Morgunblaðið - 11.11.1989, Blaðsíða 35
eser aaaMavoýi .n soo/.aflAOU/j ciiaAja/jjoflOK
'MORGONBLAÐIfi LAUGARDAGUR 11 rNOVU.MHUR-WHH
3$
Stiörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Heild kortsins
Margar af þeim greinum sem
birtast í þessum pistli íjalla um
stjörnumerkin og þá um eitt
stjörnumerki í einu. Algengt
er að sagt sé að einungis sé
verið að fjalla um hið dæmi-
gerða merki og að hver maður
eigi sér nokkur stjörnumerki.
Hin merkin
Það hvað stjörnumerki menn
eiga, eða eru samansettir úr,
ákvarðast af stöðu pláneta í
merkjum og því hvaða merki
er að rísa yfir sjóndeildarhring-
inn og hvaða merki er næst á
lofti á fæðingardag og -stund.
Merki Sólar, Tungls og Rísandi
skipta mestu máli, eru aðal-
merkin, og síðar merki Merk-
úrs, Venusar, Mars og Mið-
himins. Sól ep táknræn fyrir
grunneðli, vilja og lífsorku,
Tungl fyrir tilfinningar og dag-
legt hegðunarmynstur og
Rísandi fyrir fas, framkomu og
persónulegan stfl. Merkúr er
táknrænn fyrir hugsun, Venus
fyrir ást, samskipti og fegurð,
Mars fyrir framkvæmdaorku
og Miðhiminn fyrir markmið
og stefnu í þjóðfélaginu.
Samspil merkj-
anna
Það sem er skemmtilegast í
stjörnuspeki er að spá í það
hvernig merkin vinna saman.
Það er undirstöðuatriði að
þekkja eðli hvers merkis fyrir
sig, en næsta skrefið er að spá
i samvinnu þeirra. Þessi sam-
vinna, eða ósamvinna merkj-
anna, segir oft ansi mikið um
það afhveiju N.N. lætur eins
og hann gerir.
Lík og ólík merki
Það má segja að ein regla í
stjörnuspeki sé sú að ef helstu
merkin eru lík megi búast við
jafnvægi í hegðum viðkomandi
manns, en ef þau eru ólík megi
búast við því að viðkomandi
verði sjálfum sér ósamkvæmur
og misjafn í hegðun eftir tíma-
bilum, eða þar til hann hefur
náð jafnvægi í persónuleika
sinn.
Sviðsskrekkur
Þegar Vog og Krabbi, sem eru
ólík merki, eru saman í korti
getur myndast hræðsla við at-
hafnir. Sviðsskrekkur eða
feimni er gott dæmi um það
sem getur háð viðkomandi, en
félagslyndi togast á við hlé-
drægni, viðkvæmni og vark-
árni.
Regluleg óregla
Útkoman getur orðið nokkuð
fyndin þegar Meyja og Bog-
maður eru saman í korti. Þá
togast á frelsisþörf og þörf
fyrir öryggi og reglu. Dæmi-
gert fyrir það er að taka vel
til og raða fötum skipulega í
skápa, og mega síðan ekki vera
að því að ganga vel um. Heimil-
ið sveiflast þá á milli snyrti-
mennsku og reglu og þess að
allt er í drasli. Hcgðunin getur
einnig orðið sérstök. Eina viku
er lögð áhersla á stundvísi, en
þá næstu gleymist slíkt og við-
komandi mætir ekki á réttum
tíma á stcfnumót.
Sparsemi og
eyðsla
Þegar Naut og I-jón eru sam-
an í korti getur viðkomandi
svciflast á milli þess að vera
sparsamur og duglegur og þess
að vera eyðslusamur og væru-
kær. Nautið heldur fast í hveija
krónu í þijá mánuði, sparar
kósettpappír og munnþurrkur
og svo er rokið niður í bæ og
eytt tuttuguþúsund krónum í
eina máltíð á veitingastað, eða
þegar Ljónið tekur yfirhöndina.
Maður sem hefur Naut og Ljón
í korti sínu þarf að beij.ast við
að halda jafnvægi á milli tekju-
öflunar og eyðslu. (Samspil
Nauts og Ljóns er sterkt í
stjörnukorti íslands.) Það er
þetta sem gerir hina raun-
verulegu stjörnuspeki
skemmtilega, það að spá í sam-
spil merkjanna.
GARPUR
SEGJA AFþéR. ■'? VOPM, é& \AH-
EKK.I EIHUS/MN/ HEVPA þAU OHE>
AFrUe . UPPPINNIAIGAR þ/NAR.
HA FA BJARGAÐ FLEHZ! /YIANNSlÍFUM
EN BbSGerr TALIÐ
/nép- þYK/f? FyrziK Þuí
AB> TEOFLA/EN ésog
SeND/HEEEA-HH
ÞUEFUAA AE> TALA
SAA'iAN.
- 06 X//P þuerOM />£> BEAEPA
/STAKAK/N, X/OPhH - ÉG JiELD
/)B M/R.ÖMDU SÉOEÐ/Ð NÓgO
HE/TT Fyp/P ÞAT>
GRETTIR
BRENDA STARR
FERDINAND
Mér þykir það leitt, en kvöldmaturinn þinn verður ell- Réttindi dýra! Rétt.indi dýra!
efu sekúndum á eftir áætlun í kvöld ...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson '
Makker opnar og næsti maður
doblar til úttektar. Hvernig verð-
ur redoblið best notað í þessari
stöðu?
Suðurgefur; enginn á hættu.
Norður
♦ 75
¥ Á954
♦ D75
♦ KD104
Vestur Austur
4 K1062 ♦ 983
¥76 ¥ 102
♦ KG94 ♦ Á932
♦ Á87 ♦ 9632
Suður
♦ ÁDG4
¥ KDG83
♦ 106
*G5
Vestur Norður Austur Suður
— — — 1 hjarta
Dobl Redobl Pass Pass
1 spaði 2 hjörtu Pass 3 hjörtu
Pass Pass 4 hjörtu Pass Pass
Útspil: hjartasjö.
Flestir hafa fremur takmark-
aða skilgreiningu á redoblinu,
láta það sýna 8+ punkta og
hvaða skiptingu sem er. Sem er
nauðsynlegt ef nýr litur er ekki
krafa. NS voru í þeim flokki.
Norður á fyrir áskorun í fjögur
hjörtu, en eftir dobl er stökk í
þijú hjörtu fyrst og fremst til
hindrunar, svo hann kýs að re-
dobla fyrst og styðja síðan hjart-
að. Svo sem ágætur stíll, en
ekki gallalaus.
Sagnhafi tekur tvisvar tromp
og spilar svo laufgosa og meira
laufi þegar vestur dúkkar. Vest-
ur drepur á ásinn og sér á taln-
ingu austurs að suður hefur
bytjað með tvö lauf. Vestur get-
ur nokkurn veginn slegið því
föstu að samningurinn vinnst ef
suður á tígulásinn. Hann eignar
makker því það spil og ákveður
að spila tígli. En hvaða tígli?
Ef sagnhafi hefur byijað með
lOxx í tígli er nauðsynlegt að
spila gosanum til að veiða tíuna.
En þá er viss hætta á því að
makker spiii spaða, en ekki
tígli, til baka. Því er það örugg-
ari vörn ,að spila tíguikóng og
gosa ef yestur er viss um að
suður eigi einungis tvílit í tígli.
En getur hann varið viss um
það?
Lítum aftur á sagnir. Austur
sagði pass við redoblinu. Það
hefði hann a.ldrei gert með fjór-
lit í spaða. Vestur veit því að
suður á skiptinguna 4-5-2-2 og
getur þess vegna komið í veg
fyrir allan misskilning með því
að spila tígulkóng. Redoblið
veitti vörninni þarna mikilsverð-
ar upplýsingar.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
í áttalandakeppninni í Aabybro
um daginn kom þessi staða upp
í skák þeirra Ninu Höiberg
(2.195), Danmörku, sem hafði
hvítt og átti leik, og Paasikang-
as, Finnlandi.
17.Bxf7+! - Hxf7, 18. Hxf7 -
Kxn, 19. Hfl+ — Kg8 (Eða 19.
- Kg.6, 20. Dg4+ - Kh6, 21.
Hf7! og vinnur.) 20. DdG! — h6,
21. Hf8+ - Kh7, 22. Dd3+ -
g6, 23. Hn+ - Kh8, 24. Dd6
og svartur gafst upp, því mátið
blasir við. Nina Höiberg átti
stærsta þáttinn í sigri Dana i átta-
landakeppninni, liún hlaut 6 v.
af 7 mögulegum á kvennaborðinu.