Morgunblaðið - 02.11.1989, Qupperneq 29
t.v.<M 2 mi.)/<i in«i'. tiijiMmij;rioM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1989
Misstu bíl niður um
ís nærri Urðarhálsi
Mývatnssveit.
FERÐALANGAR úr Mývatnssveit lentu í töluverðum hrakning-um
við Urðarháls um síðustu helgi. Þeir voru á ferð á þremur bílum
úr Mývatnssveit í Kistufell til að búa þar skála undir veturinn, er
einn bilanna fór niður um ís á um meters djúpu lóni. Langan tíma
í miklu frosti tók að ná bílnum upp og þurfti meðal annars að fá
flugvél úr Mývatnssveit til að fljúga suður eftir með olíu á drif og
gírkassa bílsins. Engin slys urðu á fólki.
Síðastliðinn föstudag fqru 10
manns héðan úr Mývatnssveit á
þremur bílum suður í Kistufell.
Lagt var af stað klukkan 15. Þegar
komið var suður í Grafarlönd,
fannst slóð eftir eitt lamb. Var þá
haft talsímasamband við Mývatns-
sveit og látið vita um slóðina. Þess
má svo geta að lambið var sótt á
laugardagsmorgun og flutt til
byggða. Þegar komið var suður
fyrir Dyngjufjöll fór snjór vaxandi.
Kiukkan 23.00 um kvöldið var
ferðafólkið státt við Urðarháls, far-
ið var milli hálsins og jökulsins.
Skyndilega fór fremsti bílinn niður
um ís á lóni, þar sem vatnið var
um einn metri á dýpt. Vitað var
um þetta lón, en álitið af fyrri
reynslu að það þornaði upp á haust-
in.
' Frá Urðarhálsi að skálanum í
Kistufelli eru um 8 kílómetrar. Þeg-
ar séð varð að bílnum yrði ekki náð
upp úr lóninu nema á löngum tíma,
var farið á einum bílnum með sumt
af fólkinu í Kistufell. Nokkru síðar
fór annar bíll á eftir í skálann. Var
þá ökumaður bílsins, sem fastur var
Mælskukeppni
ITC á Selfossi
MÆLSKU- og rökræðukeppni III
ráðs ITC á ísiandi verður haldin
sunnudaginn 5. nóvember klukk-
an 14, í Arsölum Hótel Selfossi.
ITC Seljur, Selfossi mæla með
þeirri tillögu að „aldrei verði fluttar
erlendar landbúnaðarvörur til ís-
lands“. ITC Stjarna, Rangárþingi
mælir gegn tillögunni. Öllum er
heimill aðgangur.
í lóninu, einn eftir. Reyndi hann að
halda bílnum í gangi, því frost var
þarna um 18,5 stig. Þeir, sem
komnir voru í skálann gripu til þess
ráðs, að rífa pall, sem var um-
hverfis húsið, og nota timbrið til
að ná upp bílnum. Klukkan 4 um
nóttina komu þeir með timbrið á
slysstað og hófust þá þegar björg-
unaraðgerðir. Klukkan 8 á laugar-
dagsmorgun náðist bílinn upp. Virt-
ist þá miklu fargi létt af ferðafólk-
inu. Síðan var haldið í skálann og
var mörgum orðið mál á hvíld og
einhverri hressingu.
Óttast var að vatn myndi hafa
komist í drif og gírkassa á bílnum,
sem í lónið fór, og myndi því þurfa
að skipta um olíuna, sem að vísu
var ekki með í ferðinni. Var nú
haft talsamband við Mývatnssveit
og óskað eftir að send yrði flugvél
með olíu suður í Kistufell. Þetta
gekk allt, Hörður Sigurbjarnarson
flaug á kennsluvél frá Mýflugi með
olíu og varpaði henni niður við skál-
ann. Nú vænkaðist hagur fólksins
verulega og átti það góða sunnu-
dagsnótt í skálanum. Snemma á
sunnudagsmorgun var farið að búa
bílana undir heimferð. Erfitt reynd-
ist að gangsetja þá, enda frostið
um 20 stig. Varð að kynda með
gasi undir þeim og þýða með heitu
vatni. Að lokum tókst það þó. Lagt
var af stað heimleiðis upp úr há-
degi og gekk ferðin vel. Heimn var
komið klukkan 20.00 um kvöldið.
Megintilgangur með þessari ferð
var að ganga frá skálanum í Kistu-
felli og búa hann undir vetur. Eins
og áður hefur komið fram tókst
ekki að vinna það verk 29. septem-
ber síðastliðinn vegna veðurofsa.
Kristján
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 1. nóvember.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 68,00 66,00 67,69 3,525 238.623
Ýsa 88,00 55,00 70,21 9,688 680.178
Karfi 35,00 32,00 33,88 30,350 1.028.419
Ufsi 29,00 29,00 29,00 0,329 9.535
Steinbítur 73,00 55,00 61,31 7,315 448.462
Langa 40,00 37,00 39,50 1,708 67.461
Lúða 240,00 120,00 153,41 0,216 33.144
Koli 57,00 57,00 57,00 0,735 41.867
Keila 23,00 23,00 23,00 0,255 5.865
Skata 99,00 99,00 99,00 0,032 3.168
Skötuselur 125,00 125,00 125,00 0,059 7.375
Samtals 47,30 54,211 2.564.097
Selt var meðal annars úr Elínu Þorbjarnardóttur ÍS. I dag verð-
ur selt óákveðið magn af blönduðum afla úr bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 79,00 60,00 61,74 24,231 1.495.980
Þorskur(1-3n.) 40,00 40,00 40,00 0,530 21.200
Ysa 86,00 35,00 67,06 6,968 467.253
Ýsa(1-3n.) 57,00 57,00 57,00 0,096 5.472
Ýsa(umál) 25,00 25,00 25,00 0,460 11.500
Karfi 33,00 29,00 32,00 31,156 997.063
Ufsi 28,00 20,00 24,92 34,439 858.310
Ufsi(umál) 10,00 10,00 10,00 0,015 150
Steinbítur 39,00 39,00 39,00 0,030 1.170
Hlýri 37,00 37,00 37,00 0,618 22.866
Hlýri+steinb. 39,00 37,00 37,17 2,541 94.429
Langa+blál. 39,00 33,00 37,87 1,417 53.661
Lúða(milli) 220,00 220,00 220,00 0,058 12.760
Lúða(smá) 195,00 195,00 195,00 0,112 21.840
Skarkoli 31,00 31,00 31,00 1,027 31.837
Keila 22,00 22,00 22,00 0,499 10.978
Skötubörð 130,00 130,00 130,00 0,048 6.240
Samtals 39,45 104,244 4.112.709
I dag verða meðal annars seld 35 tonn af þorski, 7 tonn af ýsu,
35 tonn af karfa og 8 tonn af ufsa úr Margréti EA og Ásgeiri RE.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 61,00 32,00 40,11 7,375 295.819
Ýsa 89,00 30,00 71,33 2,472 176.326
Ufsi 33,50 10,00 25,67 0,600 15.400
Steinbítur 41,00 41,00 41,00 0,023 943
Langa 41,00 39,00 39,98 0,912 36.466
Lúða 275,00 70,00 204,88 0,022 4.405
Skarkoli 36,00 36,00 36,00 0,230 8.280
Skötuselur 300,00 102,00 148,89 0,038 5.658
Blandað 15,00 15,00 15,00 0,100 1.500
Samtals 46,28 11,772 544.797
í dag verður selt óákveðið magn af blönduðum afla úr línu- og
netabátum, meðal annars Búrfelli KE og Víkingi III. JS.
Minningar-
sjóður
Ragnars H.
Ragnar
ÁRIÐ 1988 var stofnaður Minn-
ingarsjóður Ragnars H. Ragnar
í tileftii af því að hann hefði orð-
ið 90 ára þann 28. september það
Einnig átti Tónlistarskóli ísa-
fjarðar 40 ára starfsafmæli þann
10. október sama ár.
Nú hafa verið gefin út minning-
arkort og eru þau til sölu á eftirt-
öldum stöðum: Tónlistarskólanum
ísafirði, hjá Jónínu Einarsdóttur,
ísafirði, hjá Hildi Ásvaldsdóttur,
Gautlöndum, Mývatnssveit, í Bóka-
búð Jónasar, Akureyri, í Bókabúð-
inni Borg, Lækjargötu 2,
Reykjavík.
Minningarsjóðurinn var stofnað-
ur innan Styrktarsjóðs húsbygg-
ingar Tónlistarskóla á ísafirði en
þau samtök stofnuðu konur á
Isafirði fyrir áeggjan Ragnars. Til-
gangur Styrktarsjóðsins er að veita
Tónlistarfélagi ísafjarðar íjárhags-
legan stuðning við byggingu skóla-
húss fyrir Tónlistarskóla Isafjarð-
Mynd Kristjáns af Fremri-Hálsi í Kjós.
Eftirprentanir af
Fremri-Hálsi í
Kjós
Eftirprentanir hafa verið
gerðar af mynd Kristjáns Fr.
Guðmundssonar af Fremri-Hálsi
í Kjós. Myndirnar eru til sölu í
Innrömmun Siguijóns í Ármúla
22.
Bjartmar Guðlaugsson heldur
tónleika í Vitanum Sandgerði í
kvöld klukkan 22.
Bjartmar með
tónleika
BJARTMAR Guðlaugsson lield-
ur tónleika í Vitanum, Sandgerði
í kvöld fimmtudagskvöld og
byrja tónleikarnir klukkan 22.
Laugardagskvöldið 4. nóvember
veður Bjartmar í Broadway á opun-
arkvöldi Reykjavíkurborgar á hús-
inu. Klukkan 23 sama kvöld heldur
hann tónleika í Ilótel Borgarnesi.
Á þessum tónleikum mun hann
m.a. flytja lög af væntanlegri
hljómplötu sinni „Það er puð að
vera strákur".
80 ára aímælis-
hófDagsbrúnar
Ungmennafélagið Dagsbrún í
Austur-Landeyjum á 80 ára af-
mæli um þessar mundir, en
stoftidagur félagsins var 23.
október 1909.
Félagið minnist þessara tíma-
móta með hófi í Gunnarshólma
laugardagskvöld 11. nóvember og
hefst það kl. 21.
Þangað eru íbúar Austur-Land-
eyjahrepps velkomnir, svo og allir
fyrrverandi og núverandi félagar í
Dagsbrún ásamt mökum sínum.
Þátttaka óskast tilkynnt fyrir
6. nóvember.
Blúshátíð á
Hótel Borg
VINIR DÓRA halda blúshátíð á
Hótel Borg fimmtudagskvöldið
2. nóvember. Hátíðin hefst
klukkan 22.
Vinir Dóra skipa Halldór Braga-
son, Jens Hansson, Hjörtur Hows-
er, Ásgeir Óskarsson, Guðmundur
Pétursson og Hafsteinn Hafsteins-
son. Gestir þeirra verða Andrea
Gylfadóttir, Mickey Dean, Bubbi
Morthens, Haraldur Þorsteinsson,
Björgvin Gíslason, Pétur Hjalt-
ested, Tregasveitin og Sigurður
Bjömsson trúbador.
Flúðaskóli 60
ára
Syðra-Langholti.
FLÚÐASKÓLI í Hrunamanna-
hreppi verður 60 ára á fostudag-
inn 3. nóvember. Af því tilefiii
verður opið hús í skólanum á
milli kl. 11 og 14.30. Allir eldri
nemendur og velunnarar
skólans eru hjartanlega vel-
komnir. Kaffiveitingar.
Nemendur hafa unnið að sam-
eiginlegu verkefni um heimabyggð-
ina. Þá verða til sýnis myndir, kort
og líkön. Nemendur við Flúðaskóla
eru nú 137 í átta bekkjadeildum.
Kennarar eru' 14 en sumir þeirra
eru ekki í fullu starfi. Skólastjóri
er Bjarni H. Ansnes.
Leiðrétting
Vegna fréttar í Morgunblaðinu,
þriðjudaginn 31. október, um stofn-
un fyrirtækis í Ungveijalandi með
íslenskri eignaraðild vildum við að
fá að koma að smá leiðréttingu.
í fyrsta lagi þá er ekki búið að
stofna fyrirtækið. Það verður gert
formlega næstkomandi föstudag í
tengslum við heimsókn Jóns B.
Hannibalssonar, utanríkisráðherra
til Ungveijalands.
í öðru lagi þá eru íslensku eign-
araðilarnir tveir þ.e. Virkir-Orkint
sem mun eiga 25% og Þróunarfélag
íslands sem mun eiga 25% hluta-
fiár.
Með vinsemd,
Gunnlaugur M. Sigmundsson.
Úr myndinni „Stöð sex 2“ sem
sýnd er nú í Iláskólabíói.
Háskólabíó:
Úr myndinni „Náin kynni“ sem
sýnd er í Bíóborginni.
Bíóborgin sýnir
„Náin kynni“
BIOBORGIN sýnir um þessar
mundir myndina „Náin kynni“
með Dennis Quaid, Jessica
Lange og Timothy Hutton meðal
aðalleikara. Leikstjóri er Tyler
Hedford.
Gavin Grey þykir slyngur knatt-
spyrnumaður, svo góður að hann
er kallaður „Grái svipurinn". Meðal
aðdáenda hans er kaupsýslumaður
að nafni Kiely. Hann vill nota nafn
Greys í auglýsingaskyni en Grey
hefur megna óbeit á slíku. Það
tekst þó að lokum samkomulag
milli þeirra og Kiely rekur veitinga-
hús með nafni hans. Babs, kona
Greys, vinnur á veitingahúsínu en
Kiely er óánægður með störf henn-
ar þar og Grey sér sér ekki vænna
en að draga sig út úr rekstrinum.
„Stöð sex 2“
Háskólabíó hefur tekið til sýn-
inga myndina „Stöð sex 2“ með
A1 Yankovic og Victoria Jackson
í aðalhlutverkum. Leikstjóri er
Jay Levey og tónlist er eftir John
Du Prez.
Gjaldþrota bæjarsjónvarpsstöð
kemur óvænt upp í hendurnar á
George Newman og honum falið
að stýra henni. Það er við ramman
reip að draga þar sem er
R.J.Fletcher eigandi og fram-
kvæmdastjóri aðalstöðvar bæjar-
ins. Þegar stöð sex 2 nýtur meiri
vinsælda líst honum ekki á blik-
una. En vinsældum stöðvarinnar
má þakka óvæntum hæfileikum
Stanley Spadwoski sem sjónvarps-
manns, en hann var áður húsvörður
sem rekinn var af stöð 8. Þar með
hefst grimm samkeppni milli stöðv-
anna tveggja.
Reiknilíkan um
mjólkurvinnslu
í dag, fimmtudaginn 2. nóvem-
ber, munu Hólmgeir Karlsson
hjá Mjólkurbúi KEA og Helgi
Sigvaldason ráðgjafaverkfræð-
ingur kynna reiknilíkan sem var
unnið lyrir Afúrðastöðvanefnd.
Reiknilíkanið var notað til þess
að finna hagstæðustu vörusam-
setningu hvers mjólkurbús og áhrif
fækkunar þeirra á rekstrarafkomu
iðnaðarins í heild. Niðurstöður
mæla með fækkun mjólkurbúa úr
17 í 10 og ef til vill í 8 í framtíð-
inni segir í fréttatilkynningu frá
Aðgerðarannsóknafélagi íslands.
Fundarstaður er Oddi, hugvís-
indahús Háskólans við Suðurgötu,
og hefst hann stundvíslega kl.
17.15 í stofu 101.
Smekkleysu-
kvöld í Kjallara
keisarans
Fimmtudagskvöldið 2. nóvem-
ber, efhir Smekkleysa Ál/t til
skemmtikvölds í veitíngahúsinu
Kjallari keisarans á Laugavegi
116 kl. 23. Þar koma fram
þungarokksveitin Bootlegs og
hljómsveitin Ham.
Tilefni skemmtikvöldsins er út-
gáfa Smekkleysu á nýrri hljóm-
plötu Bootlegs og nýlokinni hljóm-
leikaferð Ham um Bretlandseyjar
í fylgd með Sykurmolunum. Ham
hafa einnig sent frá sér nýja
breiðskífu sem útgáfufyrirtæki
Sykurmolanna, One Little Indian í
Bretlandi gefur út.