Morgunblaðið - 23.11.1989, Blaðsíða 24
24
MORGUN
| .0«9’
703*'
KjúPot
450t' k
G*stt
1.2 8®»'
s^'
HREINDÝRAKJÖT
ÍÖRVALI
Allt svínakjot
á tilboösverði!
*
Urvals
nautakjöt
Aöeins UNI
ALIKÁLFAKJÖT
KYNNINGARVERD
KJÖT
EROKKAR
SÉRGREIN
TILBOÐ!
1/1 kokteilávextir ..119,-
1/1 perur.107,-
Bleyjur, pr. stk.11,90
BÖKUHARVÖRUR
ÍÚRVALI
VÖRUKYNNINGAR
Reuter
500 milljónir á kjörskrá ílndlandi
Nær 500 milljónir manna eru á kjörskrá í fjöl-
mennasta lýðræðisríki heims, Indlandi, en þar
hófúst þingkosningar í gær og lýkur á sunnu-
dag. Futlvíst er talið að Kongressflokkur Rajivs
Gandhis forsætisráðherra tapi miklu fylgi. Flest-
ar skoðanakannanir gefa til kynna að flokkurinn
glati meirihluta á þingi en stærsty sfjórnarand-
stöðuflokkarnir hafa myndað kosningabandalag
gegn Gandhi. Á myndinni sést einn stuðnings-
manna forsætisráðherrans reka áróður af
fílsbaki i Bombay og er hátalarakerfí komið fyr-
ir á dýrinu.
Sjónvarpað frá breska þinginu:
Þingmönnum líkt við
ósiðaða skólastráka
Ráðherrar sjást blunda og kæfa geispa
London. Reuter.
BRESK dagblöð voru flest sam-
mála um að fyrstu sjónvarps-
sendingar frá neðri deild þings-
ins, sem fóru fram á þriðjudag,
hefðu verið leiðinlegar. Á mynd
í Today sást John Major Ijármála-
ráðherra kæfa geispa og Geof-
frey Howe aðstoðarforsætisráð-
herra beinlínis blunda meðan á
ræðu Margaret Thatcher forsæt-
isráðherra stóð. Æsifréttablað-
inu The Sun fannst þingmanna-
hópurinn minna á ógeðfellda og
uppivöðslusama skólastráka.
Thatcher var klædd blárri dragt
en flestar konur í þingmannahópn-
um höfðu farið að ráðum sjón-
varpsráðgjafa og voru rauðklæddar
Kr.
22.900*
Þú þarft ekki að eiga afruglara til þess að
eignast ódýrt og gott sjónvarp.
Við bjóðum úrvals 14 tommu litsjónvörp á
hreint frábæru verði.
*stgr.
«»680168
WUMM'
0 SAMBANDSINS
HOLTAGÖRÐUM SÍMI 68 55 50
VIÐ MiKLAGARÐ
til að vekja meiri athygli en ella.
Guardian kvartaði yfir því að
Thatcher hefði sést brosa til stjóm-
arandstæðinga; þetta hefði alls ekki
verið hin eina, sanna Thatcher.
„Hr. Kinnock sást beija hnefunum
út í loftið, slá í borðið og halla sér
nokkrum sinnum fram eins og hann
ætlaði sér að velta því um koll,“
sagðj Guardian enn fremur og taldi
sjónvarpsmenn hafa einbeitt sér að
því að sýna kæki og tilgerð ýmissa
þingmanna.
Sjónvarpsmönnum eru settar
strangar reglur um útsendingarnar.
Aldrei má láta mynd ræðumanns
fylla alveg út í skjáinn meðan hann
talar, aðeins sýna efri hluta líkama
hans og alls ekki viðbrögð annarra
þingmanna við máli viðkomandi
ræðumanns. Komi til hávaða í saln-
um má aðeins sýna þingforseta
meðan hann er að stilla til friðar
en ekki ólátabelgina sjálfa.
Mörg blöð voru hvassyrt um
hegðun þingmanna og sögðu þá
greinilega ekki hafa neinn skilning
á því hve miklu máli framkoma
skipti í sjónvarpi. Gagnrýnandi æsi-
fréttablaðsins The Sun, Nina
Myskow, sagði: „Það var hryllilegt
að sjá alla þessa sjálfsánægðu, hold-
ugu og kauðalega búnu hrokagikki
hlæja stórkarlalega og reka upp
gelt eins og ofvaxnir skólastrákar
sem eru nýbúnir að éta yfir sig.“
Hún líkti ráðherrum við auðsveipa
hvolpa að baki Thatcher með einni
undantekningu; Geoffrey Howe
minnti meira á tinandi rollu.
Ekki voru öll blöðin svona óán-
ægð. The Daily Mail sagði: „Stund-
um var þetta vandræðalegt, stund-
um alveg ótrúlegt en næstum því
aldrei leiðinlegt." The Financial
Times sagði ljóst að hvernig sem
fólki hefði líkað þetta myndi útsend-
ingunum verða haldið áfram.
Um 60 manns sjá um sjónvarps-
sendingarnar fyrir breska ríkisút-
varpið, BBC. Blaðið Today sagði
4.000 manns hafa hringt til blaðs-
ins til að kvarta yfir því að einka-
sjónvarpsstöð felldi niður vinsælan
spurningaþátt og sýndi frá þinginu
í staðinn.
Ungveijaland:
Lugu til um
skuldirnar
Fyrrum varnarmála-
ráðherra uppvís að
mikilli spillingu
Búdapest. Reuter.
UNGVERJAR hafa logið til um
erlendar skuldir sínar í rúman
áratug vegna samningavið-
ræðna við erlendar lánastofiian-
ir, að því er Miklos Nemeth,
forsætisráðherra Ungverja-
lands, hélt fram í þingræðú í
fyrradag. Fyrrum varnarmála-
ráðherra landsins hefiir afsalað
sér hershöfðingjatign eftir að
greint hafði verið frá því að
hann hefði séð samstarfsmönn-
um sínum fyrir nuddstofum, sér-
stökum veitingahúsum og ýms-
um hlunnindum og lifað sjálfur
í miklum munaði á kostnað
ríkisins.
Nemeth sagði að Ungveijar
myndu skulda rúma 20 milljarða
Bandaríkjadollara, eða rúmlega
1.200 milljarða ísl. króna, í árslok.
Munu þær þá hafa hækkað um
rúma tvo milljarða dollara frá í
ágúst. Gagnrýndi Nemeth stjórn-
málaráð kommúnistaflokksins fyr-
ir að birta ekki réttar tölur um
erlendar skuldir Ungveija er Janos
Kadar, fyrrum leiðtogi landsins,
var settur af fyrir hálfu öðru ári.
Ungverskur ofursti, Imre Ba-
kor, hefur ritað bók þar sem hann
heldur því fram að Lajos Czinege,
sem var varnarmálaráðherra á
árunum 1960-84, hafi verið per-
sónugervingur hins spillta stjórn-
málamanns, skammsýnn og hégó-
magjarn, og hafi dregið taum ætt-
menna og vina við stöðuveitingar
og fleira. Hann hafi komið upp
sérstökum veitingahúsum, nudd-
stofum og hvíldarherbergjum með
ísskápum, sjónvörpum og ýmsum
þægindum fyrir sig og samstarfs-
menn sína. Þá hafi hann látið her-
menn afgirða svæði þar sem hann
stundaði veiðar, auk þess seni
hann hafi reist orlofshús víðs veg-
ar um landið og haft glæsibifreið-
ar, þyrlur og flugvélar til eigin
nota - allt á kostnað ríkisins.
Flokksleið-
toga í Len-
íngrad vik-
ið úr starfi
Moskvu. Reuter.
LEIÐTOGA sovéska kommún-
istaflokksins í Leníngrad, næst
stærstu borg Sovétríkjanna,
hefur verið vikið úr starfi. Dag-
blaðið Pravda skýrði frá þessu
í gær en á þriðjudag var anná-
laður harðlínumaður, Lev Zaj-
kov, settur af sem formaður
Moskvudeildar flokksins.
Flokksdeildin í Leníngrad kom
saman til fundar í gær og var þá
ákveðið að víkja Anatolíj Ger-
asímov úr embætti. Við starfi hans
hefur tekið Borís Gídaspov, sem
áður gegndi embætti formanns
flokksdeildarinnar í Leníngrad-
héraði. Er hann sagður njóta um-
talsverðra vinsælda meðal almenn-
ings.
Bæjar- og sveitastjórnarkosn-
ingar fara fram í Sovétríkjunum
í marsmánuði á næsta ári og er
litið svo á að með brottrekstri
þeirra Gerasímovs og Zajkovs vilji
ráðamenn í Moskvu bæta ímynd
flokksins en almenningur hafnaði
mörgum þekktum flokksbroddum
er kosið var til hins nýja fulltrúa-
þings Sovétríkjanna nú í vor.