Morgunblaðið - 23.11.1989, Blaðsíða 45
MORtUjWBLAÐÍÖ PlMMTöDÁGUR 23. NÓVEMBER' 1989
4*5
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
Haraldur Stefánsson, slökkviliðs-
stjóri, tekur áinóti viðurkenning'-
unni frá Chris Short kapteini.
VARNARLIÐIÐ
Þakkir fyrir
slökkvistörf
Vogum.
Flugmaður F-15 orrustuþotu
varnarliðsins afhenti nýlega
Haraldi Stefánssyni, slökkviliðs-
stjóra á Keflavkurflugvelli, viður-
kenningu með þakklæti til slökkvi-
liðsins sérstaklega fyrir vel unnin
störf er eldur kom upp í flugvél
hans á vellinum nýlega.
FESTINGARJÁRN FYRIf! BURÐARVIRKI
Þ.ÞORGRÍMSSON&CO
ÁRMÚLA29, SÍMI 38640
SKAGASTRÖND
Opin vika
í grunn-
skólanum
Mikil sköpunargleði og fjör
ríkti í Höfðaskóla vikuna
6.-12. nóvember. Þá var haldin í
skólanum opin vika þar sem nem-
endur fengust við ýmis verkefni
sem ekki eru á hefðbundinni
stundaskrá.
Krakkarnir völdu sér viðfangs-
efni eftir áhugasviðum en megin
þema opnu vikunnar var 50 ára
afmæli Höfðahrepps og skólahalds
þar. Unnu krakkarnir meðal ann-
ars að gerð líkana af Skagastrand-
arhöfn og sýndu með þeim hvernig
höfnin hefur þróast upp í það sem
hún er í dag. Nokkrir krakkar út-
bjuggu kaffistofu í kántrý-stíl til
heiðurs Hallbimi Hjartarsyni og
enn önnur unnu og komu fyrir
sýningu á gömlum og nýjum Ijós-
myndum frá Skagaströnd. Þá voru
einnig gerðar myndir og líkön af
skólanum og Skagaströnd eins og
krakkarnir telja að þar verði um-
horfs árið 2039.
Opnu vikunni lauk með sýningu
á vinnu nemenda. Við opnun sýn-
ingarinnar sungu krakkarnir tvö
lög eftir Hallbjörn Hjartarson sem
launaði fyrir sig með því að syngja
tvö lög fyrir viðstadda. Við það
tækifæri færði nemendafélagið
Rán Hallbimi 15 þúsund krónur
sem framlag í ferðasjóð fýrir dótt-
urson hans en eins og kunnugt er
þá gaf Hallbjörn nýlega út hljóm-
plötuna Kántrý 5 til styrktar þess-
um dóttursyni sínum.
Sungið í sal skólans
Kántrýbæ.
. .Komdu í
Morgunblaðið/Ólafur Bemódusson
Hallbjörn var mjög ánægður með framtak krak-
kanna og er vinsæll meðal yngstu kynslóðarinnar.
Þegar fólk hafði skoðað sýning-
una að vild var boðið upp á kaffi
og kökur í Kántrýbæ en það var
nafnið sem krakkarnir völdu á
kaffistofuna sína. Kökurnar höfðu
krakkarnir bakað í vikunni og sáu
þau sjálf um veitingarnar.
Mikið ijölmenni sótti sýninguna
og var skólastjórinn Páll Leó Jóns-
son mjög; ánægður með árangur
opnu vikunnar. Sagði hann
ánægjulegt til þess að vita hve vel
krakkarnir, kennararnir og for-
eldrarnir hefðu unnið saman að
þessu verki.
Nemendur í Höfðaskóla eru um
140 og kennarar 11.
- Ó.B.