Morgunblaðið - 23.11.1989, Blaðsíða 21
MQp,UI)IB,LApiÐ FIMMTUDAGUR..23. NÓVEMBEK ,1989 21
Boðum verkfall
ef við þurfiim
- segir Ragnhildur Guðmundsdóttir,
formaður Félags íslenskra símamanna
„Yið eru baráttuglöð hér hjá símamannafélaginu. Eg er ánægð
með að við skulum vera búin að undirbúa kröfugerð og leggja hana
fram, en mér líst ekkert vel á viðsemjendur okkar frekar en fyrri
daginn. Þeir eru dálítið tregir I taumi og virðast ekki búnir að átta
sig á því að það er komið að því að semja við okkur á ný,“ sagði
Ragnhildur Guðmundsdóttir, formaður Félags íslenskra símamanna,
aðspurð um hvernig henni iitist á þær samningaviðræður sem nú
færu í hönd, en Bandalag starfsmanna ríkis og bæja er með lausa
samninga um mánaðamótin.
L Morgunblaðið/Árni Sæberg
Taflfélag Reykjavíkur hefúr tekið í notkun nýtt félagsheimili við Faxafen 12. Skákklukkur, klukka og
myndir voru meðal gjafa sem félaginu barst þegar heimilið var vígt.
Taflfélag Reykjavíkur
opnar nýtt félagsheimili
TAFLFÉLAG Reykjavíkur hefur tekið í notkun nýtt félagsheimili
við Faxafen 12 en þar keypti félagið ásamt Skáksambandi íslands
um 1200 fermetra húsnæði. Þar af á félgið 930 fermetra. Áætlaður
kostnaður við húsnæðið fullbúið eru rúmar 50 milljónir króna.
Hún sagði að að það væri hróp-
andi mismunur á launum manna
sem ynnu hlið við hlið eftir því
hvort þeir væru í Rafiðnaðarsam-
bandinu eða FÍS. Félögum í Rafiðn-
aðarsambandinu væri borgað betur
en félögum í FÍS og ríkið bæri við
lífeyrisréttindunum, en það þýddi
ekki lengur. Þetta væri bara gert
til þess að halda þeim niðri. Stað-
reyndin væri að það væri borgað
mismunandi eftir stéttarfélögum.
Verslunarráð mót-
mælir jöfimnargjaldi:
Brot á fríversl-
unarsamn-
ingum við
EFTA og EB
- segir Vilhjálmur
Egilsson framkvæmd-
astjóri VÍ
VÉRSLUNARRÁÐ íslands hefúr
sent Ólafí Ragnari Grímssyni
fjármálaráðherra mótmæli
vegna áforma um að afla ríkis-
sjóði 500 milljóna króna tekna á
næsta ári með álagningu 5% jöfh-
unargjalds af innflutningi. „Þetta
jöfnunargjald er brot á fríversl-
unarsamningum okkar við EFTA
og Evrópubandalagið eftir að
virðisaukaskattur verður tekinn
upp um áramót,“ sagir Vilhjálm-
ur Egilsson framkvæmdastjóri
Verslunarráðs.
í bréfi VÍ til ráðherra segir að
jöfnunargjald hafi upphaflega verið
\a,gt á til að jafna samkeppnisstöðu
innlendra framleiðenda vegna upp-
söfnunaráhrifa söluskattsins og
tekjur af gjaldinu hafi verið notaðar
til að standa undir endurgreiðslu á
uppsöfnuðum söluskatti til útflutn-
ingsgreina. Við upptöku virðisauka-
skatts sé uppsöfnunaráhrifum eytt
sjálfkrafa. „Þá verður jöfnunargjald
að hreinum verndartolli sem sam-
ræmist alls ekki hagsmunum þjóð-
arinnar," segir í bréfinu.
Varað er við því, að jöfnunar-
gjaldið geti stefnt íslenskum hags-
munum í tvísýnu, meðal annars í
samningaviðræðum um fríverslun
með fisk.
Þá segir í bréfi VÍ að jöfnunar-
gjaldið muni virka sem gengisföls-
unartæki með því að búa til bil á
milli þess verðs fyrir gjaldeyri sem
innflytjandi þarf að greiða fyrir
innflutning sinn og þess verðs sem
útflytjandi fær fyrir útflutning sinn.
„Með jöfnunargjaldi í virðisaúka-
skattskerfi er gengi krónunnar
einnig falsað á hliðstæðan hátt og
gert hefur verið með uppbótum úr
Verðjöfnunarsjóði fiskiðnaðarins á
frystar sjávarafurðir hin síðari
misseri," segir í bréfinu, og „áfram-
haldandi álagning jöfnunargjalds-
ins stuðlar þannig að óeðlilega háu
raungengi krónunnar.“
tt Ármúla 29 símar 38640 - 686100
P. ÞORGRÍMSSON & CO
Armstrong LDFTAPLDTUR
KORk'D PIAS5T GÓLFFLÍSAR
'SyÁRMAPLAST EINANGRUN
GLERULL STEINULL
Þannig hefði maður í öðru félagi
innan BSRB sótt eftir breytingu á
launum sínum og honum hefði verið
sagt að hann gæti fengið breytingu
ef hann gengi í félag sem væri
innan vébanda Bandalags háskóla-
manna. Þetta ástand væri óþolandi.
„Við erum tilbúin í aðgerðir með
mjög stuttum fyrirvara. Ef okkur
sýnist staðan vera þannig að við
þurfum að boða verkfall þá munum
við gera það,“ sagði Ragnhildur.
Aðspurð sagðist hún ekki útiloka
verkfall fyrir jól, ef nauðsyn krefði.
Búið væri að vinna alla undirbún-
ingsvinnu vegna atkvæðagreiðslu
um verkfali, þannig að það væri
hægt að vinna það mjög hratt ef
til kæmi. „Það þýðir ekkert að
hundsa okkur lengur. Við látum
ekkert aftra okkur. Ef það verður
ekki talað við okkur í fullri alvöru
lítum við á það sem vilja þeirra um
harðari aðgerðir.".
Að sögn Jóns Briem formanns
Taflfélags Reykjavíkur, munu öll
alþjóðleg skákmót verða haldin í
félagsheimilinu í framtíðinni auk
annarra skákmóta. Strax að lokinni
vígslu fór fram skákmót með þát-
töku 200 skákmanna og um kvöld-
ið hófs deildarkeppni Skáksam-
bands Islands, sem stóð alla helg-
ina.
I félagsheimilinu eru þrír skák-
salir og rúmar sá stærsti 160
manns að tafli og er hægt að
tengja hann öðrum sal sem tekur
80 manns. Þriðji salurinn rúmar 40
manns. Þá eru þrjár skrifstofur
fyrir félagið, aðstaða fyrir veitinga-
rekstur og húsvarðaríbúð.
Félagar í Taflfélagi Reykjavíkur
era um 550.
Jóla
markcaáur
Vörumarkaóur allt árió
E
, ■UUOCAWO \mmmm
Ný|ar vorur
Bókamarkaður
Hljómplötur og
s ■ k- i ■ f.-.a-_n geisladiskar
Kápur, úlpur, buxur, blússur, jakkar, pils, krumpugallar, jogginggallar,
barnafatnaður, skyrtur, sokkar, nærfatnaöur, kaffi- og matarstell,
glös og hnífapör og margt, margt fleira.
Við erum í VERSLUNARMIDSTÖÐ VESTURBJEJAR HRINGBRAUT 121
rafsúo vesturbæjar hf. Búsáhöld og gjafavörur
JL
/MIKUG4RDUR
%
RAKARA- 0G HARGREIÐSLUSTOFAN
8olulurn í iL-liúsinu
C^jy GREIFLW
HUSHLUTIR HF.
sími 625045
HRINGBRAUT 119 0 22077
Opið til kl. 22.00 öll kvöld.
ÓSKABLÓMIÐ
S. 625880
PIZZA-RAMI
s. 21066
Vídeoleiga og sölutum
s. 17620
Jjpeimvílafeari
BAKARl K£X4DITQRI KAFFl