Morgunblaðið - 23.11.1989, Blaðsíða 23
Hersveitir Bandaríkjamanna verði áfram í V-Evrópu
MQRGp^JUypjÐ, FlMMTUDAQUft 2?. NÓVEMBER, 1989
Dönsku sveitarstj órnarkosningarnar:
Framfaraflokkurinn vann stór-
sigur á kostnað íhaldsmanna
Norðurlandaráð:
Undirbúa
Moskvuferð
Dagblöð segja úrslitin geta orðið til að flýta þingkosningum
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jorgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins, og Reuter.
Framfaraflokkurinn undir stjórn Piu Kjærsgaard var sigurveg-
ari bæja- og sveitarstjórnakosninga sem fram fóru í Danmörku á
þriðjudag. Flokkurinn jók fylgi sitt úr 2,3% upp í 7% en íhalds-
menn Pouls Schliiters forsætisráðherra misstu nær þriðjunginn
af því fylgi sem þeir fengu í síðustu kosningum. Næst-stærsti sljórn-
arflokkurinn, Venstre, bætti stöðu sína en sá þriðji, Radikalir,
töpuðu verulegu fylgi. Jafiiaðarmenn héldu vel sínum hlut, fengu
rúm 35%, en Sósíalíski þjóðarflokkurinn tapaði.
Schlúter segir úrslitin ekki hafa berjast nú hatramlega fyrir,“ sagði
áhrif á stöðu landsmála en minni-
hlutastjórn hans reynir nú að ná
breiðu samkomulagi við annahvort
Framfaraflokkinn eða jafnaðar-
menn um aðgerðir í efnahagsmál-
um.
Kosningaþátttaka var tæp 70%
eða svipuð og í síðustu kosningum.
Dagblöðin Politiken og Beriingske
Tidende hörmuðu lítinn áhuga kjós-
enda á að nýta sér rétt sinn í for-
ystugreinum í gær. „Þetta er réttur
sem íbúar kommúnistaríkjanna
síðarnefnda blaðið og kvað danskt
lýðræði einkennast af sljóieika. Pol-
itiken bendir á að íhaldsmenn haldi
áfram að tapa og Radikalir ríði
ekki feitum hesti frá stjórnarsam-
starfinu en þeir misstu flesta sveita-
stjórnarfulltrúa sína. Jafnaðarmenn
hafi haldið sínu og vel það. Þetta
geti valdið því að jafnaðarmenn
knýi fremur á um kosningar en að
taka þátt í óvinsælu samkomulagi
við stjórnina um efnahagsmálin.
Jyliands-Posten tekur undir
gagnrýni á lélega kosningaþátttöku
og bendir á að lýðræði sé ekkert
náttúrulögmál. Blaðið segir úrslitin
hafa veikt ríkisstjórnina vegna taps
íhaldsflokksins. „Jafnframt mun
bætt staða Venstre og mjög athygl-
isverður sigur Framfaraflokksins
styrkja þau öfl sem vilja láta hart
mæta hörðu. Þess vegna verður sem
stendur að draga þá ályktun að
líkur á kosningum fari vaxandi.“
Þetta eru fjórðu kosningarnar í
röð þar sem íhaldsmenn tapa. Þeir
fengu nú 14,5% atkvæða en tæp
20% í síðustu sveitarstjórnakosn-
ingum. Fullvíst er talið að fy'öldi
kjósenda íhaldsflokksins hafi stutt
Framfaraflokkinn vegna óánægju
með tilraunir Schlúters til að ná
málamiðlun í viðræðum um efna-
hagsmálin. Kjósendur vilji ekki
slaka til gagnvart jafnaðarmönnum
Francois Mitterrand Frakkiandsforseti í blaðaviðtali:
Upplausnin í A-Evrópu gæti
raskað stöðugleika 1 álfiinni
Pia Kjærsgaard.
í viðræðum um róttækar niður-
skurðartillögur í ríkisfjármálum.
Pia Kjærsgaard, leiðtogi Framfara-
flokksins, segist ekki ætla að nota
sigurinn til að þjarma að ríkisstjórn-
inni en eftir er að samþykkja fjár-
lög fyrir næsta ár. Svend Auken,
formaður jafnaðarmanna, sagðist
ekki vilja kosningar á næstunni.
Jyliands-Posten bendir á árangur
Venstremannsins Peters Brixtofte,
borgarstjóra í Farum, sem er ein
af útborgum Kaupmannahafnar.
Venstre fékk að þessu sinni hreinan
meirihluta í borgarstjórninni en
hefur þurft að reiða sig á stuðning
jafnaðarmanna. Brixtofte hefur
með ýmsum ráðum, þ. á m. niður-
skurði á opinberum útgjöldum, tek-
ist að lækka útsvör og önnur gjöld
borgarbúa.
FULLTRÚAR Norðurlandaráðs
verða í Moskvu eftir um það bil
tvær vikur. Er þetta í samræmi
við ákvarðanir forsætisnefndar
ráðsins, sem voru teknar á auka-
þingi þess á Alandseyjum í síðustu
viku. Fara þrír háttsettir embætt-
isinenn Norðurlandaráðs i boði
sovéskra stjórnvalda til viðræðna
um hvernig samskiptum norr-
ænna þingmanna og Æðsta ráðs
Sovétríkjanna skuli háttað.
Þeir sem fara á vegum Norður-
landaráðs eru Gerhard af Schultén,
framkvæmdastjóri forsætisnefndar-
innar, Jostein Osnes, varamaður
hans sem tekur við starfí fram-
kvæmdastjóra um áramótin, og
Margit Östman, alþjóðlegur ritari
forsætisnefndarinnar. Stendur heim-
sóknin í tvo til þijá daga.
Á Álandseyjum var ákveðið, að
samskiptin við Sovétmenn yrði að
undirbúa mjög vel. Einkum kæmi til
greina samvinna um umhverfis- og
menningarmál, verslun og mannleg
samskipti. Þá á að kanna, hvernig
samskiptunum verði best háttað s.s.
með ráðstefnum, námsstefnum,
kynnisferðum og menningarskiptum.
Embættismennirnir gefa skýrstu um
ferðina á fundi forsætisnefndarinnar
í Reykjavík 11. og 12 desember.
París. London. Reuter.
FRANCOIS Mitterrand Frakk-
landsforseti sagði í blaðaviðtali
sem birtist í gær að þær gífurlegu
breytingar sem átt hefðu sér stað
í Austur-Evrópu gætu orðið til
þess að kynda undir gömlum
deilumálum ríkja Evrópu. Forset-
inn hvatti jafnframt til þess að
herlið Bandaríkjanna í Vestur-
Evrópu yrði ekki kallað heim en
yíírvöld í Bandarikjunum hafa lát-
ið að því liggja að dregið verði
úr umsvifum Bandaríkjahers í álf-
unni á næstu árum.
Mitterrand sagði í viðtali við blaða-
mann Waii Street Journai að óger-
legt væri að segja til um afleiðingar
þeirra miklu breytinga sem átt hefðu
sér stað í kommúnistaríkjum Aust-
ur-Evrópu. Ræddi hann m.a. um
hugsanlega sameiningu þýsku
ríkjanna tveggja sem verið hefur í
brennidepli frá því að yfirvöld í Aust-
ur-Þýskalandi afréðu að gefa þegn-
unum ferðafrelsi. Meirihluti Þjóð-
veija teldi sameiningu vafalítið besta
kostinn. „Ég óttast ekki sameiningu
þýsku ríkjanna en þar með er ekki
sagt að ég sé henni hlynntur," sagði
Mitterrand og bætti við að eðilegt
væri að álykta sem svo að Þjóðveijar
kynnu að gera tilkall til pólskra land-
svæða í kjölfar sameiningar. Þetta
gæti aftur á móti haft keðjuverkandi
áhrif í Evrópu og jafnvel leitt til
átaka. Ungveijar og Rúmenar kynnu
að beijast um yfirráðarétt yfir Trans-
ilvaníu, Serbar og Króatar kynnu að
takast á um Svartfjallaland og hugs-
anlegar kröfur Þjóðveija gætu kost-
að átök við Pólvetja. Menn yrðu að
gæta þess að ekki kæmi upp sama
staða í Evrópu og fyrir fyrri heims-
styijöldina. Eining Evrópuríkja yrði
að vera helsta hugsjón ráðamanna
og væri Evrópubandalagið kjörinn
vettvangur ætluðu menn sér að ná
því markmiði og tryggja friðinn.
„Kerfi kommúnismans hefur verið
lagt í rúst þó svo að hugtakafræðing-
ar ýmsir kunni ekki að viðurkenna
það,“ sagði forsetinn. Vestræn ríki
yrðu að koma Míkhaíl Gorbatsjov,
leiðtoga 'sovéskra kommúnista, til
hjálpar. Efnahagur Sovétríkjanna
væri í rúst og sú einkennilega staða
væri komin upp að aðeins vestræn
ríki gætu komið Gorbatsjov til bjarg-
ar. Yrði það ekki gert kynni stöðug-
leiki að raskast í Evrópu.
Þótt Gorbatsjov yrði komið frá
völdum og við tækju nýir menn, sem
jafnvel kynnu ekki að vera kommún-
Kuldaskór
Kr 2.890.-
Efni: Leður
Litir: Svart, brúnt
Stærðir: 36-41
Kringlunni 8-12,
sími 686062
istar, yrðu Sovétríkin eftir sem áður
öflugt hei’veldi. Sökum þessarar
óvissu væri nauðsynlegt að banda-
rískir hermenn og sveitir vestrænna
ríkja yrðu áfram í Vestur-Þýska-
landi, sagði Mitterrand Frakklands-
forseti.
Richard Cheney, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, sagði í sjón-
varpsviðtali um síðustu helgi að sök-
um breytinganna í Austur-Evró-
puríkjunum yrði dregið verulega úr
framlögum til varnarmála. Boðaði
hann að fækkað yrði í herliðinu i
Vestur-Evrópu en þætti við að engar
ákvarðanir hefðu verið teknar. Um-
mæli þessi hafa vakið furðu ráða-
manna í öðrum aðildarríkjum Atl-
antshafsbandalagsins (NATO) að
sögn heimildarmanna Reuters-
fréttastofunnar. Vísa þeir til þess að
Bandaríkjamenn hafi löngum sagt
að önnur aðildarríki bandalagsins
verði að leggja meira af mörkum í
þágu hinna sameiginlegu varna lýð-
ræðisríkjanna en það sjónarmið hljóti
að tapa skriðþunga sínum hyggist
Bandaríkjamenn grípa til einhliða
fækkunar í herliðinu í Evrópu auk
þess sem slíkt geti veikt stöðu banda-
lagsins í afvopnunarviðræðum aust-
urs og vesturs í Vínarborg.
Nú eru þeir kaldir
hjá Rönning í Kringlunni
Kæliskápar, frystiskápar og frystikistur á mjög góðu verði!
Nú fyrir jolin seljum við kæliskápa frá
23.330 kr., frystiskápa frá 31.092 kr., sam-
byggða kæli- og frystiskápa frá 35.882 kr.
og frystikistur frá 38.940 kr.* Mikið úrval -
margar stærðir og gerðir frá OSBY,
SNOWCAP og GRAM. Nýtið ykkur einstakt
tækifæri..
íÖNNING
<RINGLAN
KRINGLUNNI 8-12/103 REYKJAVÍK/SÍMI (91)685868
iggjgufiru1
BSSsp^
.
................... uTSiiS
* Verð miöaö við staðgreiðslu.