Morgunblaðið - 01.12.1989, Side 18

Morgunblaðið - 01.12.1989, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1989 Sjávarútvegs- ráðherrar EB: Aherslubreyt- ing í fiskveiði- samningum Brussel. Frá Kristófer Má Kristóferssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Sjávarútvegsráðherrar Evrópu- bandalagsins (EB) ákváðu á fundi sem lauk á mánudagskvöld að fela framkvæmdastjórn bandalagsins að undirbúa ramma utan um sam- skipti EB við ríki utan bandalags- ins. Ákvörðunin byggist m.a. á reynslu bandalagsins af samninga- viðræðum við Sovétrikin í Eystra- salti. En i þeim er orðið ljóst að á Eystrasalti er ekki þann afla að fá sem dugir til samninga og Sov- étríkin vilja m.a. fá veiðiheimildir í Norðursjó. Það sem m.a. gæti falist í hug- myndum ráðherrafundarins eru breyttar áherslur að því er varðar aðgang að mörkuðum EB fyrir sjáv- arafurðir. Hugsanlegt er að í stað þess að krefjast veiðiréttinda fyrir aðgang að mörkuðum verði EB til- búið til samninga sem feli í sér tækn- iaðstoð eða samstarfsverkefni á milli fyrirtækja í sjávarútvegi innan bandalagsins við fyrirtæki utan þess. Jacques Mellick, sjávarútvegsráð- herra Frakklands, sagði, að stefna EB gagnvart ríkjum utan bandalags- ins væri óbreytt. Spurningin væri hvort ekki bæri að líta á samninga í víðara samhengi, allt væri breyting- um undirorpið og í fiskveiðistefnunni vrði að taka tillit til breyttra að- stæðna í framtíðinni. Hann sagði að ljóst væri, að sú stefna að kaupa veiðileyfi gengi ekki til frambúðar. Hætta á bardögum í Líbanon: Hrawi segist vilja af- stýra blóðsúthellingum Beinit. Reuter, Daily Telegraph. TUGÞUSUNDIR manna söfnuðust saman fyrir utan höll Líbanons- forseta í Beirút í gær og sögðust ætla að slá skjaldborg um Michel Aoun, fyrrum herstjóra, sem neitar að fara úr höllinni þótt nýr forseti hafi verið kjörinn. Sýrlenski herinn er með mikinn viðbúnað í borg- inni og hafa þúsundir borgarbúa flúið hana af ótta við að harðvítugir bardagar brjótist út að nýju. Elias Hrawi, nýkjörinn forseti landsins, sagðist þó í gær vilja komá í veg fyrir blóðsúthellingar. Reuter Sýrlenski herinn var í gær með mikinn viðbúnað við „grænu línuna", sem aðskilur austur- og vesturhluta Beirút, og óttast var að bardag- ar brytust þar út að nýju. Á myndinni er sýrlenskum skriðdreka ekið í átt að línunni, þar sem fjöldi hermanna bíður eftir fyrirmælum um að láta til skarar skríða gegn Michel Aoun, fyrrum herstjóra, sem neitar að fara úr forsetahöllinni þótt nýr forseti hafí verið kjörinn. Frönsk stjórnvöld hafa sent her- skip til iandsins til að flytja á brott Frakka, sem búsettir eru í Beirút, vegna stríðshættunnar. Selim Hoss, forsætisráðherra landsins, sem er úr röðum múslíma, sagði að stjórn sín væri fær um að koma Aoun frá með friðsamlegum hætti en gaf í skyn að valdbeiting kæmi til greina ef allt annað bregst. Hrawi, sem var kjörinn forseti á föstudag eftir að fyrirrennari hans var myrtur, gaf Aoun tveggja daga frest á sunnudag til þess að draga sig í hlé, eila ætti hann á hættu að beitt yrði valdi. Hann sagðist í gær ætla að beit sér fyrir friðsamlegri lausn málsins. „Ég vil ekki að tii neinna blóðsúthellinga komi, hvorki í Beirút né annars staðar í Líbanon," bætti hann við. Talið er að um 16.000 sýrlenskir hermenn hafi verið fluttir að grænu línunni,. sem aðskilur Austur- og Vestur-Beirút, auk þess sem 90 skriðdrekum, 120 stórskotaliðsbyss- um og 40 flugskeytapöllum hafi ver- ið komið þar fyrir. Um 15.000 her- menn eru reiðubúnir að berjast fyrir Aoun. Fimmtíu ár frá upphafí Vetrarstríðsins: Sovéskir ijölmiðlar for- dæma árásina á Finnland Moskvu. Reuter. SOVÉSKIR fjölmiðlar minntust í gær upphafs finnska Vetrar- stríðsins fyrir fímmtíu árum með því að fordæma árás Sovétríkj- anna. Til dæmis segir Trud, dag- blað verkalýðshreyfingarinnar, í grein undir fyrirsögninni „Stríðið sem aldrei hefði þurft að verða“ Rændu Rúmenar Comaneci eða flúði hún til Vesturlanda? Búdapest. Reuter. EKKERT sást í gær til rúmensku fimleikastjörnunnar Nadia Com- aneci, en hún hafði flúið til Ungverjalands á þriðjudag. Orðrómur er á kreiki um að hún hafi farið til Vesturlanda og vangaveltur eru einn- ig um að rúmenska öryggislögreglan hafi rænt lienni. Comaneci fór yfir landamærin til suðurhluta Ungveijalands ásamt sex öðrum Rúmenum. Ungverska íþróttadagblaðið Nepsport skýrði frá því í gær að Bandaríkjamaður, sem hún hefði þekkt í sjö ár, hefði tekið á móti henni við landamærin. Blaðið nafngreindi ekki manninn. Síðast sást til Comaneci og félaga hennar á hótelbar í bænum Szeged í Suður-Ungveijalandi á þriðjudags- kvöld. Talsmaður innanríkisráðu- neytisins sagði að hún hefði ekki getað farið úr landinu á löglegan hátt. Ungverska dagblaðið Magyav Nemzet hafði eftir fimleikastjörnunni að hún hefði áhyggjur af því að rúm- enska öryggislögreglan rændi henni. Comaneci átti um tíma í ástarsam- bandi við Nicu, son Nicolae Ceauses- cu Rúmeníuforseta. Hún er sögð hafa heimsótt Ceausescu-fjölskyld- una reglulega og átt góð samskipti við forsetann. Ungverska útvarpið hafði eftir fimleikastjörnunni að hún hefði flúið þar sem henni hefði ekki verið heimilað að ferðast eða starfa erlendis. að sovéska forystan haíí borið íulla ábyrgð á hinum sorglegu atburðum 30. nóvember árið 1939. Dagblað hersins Krasnaja Zvezda getur þess sérstaklega að árásin liafi valdið því að Sovétríkjunum var vísað úr Þjóðabandalaginu. Júríj Gremitskikh, talsmaður sov- éska utanríkisráðuneytisins, viður- kenndi í gær á blaðamannafundi að sovésk stjórnvöld kynnu að hafa hagrætt staðreyndum í sambandi við Vetrarstríðið. Hann bætti því þó við að báðir aðilar hefðu borið ábyrgð á þeirri tortryggni sem ríkti milli land- anna um þetta leyti er nasistar í Þýskalandi voru á góðri ieið með að ýta Evrópu fram af styijaldarbarm- inum. í Helsinki var í gær afhjúpaður minnisvarði um óbreytta borgara sem létu lífið í sprengjuárásum í Vetrarstríðinu og . seinna stríðinu milli Finnlands og Sovétríkjanna árin 1941-1944. Minningarathafnir fóru fram víðs vegar um Finnland í gær en 25.000 finnskir hermenn féllu í Vetrarstríðinu sem stóð í 105 daga í miklum vetrarhörkum. í leynfsáttmála Hitlers og Stalíns árið 1939 féll Finnland undir áhrifa- svæði Sovétríkjanna. Átök brutust út 30. nóvember það ár þegar Finnar neituðu að láta undan kröfum Sovét- manna um herskipalægi og finnskt landsvæði. Sovéskum flugvélum var flogið frá Eistlandi og sprengjum varpað á Helsinki og aðrar finnskar borgir. Finnar unnu sigra í upphafi en síðar hallaði undan fæti og þeir misstu tíunda hluta lands sín í hend- ur Sovétmönnum. Manntjón varð meira hjá Sovét- mönnum. Pravda, málgagn komm- únistaflokksins, segir að 70.000 sov- éskir hermenn hafi fallið. Finnar segja að á milli 200.000 og 250.000 Sovétmenn hafi látið lífið. Aljfiped Herrhausen, sljórnarformaður Deutsche Bank, myrtur: „Til þess að móta umhverf- ið þarf maður að hafa áhrif ‘ Die Zeit. ALFRED Herrhausen, stjórnarformaður Deutsche Bank, sem myrtur var í gær, var tvímælalaust áhrifamesti Qármálamaður Vestur-Þýskalands. Forustyhlutverk sitt öðlaðist Herrhausen ekki einungis sjálfkrafa með því að vera stjórnarformaður stærsta banka landsins sem á stóra hluti í Daimler Benz og öðrum stórfyr- irtækjum, heldur var persónuleiki hans slíkur og metnaður að hann hlaut að vera í fararbroddi. Á óskráðum virðingarlista yfir fjármála- og athafnamenn í Vest- ur-Þýskalandi tróndi Alfred Herr- hausen efstur. Herrhausen, sem var 59 ára gamall, sætti sig ekki við að Deutsche Bank væri stærsti banki Vestur-Þýskalands heldur vann hann markvisst að því að hasla bankanum völl í alþjóðavið- skiptum. Að þessu leyti var Herr- hausen eins og stórfiskur í gull- fiskabúri. Hann leit á allan heim- inn sem sinn vígvöll og var eini þýski viðskiptajöfurinn sem veru- íegt mark var tekið á á alþjóða- vettvangi. Sérstæður persónuleiki Sérstæður persónuleiki Herr- hausens kom vel í ljós um síðustu áramót þegar hann átti að halda ræðu í Formanna- og fram- kvæmdastjóraklúbbnum í Frank- furt. Þegar fréttist að Herrhausen hefði þurft að gangast undir upp- skurð um jólin töldu gestirnir hann löglega afsakaðan. Oðru nær. Herrhausen kom á hækjun- um og hélt óvenjulega ræðu sem enn lifir í munnmælum manna. Ávarpið snerist um hættur hinnar röngu hugsunar. í stað þess að freista þess að ná athygli við- staddra með kímnisögum vitnaði Herrhausen í Rosu Luxemburg, kommúnistaleiðtoga, og Robert Spaemann, heimspeking í Múnch- en. Í lokin bað Herrhausen við- stadda að skála fyrir „hinni réttu hugsun; ábyrgð í stjórnmálum, viðskiptum og einkalífi til þess að forðast mótsagnii' og villu.“ Sjálf- ur sagðist Herrhausen sækja hug- myndir sinar til heimspekingsins Karls Poppers sem „ætíð leggur áherslu á hversu þekking okkar er brotakennd og ófullkomin". Herrhausen fæddist og ólst upp í Ruhr-héraðinu. Faðir hans var verkfræðingur hjá Ruhrgas. Herr- hausen ætlaði sér fyrst að verða kennari en eftir stríðið fékk hann hvergi inni í skóla sem hann gat fellt sig við. Þá sneri hann sér að hag- og viðskiptafræði og afl- aði sér fjár fyrir náminu með því að vinna við námugröft. Föðurlandsvinur Fyrir tuttugu árum réðst hann til Deutsche Bank í Frankfurt eftir að hafa vérið fjármálastjóri Vereinigte Elektrizitátswerke Westfalen í Dortmund. Árið 1985 varð hann annar tveggja stjórnar- formanna Deutsche Bank. Tveim- ur árum síðat' lét félagi hans af störfum og þá varð hann æðsti stjórnandi bankans og þar með áhrifamesti kaupsýslumaður landsins. í rúm tuttugu ár var Herrhausen náinn vinur Helmuts Kohls núverandi kanslara, báðum var sérlega hugleikin staða Vest- ur-Þýskalands í heimi framtíð- arinnar. Ólíkt mörgum löndum sínum var „Don Alfredo", eins og Kohl kallaði Herrhausen gjarna, ófeiminn við að játa að hann unni laridi sínu, Sambandslýðveldinu. „Ég er stoltur af því sem við höf- um fengið áorkað," sagði hann. Herrhausen fór ótroðnar slóðir. Árið 1987 á ársfundi Alþjóða gjaldeyrissjóðsins og Alþjóða- bankans sýndi hann rnikið hug- rekki er hann þorði fyrstur frammámanna í hinum vestræna bankaheimi að ræða opinskátt þann möguleika að þriðja- heimsríkin gætu ekki greitt allar sínar skuldir. Það átti eftir að Alfred Herrhausen. koma í ljós að fyrirhyggjan sem Deutsche Bank sýndi með því að afskrifa smám saman útistand- andi skuldir þriðja hejmsins borg- aði sig í harðri samkeppni. Blaðamenn gagnrýndu Herr- hausen gjarna fyrir að vera valda- gráðugur og óheyrilega metnað- arfullui', kaldur og hrokafullur. Honum sárnaði þessi lýsing og sagði menn ekki gera sér grein fyrir hvert væri hreyfiaflið í ævi- starfi hans: „Auðvitað er óhugs- andi að maður í minni stöðu hafi ekki áhuga á völdum. Ég vil eiga þess kost að móta umhverfið og til þess að það sé hægt þarf mað- ur að hafa áhrif. Leiðarljós mitt er viðleitnin til fullkomnunar í því sem ég geri.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.