Morgunblaðið - 01.12.1989, Page 11

Morgunblaðið - 01.12.1989, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1989 11 skrifstofum miðbæjarins velkomið til okkar og nú sérstaklega til síðdegisbænanna. Byggjum sam- eiginlega upp í okkur sanna éftir- væntingu jólanna. Jakob Hjálmarsson, dómkirkjuprestur. Dómkirkjan: Síðdegisbænir Á JÓLAFÖSTUNNI verður bænagjörð í Dómkirkjunni mánudaga til föstudaga kl. 17.15 og á laugardögum kl. 18.00, í fyrsta sinn laugardaginn 2. des- ember. Lesin verður kvöldtíð sem er bænargjörð sem byggist upp á samlesnum ritningargrein- um og bænum. Það er jafngamalt kristindómin- um að hinir kristnu komi saman kvölds og morgna í smærri eða stærri hópum til að gera bæn sína. Verk sín og daglegar athafnir mið- uðu þeir gjaman við morgunsöng og aftansöng og klukknahringingar á þeim tíðum mörkuðum upphaf og endi dags. í nútímanum hafa menn iðulega fundið til þarfar fyrir kyrrð í erli daganna og leita hennar á ýmsum stöðum. Við í Dómkirkjunni bjóðum upp á sambæn í skjóli þykkra múra og kyrrð hins gamal- gróna guðshúss sem helgað er af bænum kynslóðanna. Fyrir jólin er íjölmenni í gamla miðbænum um þetta leyti dags. Fólk í jólinnkaupum og ýmsir á leið frá vinnu. Gott er í senn að geta komið inn í kyrrð helgidómsins úr ys og þys jólaundirbúningsins og fá tækifæri til að sinna þeim jó- laundirbúningi sem mestu varðar. Síðdegisbænin er hugsuð sem kyrrlát stund til ritningarlesturs, hugleiðingar og sambænar á virk- um dögum. Á laugardögum er um að ræða eiginlegan aftansöng með orgelleik og sálmasöng. Þá hefst bænin kl. 18. Við í Dómkirkjunni bjóðum íbúa og vegfarendur og þá ekki síst það fólk sem starfar á hinum fjölmörgu Viðtalstími borgarfulltrúa <%v Sjálfst æðisflokksins í Reykjavik Munir á Listmunamarkaði Hlaðvarpans. ■ GÖTULEIKHÚSIÐ verður með Jólasmiðju fyrir börn alla laugardaga í desember í tengslum við Listmunamarkað Hlaðvarp- ans að Vesturgötu 3. Börnin fá að föndra, syngja og dansa, hitta jóla- sveina og aðrar skpmmtiloo'ar ævin- týraverur. Foreldrar geta gert jóla- innkaupin í Hlaðvarpanum og Gamla miðbænum í ró og næði meðan Götuleikhúsið hefur ofan af fyrir börnunum gegn vægu gjaldi. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisfiokksins verða til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1, á laugardögum í vetur frá kl. 10-12. Er þá tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum ogábendingum. Allir borgarbúar velkomnir. Laugardaginn 2. desember verða til viðtals Jóna Gróa Sigurðardóttir, formaður atvinnu- málanefndar, í stjórnum bygginganefndar aldraðra og SVR, og Guðmundur Hallvarðs- son, formaður hafnarstjórnar. HAGSTŒTT VERfl Leðurklæddir hvíldarstólar með skemli. 5 litir. Margar gerðir. Verðfrá kr. 27.000,- stgr. Myndbandsskápar 3 gerðir. VALHÚSGÖGN Ármúla 8, . sími 82275. VERKSMIDJU- Góðar jólagjafir ó hagstæðu verði. Opið daglega frá kl. 12-18. Laugardaga frá kl. 10-16 í MAX-hÚSÍnU (v/hliðina á Haugkaup, Skeifunni). U n @0*10.1 peysur - lcewear peysur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.