Morgunblaðið - 02.11.1989, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1989
Súsanna Páls-
dóttir — Minning
Fædd 16. júlí 1906
Dáin 26. október 1989
í dag kveðjum við okkar hjart-
kæru móðursystur Súsönnu Páls-
dóttur.
Á kveðjustund ' sem þessari er
ekki laust við að ljúfsárar minning-
ar sæki að hjá systrunum.
Að okkur finnist stórt skarð
höggvið þegar elsku Súsönnu
frænku nýtur ekki lengur við.
Hun reyndist okkur ómetanlegur
vinur þegar við stóðum uppi móður-
laus ung börn.
Til hennar gátum við alltaf leitað
bæði í sorg og í gleði. Hún gaf sér
alltaf tíma til að hlusta ef okkur lá
eitthvað á hjarta, og hún hafði allt-
af svör á reiðum höndum.
Hun var hafsjór af fróðleik til
hennar var alltaf bæði gott og gam-
an að koma.
Við þökkum henni líka hvað hún
var alltaf hugulsöm og góð við syst-
ur okkar, Margréti, sem hefur verið
vistmaður á Skáiatúni frá því að
móðir okkar dó. í hjarta sínu geym-
ir hún minningu um kærleiksríka
frænku.
Elsku Lárus, Alla, Unnur og Iris,
okkar innilegustu samúðarkveðjur
á þessari sorgarstundu.
Við minnumst frænku með þökk
og virðingu.
Blessuð sé minning hennar.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Bára og Fjóla Pálmadætur
í dag verður til moldar borin frá
Fossvogskirkju, frú Súsanna Mag-
dal Pálsdóttir, Hverfisgötu 73, en.
____________Brids________________
Amór Ragnarsson
Vetrarspilamennska
Sunnudaginn 29. október sl. fór fram
fyrsta vetrarspilamennska Bridssam-
bandsins, sem spiluð er með sama sniði
og sumarspilamennska BSÍ. Áætlað er
að spiluð verði vetrarspilamennska í
húsakynnum Bridssambandsins að
Sigtúni 9 alla þá sunnudaga sem húsið
er laust. Húsið er opnað klukkan 13.00,
og spilamennska hefst um leið og riðlar
fyllast. Keppnisstjóri á sunnudögum er
Ragnar Magnússon. Á fyrsta degi
mættu aðeins 10 pör til leiks, og efstu
skor hlutu:
ísak ð. Sigurðsson - SigurðurB. Þorsteinsson 132
HallgrimurHallgrímsson-GuðniHallgrímsson 114
Guðjón Jónsson - Guðlaugur Sveinsson 113
Meðalskor var 108. Spilarar eru
hvattir til að mæta, og eru allir vel-
komnir á meðan húsrúm leyfir.
Parabrids
Skráning stendur nú sem hæst í
parabridsmótið sem haldið verður verð-
ur laugardaginn 18. nóvember í Sig-
túni 9. Spilaður er barómeter, hámark
42 pör. Verðlaun eru glæsileg, 80 þús.
fyrir fyrsta sætið, 50 þús. fyrir annað,
30 þús. fyrir þriðja og 15 þús. fyrir
fjórða sætið. Helmingur verðlauna eru
hrein peningaverðlaun, hinn helming-
urinn eru persónulegir munir til herr-
ans og dömunnar. Skráning á mótið er
í síma Bridssambandsins (ísak, sími
689360).
Stofnanakeppni BSI
Stofnanakeppni BSÍ fer fram dag-
ana 7., 12. 14. nóvember nk. Þátttöku-
skilyrði í þetta mót hafa verið rýmkuð.
Þátttökurétt í stofnanakeppni BSÍ
1989 liafa hvers kyns hópar, stofnanir
og félög, og gefur augaleið að flestir
geta verið með ef þeir á annað borð
hafa áhuga. Spiluð verður sveita-
keppni, allir við alla, nema þátttaka
verði mjög mikil, en þá verður spiluð
sveitakeppni með Monradsniði. Spila-
staður er Sigtún 9, og spilatími 19.30,
þriðjudagskvöldin 7. og 14. nóvember
og 13.00, sunnudaginn 12. nóvember.
Þátttökugjald í stofnanakeppnina er
12.000 kr. á sveit.
Stórmót á Húsavík
Stórmótið á Húsavík, sem haldið
þar hafði hún búið frá því er amma
hennar, Gróa Jónsdóttir, tók hana
í fóstur er foreldrar Súsönnu skildu.
Foreldrar Súsönnu voru Páll
Snorrason trésmiður, f. 13. júní
1876, d. 22. janúar 1957 og Gest-
heiður Árnadóttir, f. 27. júlí 1886,
d. 13. nóvember 1918. Hún var
dóttir Árna Árnasonar dómkirkju-
varðar eldri og Ingibjargar Gests-
dóttur, konu hans.
Þau eignuðust 3 dætur, Súsönnu,
Elisu Olgu Magdal, gift Ásmundi
Friðrikssyni, Ingibjörg Arna Magd-
al, sem alltaf var kölluð Bára, mað-
ur hennar Eiríkur Þorsteinsson.
Gestheiður átti auk þess tvö önn-
ur börn, Sunnevu Guðmundsdóttur,
gift Pálmari ísólfssyni, og Þorstein
skipstjóra, öll eru þau systkini dáin.
Eftir skilnaðinn hvarf Páll til
Vesturheims þar sem hann kvænt-
ist í annað sinn frú Ragnheiði
Magdal og á hann þar allmyndar-
legan afkomendahóp vestra.
Foreldrar Páls voru Snorri Ólafs-
son, þá vinnumaður á Blesastöðumn
á Skeiðum og heitkona hans, Gróa
Jónsdóttir, f. 27. mars 1852, d.
1936, Snorri dó skömmu seinna,
ætt hans er mér ekki kunn.
Foreldrar Gróu voru Jón Pálsson,
f. 1809 í Hjálmholti, d. 1873, bóndi
í Rútstaðar-Norðurkoti 1845 og
kona hans Þorkatla f. um 1809,
Egilsdóttir, Jónssonar sonar Þórar-
ins hreppstjóra á Hræringsstöðum
Sigurðssonar.
Faðir Jóns var Páll f. 1783, bóndi
í Mjósundi, Magnússonar á Brúna-
stöðum, Ófeigssonar, Jónssonar á
Brúnastöðum sonar Ófeigs lög-
réttumanns á Reykjum á Skeiðum.
Móðir Jóns var' Þuríður, dóttir
Halls Jónssonar í Hjálmholti, Giss-
verður dagana 3.-5. nóvember, er
sveitakeppni, og eina slíka mótið sem
haldið er með peningaverðlaunum á
spilaárinu. Spilað er eftir Monrad-fyrir-
komulagi. Mótið mun ekki fara fram
nema a.m.k. 16 sveitir taka þátt, og
eru því þeir sem áhuga hafa á að vera
með, hvattir til að skrá sig hið fyrsta.
Skráning er í síma 96-42100 (Guðlaug)
þar sem jafnframt er hægt að ganga
frá pöntun á gistingu og/eða flugi.
Helgarpakki sem inniheldur flug og
gistingu Rvík — Húsavík-Rvík kostar
11.000 kr. en sé aðeins tekin gisting
í tvær nætur með morgunverði, þá er
verðið 3.900 kr. á mann.
Bridsfélag kvenna
Nú er 23 umferðir af 29 lokið í baró-
meternum og er staða efstu para þann-
ig:
Kristín Þórðardóttir - Asa Jóhannesdóttir 262
SteinunnSnorradóttir-ÞorgerðurÞórarinsdóttir 212
Halla Bergþórsdóttir - Soffía Theodórsdóttir 189
Ólína Kjartansdóttir - Guðlaug Jónsdóttir 183
AldísSchram-NannaÁgústsdóttir 182
Sigríður Möller — Freyja Sveinsdóttir 156
Hildur Helgadóttir - Karolína Sveinsdóttir 131
Lovfsa Eyþórsdóttir - Ragnhciður Einarsdóttir 120
Næstu skor síðasta kvöld náðu eftir-
talin pör:
Kristín Isfeld - Hrafnhildur Skúladóttir 97
Ingibjörg Halldórsdóttir - Sigríður Pálsdóttir 69
Ólina Kjartansdóttir - Guðlaug Jónsdóttir 68
Kristín Þórðardóttir - Ása Jóhannesdóttir 62
Mjólkursamsalan
Lokið er tveimur umferðum af fímm
í tvímenningskeppninni hjá Mjólkur-
samsölunni. Þátttakan er 14 pör og
spilað í fímm kvöld.
Staðan:
Ingólfur - Guðmundur 260
Sævar - Ólafur 251
Erlendur - Sveinn 243
Guðrún - Jóna 237
Ingólfur - Magnús Úrslit síðasta spilakvöld: Ingólfur Jónsson - 231
Guðmundur Ásgeirsson Erlendur Björgvinsson - 126
Sveinn Sveinsson Sævar Arngrímsson - 126
Ólafur Júlíusson Arnar Guðmundsson - 122
Margrét Hansen Jóhanna Guðmundsdóttir - 116
Guðrún Ólafsdóttir 116
Næsta spilakvöld er 13. nóvember.
Spilað er í húsi Mjólkursamsölunnar
uppi á Höfða.
urarsonar í Tungufelli, sonar Odds
í Jötu launsonar Jóns lögréttu-
manns á Grafarbakka Jónssonar.
Eins og fyrr er getið ólst Sús-
anna upp hjá Gróu ömmu sinni og
manni hennar, Guðmundi Jónssyni,
bóndasyni vestan af Mýrum í Borg-
arfirði.
Þau hjónin voru vel bjargálna,
hagsýnt fólk sem birgðu heimilið
upp á haustin með saltkjöti í tunnu,
súrmat og fleiru, svo Súsanna
kynntist aldrei skorti í uppvextin-
um, en kynntist aftur því, að oft
var stungið einhveiju að þeim sem
skort liðu.
Heimilið á Hverfisgötu var mynd-
ar- og regluheimili, með hefðarblæ
betri heimila þeirra tíma og var
Gróa ströng að fylgt væri venjum
hinna gömlu góðheimila.
Gróa reyndist sonardóttur sinni
sem besta móðir, og vandaði vel
uppeldi hennar að hætti betri heim-
ila þess tírha. Súsanna var vel gefin
og glæsileg stúlka og alla ævi bar
hún hefðarþokka þann sem amma
hennar hafði tamið henni á æsku-
árum.
Ung veiktist Súsanna af berklum
og varð að dvelja langtímum á
Vífilsstöðum á æskuárum sínum,
en ekkert bugaði reisn hennar og
glæsileika sem fylgdi henni til ævi-
loka.
Súsanna giftist 19. apríl 1930,
Sigurði Benjamínssyni, f. 13. febrú-
ar 1908, d. 13. febrúar 1963 á 55.
afmælisdegi sínum.
Sigurður var sonur Benjamíns
Kr. Jónsson, f. 1877 í Dalsmynni í
Eyjahreppi og Guðlaugar Árnadótt-
ur f. 1880, frá Undirhrauni, en
bróðir hennar Árni Árnason dóm-
kirkjuvörður yngri, var kvæntur
Elisabetu systur Gestheiðar móður
Súsönnu.
Þeim Sigurði og Súsönnu varð
ekki barna auði, en þau ólu upp
Lárus Guðgeirsson, flugmann, son
Láru systur Sigurðar og æskuvin-
konu Súsönnu.
Lárus f. 31. mars 1942, hann er
kvæntur Aðalbjörgu Hólmgeirs-
dóttur f. 17. ágúst 1940, hún er
dóttir Hólmgeirs Jónssonar Mýrdal
Jónssonar f. í Hjörleifshöfða.
Dætur þeirra eru Unnur Björk -
sagnfræðinemi, gift Agli Ólafssyni
sagnfræðingi og íris, sem enn er á
skójaskyldualdri.
Ég votta Lárusi, Aðalbjörgu,
dætrum og öðrum venslamönnum
samúð mína, um leið og ég þakka
Súsönnu liðin ár og bið Guð að
blessa hana á nýrri ævibraut.
Ingimundur Stefánsson
PRÓFKJÖR
SJÁLFSTÆÐISMANNA
HAFNARFIRÐI
Ákveöið hefur verið að efna til opins prófkjörs dagana 2. og 3.
desember 1989 vegna væntanlegra bæjarstjórnarkosninga í
Hafnarfirði vorið '1990.
Af því tilefni er hér með óskað eftir framboðum í prófkjörið.
Frambjóðandi skal vera búsettur í Hafnarfirði.
Hvcrt framboð til prófkjörs skal bundið við einn mann og
undirritað til samþykkis af frambjóðanda. Jafnframt skal
framboðið undirritað til stuðnings af 10 flokksmönnum
Sjálfstæðisflokksins, búsettum í Hafnarfirði. Athuga ber að
samkvæmt prófkjörsreglum getur enginn flokksmaður verið
stuðningsmaður við fleiri en sex frambjóðendur til prófkjörsins.
Framboðum ber að skila skriflega eigi síðar en föstudaginn
10. nóvember 1989 til trúnaðarmanns kjörnefndar, Eggerts
ísakssonar, Arnarhrauni 39, Hafnarfirði.
Kjörnefnd Sjálfstæðisflukksins í Hafnarfirði