Morgunblaðið - 05.11.1989, Blaðsíða 27
MUTTafjR I XJÖ^t
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 1989
27
Ungfrú Heimur búin að landa 6 punda laxi úr Laxá
í Leirársveit.
og þá hefði Linda rennt hálfan dag í Laxá í Leirár-
sveit og hálfan dag í Grímsá í Borgarfirði. Gekk vel í
Laxá, hún náði 6 punda laxi úr Laxfossi og 12 punda
laxi úr Miðfellsfljóti. Flugan var Blue Charm nr.10 og
var stærri laxinn svo erfiður að fegurðardrottningin
var úi'vinda eftir glímuna. Það náðist ekki í Lindu, en
Þröstur, sem var hennar aðstoðarmaður við árnar,
sagði að hún væri bæði áhugasöm og efnileg. En dellu
væri hún ekki búin að fá...
VEIÐISKAPUR
Fegurðar-
drottning með
flugustöng
Margt og mikið hefur verið á herðar Lindu Péturs-
dóttur lagt síðasta árið eða svo, enda ekki tekið
út með sældinni einni saman að vera kjörin alheims-
fegurðardrottning. Eitt var það starf sem Linda hefur
ugglaust innt af hendi glaðari í geði heldur en e.t.v.
sum önnur, en það var er hún átti að veiða lax á flugu
í valinkunnum íslenskum laxveiðiám. Farið hefur það
orð af Lindu að hún hafi áhuga á veiðiskap, er lax
hafði hún aldrei veitt. Það voru þeir Þröstur Elliðason
veiðifréttamaður Stjörnunnar og Jón Hermannsson
kvikmyndagerðamaður sem voru að baki uppákom-
unni. Hugmyndin var að taka upp kynningarmynd um
stangaveiði á íslandi sem ef til vill mætti markaðs-
setja erlendis. Þeir leituðu til Ferðamálaráðs sem aftur
bauð þeim. Lindu í aðalhlutverkið.
Þröstur sagði í samtali við Morgunblaðið að vegna
erfiðs veðurfars þá daga sem Linda gat verið með
þeim Jóni á bökkum vatnanna, hefðu þeir ekki getað
tekið upp eins mikið efni og efni stóðu til og óvíst
væri enn hvort að eitthvað yrði gert úr því sem til
væri, eða hvort reynt yrði að bæta við efnið næsta
sumar. Allt um það, þá hefði komið einn góður dagur
' Í'
Tekist á við stórlaxinn í Miðfellsfljóti.
HANDKNATTLEIKUR
Kvenna-
landslið
Tansaníu
heimsækir
Vigdísi
Hér á landi er nú statt kvenna-
landslið Tansaníu í hand-
knattleik og er dvöl stúlknanna héi'
liður í samvinnu íslands og Tansa-
níu við uppbyggingu handknatt-
leiksíþróttarinnar. Handknattleiks-
þjálfararnir Hilmar Björnsson og
Viðar Símonarson fóru til Tansaníu
fyrir ári síðan, kenndu handknatt-
leik, héldu fyrirlestra og skipulögðu
ferð stúlknanna hingað. Það er
Hilmar sem skipuleggur æfingar-
búðirnar.
Stúlkurnar, sem eru flestur um
tvitugt, leika tvo landsleiki við
íslenska kvennalandsliðið um helg-
ina, en í vikunni lék liðið við Val
og tapaði naumlega. Segja kunnug-
ir að þótt þær eigi sitthvað ólært
enn, þá sé áhuginn brennandi og
efniviðurinn góður. Þetta sé allt
að koma hjá þeim. í lok vikunnar
fylgdi Jón Hjaltalín Magnússon
formaður HSÍ stúlkunum og farar-
stjórum þeirra á fund Vigdísar
Finnbogadóttur forseta íslands.
Kópavogsbúar fæddir 1949,
fermdir vorið 1963:
2. bekkur f gagnfræðaskóla
DANSÆFING
verður haldin 18. nóvemher í félagsheimili Kópavogs.
Upplýsingar í símum 75901, 77422, 43386 og 43572.
MANE HÁRÞÉTTIÚÐINN
NÚ LÍKA Á ÍSLANDI
DALÍTIÐ HAR ER NAUDSYNLEGT
Mane hárþéttiúðinn hæfir ekki, sé
um algeran skalla að ræða. Þetta
er bylting fyrir þá sem eru þunn-
hærðir og áhrifin láta ekki á sér
standa. Hæfir konum jafnt sem
körlum með fínt og/eða þunnt hár,
tungl eða bletti þar sem hár hefur
tapast. Þá er Mane hárþéttiúðinn
einnig góður fyrir þá sem hlotið
hafa hárígræðslu.
Fæst í 7 litum.
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Rakarast. Hótel Sögu.
Rakarast. Greifinn, Hringbraut 119.
Saloon Ritz, Laugavegi 66.
Hárgrst. Hárkúnst, Hverfisgötu 52.
Hársnyrtist. Ragnars & Harðar,
Vesturgötu 48.
Rakarastofa Björns Gislasonar,
Eyrarvegi 5, Selfossi.
Rakarastofan Vestmannabraut 31, Vest-
mannaeyjum.
Hringið er komið og fáið bækling og nán-
ari persónulegar upplýsingar og ráðgjöf.
Opið daglega milli kl. 10-12.
HEILDV. MIÐNÆTTI HF.f
SKÚLAGÖTU 63, SÍMI 91-624350.
GEISLAHITARAR
fyrir svalir, blómastofur o.fl.
Vörumarkaðurinn ht
Kringlunni - sími 685440.