Morgunblaðið - 23.11.1989, Blaðsíða 25
MOHGy.NBLAÐIt) FIMMTL’DAGUR ?3. NQVEMBER .1989
Keuter
Svissneskir hermenn á æfingu. Svisslendingar taka afstöðu til
þess í þjóðaratkvæðagreiðslu á sunnudag hvort leggja eigi her-
inn niður.
Kosið um herinn og
hraðatakmörk í Sviss
Ziirich. Frá Önnu Bjamadóttur, íréttaritara Morgunblaósins.
SVISSNESKA þjóðin tekur afstöðu til svissneska hersins á sunnu-
dag. 111.300 manns skrifuðu fyrir þremur árum undir kröfu um
að herinn yrði iagður niður og þjóðin ræki víðtæka friðarpólitík
í framtíðinni og nú verður gengið til þjóðaratkvæðagreiðslu um
máiið. Herandstæðingar eru ekki taldir eiga neinn möguleika á
sigri. En úrslitanna er þó beðið með eftirvæntingu. Það þykir fróð-
legt að sjá hversu margir láta verða af því að kjósa í þetta sinn
og hvort 20 eða 30% þeirra eru á móti hernum.
■Allir heilbrigðir, svissneskir
karlmenn gegna herskyldu í
þijátíu ár. Þeir eru kvaddir í 17
vikna grunnþjálfun á 20. aldursári
og síðan af og til í endurþjálfun
í nokkrar vikur í senn fram til
fimmtugs. Þeir sem stefna ekki á
foringjanafnbót og láta sér lág-
marks herskyldu nægja eyða sam-
tals um einu ári í hernum. Hann
er skipaður 625.000 mönnum en
milli 20 og 40 þúsund eru starf-
andi í honum hverju sinni.
Herandstæðingar álíta herinn
gagnslausan. Þeir telja ólíklegt að
Svisslendingar myndu lifa af styij-
öld í Evrópu og efast um að varn-
ir hersins myndu koma að nokkr-
um notum. Þeir vilja því að þjóðin
sýni gott fordæmi í afvopnunar-
málum og leggi niður vopn. Þann-
ig myndu milljarðar franka spar-
ast sem mætti nýta til að efla lífey-
riskerfið, umhverfisvemd og fá-
tækrahjálp heima fyrir og í þriðja
heiminum. Svissneski herinn kost-
ar þjóðina um 7,5 milljarða sv.
franka (270 milljarða ísl. kr.) á
ári, þar af borgar ríkissjóður 5
milljarða (180 miiljarða ísl. kr.)
en það eru um 1,9% af heildar-
framleiðslu þjóðarbúsins.
Kaspar Villiger varnarmálaráð-
herra og aðrir stuðningsmenn
hersins telja hann bráðnauðsyn-
legan. Þeir segja að án hans geti
þjóðin ekki haldið hlutleysisstefnu
sinni. En Villiger telur umræðuna
sem þjóðaratkvæðagreiðslan kom
af stað gagnlega og margt megi
læra af henni.
Þjóðin ákveður sama dag hvort
hraðatakmörk fyrir bifreiðar verði
skráð í stjórnarskrána. Hámarks-
hraði var íækkaður úr 130 km/klst
á hraðbrautum í 120 km/klst og
100 km/klst á þjóðvegum í 80
km/klst fyrir fjórum árum til að
draga úr loftmengun sem ógnar
lífi skóga. Mörgum þótti þetta
gróf aðför að bifreiðaeigendum.
256.207 manns skrifuðu undir
kröfu um að hærri takmörkin,
130/100, verði lögleidd. Þeir
benda á að æ fleiri bifreiðar séu
búnar hreinsitækjum sem dragi
úr loftmengun og ökuhraði skipti
því litlu máli. En þjóðþingið og
ríkisstjórnin telja að þjóðin þurfi
ekki að aka hraðar en 120/80.
Moskvufréttir:
Innrásin í Tékkóslóv-
akíu árið 1968 fordæmd
Moskvu. Reuter.
ÞEKKTUR sovéskur rithöfúndur og þingmaður, Danííl Granín, hefúr
fordæmt harðlega innrás Varsjárbandalagsins í Tékkóslóvakíu árið
1968 og kvað hana hafa orðið til þess að stalínistum hefði tekist að
koma í veg fyrir umbætur í landinu í tvo áratugi.
Birt var opið bréf frá þingmann-
inum í vikublaðinu Moskvufréttum
og var þar með bundinn endi
tveggja áratuga þögn yfir innrás-
inni í sovéskum fjölmiðlum í tvo
áratugi.
„Beitt var hervaldi til að stöðva
tilraunir Tékka til að koma á komm-
únisma með mannlegri ásjónu,“ rit-
ar Granín, sem hefur hlotið fjöl-
margar viðurkenningar fyrir rit-
störf sín. „Þetta var fyrsta per-
estrojkan í kommúnistaríkjunum og
við bældum hana niður,“ bætir hann
við.
Skrif Graníns eru í algjörri and-
stöðu við afstöðu Prövdu, málgagns
sovéska kommúnistaflokksins, sem
hefur haldið því fram að umbóta-
sinnarnir í Tékkóslóvakíu árið 1968
hafi gerst sekir um gagnbyltingu
og innrás Varsjárbandalagsins hafi
verið gerð til afstýra því að vest-
rænir „heimsvaldasinnar" legðu
landið undir sig.
Svo virðist sem Sovétmenn vilji
nú knýja á tékknesk stjórnvöld um
að koma á umbótura. Míkhaíl Gorb-
atsjov Sovétforseti sagði við
kanadíska blaðamenn á þriðjudag
að lgiðtogar kommúnistaríkjanna
hefðu ekki lagt rétt mat á ýmsa
atburði sögunnar og að brýnt væri
að koma á umbótum sem fyrst.
UÓSMYNDA-
ALBÚM
frá Múlalundi...
... vel geymdar verða
minningarnar
enn ánægjulegri.
Múlalundur
&
10
2
s
o
i
Sí
J Electrolux
Allt aó
30%
afsláttur
útlitsgallaða kæli- og frystiskápa
með verulegum afslætti!
m
Vtirumarkaðurinn
KRINGLUNNI SÍMI 685440
Komdu i Kringluna ó óvenjulega
símasýningu Fósts og símo
Þér er hér með boðið á símasýningu Pósts og síma dagana 22. til
25. nóvember á 2. hæð í Kringlunni. I
Við verðum með nýja og fullkomna síma og símsvara til sýnis
og sölu og þú færð að vita allt um Sérþjónustu í stafræna símakerfinu
og Almenna gagnaflutningsnetið. Komdu á símadaga í Kringlunni 22. til 25.
nóvember. Þú hefúr
Jk 8 8aman PÓSTUR OG SÍMI
Við spörum þér sporin.
III