Morgunblaðið - 01.12.1989, Blaðsíða 39
39
Pftí>r rvrn '\n tlTTTÖfllrtl , . ,
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1989
Atli Hilmarsson.
Atli og Geir
Kataíónfu-
meistarar
„ÚRSLITALEIKURINIM var ekki
mjög vel leikinn. Eins og alltaf,
þegar þessi tvö lið mætast, sat
harkan ífyrirrúmi og spennan
var mikil í lokin. Okkur gekk
mjög erfiðlega með Vujovic í
fyrri hálfleik, en breyttum vörn-
inni úr 6-0 í 3-2-1 vörn eftir hlé
og gekk þá mun betur,“ sagði
Atli Hilmarsson hjá Granollers
við Morgunblaðið eftir 25:25
jafntefli gegn Barcelona í úr-
slitum um Katalóníubikarinn.
Grariollers nægði jafntefli vegna
markatölunnar, en úrvalsliðin
þrjú í Katalóníu tóku þátt. Granoll-
ers vann Palantordera 30:15 og
gerði Atli þá fjögur mörk, en Geir
Sveinsson þijú mörk. Barcelona
sigraði Palantordera hins vegar
með 14 mörkum, 32:18.
Barcelona byijaði betur í úrslita-
leiknum og var yfir í hálfleik, 16:11.
Þegar fimm mínútur voru til leiks-
loka náði Granollers loks foryst-
unni, 23:22 og aftur 24:23, en
Barcelona komst í 25:24. Granollers
fékk boltann, er hálf mínúta var til
leiksloka og þá voru Vujovic og
Grau hjá Barcelona reknir út af.
Er fimm sekúndur voru eftir fékk
Granollers aukakast, gefið var á
Atla í hominu, sem jafnaði og
tryggði Granollers þar með titilinn
í þriðja sinn, en Barcelona hefur
unnið sex sinnum.
Atli og Geir gerðu þijú mörk
hvor fyrir Granoliers, en Vujovic
var markahæstur hjá Barcelona
(12/6).
IRcvöld
TVEIR leikir verða í 2. deild karia
í handknattleik i kvöld. Fram og Þór
frá Akureyri hefja leik í Laugardals-
höll kl. 19.00 og strax á eftir, ki.
20.15, hefst viðureign Ármanns og
Selfoss í sömu deild. Missagt var í
blaðinu í gær þessi leikir hefðu verið
á dagskrá í gærkvöldi.
■ ÍR og KR mætast í 1. deild kvenna
í körfuknattleik í kvöid kl. 20.00 í
íþróttahúsi Seþaskóla.
FELAGSLIF
Aðalfundur knatt-
spyrnudeildar Fram
Aðalfundur knattspyrnudeildar
Fram verður haldinn í kvöld. Hann
hefst kl. 20.00 í Framheimilinu.
KNATTSPYRNA / 3. DEILD
Spamaðarleið!
Nýstárlegri hugmynd hefur verið skotið á loft af meðiimum 3. deildar-
liðs TBA í knattspyrnu á Akureyri. Til að sporna við þeirri útgjalda-
aukningu sem því fylgir að deildin verði ekki lengur svæðaskipt næsta
sumar, heldur með sama fyrirkomulagi og efstu deildirnar tvær — þar
sem tíu lið mætast heima og að heiman. Þeir íhuga einfaldlega að koma
upp Suðurlandsdeild TBA, skipaðri burtfluttum Akureyringum, sem myndu
spila útileikina. Það sé nefnilega mun ódýrara að senda búningasettið
suður heldur en að borga flugfar fyrir 16 leikmenn í hvern útileik!
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
„Vona að sam-
komulag náist
íi
Landsliðsnefnd HSÍ fundaði í
gær um viðbrögð 1. deildar
félaga vegna fyrirhugaðra æf-
ingabúða landsliðsins í næstu
viku, sem greint var frá í blaðinu
í gær, og var ákveðið að halda
settri stefnu.
„I vor var fyrsta vikan í des-
ember tekin frá og ætluð til lands-
leikja og æfinga fyrir HM. Ekki
tókst að fá landsleiki á þessum
tíma þrátt fyrir ítrekaðar tilraun-
ir, en við viljum nýta tímann til
æfinga og ég vona að samkomu-
lag náist við þá, sem ráða yfir
leikmönnunum,“ sagði Gunnar
Þór Jónsson,_ formaður landsliðs-
nefndar HSÍ, m.a. við Morgurt-
blaðið í gær.
SKÍÐI / HM
Reuter
Urs Kalin frá Sviss fagnar sigri
sínum í stórsviginu í gær.
Tomba og Kálin
fagna sigri
MT
Ítalinn Alberto Tomba sigraði í
fyrsta skipti á heimsbikarmóti á
þessum vetri, er hann fékk besta
tímann í báðum ferðum í svig-
keppni í Waterville Valley í Banda-
ríkjunum í fyrradag.
Tímar efstu manna urdu þessin
1. Alberto Tomba, Ítalíu............1:56.24
.......................(57.96 - 58.28)
2. Pinnin Zurbriggen, Sviss.................1:57.97
..................'...,..(59.15-58.82)
3. Marc Girardelli, Lúxemborg.........1:58.55
......................(59.46 - 59.09
4. Ole Chr. Furuseth, Noregi........1:58.59
.......................(59.40-59.19)
I gær fór svo fram stórsvigs-
keppni karla á sama stað, og var
hún einnig hluti af heimsbikar-
keppninni. Sigui’vegari varð Urs
Kálin frá Sviss. Efstu menn urðu
annars þessir:
1. Urs Kálin, Sviss.................2:38.49
..................(1:17.08-1:21.41)
2. Lars-Böije Eriksson, Svíþjóð.....2:38.75
..................(1:17.84-1:20.91)
3. Gunther Mader, Austurríki........2:39.13
..................(1:17.60 - 1:21.53)
4. Martin Hangl, Sviss..............2:39.29
..................(1:16.13-1:23.16)
5. Marc Girardelli, Lúxemborg.......2:39.53
..................(1:17.95- 1:21.58)
6. Hans Pieren, Sviss...............2:39.61
..................(1:17.40 - 1:22.21)
7. Pirmin Zurbriggen, Sviss.........2:39.84
..................(1:17.94- 1:21.90)
KORFUKNATTLEIKUR / URVALSDEILDIN
Nítján þriggja stiga
körfur á Akureyri
51
í fjörugum leik Þórs og Hauka. Kanalaus-
ir Grindvíkingar sigruðu Reynismenn
ívar Webster lék mjög vel gegn
sínum gömlu félögum í Þór á Akur-
eyri í gærkvöldi.
Á þriðja hundrað stig voru
skoruð í íþróttahöilinni á Akur-
eyri er Haukar lögðu Þór að
velli með 115 stigum gegn 101.
Leikur þessi var hinn líflegasti
og sýndu hvort iið um sig oft
á tíðum skínandi leik.
Sigur Hauka, sem var all örugg-
ur. byggðist að miklu leyti á
vel útfærðum hraðaupphlaupum og
styrk ívars Webster undir körfunni
en hann gerði alls
Magnús Már 28 stig í leiknum.
skrifar Honum fremri var
þó Ameríkumaður
Þórs, Dan Kennard,
er átti firnaleik og gerðu 40 stig.
Haukar höfðu frumkvæðið frá
upphafi til enda ef undan er skilin
fyrsta mínútan en það kom í hlut
Dans að opna leikinn með þriggja
stiga körfu, þær urðu alls 19 í leikn-
um, Haukar gerðu 10 og Þórsarar
9, og áðurnefndur Dan gerði alls
sex slíkar. Sem fyrr segir voru það
hraðaupphlaup Hauka er lögðu
grunninn að sigri' þeirra og áttu
heimamenn í hinum mestu örðug-
leikum að stemma stigum við þeim.
Engu að síður léku Þórsarar vel,
betur en oft áður, en virðast gjarn-
an mæta Haukum í formi. Sigur
Hauka, 14 stig, var sum sé all ör-
uggur en þeir fengu að hafa fyrir
hlutunum og sú smán er Þór varð
fyrir á haustdögum, 61:120 til-
heyrir liðinni tíð.
Grindvíkingar í basli með
Reynismenn
Grindvíkingar sigruðu Reynis-
menn eins og við var búist í
Sandgerði í gærkvöldi, en mót-
spyrna Sandgerðinga sem hófu leik-
I inn ákaflega illa
Björn . kom á óvart og með
Blöndal sama áframhaldi
skrifar verður þess ekki
langt að bíða að þeir
nái að sigra í sínum fyrsta leik.
Lokatölurnar urðu 80:63, eftir að
staðan í hálfleik hafði verið 38:20.
Reynismönnum gekk illa að kom-
ast í gang. Grindyíkingar léku án
David Grissom Bandaríkjamaður-
inn hjá Reyni, stjórnaði liðinu af stakri
prýði í gær, en það dugði þó ekki til
sigurs.
Bandaríkjamannsins Jeff Nuli sem
fyrr um daginn hafði haldið heim
á leið eftir að hafa fengið pokann
sinn. Þeir náðu fljótlega 18 stiga
forskoti 4:22 og eflaust hafa fæstir
reiknað með að heimamenn ættu
nokkra möguleika eftir það. En
Reynisliðið undir stjórn David Gris-
som náði að minka muninn niður í
4 stig í síðari hálfleik 60:64, en þá
var púðrið búið og Grindvíkingar
réðu lögum og lofum á vellinum
síðustu mínúturnar.
Þetta er annar leikurinn í röð sem
Reynismenn hafa sýnt tennurnar,
en í báðum leikjunum misstu þeir
móðinn á lokamínútunum, gegn ÍR
um síðustu helgi og nú gegn UMFG.
Grindvíkingar hafa eflaust ætlað
sér of mikið eftir góða byijun og
lítið skipulag var á leik þeirra, eða
þar til undir lokin. Athygli vakti
ungur leikmaður Marel Guðlaugs-
son - þar er mikið efni á ferð.
íþróttir eru
einnig á bls. 37
Þór - Haukar 101:115
íþróttahöllin á Akureyri, Úrvalsdeildin í
körfuknattleik, fimmtudaginn 30. nóvember
1989.
Gangur leiksins: 3:0, 3:10, 14:21, 20:27,
29:29, 40:42, 44:55, 50:60, 55:67, 66:79,
74:95, 78:101, 90:101, 97:1G7, 101:115.
Stig Þórs: Dan Kennard 40, Konráð
Óskarsson 22, Jón Örn Guðmundsson 19,
Jóhann Sigurðsson 8, Guðmundur Björns-
son 8, Eiríkur Sigurðsson 4.
Stig Hauka: ívar Webster 28, Jonathan
Bow 22, Henning Henningsson 20, ívar
Ásgrímsson 14, Jón Arnar Ingvarsson 13,
Pálmar Sigui-ðsson 8, Reynir Kristjánsson
7, Hörður Pétursson 2.
Áliorfendun Um 200.
Dómarar: Jón Bender og Bergur Steingr-
ímsson. Voni þokkalegir.
Reynir - UMFG 63:80
íþróttahúsið í Sandgerði, Úrealsdeildin
körfuknattleik, fimmtudaginn 30. nóvember
1989.
Gangur leiksins: 0:4, 1:4, 1:13, 4:22,
13:26, 18:26, 20:36, 22:38, 28:40, 35:45,
41:51, 48:53, 54:64, 60:64, 60:74, 63:80.
Stig Reynis: David Grissom 28, Ellert
Magnússon 12, Jón Guðbrandsson 6, Sigur-
þór Þórarinsson 5, Sveinn H Gíslason 4,
Jón Ben Einarsson 3, Ámi Bjöm Erlingsson
3, Helgi Siguiðsson 2.
Stig UMFG: Guðmundur Bragason 22,
Hjálmar Hallgrímsson 15, Ólafur Jóhanns-
son 15, Marel Guðlaugsson 12, Steinþór
Helgason 7, Rúnar Árnason 5, Eyjólfur
Guðlaugsson 2, Sveinbjöm Sigurðsson 2.
Áhorfendur: Um 50.
Dómarar: Helgi Bragson og Leifur S. Garð-
arsson.
Dan Kennard, Þór. ívar Webster og Jonath-
an Bow, Haukum. David Grissom, Reyni.
Konráð Óskarsson og Jón Öm Guðmunds-
son, Þór. Henning Henningsson, Ilaukum.
Guðmundur Bragason, Hjálmar Hallgríms-
son og Marel Guðlaugsson, UMFG. Ellert
Magnússon, Reyni.
ÚRSLIT
Körfuknattleikur
NBA-deildin í fyrrmótl:
Indiana Paeers - Utah Jazz.........100:88
Philadelphia - Cleveland...........114:84
Boston Celtics - New Jersey........118:95
Atlanta - Washington.............111:104
Minnesota - Miami Heat.......... 105:100
Dallas - Charlotte Homcts..........102:83
Detroit - Phoenix Suns___________ 111:103
Knickerb. - Goldon State..........129:111
Milwaukee - LA Clippers...........117:103
Handknattleikur
2. deild karla:
Njarðvík - FH b.....................29:34
2. deild kvenna:
Selfoss - Afturelding............. 19:16
Knattspyma
V-þýska úrvalsdeildin:
SL Pauli - Fortuna Dússeldorf.........2:1
Spænska bikarkeppnin:
Real Madrid - Atl. Madrid.............2:0
■Þetta var síðari viðureign liðanna. Þeirri
fyrri lauk með markalausu jafntefli, og fer
Real því áfram — í átta liða úrslit. Mexí-
kóbúinn Hguo Sanches Jerði ba>ði mörkin
l í gær; á 35. og 83. mín.