Morgunblaðið - 23.11.1989, Blaðsíða 52
SAGA CLASS
Fyrir þá sem eru aðeins
á undan
FLUGLEIÐIR
FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1989
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Flugleiðir:
Nýju þoturnar í áætl-
_un um miðjan maí
7-8 vikna seinkun vegna verkfalls í
Boeing-flugvélasmiðjunum
VERKFALL vélsmiða í Boeing-
flugvélasmiðjunum í Banda-
ríkjunum, sem nýlega lauk, tef-
ur afhendingu á þremur þotum
Flugleiða um 7 vikur. Verkfallið
stóð í 48 daga og til viðbótar
kemur nokkurra daga töf með-
an vinna hefst að nýju. Útlit er
Jóhann mæt-
ir Kasparov
JÓHANN Hjartarson mætir
heimsmeistaranum í skák, Garríj
Kasparov, í dag á alþjóðlega skák-
mótinu í Belgrad. Jóliann er í 3.-6.
sæti á mótinu.
Kasaprov er efstur með 6 vinn-
inga og Timman í 2. sæti með 4,5.
Auk Jóhanns eru í 3.-6. sæti Jús-
úpov, Short og Ehlvest. í 7.-8.
sæti eru Agdestein og Nikolic en
þeir gerðu jafntefli í gær í biðskák.
Hvíla sig á
síldarleit
og aðstoða
trillukarla
TOGARINN Siglfirðingur
hefur verið við síldarleit í
Mjóafirði en lítið hefur sést
til síldar. Skipverjar hafa því
stytt sér stundir með því að
aðstoða trillukarla í Mjóa-
firði sem veitt hafa vel af
þorski að undanförnu.
„Við höfum ekkert fundið og
heldur lítið verið að gera hjá
okkur. Því höfðu strákarnir
bara gaman af því að aðstoða
trillukarlana við aðgerð,“ sagði
Ragnar Ólafsson, skipstjóri á
Siglfirðingi. „Þeir fengu tölu-
vert af þorski en það er nú svo
undarlegt að þrátt fyrir að
þorskstofninn minnki og
minnki gengur alitaf betur og
betur að veiða hann,“ sagði
Ragnar.
þó fyrir að Flugleiðir lendi ekki
í vandræðum vegna þessara
tafa, að sögn Leifs Magnússon-
ar, framkvæmdastjóra flug-
rekstrarsviðs Flugleiða.
Flugleiðir eiga þijár þotur í
smíðum hjá Boeing, tvær Boeing
757 og eina 737. Leifur sagði að
Boeing verksmiðjurnar hefðu ekki
gefið út nýja áætlun um afhend-
ingu en Flugleiðir reiknuðu með
að fá fyiri 757-þotuna afhenta um
20. apríl, 737-þotuna (þá þriðju
af þessari gerð sem Flugleiðir
kaupa) á bilinu 26. apríl til 2. maí
og seinni 757-vélina 3. til 9. maí.
Er þetta 7-8 vikum seinna en
áætlað var fyrir verkfall. Sagði
Leifur að sumar vélarnar yrðu
notaðar við þjálfun áhafna í upp-
hafi en hann bjóst við að þær
kæmu inn í áætlunarflugið á bilinu
10. til 20. maí.
Leifur sagði að samkvæmt þess-
ari áætlun Flugleiða kæmu nýju
þoturnar nógu snemma inn í áætl-
un. Félagið þyrfti ekki að afhenda
tvær DC-8-vélar sem það hefur
selt fyrr en í lok maí. Aftur á
móti þyrfti að skila Boeing 727-
200-vél sem Flugleiðir hafa á leigu
til 1. maí, en hægt væri að brúa
það bil með annarri vél og kæmi
ekki að sök.
Morgunblaðið/Júlíus
Frá slysstað á Vesturlandsvegi. Á myndinni til hægri
sjást bílarnir, sem lentu í árekstri á Kleppsvegi.
Fjórir slösuðust í
tveimur árekstrum
TVÖ umferðarslys urðu í Reykjavík __.
gær. Fjórir menn meiddust en enginn lífshættulega
að því er talið var.
Ókumenn tveggja bíla meiddust í hörðum árekstri á
Vesturlandsvegi við Korpúlfsstaði. Lada-bíl var ekið frá
Korpúlfsstöðum og í veg fyrir pallbíl á leið í bæinn.
Ökumaður Lödunnar fótbrotnaði. Ökumaður pallbilsins
meiddist lítillega. Þá varð harður árekstur milli tveggja
fólksbíla á Kleppsvegi við Vatnagarða. Bíl var ekið frá
Yatnagörðum í veg fyrir annan á leið eftir Kleppsvegi.
Ökumenn beggja bílanna meiddust. Annar skarst á höfði,
hinn á fótum.
Hundruð manna atvinnulaus á
Austijörðum og Suðurnesjum
Staðfesting á síldarsölusamningum gæti fengist í vikulokin
HUNDRUÐ manna eru atvinnulaus á Austfjörðum og Suðurnesjum,
aðallega vegna þess að ekki hefur tekist að selja Sovétmönnum saltsíld
á þessari vertíð og lítið hefur veiðst af stórri síld til frystingar á Jap-
ansmarkað. í Grindavík eru um 100 manns atvinnulausir, eða 30-40%
af fiskvinnslufólki á staðnum, að sögn Benónýs Benediktssonar for-
manns Verkalýðsfélags Grindavíkur. Benóný sagði að síldin færi nú
aðallega í bræðslu.
Engin svör fengust um það í
Moskvu í gær hvort, né hvenær,
staðfesting stjórnvalda á gerðum
samningi um sölu saltsíldar fengist.
Á löngum fundi samninganefndanna
var þó ýjað að því að staðfesting
gæti fengist í dag eða á morgun.
Tómas Á. Tómasson, sendiherra ís-
Iands í Moskvu, sagði að ekkert
hefði verið ákveðið um fundi í dag.
Hann væri í símasambandi við for-
mann samninganefndar Sovrybflot
og yrði þegar kallað til fundar, bæ-
rist svar varðandi staðfestinguna.
Á Fáskrúðsfirði eru 40-50 manns
atvinnulausir og útlit Tyrir atvinnu-
leysi fram í febrúar, enda þótt síldar-
samningar takist, að sögn Eiríks
Stefánssonar formanns Verkalýðs-
og sjómannafélags Fáskrúðsfjarðar.
Hjá Pólarsíld á Fáskrúðsfirði vinna
40-50 manns og langflestum verður
sagt upp störfum um næstu helgi
hafi síldarsamningar ekki tekist.
Á Seyðisfirði hafa 30-100 manns
verið atvinnulausir í haust, að sögn
Hallsteins Friðþjófssonar, formanns
verkamannafélagsins Fram. Hjá
Gullbergi hf. á Seyðisfirði hafa um
120 manns unnið við síldarfrystingu
og -söltun í haust og verður meiri-
hluta þessa fólks sagt upp störfum
náist ekki saltsíldarsamningar.
Breytingar á lögum um virðisaukaskatt kynntar í stjórnarflokkunum:
Bækur undanþegnar að ári
VIRÐISAUKASKATTUR verður 26% á verð vöru og þjónustu, eitt
skattþrep, áskrift dagblaða, útvarps og sjónvarps verða undanþeg-
in svo og tímarit og bækur verða undanþegnar skattinum írá og
með 16. nóvember á næsta ári ef frumvarpsdrög þau verða að lög-
um, sem fjármálaráðherra lagði fram til kynningar í þingflokkum
stjórnarflokkanna í gær. Þá verða heilsuræktarstöðvar og öku-
kennsla, aðgangseyrir að tónleikum og leiksýningum undanþegin.
Skatturinn verður endurgreiddur af fiski, mjólk, dilkakjöti og inn-
lendu grænmeti sem samsvari því að þessar vörutegundir beri 13%
skatt, vinna við smíði og viðhald skipa verður undanþegin ef hún
er unnin af skipasmíðastöð og viðurlög við vanskilum þyngjast.
Sala bóka er undanþegin virðis-
aukaskatti í drögunum, séu þær á
íslensku, hvort heldur frumsamdar
eða þýddar. Annar viðauki er um
að sala á heitu vatni og rafmagni
til húshitunar verði undanþegin.-
Nýr kafli er í drögunum settur
inn í lögin og er um endurgreiðslu
virðisaukaskatts. Þar segir: „End-
urgreiða skal hluta virðisauka-
skatts af neyslumjólk, dilkakjöti,
neyslufiski og fersku innlendu
grænmeti þannig að samtals skatt-
greiðslur af þessari matvöru, að
teknu tilliti til endurgreiðslunnar,
verði sem næst 13% í stað 26%.
Fjármálaráðherra ákveður með
reglugerð nánar hvaða matvara
feilur undir þessa málsgrein, svo
og um framkvæmd endurgreiðsl-
unnar.“
Ákvæði eru um endurgreiðslur
vegna íbúðarhúsnæðis og eru þær
í drögunum heimilaðar bæði af
nýbyggingu íbúða og af meirihátt-
ar viðhaldi.
Álag vegna vanskila skal vera
1% fyrir hvern dag fram yfir gjald-
daga, þó ekkj hærra en 10%. í
drögunum er álagið 2% og að há-
marki 20%.
Öll ákvæði draganna eiga að
öðlast gildi 1. janúar næstkom-
andi, nema ákvæðið um bækurnar
16. nóvember á næsta ári.
Að sögn Marðar Árnasonar upp-
lýsingafulltrúa fjármálaráðherra
hefur einnig verið ákveðið að veiði-
íeyfasala í ám og vötnum verði
undanþegin virðisaukaskatti.
Tugir manna eru atvinnulausir á
Eskifirði. Þar hafa 5 stöðvar saltað
samtals 10 þúsund tunnur af síld á
þessari vertíð, sem er einungis fjórð-
ungur þess sem saltað hafði verið á
Eskifirði á sama tíma í fyrra, að
sögn Hrafnkels A. Jónssonar for-
manns verkaiýðsfélagsins Árvákurs.
Hjá Bergsplani hf. á Reyðarfirði
unnu um 30 manns við söltun og
frystingu í haust, þar af 20 aðkomu-
menn. Flestallir starfsmannanna
hafa nú verið sendir heim. Öllu fast-
ráðnu starfsfólki frystihúss Kaup-
félags Héraðsbúa á Reyðarfirði, yfir
30 manns, var sagt upp störfum á
þriðjudag vegna hráefnisskorts, að
sögn Hauks Þorleifssonar formanns
Verkalýðsfélags Reyðarijarðar.
Glettingur hf. í Þorlákshöfn hefur
haft 15-20 manns heima á launum
af og til undanfarnar 3 vikur vegna
þess að Sovétmenn hafa ekki keypt
saltsíld í haust, að sögn Þorleifs
Björgvinssonar framkvæmdastjóra.