Dl-A-flokki verður seltí
14 skrokkum beint til verslana og
kjötvinnslna á 5% lægra verði, og
eiga því neytendur að eiga von á
að geta fengið þetta kjöt á lægra
verði í verslunum en verið hefur,
hvort sem það verður keypt í h
skrokkum eða í smærri einingum.
Framhryggir, læri og sérskomir
hryggir úr Dl-B og C-flokki verða
settir á markað eftir að hafa verið
snyrtir sérstaklega.
Verðlækkun þessari lýkur í lok
þessa mánaðar en þá verður hætt
að selja kjöt á þessum kjörum til
verslana, jafnvel þó eitthvað af því
verði eftir.
„Markmiðið með þessari verð-
lækkun er að kjöt af nýslátruðu
verði allsráðandi á markaðnum fyrr
en verið hefur í langan tíma, en
birgðir af eldra kjöti eru nú um
fimmtungi minni en á sama tíma í
fyrra. Samstarfshópurinn vinnur
síðan að áframhaldandi markaðs-
setningu á lambakjöti á lágmarks-
verði, og miðast það við að vera
með stöðugt framboð á kjöti á lág-
marksverði með mismunandi niður-
hlutun eftir árstíðum," sagði Þór-
hailur.
BORGARRÁÐ hefiir samþykkt
að lögð verði gata er tengir
Skógarhlíð og nýja Bústaðaveg-
inn og verður hún eingöngu
ætluð Strætisvögnum
Reykjavíkur. í götunni verður
sett upp fjarstýrt hlið er virkar
eins og fjarstýrðar bílskúrs-
hurðir.
Að sögn Sveins Björnssonar for-
stjóra SVR, var ákveðið að leggja
götuna eftir að Miklatorg var lagt
niður og ljósin voru sett upp á
gatnamótum Miklubrautar og Bú-
staðavegar. Vagnar sem aka niður
Eskihlíð á vesturleið mun þá taka
á sig krók upp Skógarhlíð að nýju
götunni, sem lögð verður á milli
húss Krabbameinsfélagsins og
Sölufélags garðyrkjumanna.
„Önnur umferð en strætisvagna
á ekki að fara þarna um og væri
slæmt ef svo færi því þá bætist
við enn einn innáakstur á Bústaða-
veginn,“ sagði Sveinn. „Ef þessi
tilraun gefst vel þá mætti vel hugsa
sér að setja hliðin víðar upp. Miðað
við önnur löndær lítið um að hér
hafi almenningsvagnar forgang. Á
síðustu árum hefur umferðarljós-
um ijölgað og komnar eru upp-
hækkanir, með þeim afleiðingum
að , ferðatíðni vagnanna hefur
lengst en það er eitur í béinum
farþega og góðrar þjónustu. Þann-
ig að ef hægt er að stytta leiðirnar
hér og þar þá er það til mjög til
bóta.“
ENDURNÝJAÐU NÚNA
NÝTTU ÞÉR KYNNINGARTILBOÐie Á
_ b ■ MMM M
úamixa BLONDUNARTÆKJUNUM
III
ARCHITECT LINE ►
Stíll og stöðugleiki
Afsl. 10%
4 ARCHITECT LINE
Áleá útdraganlegum barka
Afsl. 10%
50LÍNAN
Best i eingripstækjum
Afsl. 10%
30LÍNAN
Einföld og ódýr
Áður kr. 2.428,- Nú kr. 2.185,-
Útsöluabilar: Járn&Skip Keflavík
KÁ Byggingavörur, Selfossi
Byggingavörur, Hornafirði
COSMOLINE
Það allra nýjasta i bönnun
Áður kr. 9.765,- Nú kr. 8.789,-
20LÍNAN
Sígild og örugg
Áður kr. 7.001 r
Nú kr. 5.951,-
iMtÍ
I iilt II ll#l -f I f lifi iliffiililifMMIÍI
C lYllfffHillff-lfHfffll