Morgunblaðið - 01.12.1989, Page 2

Morgunblaðið - 01.12.1989, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1989 Tillaga um vantraust á ríkisstjórnina felld Fjórir stjórnarsinnar lýstu óánægju sinni með störf ríkissljórnarinnar TILLAGA stjórnarandstöðu- flokkanna um vantraust á ríkis- stjórn Steingríms Hermannsson- ar var felld á Alþingi að loknum umræðum um hana laust eftir miðnættið i gær. 36 þingmenn ríkisstjórnarinnar greiddu at- kvæði gegn tillögunni en 25 stjórnarandstæðingar greiddu henni atkvæði sitt. Tveir þing- menn voru Qarverandi. Við atkvæðagreiðsluna gerðu fjórir þingmenn stjórnarflokkanna grein fyrir atkvæði sínu. Það voru Stefán Valgeirsson, Samtökum um jafnrétti og félagshyggju, Karvel Pálmason, Alþýðuflokki og alþýðu- bandalagsmennirnir Hjörleifur Guttormsson og Skúli Alexanders- son. Allir lýstu þeir yfir nokkurri óánægju með störf núverandi ríkis- stjórnar, en sögðu oanægju sína ekki það mikla að þeir snérust á sveif með stjómarandstöðunni. Búvöruverðs- hækkun frestað AÐ BEIÐNI ríkisstjórnarinnar frestaði verðlagsráð að gefa út nýtt verð landbúnaðarvara í gær meðan athugað er með tilhögun niðurgreiðslna. Reiknað er með að málið skýrist um helgina og að nýtt verð verði gefið út á mánudag. Samkvæmt úrskurði sex manna nefndar, sem reiknar út verð til framleiðenda, þarf verðið að hækka um 4-6% og óbreyttar niðurgreiðsiu í krónutölu þýða meiri hækkun en það. Uppsagnir og aðhalds- aðgerðir á Stöð 2 JÓN Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Stöðvar 2, kynnti strangar aðhaldsaðgerðir á fundi með starfsfólki sjónvarpsstöðvarinn- ar í gær, sem fela í sér að hann sjálfur verður að samþykkja persónulega öll fjárhagsleg út- gjöld Stöðvarinnar hvað varðar dagskrárgerð og alla aðra hluti, sem hafa fjárhagslegan kostnað í för með sér. Brot á þessum regl- um er brottrekstrarsök. Þá var einnig 27 manns hjá Stöð 2 og íslenska myndverinu sagt upp störfum, en hjá báðum fyrirtækjun- um starfa samtals 140-150 manns. Einkum er um dagskrárgerðarfólk að ræða, en ætlunin mun vera að fyrirtækið bjóði út dagskrárgerð í auknum mæli eða fái utankomandi fyrirtæki til að vinna ákveðin verk- efni. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins varðar brot á þeirri reglu að útgjöld séu borin undir fram- kvæmdastjórann tafarlausri upp- sögn starfssamnings. Sama er hvort um er að ræða útgjöld vegna dags- skrárgerðar, ákvarðana um yfir- vinnu, ferðir, veitingahúsakostnað eða annað. Þorsteinn Pálsson: Jón Baldvin hafiiaði samstöðu um EFTA/EB-viðræðumar Morgunblaðið/Ámi jSæberg Einar Oddur Kristjánsson formaður VSI heilsar forystumönnum Verkamannasambands íslandSj Guðmundi J. Guðmundssyni og Karli Steinari Guðnasyni, við upphaf viðræðnanna í húsakynnum VSI í gærmorgun. Viðræður ASÍ, VSÍ og VMS; Annar fiindur á mánudag ASÍ fiindar með ríkisstjórninni í dag FYRSTI viðræðuíundur Alþýðusambands íslands, Vinnuveit- endasambands íslands og Vinnumálasambands samvinnufélag- anna vegna væntanlegra kjarasamninga var haldinn í gærmorg- un og var ákveðið að halda áfram frekari fundarhöldum á mánudaginn kemur í smærri hóp. Þá hefur að beiðni ASI ver- ið ákveðinn fundur með ríkisstjóminni í dag klukkan 14, en ASÍ vill ræða við stjórnvöld um leiðir til þess að færa niður verðlag. Asmundur Stefánsson, forseti ASÍ, sagði að á þessum fundi hefði verið farið yfir samninga- málin, eins og þau litu út frá sjón- armiði hvors samningsaðila um sig. Ennþá væri of snemmt að leggja mat á hvort þessar könnun- arviðræður myndu skila einhveij- um árangri eða ekki. Þórarinn V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri VSI, sagði að það væri jafn Ijóst eftir þennan fund og fyrir hann að hagur fyrirtækj- anna væri afar þröngur, sem sýndi sig bæði í rýmandi eiginfjárstöðu þeirra og í því að mörg þeirra hefðu hætt starfsemi og atvinnu- leysi stungið sér niður. Ut af fyr- ir sig væm menn sammála um að ef verðbólga fer vaxandi á nýjan leik þá myndu þessi áhrif magnast enn frekar. „Að hinu leytinu blasir vanda- málið þann veg við að kaupmáttur hefur rýmað samhliða þessari þróun, sem auðvitað er áhyggju- efni líka, ef ekki tekst að stöðva þá þróun. Viðfangsefnið sem menn standa frammi fyrir er ann- ars vegar að leita leiða til þess að hagur fyrirtækjanna styrkist og að kjararýrnunin stöðvist og menn em sammála um að mikil- vægasta forsenda þess sé sú að það takist að sigla hér til jafn- vægis og komast út úr því verð- bólguforaði sem er búið að vera að drekkja okkur síðustu tvo ára- - tugina," sagði Þórarinn ennfrem- Óráðlegt að óska eftir sérstökum viðræðum, sagði forsætisráðherra Lést af slysförum í UMRÆÐUM um tillögu stjórnarandstöðunnar um vantraust á ríkis- stjórnina á Alþingi í gærkvöldi sagði Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisllokksins að utanríkisráðherra hefði hafiiað samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn um að ná samstöðu um málið á þingi. Steingrím- ur Hermannsson varaði við tillögu sjálfstæðismanna í utanríkismála- nefiid. ' Þorsteinn Pálsson sagði að ríkis- stjórnin hefði ekki þorað að leggja stefnu sína fyrir þingið þar sem hún hefði ekki komið sér saman um marktæka stefnu. Utanríkisráð- herra færi umboðslaus í viðræðurn- ar; veganesti hans væri óvönduð bókun ríkisstjórnarinnar, sem fyrir- varar Alþýðubandalagsins væru hengdir utan á. Þorsteinn sagði að utanríkisráðherra mæti meira að halda Alþýðubandalaginu í stjóm en að leita samstöðu með ábyrgum öflum á þingi. „Sjálfstæðisflokkur- inn var reiðubúinn til slíkra við- ræðna og svaraði fyrirspurn ut- anríkisráðherra þar um jákvætt, en utanríkisráðherra hafnaði slíku samstarfi," sagði Þorsteinn. Steingrímur Hermannsson sagði að samkvæmt Stjómskipun íslands, bók Ólafs Jóhannessonar, þyrfti ekki að leita umboðs Alþingis í málum sem þessu, enda hefði slíkt ekki verið gert áður í svipuðum til- vikum. Steingrímur sagðist hafa varað við tillögu sjálfstæðismanna í utanríkisnefnd, sem gerir ráð fyr- ir umboði Alþingis til handa ut- anríkisráðherra og viðræðum um fríverzlun með fisk. Forsætisráð- herra sagði að hvað síðari hluta til- lögunnar varðaði, væm EFTA-ríkin tilbúin að krefjast fullrar fríverzlun- ar með fisk og það hefði gert það að verkum að íslendingar hefðu lýst sig tilbúna að taka þátt í við- ræðum EFTA og EB. „Þetta út af fyrir sig ætti nú að útiloka flesta drengskaparmenn frá því að snúa við blaðinu og segja: Þótt þið hafið fallizt á þessa kröfu okkar ætlum við samt að kreíjast beinna form- legra viðræðna við Evrópubanda- lagið,“ sagði Steingrímur. Hann sagði að aukinheldur hefðu margir hátt settir menn í Evrópubandalag- inu ráðlagt íslendingum að fara ekki í beinar viðræður við EB nema fríverzlun með fisk fengist ekki í EFTA/EB-viðræðunum. Jón Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra sakaði sjálfstæðis- menn um að vera valdir að því að hann væri staddur á landinu, þar sem hann ætti að vera farinn til útlanda að ræða samninga EB og EFTA. Hann sagði að það athæfi sjálfstæðismanna að bera fram van- trauststillögu í miðjum þessum við- kvæmu samningum hefði valdið óróa hjá valdamönnum EFTA og EB. „Sendiherra íslands í Brússel hefur orðið að standa upp á þessum fundi til þess nánast að biðjast vel- virðingar og eyða ótta manna og óróa um að þetta upphlaup Sjálf- stæðisforystunnar tákni það að Is- lendingar séu horfnir frá þeirri stefnu, sem mótuð hefur verið und- ir þeirra verkstjóm," ságði Jón Baldvin. Maðurinn sem lést þegar flutn- ingabíll hans lenti út af vegi á Öxnadalsheiði á þriðjudagskvöld hét Sveinn Stefánsson, 49 ára gam- all, til heimilis að Ægisbyggð 6 á Ólafsfirði. Hann lætur eftir sig eig- inkonu og fjórar dætur. Þorsteinn Pálsson formaður Sjálf- stæðisflokksins sagði að þar kæmi fram að raunvextir á lánum sjávarút- vegsins miðað við innlent verðlag hefðu hækkað frá árinu 1988 úr 10,8% í 13,3% á þessu ári. „Hvernig ætlar svo forsætisráðherra að gera grein fyrir öllum fullyrðingum sínum um að handleiðsla hans hafi leitt til lægri raunvaxta fyrir sjávarútveginn í landinu?" sagði Þorsteinn. Steingrímur Hermannsson forsæt- isráðherra sagði furðulegt að hlusta á þetta, þar sem skýrslan sýndi helm- ingslækkun raunvaxta miðað við lánskjaravísitölu frá stjórnartíð Þor- steins. Ný greinargerð Seðlabanka íslands: Raunvextir orðnir lægri en í helstu viðskiptalöndum SEÐLABANKI Islands telur að enginn vafi leiki á því að raunvextir hér á Iandi séu nú að jafnaði lægri en í hclstu viðskiptalöndum íslcndinga. Bankinn telur hins vegar ekki útlit fyrir í bili að raunvextir muni lækka frekar við núverandi aðstæður vegna mikillar lánsfjárþarfar ríkissjóðs um þessar mundir og að ekki séu vonir til þess, að verðbólgan minnki að ráði fyrr en eflir áramótin. í útreikningum Seðlabankans á raunvöxtum á þessu ári er miðað við framfærsluvísitölu. Bankinn telur ekki hægt að líta á nafnvexti verð- tryggðra lána sem raunvexti ef hin nýja lánskjaravísitala breytist með öðrum hætti en vísitala framfærslu- kostnaðar, en það hefur einmitt gerst á þessu ári. Þannig er meðaltal vaxta verðtryggðra lána banka og spari- sjóða fyrstu níu mánuðiha í ár 7,8% en sé miðað við breytingu fram- færsluvísitölu urðu raunvextir á þessu tímabili aðeins 4,7%. Á síðast- liðnu ári voru raunvextir verð- tryggðra lána 9,2%. Það er því niður- staða Seðlabankans að raunvextir hafi lækkað um nálægt helming á milli þessara tveggja tfmabila. Skýrsla Seðlabankans kom til umræðu er rætt var um vantraust á ríkisstjómina á Alþingi í gærkvöldi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.