Morgunblaðið - 02.11.1989, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1989
4
Ferðamálanám
er svarið
Ef þú hefur áhuga á störfum tengdum
ferðamannaþjónustu hér heima eða erlendis,
getur ferðamálanám opnað þér nýjar leiðir.
Ferðamálanám
gefur möguleika á
fjölbreyttum störf-
um, þar sem þú
færð svalað ævin-
týraþrá og kynnist
nýju fólki á hverj-
um degi.
Meðal námsgreina:
Starfsemi ferða-
skrifstofa, erlendir
og innlendir ferða-
mannastaðir,
tungumál, rekstur
fyrirtækja í ferða-
mannaþjónustu,
flugmálasvið og
heimsóknir í fyrirtæki
Námið er 176 klst.
og stendur yfir
í 11 vikur. Kenn-
arar á námskeiðinu hafa allir mikla reynslu á sviði ferða-
mála. Láttu drauminn rætast. Hafðu samband við okkur
hjá Málaskólanum og fáðu sendan bækling.
U^JU
Málaskólinn
BORGARTÚNI 2 4, SÍMI 62 66 55
Innritun
stendur
yfir
Lögfi*æðingar vefengja fiill-
yrðingar Ríkisendurskoðunar
Forsetar Alþingis hafa óskað skýrslu Lagastoftiunar um málið
LÖGFRÆÐINGARNIR Tryggvi Gunnarsson og Þorgeir Örlygsson,
settur prófessor, komast að þeirri niðurstöðu í lögfræðilegri álitsgerð
að fullyrðingar Ríkisendurskoðunar um að tvær reglugerðir Jóns Helga-
sonar landbúnaðarráðherra frá árinu 1987 eigi sér ekki lagastoð, stand-
ist ekki. Samkvæmt þessum reglugerðum var fullvirðisrétti úthlutað
aukalega til bænda og hélt Ríkisendurskoðun því fram í skýrslu, sem
út kom í apríl síðastliðnum, að sú úthlutun væri umfram búvörulög og
að ríkissjóður væri ekki greiðsluskyldur vegna hennar. Lögfræðingarn-
ir sömdu álitsgerð sína fyrir Stéttarsamband bænda, Framleiðsluráð
landbúnaðarins og Landssamtök sláturleyfishafa. Forsetar Alþingis
hafa óskað eftir álitsgerð frá Lagastofiiun Háskólans um það, hvort
fullyrðingar Ríkisendurskoðunar séu réttar, og jafhframt um það
hvort hlutverk sto&iunarinnar sé að kveða upp úr um það hvort reglu-
gerðir eigi stoð í lögum.
Lögfræðingamir segja að reglu-
gerðirnar tvær, sem eru númer 157
og 443/1987, hafi gilt um fullvirðis-
rétt til framleiðslu sauðfjárafurða
verðlagsárin 1987-1989 án breyt-
inga og dómstólar hafi ekki hnekkt
gildi þeirra. Alit Ríkisendurskoðunar
um lagagildi þeirrá hafi enga þýð-
ingu að lögum og geti alls ekki ve-
reið grundvöllur þess að ríkissjóður
synji fyrir greiðsluskyldu sína sam-
kvæmt ákvæðum þeirra.
Lögfræðingarnir telja að land-
búnaðarráðherra hafi ótvírætt haft
heimild til setningar og þær hafi
efnislega verið innan þeirra marka
sem búvörulög setji. „Ákvæði búvör-
ulaga stóðu því ekki í vegi, að land-
búnaðarráðherra væri með reglugerð
heimilt að úthluta allt að 13.500
ærgildisafurða fullvirðisrétti umfram
magntölur búvörusamnings, og á
þeim tíma, sem reglugerð nr.
157/1989 var gefin út, voru gerðar
fullnægjandi ráðstafanir til þess að
afla fjár til þess að mæta skuldbind-
ingum af því tilefni. Að því marki,
sem á þennan fullvirðisrétt reyndi á
gildistíma reglugerðar nr. 443/1987,
vereður að telja, að þar hafi verið
um að ræða ráðstöfun á fullvirðis-
rétti, sem rúmaðist innan 9. greinar
MITSUBISHI
PAJERO
1990
BÍLL FRA HEKLU BORGAR SIG
IhIHEKLAHF
* k ‘Laugavegi 170-174 Simi 695500
VERÐ FRA KR.
1.757.000 (stuttur)
2.1 57.000 (langur)
búvörusamningsins frá 20. marz
1987,“ segir í álitsgerðinni.
Lögfræðingarnir segja ekki
ákvæði að finna í búvörulögunum
eða öðrum lögum, sem mæli fyrir
um það magn sem landbúnaðarráð-
herra sé heimilt að semja um við
Stéttarsamband bænda. Þá sé ríkis-
valdinu skylt að tryggja samkvæmt
búvörulögum að staðið verði við
samninga um umsamið magn.
Ríkissjóður er ótvírætt greiðslu-
skyldur vegna verðábyrgðar á full-
virðisréttinum, sem Jón Helgason
úthlutaði með umræddum reglugerð-
um, að mati lögfræðinganna. „Ríkis-
sjóður hefur þegar með aukaijárveit-
ingu innt af hendi greiðslur vegna
reglugerðar nr. 157/1987, án fyrir-
vara, og verður því ekki séð, að
grundvöllur sé fyrir hendi til þess
að endurkrelja viðtakendur um þær
greiðlsur. Þá teljum við engan veginn
útilokað, að jafnvel þótt dómstólar
kæmust að þeirri niðurstöðu, að
umrædd ákvæði reglugerðanna hafi
ekki átt lagastoð, sé ríkisvaldið samt
sem áður greiðsluskylt vegna full-
virðisréttar, sem þegar hefur verið
úthlutað," segir í álitsgerðinni.
Framleiðandi, sem í réttmætu
trausti þess að reglurnar standist að
lögum ag hagað hefur framleiðslu
sinni í samræmi við þær, biði íjártjón
við greiðslusynjun ríkisvaldsins, og
það fjártjón ætti hann að okkar
mati að geta fengið bætt hjá ríkis-
sjóði, annað hvort á grundvelli al-
mennra reglna um bótaábyrgð hins
opinbera vegna mistaka við fram-
kvæmd opinberrar stjórnsýslu eða
grundvelli reglna um eignarnáms-
bætur.“
Lögfræðingarnir fallast aukin-
heldur ekki á það álit Ríkisendur-
skoðunar að megintilgangur með
setningu búvörulaga hafi verið að
draga úr framleiðslu búvara í áföng-
um þar til hún nægi sem næst inn-
lendri neyzluþörf, heldur sé tilgangur
laganna skýrðu svo að aðlaga beri
framleiðsluna að tiltækum mörkuð-
um og því sé gagngert gert ráð fyr-
ir ákveðinni umframframleiðslu. Þá
sé heldur ekki hægt að fallast á þá
skoðun Ríkisendurskoðunar að
ákvæði í VII. kafla búvörulaga séu
óskýr um grundvallaratriði fram-
leiðslustjórnunarinnar og að óljóst
sé með hvaða hætti eigi að ákvarða
fullvirðisrétt svæða og einstakra
framleiðenda. „Þá verður ekki talið
að löggjafninn hafi viið setningu
reglna um framleiðslustjórnun bú-
vöru í víðtækara mæli en við setn-
ingu reglna um stjórnun fiskveiða
framselt vald sitt til framkvæmdar-
valdshafa," segja þeir Tryggvi Gunn-
arsson og Þorgeir Örlygsson.
Að sögn Guðrúnar Helgadóttur,
forseta sameinaðs þings, hafa forset-
ar þingsins óskað álitsgerðar Laga-
stofnunar Háskólans um réttmæti
fullyrðinga Ríkisendurskoðunar og
ýmis atriði í samskiptum þings og
Ríkisendurskoðunar. Von var á
skýrslunni í september að sögn Guð-
rúnar, en dráttur hefur orðið á því
að hún sé tilbúin. Guðrún segir að
þingforsetar vilji bíða.með að tjá sig
um álitsgerð tvímenninganna þar til
þeir fái hitt álitið í hendur.
Halldór V. Sigurðsson ríkisendur-
skoðandi segir að Ríkisendurskoðun
ætli að láta gera faglega úttekt á
báðum fyrrnefndum greinargerðum.
Lögfræðingur stofnunarinnar hafi
álitsgerð Tryggva og Þorkels þegar
til meðferðar.
Verðlagsráð sjávarút-
vegsins verði lagt niður
AÐALFUNDUR skipstjóra- og stýrimannafélagsins Bylgjunnar, hald-
inn á Isafirði 22. október síðastliðinn, krefst þess að Verðlagsráð
sjávarútvegsins verði lagt niður hið fyrsta.
Fundurinn beinir því til Alþingis meðalverði á þeim. Fundurinn telur
að sett verði lög, sem ákveði að öll að einungis fijáls verðlagning geti
sala sjávarfangs skuli fara fram um komið í veg fyrir þá óþolandi mis-
fiskmarkaði eða á verði sem tengist munun sem er á kjörum sjómanna.
Ríkisendurskoðun telur aukaúthlutun á fullvirðisrétti án lagastoða:
appelsín - að sjálfsögðu.
GULUR, RAUÐUR, GRÆNN OG BLÁR
gerður af meistara höndum
Allir þekkja EGILS-appelsínið eina og sanna,
þetta með bláu röndunum.
En EGILL hugsar líka um þá sem forðast sykurinn.
EGILS Diet-appelsín er drykkurinn þeirra,
þetta með grænu röndunum.
YDDA F5.43/SÍA